| |
| 1. 2602654 - Rimmugýgur, samstarfssamningur 2026-2030 | | Undirritaður samstarfssamningur við Víkingafélagið Rimmugýg vegna Víkingahátíðarinnar í Hafnarfirði lagður fram. | | Menningar- og ferðamálanefnd fagnar innilega undirritun nýs fimm ára samnings við víkingafélagið Rimmugýg, sem tryggir að hin glæsilega Víkingahátíð verði áfram fastur liður á Víðistaðatúni til ársins 2030. Hátíðin er algjör lykilviðburður í blómlegu menningar- og ferðaþjónustulífi Hafnarfjarðar og þessi samningur undirstrikar vilja bæjarins til að styðja þétt við bakið á lifandi miðlun á okkar sögulega menningararfi, bæjarbúum og gestum til mikillar gleði. | | Rimmugýgur, samningur v víkingahátíðar 2026-2030, undirritaður.pdf | | |
|
| 2. 2306463 - Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins | | HITTUMST verður haldið 6. maí 2026 í Tjarnarsalnum, Ráðhúsi Reykjavíkur. HITTUMST er vettvangur ferðaþjónustunnar á höfuðborgarsvæðinu til að kynna vörur sínar og þjónustu fyrir öll áhugasöm. Hafnarfjarðarbær tekur þátt og kynnir byggðasafnið og Hafnarborg. | | Menningar- og ferðamálanefnd þakkar kynninguna á ferðaþjónustuviðburðinum HITTUMST. Það er mikilvægt og ánægjulegt að Hafnarfjarðarbær taki virkan þátt á þessum vettvangi til að kynna okkar frábæru stofnanir, Byggðasafnið og Hafnarborg. Menningar- og ferðamálanefnd hvetur ferðaþjónustuaðila og alla áhugasama um greinina til að mæta þann 6. maí næstkomandi og kynna sér þá fjölbreyttu þjónustu sem stendur til boða hjá aðilum í ferðaþjónustu á höfðuborgarsvæðinu. | | |
|
| 3. 2604200 - Listasafn Reykjavíkur, Krýsuvík, gjörningur | | Listasafn Reykjavíkur f.h. listamanns Listahátíðar 2026 óskar eftir að koma fyrir striga í örfáar klukkustundir á hverasvæðinu í Krýsuvík. | | Samþykkt. | | |
|
| 4. 2604146 - Björgvin Halldórsson, ævi og störf, sýning | Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi þann 16.apríl s.l. að fela menningar- og ferðamálanefnd, í nánu samstarfi við fjölskyldu Björgvins, Byggðasafn Hafnarfjarðar og aðra fagaðila, að undirbúa og setja upp sýningu á munum og myndum frá glæsilegum ferli tónlistarmannsins Björgvins Halldórssonar.
Björn Pétursson, bæjarminjavörður mætti til fundarsins. | Menningar- og ferðamálanefnd fagnar og tekur heilshugar undir bókun bæjarráðs frá 16. apríl sl. varðandi uppsetningu á sýningu um ævi og tónlistarsögu Björgvins Halldórssonar. Björgvin var einstakur listamaður og stoltur Hafnfirðingur sem alla tíð sýndi menningarlífi bæjarins mikinn stuðning. Sem bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árið 2018 átti hann sérstakan stað í hjörtum bæjarbúa. Nefndin leggur ríka áherslu á að sýningin verði unnin af mikilli virðingu og endurspegli þá sýn sem Björgvin sjálfur hafði til verkefnisins í þeim samtölum sem þegar voru hafin. Menningar- og ferðamálanefnd felur bæjarminjaverði að vinna að undirbúningi sýningarinnar í nánu samstarfi við fjölskyldu Björgvins. Bæjarminjaverði er falið að taka saman minnisblað þar sem fram komi tillögur að útfærslu, kostnaði og tímalínu verkefnisins.
| | |
|
| 5. 2604205 - Húsverndarsjóður, reglugerð | | Endurskoðuð samþykkt um styrki til húsverndar í Hafnarfirði lögð fram til samþykktar. Björn Pétursson, bæjarminjavörður mætir til fundarsins. | | Menningar- og ferðamálanefnd samþykkir fyrirliggjandi reglur. | | Reglugerð húsafriðunarsjóðs Hafnarfjarðar - samþykkt.pdf | | |
|
| 6. 2404300 - Hellisgerði, Oddrúnarbær | | Drög að samningi vegna rekstur á Oddrúnarbæ í Hellisgerði lagður fram. | Menningar- og ferðamálanefnd samþykkir fyrirliggjandi drög að samningi við Helliskaffi um rekstur í Oddrúnarbæ og vísar honum til endanlegrar staðfestingar í bæjarráði. Nefndin fagnar þessum áformum og þeim spennandi hugmyndum sem liggja fyrir um þróun svæðisins. Við hlökkum til að sjá enn meira líf og fjör í Hellisgerði á komandi árum, þar sem þessi nýja starfsemi mun stórbæta upplifun og þjónustu við bæði bæjarbúa og gesti í þessari einstöku perlu okkar.
| | |
|
| 7. 2604010 - Sumardagurinn fyrsti 2026 | | Sumardagurinn fyrsti verður haldinn hátíðlega með víðivangshlaupi í miðbænum og fjölskyldudagskrá á Víðistaðatúni fimmtudaginn 23.apríl. | | Menningar- og ferðamálanefnd hlakkar til sumarkomunnar og hvetur alla Hafnfirðinga til að fjölmenna og taka þátt í hátíðarhöldunum víðsvegar um bæinn. Dagskráin er afar fjölbreytt og glæsileg þar sem boðið er upp á skemmtileg opin hús um allan bæ, hið hefðbundna Víðavangshlaup í bland við kynningu frá frjálsíþróttadeild FH í miðbænum, og stórglæsilega fjölskyldudagskrá á Víðistaðatúni í traustum höndum skátafélagsins Hraunbúa eins og fyrri ár. | | |
|
| 8. 2503793 - Hämeenlinna, vinabæjarmót 2026 | | Verkefnastjóri segir frá vinabæjarmót sem haldið er í Hämeenlinna, Finnlandi dagana 20.-25.apríl. | | |
|