| |
| 1. 2508252 - Jólaþorpið 2025 | | Rætt um framkvæmd Jólaþorpsins og tengdra viðburða í jólabænum. | | Menningar- og ferðamálanefnd fagnar fjölda gesta sem heimsótt hefur jólabæinn og hlakkar til komandi helga. Nefndin þakkar starfsfólki, söluaðilum í jólahúsum, í Hellisgerði og á Strandgötunni fyrir hlýlegar móttökur, þátttöku og glæsilega umgjörð. | | |
|
| 2. 2511044 - Jólaskreytingarkeppni 2025 | | Auglýst hefur verið eftir ábendingum frá íbúum um skreyttustu húsin í Hafnarfirði. Menningar- og ferðamálanefnd mun fara yfir ábendingar og veita viðurkenningar fyrir bestu jólaskreytingarnar laugardaginn 20.desember í Jólaþorpinu. | | Hægt verður að senda inn ábendingu til og með 15. desember á vef Hafnarfjarðarbæjar, sjá nánar á hfj.is/jol | | |
|
| 3. 2406483 - Ferðamenn í Hafnarfirði, tölfræði | | Farið yfir mælaborð ferðaþjónustunnar og talningar á fjölförnum stöðum þá sér í lagi Helgafell og Seltún. | | |
|
| 4. 1410251 - Bæjarbíó, bíóráð, fundargerðir | | Palli Eyjólfsson frá Bæjarbíó mætir til fundarins og fer yfir menningarstarfsemi hússins veturinn 2025-2026. | | Menningar- og ferðamálanefnd þakkar Palla fyrir góða yfirferð á starfsemi Bæjarbíós og þakkar einnig fyrir þeirra framlag til viðburða og blómstrandi mannlífs í Hafnarfirði. | | |
|