| |
| 1. 2408584 - Reglur um akstursþjónustu fatlaðs fólks | 4.liður úr fundargerð fjölskylduráðs frá 7.apríl sl. Reglur um akstursþjónustu fyrir fatlað fólk í Hafnarfirði lagðar fram í fjölskylduráði til afgreiðslu. Fjölskylduráð samþykkir reglur um akstursþjónustu fyrir fatlað fólk í Hafnarfirði og vísar þeim til staðfestingar í bæjarstjórn. | Margrét Vala Marteinsdóttir tekur til máls. Einnig Árni Rúnar Þorvaldsson.
Samþykkt samhljóða. | | Reglur um akstursþjónustu í Hafnrafirði - greinargerð 7.4..2026.pdf | | Reglur um akstursþjónustu fyrir fatlað fólk mars 2026.pdf | | Reglur um akstursþjónustu í Hafnrafirði - greinargerð 3.3.2026.pdf | | Reglur um akstursþjónustu í Hafnrafirði - greinargerð 9.9.2025.pdf | | Reglur um akstursþjónustu fyrir fatlað fólk september 2025.pdf | | Leiðbeiningar um akstursþjónustu 22.apríl 2020 frá ÖBÍ.pdf | | |
|
| 2. 2603486 - Víkingastræti 1h, umsókn um lóð | 6. liður úr fundargerð bæjarráðs frá 16.apríl sl. Lögð fram umsókn HS Veitna Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni í samræmi við umsókn og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar. | | Samþykkt samhljóða. | | Víkingastræti dreifistöð, umsögn skipulags.pdf | | Lóðarumsókn Víkingastræti.pdf | | Greinagerð - Víkingastræti - Ný lóð 13. mars 2026.pdf | | |
|
| 3. 2604138 - Tunguhella 8, umsókn um lóð | 14.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 16.apríl sl. Lögð fram umsókn SÁR ehf. um lóðina nr. 8 við Tunguhellu. Fulltrúi sýslumanns dró úr umsóknum og dregin var út umsókn SÁR ehf. Til vara var dregin út umsókn GH17 ehf. Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni í samræmi við útdrátt og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar. | | Samþykkt samhljóða. | | |
|
| 4. 2604139 - Tunguhella 6, umsókn um lóð | 15.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 16.apríl sl. Lögð fram umsókn SÁR ehf. um lóðina nr. 6 við Tunguhellu. Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni í samræmi við umsókn og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar í bæjarstjórn. | | Samþykkt samhljóða. | | |
|
| 5. 2208015 - Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2026-2038 | 1.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 16.apríl sl. Lögð fram uppfærð tillaga að nýju aðalskipulagi Hafnarfjarðarbæjar 2025-2040 í kjölfar niðurstöðu athugunar HMS dags. 24.3.2026. Skipulagsráðgjafi mætir til fundarins. Skipulags- og byggingarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja uppfærða tillögu að aðalskipulagi Hafnarfjarðarbæjar 2025-2040 í auglýsingu og kynningu. | Orri Björnsson tekur til máls.
Guðmundur Árni Stefánsson tekur til máls og leggur fram svohljóðandi tillögu:
Bæjarstjórn samþykkir að afgreiðslu fyrirliggjandi tillögu að aðalskipulagi Hafnarfjarðar verði frestað í ljósi þess að tillagan var unnin áður en skýrsla Veðurstofu Íslands um hraunavá á höfuðborgarsvæðinu kom út. Eðlilegt er að aðalskipulagstillagan verði yfirfarin og rýnd og eftir atvikum endurskoðuð í ljósi skýrslu Veðurstofunnar.
Greinargerð: Í gær kom út skýrsla Veðurstofu Íslands um hraunavá á höfuðborgarsvæðinu. Þar koma fram nokkrar sviðsmyndir um mögulegt hraunflæði í Hafnarfirði og skv. henni gætu innviðir mögulega verið í hættu. Fyrirliggjandi tillaga að aðalskipulagi var unnin áður en skýrsla Veðurstofunnar var lögð fram og þótt gert sé ráð fyrir leiðar- og varnargörðum í tillögunni er ljóst að það þarf að endurskoða hana í ljósi skýrslu Veðurstofunnar. Til þess að hafa allan varann á þá leggja fulltrúar Samfylkingarinnar það til að afgreiðslu á uppfærðri tillögu að aðalskipulagi Hafnarfjarðarbæjar 2025-2040 verði frestað þannig að hægt sé að rýna tillöguna út frá þeim upplýsingum sem fram koma í skýrslu Veðurstofu Íslands um hraunavá á höfuðborgarsvæðinu.
Orri kemur til andsvars. Guðmundur Árni svarar andsvari. Orri kemur að andsvari öðru sinni. Guðmundur Árni svarar andsvari.
Fundarhlé kl. 13:46. Fundi framhaldið kl. 13:49.
Árni Rúnar Þorvaldsson tekur til máls.
Jón Ingi Hákonarson tekur til máls. Kristín Thoroddsen kemur til andsvars.
Guðmundur Árni tekur til máls öðru sinni.
Forseti ber næst upp til atkvæða framkomna tillögu um að fresta afgreiðslu málsins. Er tillögunni hafnað þar sem sjö fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Viðreisnar. Fjórir fulltrúar Samfylkingar greiða atkvæði með frestun málsins.
Næst ber forseti upp málið eins og það liggur fyrir fundinum og er það samþykkt með sjö atkvæðum frá fulltrúum Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Voiðreisnar. Fulltrúar Samfylkingar sitja hjá.
Guðmundur Árni kom að svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Samfylkingarinnar benda á að í gær kom út skýrsla Veðurstofu Íslands um hraunavá á höfuðborgarsvæðinu. Í skýrslunni koma fram nokkrar sviðsmyndir um mögulegt hraunflæði í Hafnarfirði og innviðir gætu mögulega verið í hættu komi til hraungoss. Fyrirliggjandi tillaga að aðalskipulagi var unnin áður en skýrslan kom fram. Þó gert sé ráð fyrir leiðar- og varnargörðum í aðalskipulagstillögunni er ljóst er að það þarf að yfirfara, rýna og endurskoða í ljósi skýrslu Veðurstofunnar. Því lögðu fulltrúar Samfylkingarinnar til frestun afgreiðslu á aðalskipulaginu þar til það hefur verið endurskoðað. Mikilvægt er að taka skýrslu Veðurstofunnar alvarlega, en með yfirvegun og skynsemi. Engin bráðahætta steðjar að en nauðsynlegt að sýna fyrirhyggjusemi og alla varúð.
Mikilvægt er að vanda sem best við kynningu málsins enda verið að marka stefnu fyrir skipulag og uppbygging bæjarins til næstu 15 ára. Tillaga aðalskipulags hefur verið til umfjöllunar í skipulags- og byggingaráði síðustu fjögur ár og byggir á vinnslutillögu aðalskipulags sem hefur verið kynnt bæjarbúum.
Mest er um vert að sýna hættumatsskýrslu Veðurstofunnar þá virðingu, að þær ábendingar sem þar koma fram verði rýndar og í samhengi við fyrirliggjandi tillögu að nýju skipulagi. Í ljósi þess að frestunartillaga Samfylkingarinnar var felld þá sjá jafnaðarmenn sér ekki fært að samþykkja fyrirliggjandi tillögu að svo komnu máli.
| | Aðalskipulag_HAF-tillaga-apríl.pdf | | Slóð á skipulagsgátt.pdf | | Þéttbýlisuppdráttur.pdf | | Sveitarfélagsuppdráttur.pdf | | Krýsuvík.pdf | | Umhverfismatsskýrsla.pdf | | Aðalskipulag_HAF-2040-tillaga.pdf | | |
|
| 6. 2604031 - Undirhlíðar breyting á deiliskipulag | 2.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 16.apríl sl. Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Undirhlíðanámu. Skipulags- og byggingarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að auglýsa vinnslutillögu deiliskipulags Undirhlíðanámu. | Orri Björnsson tekur til máls.
Samþykkt samhljóða. | | Undirhlíðar, deiliskipulag greinargerð.pdf | | Undirhlíðar, dsk, uppdráttur.pdf | | |
|
| 7. 2603502 - Hraun Vestur Hjallar, reitur 3.3, breyting á deiliskipulagi | 3.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 16.apríl sl. Sveinn Bjarki Þórarinsson fh. lóðarhafa sækir 18.3.2026 um breytingu á deiliskipulagi Hrauns vesturs, Hjallar, reitur 3.3. Tillagan gerir ráð fyrir 6 fjölbýlishúsum á 4-5 hæðum auk kjallara samtals 240 íbúðir og 600 fm. atvinnuhúsnæði. Skipulagshöfundar mæta til fundarins og kynna. Skipulags- og byggingarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að auglýsa tillögu að deiliskipulagi reitar 3.3, Hraun vestur Hjallar. | Orri Björnsson tekur til máls. Guðmundur Árni Stefánsson tekur til máls. Orri kemur að andsvari. Guðmundur Árni svarar andsvari.
Samþykkt samhljóða. | | 1910-deiliskipulag-01.pdf | | 1910-deiliskipulag-02-1.pdf | | 1910-Greinargerð-útg.01.pdf | | 160426 rad.pdf | | |
|
| 8. 2512025 - Snókalönd, breyting á deiliskipulagi | 7. liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 16.apríl sl. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti þann 11. febrúar 2026 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Snókalanda við Bláfjallaveg. Tillagan gerir ráð fyrir nýjum byggingarreit fyrir allt að 18 kúluhúsum fyrir stjörnu- og norðurljósaskoðun, en hvert hús er allt að 18 fm að stærð ásamt 10 fm viðbyggingu með salernisaðstöðu. Á núverandi byggingarreit er einnig gert ráð fyrir 2 þjónustubyggingum til viðbótar. Tillagan var í kynningu 20. febrúar til 3. apríl 2026. Lagðar fram athugasemdir og svör við framkomnum athugasemdum. Uppfærður uppdráttur lagður fram. Skipulags- og byggingarráð tekur undir svör við athugasemdum og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja framlagða breytingu á deiliskipulagi Snókalanda. | Orri Björnsson tekur til máls.
Samþykkt samhljóða. | | 25116-Snokalond-Aurora-dskbr-br-e-augl.pdf | | umsögn.pdf | | |
|
| 9. 24011110 - Hættumat vegna jarðskjálfta og eldgosavár á höfuðborgarsvæðinu | | Nýtt hættumat lagt fram. Umræður. | Valdimar Víðisson tekur til máls og leggur fram svohljóðandi tillögu að bókun:
Bókun: Bæjarstjórn Hafnarfjarðar fagnar útgáfu nýrra skýrslna um hraunavá á Reykjanesskaga og höfuðborgarsvæðinu og lítur á þær sem mikilvægan faglegan grunn fyrir áframhaldandi undirbúning, skipulag og viðbrögð með öryggi íbúa að leiðarljósi. Bæjarstjórn leggur áherslu á að um er að ræða langtímahættumat en ekki spá um yfirvofandi atburði. Niðurstöðurnar veita sveitarfélögum, almannavörnum og öðrum viðeigandi aðilum betri forsendur til að meta stöðu innviða, endurskoða viðbragðsáætlanir, efla undirbúning og vinna markvisst að mótvægisaðgerðum þar sem þess gerist þörf. Bæjarstjórn telur mikilvægt að farið verði af yfirvegun og ábyrgð yfir þau atriði sem sérstaklega snúa að Hafnarfirði, þar á meðal skipulagsmál, landnýtingu, viðbragðsgetu og öryggi mikilvægra innviða. Sú vinna þarf að byggjast á faglegri þekkingu og góðu samstarfi við Veðurstofu Íslands, almannavarnir og önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu. Jafnframt undirstrikar bæjarstjórn mikilvægi samræmdrar og skýrrar upplýsingagjafar til almennings. Brýnt er að sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu stilli saman strengi, tali einum rómi um meginatriði málsins og stuðli þannig að festu, trausti og ábyrgri umræðu í stað upplýsingaóreiðu.
Bæjarstjórn mun fylgja málinu eftir af festu og ábyrgð með það að markmiði að nýta þá þekkingu sem nú liggur fyrir til að efla öryggi samfélagsins og styrkja viðbúnað Hafnarfjarðar til framtíðar.
Guðmundur Árni Stefánsson tekur til máls. Valdimar kemur að andsvari.
Forseti ber upp til atkvæða framkomna tillögu að bókun og er hún samþykkt samhljóða.
| | Hraunavá á höfuðborgarsvæðinu_20260409 (2).pdf | | Skýrsla_Hraunavá á Reykjanesi_20260409 (1).pdf | | 260421 AHS samskiptastefna_2159.pdf | | |
|
| 10. 2208236 - Bæjarstjórn, starfsumhverfi 2022-2026 | | Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá. Umræður. | Árni Rúnar Þorvaldsson tekur til máls. Kristinn Andersen kemur til andsvars. Valdimar Víðisson tekur sæti forseta. Árni Rúnar svarar andsvari. Kristinn kemur að andsvari öðru sinni. Árni Rúnar svarar andsvari. Kristinn kemur að stuttri athugasemd. Kristinn tekur þá næst sæti forseta á ný.
Guðmundur Árni Stefánsson tekur til máls.
Guðmundur Árni tekur til máls undir fundarstjórn forseta.
Árni Rúnar tekur til máls öðru sinni.
Árni Rúnar kemur að svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Samfylkingarinnar þakka framlagt minnisblaði bæjarlögmanns vegna beiðni Samfylkingarinnar um greinargerð bæjarlögmanns á framkvæmd bæjarstjórnarfundar 25. mars 2026 þar sem málum Samfylkingarinnar var vísað frá í upphafi fundar. Málin sem um ræðir eru annars vegar Frítt í strætó fyrir 12-17 ára ungmenni og hins vegar Íbúðir fyrir eldra fólk.
Í niðurstöðum bæjarlögmanns kemur fram að ljóst sé að óskað var tímanlega eftir því að hin tvö umræddu mál yrðu sett á dagskrá bæjarstjórnarfundarins og voru þau réttilega tilgreind í útsendri dagskrá fundarins, í samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga og Samþykktar um stjórn Hafnarfjarðarkaupstaðar.
Þar kemur enn fremur fram að krafa um samþykki 2/3 hluta fundarmanna telst undantekning frá þeirri meginreglu að tillaga telst samþykkt þegar meirihluti þeirra sem taka afstöðu greiða atkvæði með henni og á eingöngu við þegar greidd eru atkvæði um að taka mál á dagskrá sem ekki var tilgreint í fundarboði. Samkvæmt fyrirliggjandi minnisblaði bæjarlögmanns verður sú krafa ekki heimfærð á frávísun mála sem eru á útsendri dagskrá. Þrátt fyrir það beri að hafa í huga að slík frávísun sætir ákveðnum takmörkunum sem geta bæði varðað form og efni viðkomandi mála.
Fulltrúar Samfylkingarinnar benda á að samkvæmt minnisblaði bæjarlögmanns þá voru hvorki annmarkar á þessum tveimur málum að formi eða efni því þau voru á útsendri dagskrá eftir réttum leiðum og þau varða bæði hagsmuni bæjarfélagsins. Það þarf því knýjandi rök til þess að mál, sem engir annmarkar eru á hvað varðar form og efni, sé tekið af dagskrá bæjarstjórnar með einfaldri ákvörðun meirihluta hverju sinni. Forseti bæjarstjórnar og meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks hafa ekki lagt fram nein málefnaleg rök þar að lútandi. Það er alvarlegt mál vegna þess að þar með er vegið að rétti bæjarfulltrúa til að setja mál á dagskrá.
Fulltrúar Samfylkingarinnar gagnrýna harðlega þessi ólýðræðislegu vinnubrögð Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks þar sem flokkarnir knýja í gegn með einfaldri meirihlutaákvörðun að taka veigamikil mál af dagskrá sem varða málefni bæjarins og íbúa. Sú ákvörðun er án fordæma og býr til mjög hættulegt fordæmi þar sem meirihlutinn hverju sinni getur með einföldum meirihluta hent af dagskrá málum frá minnihlutanum til þess að koma veg fyrir óþægilega umræðu.
Þessi ákvörðun meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks er auðvitað fyrst og fremst til marks um að hann forðast efnislega umræðu í málum þar sem Samfylkingin hefur haft forystu og meirihlutinn ekki sinnt. Eitt er að beita þögninni í bæjarstjórn og mæta tómhent að borðinu en það er enn alvarlegra þegar meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks beitir fundarsköpum til þess að koma í veg fyrir efnislega umræðu og að mikilvæg mál fái framgang. Að auki vekur það svo athygli að í kjölfar þessarar ákvörðunar hafa fulltrúar meirihlutans keppst við að halda því fram að tillagan um frítt í strætó fyrir 12 -17 ára barna og ungmenna hafi í raun verið samþykkt og afgreidd þó það sé auðvitað ekki raunin. Um íbúðir fyrir eldri íbúa, þar sem meirihlutinn hefur skilað algjörlega auðu bar svo við á síðasta fundi fjölskylduráðs bókaði meirihlutinn að það væru nánast 400 íbúðir fyrir eldri íbúa handan við hornið. Allir sjá að hér var um að ræða örvæntingarfulla tilraun til þess að slá ryki í augu kjósenda til þess að hylja þá staðreynd að ef ekki væri fyrir frumkvæði Samfylkingarinnar þá hefði einfaldlega ekkert gerst í þessum málum á kjörtímabilinu þrátt fyrir fögur fyrirheit meirihlutans í upphafi þess. Þessi vinnubrögð varpa skýru ljósi á að meirihlutinn er kominn á endastöð og er án erindis en það er sem betur fer tækifæri til breytinga í sveitarstjórnarkosningum 16. maí nk.
Kristinn leggur fram svohljóðandi bókun fyrir hönd fulltrúa meirihluta:
Bókun meirihluta við mál 10 - Bæjarstjórn, starfsumhverfi Samþykkt bæjarstjórnar um að vísa tveimur málum af dagskrá á fundi sínum þann 25. mars sl. var réttmæt og er þar vísað til minnisblaðs bæjarlögmanns um málið frá 14. apríl og þeirra gagna sem hann styðst við í áliti sínu.
Réttur bæjarfulltrúa til að óska eftir umræddum málum á dagskrá var að fullu virtur í þessu tilviki. Réttur bæjarstjórnar til þess að stýra umfjöllun mála á fundi sínum var þá jafnframt einnig virtur með framangreindri frávísun, þar sem umrædd mál höfðu þegar verið tekin fyrir áður, og voru komin í annan farveg.
| | Minnisblað bæjarlögmanns vegna erindis Samfylkingarinnar í forsetanefnd.pdf | | |
|
| |
| 11. 2601097 - Fundargerðir 2026, til kynningar í bæjarstjórn | Fundargerðir fjölskylduráðs frá 7. og 14. apríl sl. Fundargerð bæjarráðs frá 16.apríl sl. a. Fundargerðir heilbrigðisnefndar frá 24.febrúar og 30.mars sl. b. Fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 8.apríl sl. c. Fundargerð stjórnar SHS frá 13.mars sl. d. Fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 10.og 20.mars sl. Fundargerð umhverfis- og framkkvæmdaráðs frá 15.april sl. a. Fundargerð stjórnar SORPU bs. frá 11. febrúar sl. b. Fundargerðir stjórnar Strætó bs.frá 10. og 20. mars sl. Fundargerðir skipulags- og byggingaráðs frá 16. og 20.apríl sl. Fundargerð fræðsluráðs frá 15.apríl sl. Fundargerð forsetanefndar frá 20.apríl sl. | | Kristín Thoroddsen tekur til máls undir 2. og 8. lið í fundargerð fræðsluráðs. Árni Rúnar kemur að andsvari. Kristín svarar andsvari. Árni Rúnar kemur að stuttri athugasemd. Kristín kemur einnig að stuttri athugasemd. | | |
|
| |
| 12. 2511294 - Ársreikningur Hafnarfjarðarkaupstaðar 2025 og fyrirtækja hans, fyrri umræða | 1. liður úr fundargerð bæjarráðs frá 16. april sl. Helga Benediktsdóttir sviðsstjóri mætir til fundarins. Bæjarráðs smaþykkir fyrirliggjandi ársreikning og vísar til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun: Samkvæmt fyrirliggjandi ársreikningi Hafnarfjarðar fyrir síðasta ár var reksstrarniðurstaða A-hluta bæjarsjóðs neikvæð um rúmlega 1,1 milljarð en rekstrarhluti A og B hluta var jákvæð um 50 milljónir. Þetta gerist þrátt fyrir auknar tekjur miðað við áætlanir. Einnig kemur fram að alls voru tekin ný lán upp á rúma 6 milljarða en greiddar voru afborganir alls tæplega 2,5 milljarðar og langtímaskuldir hækka um rúma 2,3 milljarða milli ára. Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar munu gera grein nánari grein fyrir afstöðu sinni við fyrri og síðari umræðu um málið í bæjarstjórn. | Valdimar Víðisson tekur til máls. Einnig Guðmundur Árni Stefánsson, Jón Ingi Hákonarson.
Orri Björnsson tekur til máls. Árni Rúnar Þorvaldsson kemur til andsvars. Orri svarar andsvari. Árni Rúnar kemur að andsvari.
Guðmundur Árni tekur til máls öðru sinni. Orri kemur að andsvari sem Guðmundur Árni svarar.
Forseti leggur næst til að fyrirliggjandi ársreikning verði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn. Er það samþykkt samhljóða.
Valdimar kemur að svohljóðandi bókun fyrir hönd meirihluta:
Ársreikningur 2025 sýnir að fjárhagsstaða Hafnarfjarðarbæjar er traust þrátt fyrir krefjandi rekstrarumhverfi og mikið framkvæmdaár. Árið 2025 var ár mikillar uppbyggingar hjá Hafnarfjarðarbæ og sér þess skýr merki í ársreikningnum. Fjárfestingar í A-hluta jukust verulega á milli ára og sú uppbygging skilar sér í auknum lífsgæðum og öflugri þjónustu fyrir bæjarbúa. Meginástæða þess að niðurstaða A-hluta varð lakari en áætlanir gáfu tilefni til er veruleg hækkun lífeyrisskuldbindinga á árinu 2025. Hækkun lífeyrisskuldbindinga nam 3 milljörðum króna samanborið við 1 milljarð króna árið 2024 og hefði rekstur A-hluta bæjarsjóðs skilað afgangi ef sú aukning hefði ekki komið til. Auk þess hefur bærinn, líkt og önnur sveitarfélög, fundið verulega fyrir hækkun launa. Ársreikningurinn endurspeglar því traustan rekstur og efnahagslegan styrk Hafnarfjarðarbæjar sem byggst hefur jafnt og þétt upp á undanförnum árum. Meirihlutinn leggur áherslu á að áfram verði unnið af ábyrgð, festu og skýrri forgangsröðun að því að sameina traustan rekstur, öfluga þjónustu og nauðsynlega uppbyggingu í þágu bæjarbúa.
Árni Rúnar kemur að svohljóðandi bókun: Niðurstöður ársreiknings Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2025 valda vonbrigðum og staðfesta að rekstur bæjarins er ekki sjálfbær. Sameiginlegar tekjur bæjarins standa ekki undir hefðbundnum rekstrarútgjöldum; bærinn er einfaldlega rekinn með halla. Þess vegna er bilið brúað með nýjum lántökum, þannig að skuldir bæjarins aukast umtalsvert milli ára. Þessar meginniðurstöður staðfesta í einu og öllu þær viðvaranir, ábendingar og gagnrýni sem bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar hafa látið í ljós á yfirstandandi kjörtímabili sem nú er að ljúka.
Þetta gerist á sama tíma og útsvarstekjur og fasteignaskattar eru hærri en fjárhagsáætlun ársins 2025 gerði ráð fyrir. Sameiginlegar rekstrartekjur, þ.e. útsvar, fasteignaskattur, framlög jöfnunarsjóðs og aðrar tekjur eru tæpum 1,5 milljarði hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Samt skilar bæjarsjóður rekstrarhalla upp á tæpa 1,2 milljarða. Það er falleinkunn fyrir meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks, sem hefur stært sig af traustri fjármálastjórn - án innstæðu, því fyrirliggjandi niðurstaða sýnir hið gagnstæða. Tölurnar tala sínu máli. Helstu lykiltölur ársreikningsins senda upp gul flögg.
Til að rekstur sveitarfélags geti talist sjálfbær til lengri tíma, þá er almenna viðmiðið að veltufé frá rekstri þurfi að vera að meðaltali um 10% af tekjum til lengri tíma séð. Lágmarksviðmið eftirlitsnefndarinnar með fjárreiðum sveitarfélaga er að veltufé frá rekstri sé aldrei undir samanlögðum afborgunum langtímalána og leiguskuldbindinga. Veltufé frá rekstri var um 1,4% af tekjum A hluta ársreikningsins 2025 og stendur ekki undir nema um 30% af afborgunum lána. Það hringir viðvörunarbjöllum og ef slík væri raunin í rekstri fyrirtækis eða heimilisrekstri, þá væri það metið sem mjög alvarlegt ástand.
Skýringar meirihlutans á þessum hallarekstri eru þær, að ekki hafi tekist að selja nægilega marga lóðir á nógu háu verði eins og áformað var. Slík áætlanagerð er ekki skynsamleg og við henni var varað af hálfu jafnaðarmanna. En það undirstrikar hugarfar Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks um að tjalda til einnar nætur; að treysta sífellt á einsskiptis aðgerðir til að bjarga málum fyrir horn. Það er fagnaðarefni út af fyrir sig að eftirspurn sé eftir lóðum í bænum en það er óskynsamlegt að treysta á lóðasölu sem grundvallartekjustofn í rekstri og þjónustu bæjarins. Þegar áætlað er að lóðasala skili jafnháum tekjum og fastur tekjustofn eins og fasteignaskattur, þá er óvarlega farið og lýsir veikri stöðu. Þetta er í sama anda og fyrri aðgerðir þessa meirihluta og nægir að vísa til þess, þegar meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks seldi hlut bæjarins í HS veitum árið 2020 til að ná endum saman. Þá er óhjákvæmilegt annað en að flagga þeirri staðreynd að stórar skuldbindingar upp á milljarða króna standa utan efnahagsreiknings og hafa ekki áhrif á fjárhagslega stöðu bæjarsjóðs og er þar vísað til skuldbindinga vegna nýbyggingar Tækniskóla Íslands til Hafnarfjarðar, en þar ber bærinn fjárhagslega ábyrgð á útvegun byggingarhæfrar lóðar og með stofnframlagi í verkefnið. Þar hefur aðeins lítill hluti þeirrar skuldbindingarinnar verið inntur af hendi. Sama má segja um nauðsynlegar ráðstafanir sem bíða handan við hornið og varða eignarhald á Áslandsskóla og Leikskólanum við Hörðuvelli, en leigutími þessara eigna rennur út um næstu áramót og alls óljóst hjá núverandi meirihluta hvernig taka skuli á þeim málum.
Það er því ljóst að nýrrar bæjarstjórnar, sem kjörin verður 16. maí næstkomandi og tekur við stjórn bæjarins í kjölfarið, bíða stór og þung verkefni, þar sem meginverkefnið verður að tryggja fjárhagslegan stöðugleika, framtíðarsýn og festu í rekstri bæjarfélagsins á komandi kjörtímabili, en um leið nauðsynleg og aðkallandi uppbyggingarverkefni. Samfylkingin er tilbúin til að leiða það verkefni.
| | |
|