| |
| 1. 2602598 - Straumhella 26, breyting á deiliskipulagi | Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 04.03.2026 var samþykkt að grenndarkynna með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga erindi Vissu ráðgjafar ehf. f.h. lóðarhafa um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felst í því að viðbótar innkeyrsla verður inn á lóð Straumhellu 26 frá Dverghellu. Eftir breytingu verða tvær innkeyrslur á lóð nr. 26. Staðsetning innkeyrslu er a.m.k 10 m austan lóðarmarka til vesturs, og hámarks breidd innkeyrslu er 10 m. Erindið var grenndarkynnt frá 17.03.2026 til 20.04.2026. Engar athugasemdir bárust. | | Erindinu verður lokið í samræmi við skipulagslög. | | Slóð á skipulagsgátt.pdf | | |
|
| |
| 2. 2604179 - Stekkjarhvammur 31, fyrirspurn | | Ingólfur Björgvin Jónsson leggur 16.04.2026 fram fyrirspurn þess efnis að reisa girðingu á steyptan vegg sem snýr að Hvammabraut og einnig upp að gangstíg sem kemur inn í botnlanga á Stekkjarhvammi 31. | | Tekið er neikvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21.04.2026. | | Stekkjarhvammur 31, umsögn skipulags.pdf | | |
|
| 3. 2604183 - Jötnahella 5, fyrirspurn | | Jóhann Einar Jónsson f.h. Hamravellir atvinnuhús ehf. leggur 16.04.2026 fram fyrirspurn þess efnis að gera nýja útkeyrslu frá Jötnahellu 5 inn á Dranghellu. Aðeins er um að ræða einstefnu (útkeyrslu) fyrir litla bíla meðfram húsinu og út á Dranghellu. | | Tekið er neikvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21.04.2026. | | Jötnahella 5, umsögn skipulags.pdf | | |
|
| |
| 4. 2604328 - Reiðstígur Stórhöfði, framkvæmdaleyfi | | Framkvæmda- og rekstrardeild óskar eftir framkvæmdaleyfi fyrir gerð reiðstígs við Stórhöfða. Þessi stígur og lega hans er á aðalskipulagi og ætlað er að reiðstígurinn verði uppbyggður, 3,5-4 m breiður. | | Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa samþykkir að gefa út framkvæmdaleyfi. | | |
|