Til bakaPrenta
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 106

Haldinn Fundarsalurinn Ásfjall, Norðurhellu 2,
29.04.2026 og hófst hann kl. 10:00
Fundinn sátu: Lilja Grétarsdóttir skipulagsfulltrúi,
Anna Margrét Tómasdóttir arkitekt,
Anne Steinbrenner starfsmaður,
Aleksandra Julia Wegrzyniak starfsmaður,
Fundargerð ritaði: Aleksandra Wegrzyniak, þjónustufulltrúi


Dagskrá: 
B-hluti skipulagserindi
1. 2604433 - Hlíðarás 20, breyting á deiliskipulagi
Hallgrímur Þór Sigurðsson f.h. lóðarhafa sækir þann 27.04.2026 um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felur í sér útvíkkun byggingarreits um 10 cm á norður, suður og austur hlið núverandi byggingar og um 1,5 m á vestur hlið. Einnig er óskað eftir því að auka nýtingarhlutfall á lóð úr 0,45 í 0,47 til að rúma 22 fm sólskála við bakhlið byggingar.
Erindið verður grenndarkynnt með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga, þegar uppdráttur hefur verið uppfærður.
2. 2603116 - Álhella 9, breyting á deiliskipulagi
Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 04.03.2026 var samþykkt að grenndarkynna erindi Össurar Imsland f.h. lóðarhafa um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felst í því að bætt er við byggingarreit fyrir skilti ásamt tilfærslu- og auka innkeyrslustútum inn á lóð.
Erindið var grenndarkynnt frá 20.03.2026 til 24.04.2026. Engar athugasemdir bárust en ábending barst frá Veitum um að hitaveitulögn liggur nálægt fyrirhuguðu framkvæmdasvæði. Veitur óska eftir góðu samráði vegna fyrirhugaðra framkvæmda.
Erindinu verður lokið í samræmi við skipulagslög.
Bent er á að samráð skal haft við Veitur vegna framkvæmda.
slóð á skipulagsgátt.pdf
D-hluti fyrirspurnir
3. 2604285 - Strandgata 24, fyrirspurn
220 Fjörður ehf. leggur þann 20.04.2026 fram fyrirspurn varðandi breytingar á notkun og innra skipulagi húsnæðisins. Óskað er eftir að breyta húsnæðinu þannig að þar verði starfrækt íbúðarhótel með samtals 15 hótelíbúðum á fyrstu og annarri hæð hússins.
Tekið er jákvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 29.04.2026.
Strandgata 24, umsögn skipulags.pdf
4. 2604469 - Hellisgata 13 og 15, fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn vegna fyrirhugaðra breytinga að Hellisgötu 13 og 15. Breytingin á Hellisgötu 13 felur í sér að fallið er frá skilmálum um viðbyggingu við núverandi íbúðarhús. Í staðinn verði skilgreindur nýr stakstæður byggingarreitur fyrir vinnustofu á einni hæð með risi á norðanverðri lóðinni fyrir sambærilega byggingarheimild. Grunnflötur byggingarinnar verður allt að 25 ferm. Breytingin á Hellisgötu 15 felur í sér að fallið er frá byggingarreit á framlóð. Heimilað byggingarmagn er nýtt til viðbygginga i norðvesturhluta lóðarinnar.
Tekið er jákvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28.04.2026.
Hellisgata 13 og 15, umsögn skipulags.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:45 

Til bakaPrenta