Til bakaPrenta
Fjölskylduráð - 554

Haldinn í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6,
12.05.2026 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu: Margrét Vala Marteinsdóttir formaður,
Jóhanna Erla Guðjónsdóttir aðalmaður,
Helga Ingólfsdóttir varaformaður,
Árni Rúnar Þorvaldsson aðalmaður,
Óskar Steinn Ómarsson varamaður,
Árni Stefán Guðjónsson áheyrnarfulltrúi,
Fundargerð ritaði: Erna Aradóttir, ritari fjölskylduráðs


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2304615 - Málefni heimilislausra
Sigurður Haraldsson, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs mætir til fundar undir þessum lið.
Fjölskylduráð þakkar Sigurði Haraldssyni fyrir kynninguna.

Meirihluti fjölskylduráðs fagnar því að búið sé að samþykkja tillögu um staðsetningu smáhýsa á Lónsbraut og að hún verði hluti af fyrirhugaðri deiluskipulagsbreytingu. Með þeirri ákvörðun hefur verið stigið mikilvægt skref í átt að því að mæta brýnni þörf fyrir tímabundið húsnæði fyrir einstaklinga í viðkvæmri stöðu. Meirihlutinn leggur ríka áherslu á mikilvægi þess að framkvæmdin gangi hratt og vel fyrir sig og að húsin komist niður sem fyrst þannig að hægt sé að veita nauðsynlegan stuðning og skjól fyrir þá sem mest þurfa á því að halda. Mikilvægt er að reiturinn verði að fullu nýttur og að þrjú hús verði keypt til viðbótar. Jafnframt er lögð áhersla á að áfram verði unnið að góðu samráði við nærsamfélag og að þjónusta tengd smáhýsunum verði skipulögð með fagmennsku, mannúð og virðing að leiðarljósi.

Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun:

Um leið og fulltrúar Samfylkingarinnar samþykkja að unnið verði áfram með þá tillögu sem liggur fyrir fundinum, enda lengi talað fyrir því að smáhýsin komist í nýtingu, þá gagnrýnum við þann hringlanda sem einkennt hefur vinnslu þessa máls á kjörtímabilinu. Það er ljóst að það bíður úrlausnar nýrrar bæjarstjórnar á næsta kjörtímabili eins og mörg önnur mál sem meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks hefur ekki tekist að klára.

Fulltrúi Viðreisnar leggur fram eftirfarandi bókun:

Fulltrúi Viðreisnar tekur undir bókun meirihluta fjölskylduráðs og ítrekar mikilvægi þess að gott samráð við nærliggjandi íbúa og öflug þjónusta við smáhýsin verði höfð að leiðarljósi í þeirri vinnu sem framundan er.
2. 2512234 - Þjónustusamningur um heimsendan mat og mat í mötuneyti
Elín Ósk Baldursdóttir, deildarstjóri, mætir til fundar undir þessum lið.
Lögð fram umsögn Öldungaráðs.
Lagt fram til afgreiðslu.
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi tillögu:

Fjölskylduráð samþykkir að fresta afgreiðslu málsins í ljósi þess að umboð núverandi fjölskylduráðs er að renna út og um grundvallarbreytingu er að ræða. Það er því rétt að nýtt fjölskylduráð sem tekur við að loknum kosningum 16. maí nk. taki ákvörðun til framtíðar í þessu máli.

Tillagan er borin upp til atkvæðagreiðslu og er felld með þremur atkvæðum meirihlutans.

Málið er tekið til afgreiðslu og samþykkt með þremur atkvæðum meirihlutans. Fulltrúar Samfylkingar sitja hjá.


Fulltrúar meirihlutans leggja fram eftirfarandi bókun:

Meirihluti fjölskylduráðs fagnar framlagðri tillögu um nýtt fyrirkomulag matarþjónustu fyrir eldri borgara og samþykkir að unnið verði áfram eftir þeirri leið sem þar er lögð til. Meirihlutinn telur að með opnu aðildarkerfi og skýrri skiptingu þjónustunnar í tvo þjónustuflokka skapist traustur grunnur að fjölbreyttara, aðgengilegra og notendamiðaðra þjónustuframboði.

Meirihluti fjölskylduráðs leggur áherslu á að framkvæmt verði kostnaðarmat á fyrirliggjandi tillögum og jafnframt að verði unnin áætlun um rafrænt notendaviðmót sem hentar þessum þjónustuhópi.

Meirihluti fjölskylduráðs leggur sérstaka áherslu á að fyrirkomulagið styðji við aukið valfrelsi notenda, betra aðgengi að þjónustu og nýtingu þeirrar aðstöðu sem þegar er fyrir hendi á Hjallabraut 33 og Sólvangsvegi 1-3 með það að markmiði að efla þjónustu við eldri borgara og styðja við sjálfstæða búsetu þeirra eins lengi og kostur er.

Meirihlutinn tekur jafnframt undir jákvæð sjónarmið öldungaráðs um mikilvægi þess að þróa þjónustuna áfram og bæta aðgengi og fyrirkomulag hennar í samstarfi við öldungaráð. Meirihlutinn leggur áherslu á að við útfærslu verði sérstaklega horft til skýrleika í framkvæmd, öryggis við afhendingu matar, gæða þjónustunnar og notendavænna greiðsluleiða í samræmi við þau atriði sem koma fram í umsögn öldungaráðs.


Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun:

Fulltrúar Samfylkingarinnar sitja hjá við afgreiðslu þessa máls af þeirri ástæðu að við teljum ekki rétt að fjölskylduráð sem er að missa umboð sitt taki ákvörðun um slíka grundvallarbreytingu varðandi mat fyrir eldra fólk. Það er rétt að nýtt fjölskylduráð að loknum kosningum 16. maí nk. fari yfir málið og taki ákvörðun í framhaldinu.


Fulltrúi Viðreisnar leggur fram eftirfarandi bókun:

Viðreisn tekur undir mikilvægi þess að ráðast í aðgerðir sem miða að því að auka valfrelsi fólks og eins að gera því eldra fólki sem það kýs kleift að búa sem lengst í sjálfstæðri búsetu.


Fulltrúar meirihlutans leggja fram eftirfarandi bókun:

Meirihlutinn vill koma því á framfæri að núverandi samningur við þjónustuaðila vegna matarþjónustu eldri borgara er að renna út. Samkvæmt samningi þarf að segja honum upp fyrir 1.júní nk. Ef ákvæðið er ekki nýtt á þessum tímapunkti má gera ráð fyrir því að breytingar á matarþjónustu fyrir eldri borgara frestist í að minnsta kosti ár.

Meirihlutinn hamrar að fulltrúar Samfylkingarinnar séu ekki tilbúin í að samþykkja jafn mikilvægt mál sem samstaða hefur ríkt um, meðal annars með umsögn öldungaráðs.


Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun:

Fulltrúar Samfylkingarinnar telja undirbúningi málsins ábótavant og það lýsir einfaldlega stjórnsýslu á sjálfstýringu að verið sé að taka ákvarðanir sem þessar á síðasta fundi kjörtímabilsins.
Fundargerð öldungaráðs - umsögn 28. apríl 2026.pdf
3. 2412667 - Aðgengi fólks með fötlun að almennum vinnumarkaði
Lagt fram.
Fjölskylduráð þakkar Hrönn Hilmarsdóttur fyrir kynninguna.

Meirihluti fjölskylduráðs fagnar þeirri vinnu sem þegar er hafin við að efla atvinnuþátttöku fólks með fötlun og styður áframhaldandi þróun í þeim anda. Meirihlutinn leggur áherslu á að byggt sé á þeim sterka grunni sem þegar hefur verið lagður, meðal annars með Miðstöð um vinnu og virkni og úrræðum á borð við atvinnu með stuðningi sem þegar hafa skilað auknum tækifærum til atvinnuþátttöku.

Meirihluti fjölskylduráðs telur mikilvægt að næstu skref felist í auknu og markvissara samstarfi við atvinnulífið í bænum með það að markmiði að skapa fleiri raunhæf atvinnutækifæri á almennum vinnumarkaði. Með því að tengja betur saman fyrirtæki, sveitarfélagið og þau úrræði sem þegar eru til staðar er unnt að styðja við aukið aðgengi, fjölbreyttari störf og meiri þátttöku. Sú vinna er í fullum gangi á fjölskyldu- og barnamálasviði.

Meirihlutinn ítrekar jafnframt mikilvægi þess að stofnanir bæjarins taki virkan þátt í verkefninu og að tryggt verði að raunhæft svigrúm sé til staðar innan rekstrar til að nýta starfskrafta fólks með skerta starfsgetu. Það er lykilatriði í því að markmið um aukna atvinnuþátttöku nái fram að ganga. Slíkt skuli gera ráð fyrir í fjárhagsáætlun fyrir ár hvert.

Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun:

Fulltrúar Samfylkingarinnar þakka fyrir framlagt minnisblað. Þetta mál og minnisblað á rætur að rekja til tillögu Samfylkingarinnar við afgreiðslu síðustu fjárhagsáætlunar og sneri að því að móta leiðir að aukinni atvinnuþátttöku fatlaðs fólks á almennum vinnumarkaði. þessi vinna sem og framlagt minnisblað munu nýtast vel við áframhaldandi vinnslu málsins til að móta leiðir í samstarfi við atvinnulífið svo auka megi þátttöku fatlaðs fólks á almennum vinnumarkaði í samræmi við tillögu Samfylkingarinnar í bæjarstjórn við afgreiðslu síðustu fjárhagsáætlunar.
4. 2508537 - Miðstöðin - vinna og virkni fyrir fatlað fólk
Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður, mætir til fundar undir þessum lið.
Fjölskylduráð þakkar Þórdísi Rúriksdóttur fyrir kynninguna.

Meirihluti fjölskylduráðs þakkar fyrir kynningu á auknum atvinnuverkefnum í Miðstöðinni og lýsir stuðningi við þá vegferð sem þar er lögð upp með þar sem markmiðið er að efla atvinnuþátttöku fólks með fötlun í samstarfi við atvinnulífið.

Meirihlutinn telur verkefnið sem kynnt var falla vel að þeirri stefnu sem unnið er eftir í málaflokknum þar sem lögð er áhersla á að skapa raunhæf störf á almennum vinnumarkaði og nýta samstarf við fyrirtæki til að fjölga atvinnutækifærum.

Meirihlutinn tekur jafnframt undir mikilvægi þess að skapa þeim verkefnum sem hér um ræðir viðeigandi aðstöðu og fagnar því að málið verði tekið til umfjöllunar hjá umhverfis- og framkvæmdaráði þar sem unnið verður að þeim breytingum á húsnæðinu að Selhellu 7 sem nauðsynlegar eru til að gera verkefnið að veruleika.
5. 2603459 - Samþætting heimahjúkrunar og félagslegrar heimaþjónustu
Sviðsstjóri leggur fram minnisblað.
Fjölskylduráð fagnar því samtali sem hafið er um mögulega samþættingu heimaþjónustu og heimahjúkrun og telur mikilvægt að slík vinna sé unnin í nánu samstarfi allra hlutaðeigandi aðila.

Ráðið leggur áherslu á að við áframhaldandi vinnu verði sérstaklega horft til þess að tryggja skýra verkaskiptingu, einfalt og skilvirkt fyrirkomulag og að sveitarfélög geti áfram sinnt lögbundnum skyldum sínum með fullnægjandi hætti.

Jafnframt telur fjölskylduráð mikilvægt að þær leiðir sem skoðaðar eru taki mið af mismunandi reglum og verklagi sveitarfélaga og að valin verði útfærsla sem er raunhæf í framkvæmd og þjónar best hagsmunum þjónustuþega.

Fjölskylduráð styður að samtalið haldi áfram með það að markmiði að móta hagkvæma og notendamiðaða lausn á samþættri þjónustu.
6. 24011080 - Reglur um úthlutun á félagslegu húsnæði
Fulltrúar Samfylkingar óska eftir málinu á dagskrá og fara fram á að lögð verði fram öll samskipti félagsmálaráðuneytisins og sveitarfélagsins vegna kvörtunar um að 4. mgr. 9. gr. reglnanna standist ekki lög og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sem hafa það markmið að tryggja fötluðu fólki tækifæri til sjálfstæðs lífs án mismununar og aðgreiningar.
Fjölskylduráð óskar eftir að fyrirspurninni verði svarað við fyrsta tækifæri.
7. 2412078 - Fundargerðir til kynningar í fjölskylduráði
Lagðar fram fundargerðir:
1) Fjölmenningarráðs frá 9. apríl sl.
2) Öldungaráðs frá 28. apríl sl.
Lagt fram til kynningar.
Fundargerð fjölmenningarráð 9.4.2026.pdf
Fundargerð öldungaráðs - umsögn 28. apríl 2026.pdf
Fundargerðir
8. 0701243 - Málskot
Lögð fram niðurstaða málskotsnefndar í málum nr. 17-18/2026.
Fjölskylduráð staðfestir afgreiðslu málskotsnefndar.

Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála nr. 95/2026.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:30 

Til bakaPrenta