| |
| 1. 2511143 - Sala á Bæjarhrauni 2 | | Lagt fram tilboð | | Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi kauptilboð. | | F2074239_OF439551.pdf | | |
|
| 2. 2605182 - Kaplakriki, Knatthúsið Skesssan, búningshús, beiðni um kaup | | Lagt fram erndi frá Fimleikafélagi Hafnarfjarðar varðandi kaup á búningshúsi við knatthúsið Skessuna, Kaplakrika | | Bæjarráð búningshús 7.5.2026.pdf | | |
|
| 3. 2604438 - Kirkjuvegur 3, nýting forkaupsréttar | | Lagt fram kauptilboð | | Bæjarráðs samþykkir fyrirliggjandi kauptilboð. | | F2076898_OF440553.pdf | | F2076898_SBC440551.pdf | | F2076898_SORO440549.pdf | | F2076898_SSCB440550.pdf | | |
|
|
| 5. 2603650 - bæjarráðsstyrkir 2026, fyrri úthlutun | | Lagt fram. | Hildur Jónsdóttir ljósmyndabók fær 500.000 kr. Vegan Festival fær 300.000 kr. Sauna og samvera fyrir eldriborgara fær 400.000 kr. | | |
|
| 6. 2605184 - Umsókn um vilyrði fyrir lóðum, Birkihellu 7,9,11 | | Lögð fram umsókn Reising byggingarfélags ehf., um vilyrði fyrir lóðum við Birkihellu, 7, 9,11. | | Samþykkt er að veita vilyrði til sex mánaða. | | Ósk um vilyrði H4 .pdf | | |
|
| 7. 2605181 - Umsókn um vilyrði fyrir lóð, Birkihellu, Furuhellu | | Lögð fram umsókn Hamravalla atvinnuhúsa ehf., um vilyrði fyrir lóð við Birkihellu/Furuhellu | | Samþykkt að veita vilyrði til sex mánaða. | | Umsókn um vilyrði fyrir lóð við Birkihellu - Undirritað.pdf | | Fylgiskjal_Heimar_Hamravellir.pdf | | LOI Heimar Hamravellir_Heimar_undirritun.pdf | | Tillaga_lóðir.pdf | | |
|
| 8. 2511554 - Blýhella 7 og 9, atvinnulóðir, lóðavilyrði | | Lögð fram umsókn Flensborgar hf. um lóðirnar nr. 7 og við Blýhellu | | Samþykkt að úthluta lóðunum nr. 7 og 9 við Blýhellu til Flensborgar hf. og málinu vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar. | | Blýhella 7-9 vilyrði.pdf | | |
|
| 9. 2605192 - Tunguhella 6, úthlutun lóðar | | Lögð fram umsókn FimmX Verk ehf. um lóðina nr. 6 við Tunguhellu | | Samþykkt að úthluta lóðina nr. 6 við Tunguhellu til FimmX Verks ehf. Málinu vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar. | | |
|
| 10. 2605078 - St. Jósefsspítali, 100 ára, útgáfa bókar | | Lagt fram erindi frá Hollvinasamtökum St.Jósefsspítala vegna 100 ára afmælis spítalans | | Vísað til menningar- og ferðamálanefndar. | | |
|
| 11. 1507400 - Erluás 33, umsókn um lóðarstækkun. | | Umsókn um lóðarstækkun. Lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs. | | Bæjarráð samþykkir umbeðna lóðarstækkun. | | Erluás 33, umsögn skipulags.pdf | | Lóðarstækkun að Erluási 33.pdf | | |
|
| 12. 2605229 - Samfylking, fyrirspurn, heilsuþjónusta | | Lagt fram. | Samfylking leggur fram eftirfarandi fyrirspurnir:
1. Hver er kostnaður bæjarins við þennan samning og hvaða fjárheimild var til staðar vegna þessara útgjalda? 2. Hver velur þá 80 bæjarstarfsmenn sem eiga að njóta þessarar þjónustu og hvernig verður það gert? 3. Hver sá um val á því fyrirtæki sem þjónustuna á að veita og var leitað til fleiri aðila á þessum vettvangi, sem veita sambærilega þjónustu? 4. Var viðhaft útboð. 5. Hvers vegna var málið ekki kynnt fyrir bæjarráði, sem er ábyrgt fyrir starfsmannamálum bæjarins?
Meirihluti bæjarráðs hafnar því að samningur Hafnarfjarðarbæjar við Lifeline Health hafi verið gerður án kynningar eða umræðu innan bæjarins. Málið var kynnt á fundi bæjarráðs þann 5. febrúar sl. þegar mannauðsstjóri lagði fram minnisblað um veikindahlutfall hjá Hafnarfjarðarbæ og þær aðgerðir sem fyrirhugaðar væru til að draga úr veikindum, styðja betur við starfsfólk og efla vellíðan á vinnustöðum bæjarins. Í þeirri kynningu var farið yfir 18 mánaða verkefnið Vellíðan í starfi, sem er hluti af markvissri vinnu mannauðsteymisins til að bregðast við veikindahlutfalli og styrkja heilsu, starfsánægju og vellíðan starfsfólks. Innan þess verkefnis var m.a. kynnt þátttaka í þróunarverkefni með Lifeline Health. Hafnarfjarðarbær og Vestmannaeyjabær eru þau sveitarfélög sem nú taka þátt í verkefninu, auk þess sem fleiri sveitarfélög eru að skoða þátttöku. Verkefnið er innan fjárheimilda og kostnaður við það nemur 3.160.000 kr. en samningurinn er til eins árs. Um er að ræða afmarkað þróunarverkefni sem fellur að þeim áherslum sem þegar hafa verið kynntar bæjarráði og eru liður í ábyrgri mannauðsstefnu bæjarins. Markmiðið er skýrt en það er að draga úr veikindum, styðja við starfsfólk og skapa heilbrigðari vinnustaði. Það er bæði mannúðlegt og fjárhagslega skynsamlegt að grípa fyrr inn í og leita nýrra leiða til að bæta líðan starfsfólks. Verkefnið Vellíðan í starfi var einnig kynnt öllum stjórnendum Hafnarfjarðarbæjar á stjórnendadegi í lok febrúar. Í kjölfarið gátu vinnustaðir óskað eftir þátttöku í Life line verkefninu. Nokkrir vinnustaðir sýndu því áhuga og mannauðsteymi bæjarins fór yfir þær umsóknir. Við val á þátttakendum var horft til þess að verkefnið næði til ólíkrar starfsemi bæjarins og hæfilegs fjölda starfsfólks en hámarksfjöldi þátttakenda er 80 manns. Hér er ekki um að ræða óvænta eða ókynnta ákvörðun, heldur eðlilegt framhald af vinnu sem þegar hefur verið kynnt bæjarráði og stjórnendum bæjarins. Undirritun samnings um framkvæmd verkefnisins átti því ekki að koma bæjarfulltrúum á óvart. Hafnarfjarðarbær er stór vinnustaður með fjölbreytta starfsemi og mikilvægt er að sveitarfélagið sýni frumkvæði þegar kemur að heilsu og vellíðan starfsfólks. Meirihlutinn fagnar því að ráðist sé í verkefni sem miðar að því að styðja betur við starfsfólk, draga úr veikindum og efla heilbrigða vinnustaðamenningu.
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja eftirfarandi fram: Heilsuefling, hvatning og stuðningur Hafnarfjarðarbæjar gagnvart starfsfólki bæjarins er jákvætt framtak sem Samfylkingin styður heilshugar. Það var og að frumkvæði bæjarráðsmanna Samfylkingarinnar að mannauðsstjóri var kallaður á fund bæjarráðs 5. febrúar síðastliðinn og óskað eftir hugmyndum og aðgerðum. Ekki síst í ljósi þess að skammtíma- og langtímaveikindi hafa verið vaxandi vandamál meðal starfsmanna bæjarins, sem ber þess merki að bæta þarf starfsmannastefnu bæjarins. Aukin starfsmannavelta, fjöldi kostnaðarsamra starfslokasamninga, ólögmætar uppsagnir og fleira undirstrika þetta. Í minnisblaði mannauðsstjóra voru ýmsar hugmyndir reifaðar, en engar ákvarðanir teknar. En að grípa svo til þess örfáum dögum fyrir kosningar, að undirlagi pólitískra fulltrúa í meirihluta, er í anda þess að um sýndarmennsku og yfirboð er að ræða. Málið er vanbúið og samningur við einkaaðila upp á 3 milljónir króna ósamþykktur og ókynntur í bæjarráði, sem ber ábyrgð á starfsmannamálum bæjarins. Starfsmenn bæjarins eru alls meira en tvö þúsund, en þetta verkefni nær aðeins til 80 starfsmanna. Ekki var leitað tilboða í verkefnið, ekki er sérstök fjárheimild til staðar og engin formleg samþykkt gerð um málið í bæjarráði. Og samningur við þjónustuaðila ekki undirritaður fyrr en fyrir nokkrum dögum. Heilsa og ánægja starfsmanna er mikilvægt mannauðsmál. Þau ber að taka alvarlega.Þau mál á ekki að setja á altari pólitískrar sýndarmennsku. Þessi sýndarmennska og þessi gjörð pólitísks meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks á síðustu dögum kjörtímabilsins rétt fyrir kosningar er í anda þess undarlega verklags sem við blasir; m.a. þar sem auglýsingar almenns eðlis um ágæti þjónustu bæjarins á fjölþættum sviðum hafa verið að birtast að undanförnu. Afar óljós skil eru milli pólitískra skilaboða meirihlutaflokkanna og auglýsinga bæjarins og gengur oddviti Framsóknarflokksins lengst allra í þeim efnum. Þetta jaðrar við misnotkun á opinberu fé. Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnarfirði eiga að kosta sín pólitísku skilaboð sjálfir en láta vera að nota skattfé almennings í slíkan áróður.
| | |
|
| 13. 2605144 - KPMG, ráðgjöf um árangursstjórnun í fjármálum | | Lagt fram minnisblað. Helga Benediktsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs og Guðmundur Sverrisson rekstrarstjóri hagdeildar mæta til fundarins. | | Bæjarráðs felur sviðsstjóra fjármáalsviðs að vinna málið áfram. | | Minnisblað til bæjarráðs varðandi ráðgjöf um árangursstjórnun í fjármálum - 12.05.2026.pdf | | |
|
| 14. 2409352 - Nýtt húsnæði fyrir bókasafn Hafnarfjarðar | | Lögð fram svör við fyrirspurn Samfylkingar | | Fulltrúar Samfylkingarinnar þakka framlögð svör. Þau staðfesta umtalsverðan kostnað við framkvæmdina og að verkið sjálft er á eftir áætlun í tíma, og mun bókasafnið á nýjum stað í Firði ekki opna fyrr en síðar í sumar. Þrátt fyrir það er blásið til "opnunarhátíðar " í Firði þremur dögum fyrir kosningar í framtíðarhúsnæði bókasafnsins. Þar verða engar bækur, engin starfsemi, en uppgert húsnæði. | | Minnisblað vegna bókasafns í Firði maí 2026.pdf | | Kaupsamningur_Fjarðargata_13-15.pdf | | Skilalýsing-Bókasafn_Hafnafjarða_lokadrög-SÞ-09.04.2024.pdf | | |
|
| 15. 2303181 - Stofnun menningarhúss í Hafnarfirði | | Lögð fram skýrsla | Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja eftirfarandi fram: Tímasetning framlagningar skýrslu starfshópsins er athyglisverð. Starfshópurinn hefur ekki fundað á þessu ári og fundaði raunar síðast í nóvember sl. og því liðnir einir 5 mánuðir síðan hópurinn fundaði síðast. Tíminn til þess að leggja lokadrög á skýrsluna hefur því verið nægur en tíminn var einfaldlega ekki nýttur en nú er skýrslan lögð fram nokkrum dögum fyrir kosningar. Þegar fulltrúa Samfylkingarinnar í starfshópnum varð kunnugt um fyrir tveim dögum að leggja ætti skýrsluna fram á þessum fundi bæjarráðs þá fór hann fram að haldinn yrði fundur í starfshópnum þar sem farið væri yfir skýrsludrögin, þau lagfærð og þau send út í kjölfarið. Við þeirri beiðni var ekki orðið. Fulltrúi Samfylkingarinnar í starfshópnum getur því ekki skrifað upp á skýrsluna sem lögð er fram í dag og hann hefur komið því á framfæri við starfshópinn.
Það er hjákátlegt að fylgjast með örvæntingarfullum tilraunum Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks til þess að redda enn einu sinni fyrir horn, verkefnum sem voru og eru fullkomlega ókláruð; í þessu tilfelli stefnumörkun í menningarmálum og nýs menningarhúss í bænum. Sérstakur starfshópur var settur í málið samkvæmt tillögu Samfylkingarinnar. Hann hefur hist nokkrum sinnum, en síðasti fundar var haldinn í nóvember á síðasta ári. Svo núna fjórum dögum fyrir kosningar birtist skýrsla, ein og hálf blaðsíða, sem segir fátt og lítið og skýrslan er birt án þess að nefndarmenn í viðkomandi starfshópi hafi komið saman og rýnt skýrsludrögin, hvað þá samþykkt þau. Þetta er broslegt, hallærislegt og neyðarlegt - allt í senn. Það er of seint að bjarga hlutum fyrir horn fjórum dögum fyrir kosningar! Það er kominn tími á breytingar í Hafnarfirði!
| | Skýrsla starfshóps um menningarhús í Hafnarfirði_maí 2026_final.pdf | | |
|
| |
|
| 17. 2604021F - Hafnarstjórn - 1703 | | Fundargerð hafnarstjórnar frá 29.apríl sl. | | |
|
| 18. 2601554 - Heilbrigðiseftirlit, fundargerðir 2026 | | Lögð fram fundargerð heilbrigðisnefndar frá 27.apríl sl. | | Fundargerð heilbrigðisnefndar dags.28.04.2026.pdf | | |
|
| 19. 2604024F - Menningar- og ferðamálanefnd - 474 | | Lögð fram fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 6.maí sl. | | |
|
|