Til bakaPrenta
Fjölskylduráð - 552

Haldinn í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6,
14.04.2026 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu: Margrét Vala Marteinsdóttir formaður,
Helga Ingólfsdóttir varaformaður,
Árni Rúnar Þorvaldsson aðalmaður,
Auður Brynjólfsdóttir aðalmaður,
Árni Stefán Guðjónsson áheyrnarfulltrúi,
Alexander Árnason varamaður,
Fundargerð ritaði: Hrafnhildur Ágústsdóttir, lögfræðingur velferðarþjónustu
Einnig sat Guðlaug Ósk Gísladóttir, sviðsstjóri, fundinn.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2304615 - Málefni heimilislausra
Lagt fram til afgreiðslu. Sigurður Haraldsson, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs og Elín Ósk Baldursdóttir, deildarstjóri þjónustu- og úrræðateymis mæta á fundinn undir þessum lið.
Fjölskylduráð þakkar Guðlaugu Ósk Gísladóttur, Sigurði Haraldssyni og Elínu Ósk Baldursdóttur fyrir kynninguna.

Fjölskylduráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu og vísar henni til skipulags- og byggingarráðs.

Hafnarfjarðarbær hefur á síðustu árum verið að byggja markvisst upp þjónustu við heimilislausa, styrkja samstarf við mismunandi aðila og byggja upp þekkingu og reynslu í málaflokknum. Einn þáttur í þjónustunni er að byggja upp smáhýsi og skapa þannig öruggt, tímabundið búsetuúrræði sem styður við einstaklinga í átt að auknum stöðugleika, sjálfstæði og bættri lífsgæðum. Markmiðið er að mæta fólki þar sem það er statt, efla virkni þess og auka möguleika á varanlegri lausn í húsnæðismálum.

Fulltrúar Samfylkingarinnar og áheyrnarfulltrúi Viðreisnar leggja fram eftirfarandi bókun:

Um leið og fulltrúar Samfylkingarinnar og áheyrnarfulltrúi Viðreisnar samþykkja að unnið verði áfram með þá tillögu sem liggur fyrir fundinum, enda lengi talað fyrir því að smáhýsin komist í nýtingu, þá gagnrýnum við þann hringlanda sem einkennt hefur vinnslu þessa máls. Við leggjum herslu á að vinnslu málsins verði hraðað eins og kostur og að það verði vel kynnt meðal nágranna og íbúa.
2. 2603523 - Leibeiningar um sérstakan húsnæðisstuðning
Leiðbeiningar ráðuneytis um sérstakan húsnæðisstuðning lagðar fram til kynningar. Elín Ósk Baldursdóttir, deildarstjóri þjónustu- og úrræðateymis og Áslaug Kristjana Árnadóttir, verkefnastjóri félagslegra húsnæðismála mæta á fundinn undir þessum lið.
Fjölskylduráð þakkar Elínu Ósk Baldursdóttur og Áslaugu Kristjönu Árnadóttur fyrir kynninguna.

Fjölskylduráð óskar eftir kostnaðarmati vegna leiðréttingar á sérstökum húsnæðisstuðningi og uppfærslu á hámarki og felur fjölskyldu-og barnamálasviði að vinna að málinu áfram.
Leiðbeiningar fyrir sveitarfélög um framkvæmd sérstaks húsnæðisstuðnings - uppfært mars 2026.pdf
3. 2501358 - Húsnæði fyrir fatlað fólk - uppbygging
Sviðsstjóri leggur fram til kynningar húsnæðisáætlun fyrir fatlað fólk fyrir árin 2026 - 2038. Reynir Páll Helgason, sérfræðingur í hagdeild og Ásta Guðrún Guðbrandsdóttir, deildarstjóri stuðnings- og stoðþjónustuteymis mæta á fundinn undir þessum lið.
Fjölskylduráð þakkar fyrir kynninguna.

Fjölskylduráð vísar húsnæðisáætlun fyrir fatlað fólk fyrir árin 2026-2028 til kynningar og umsagnar í samráðshópi um málefni fatlaðs fólks. Áætlunin verði síðan lögð fram til afgreiðslu á næsta fundi fjölskylduráðs.
4. 2502769 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2026 og 2027-2029
Reynir Páll Helgason, sérfræðingur í hagdeild og Guðmundur Sverrisson, rekstrarstjóri í hagdeild mæta á fundinn undir þessum lið.
Lagt fram til kynningar
5. 2601658 - Reglur um fjárhagsaðstoð hjá Hafnarfjarðarkaupstað
Drög að reglum um fjárhagsaðstoð hjá Hafnarfjarðarkaupstað lagðar fram til umræðu. Soffía Ólafsdóttir, deildarstjóri ráðgjafarteymis og Ægir Örn Sigurgeirsson, deildarstjóri alþjóðateymis mætir á fundinn undir þessum lið.
6. 2404013 - Janus heilsuefling - samningur
Lagt fram
7. 2603459 - Samþætting heimahjúkrunar og félagslegrar heimaþjónustu
Lögð fram viljayfirlýsing og minnisblað um samþættingu félagslegrar heimaþjónustu og heimahjúkrunar.
Fjölskylduráð þakkar fyrir kynninguna.

Fjölskylduráð telur mikilvægt að unnið verði að því að samþætta heilbrigðis- og félagsþjónustu í Hafnarfirði, með gæði og hagkvæmni þjónustunnar að leiðarljósi. Fjölskylduráð vill að skoðað verði hvaða möguleikar eru fyrir hendi þegar kemur að slíkri samþættingu m.a. með hliðsjón af þeim umsóknum sem Hafnarfjarðarbær skilaði inn til félags- og húsnæðismálaráðuneytisins vegna verkefnisins gott að eldast á árinu 2023. Sviðstjóra falið að taka saman minnisblað um málið.
8. 2311460 - Ný heilsugæsla í Hafnarfirði
Lagt fram minnisblað um samskipti aðila um nýja heilsugæslu í Hafnarfirði.
Í sameiginlegri bókun fjölskylduráðs kom fram að ekki hefur staðið á sveitarfélaginu sem hefur lýst yfir vilja á undanförnum árum á opnun á nýrri heilsugæslu í bænum. Óskað hefur verið eftir viðræðum við ríkið um aðkomu að verkefninu með því að leggja fram lóð eða taka þátt í verkefninu með öðrum hætti. Það er í höndum ríkisstjórnar að klára málið fyrir fullt og allt svo uppbygging geti hafist að nýrri heilsugæslu á völlunum.

Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun:

Fulltrúar Samfylkingarinnar hafa reglulega sett nýja heilsugæslu á dagskrá fjölskylduráðs, bæjarráðs, og bæjarstjórnar til þess að reyna að hreyfa við málinu. Jafnframt höfum lagt til að farið yrði í formlegar viðræður með fulltrúum meiri- og minnihluta í bæjarstjórn við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins um nýja heilsugæslu miðsvæðis á Völlum sem gæti þjónustað um 20 þúsund notendur í nýjustu hverfum bæjarins; Völlum, Hamranesi, Skarðshlíð og Áslandi. En meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks hefur jafnan vísað þeirri tillögu frá. Í framlögðu minnisblaði bæjarstjóra er ekki minnst á þessa tillögu Samfylkingarinnar og eingöngu að finna bókanir meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks vegna málsins. Fulltrúar Samfylkingarinnar gera athugasemdir við þessa framsetningu bæjarstjóra í fyrrnefndu minnisblaði. Lítið hefur þokast í málinu síðan horfið var frá þeim fyrirætlunum að ný heilsugæsla myndi rísa samhliða nýju hjúkrunarheimili í Hamranesi. Brýnt er að ný heilsugæsla, sem þjónar fyrrnefndum hverfum, rísi sem fyrst enda mikil þörf fyrir endurbætta þjónustu í nýjum hverfum bæjarins. Fulltrúar Samfylkingarinnar hafa reglulega sett nýja heilsugæslu á dagskrá fjölskylduráðs, bæjarráðs, og bæjarstjórnar til þess að reyna að hreyfa við málinu. Jafnframt höfum lagt til að farið yrði í formlegar viðræður með fulltrúum meiri- og minnihluta í bæjarstjórn við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins um nýja heilsugæslu miðsvæðis á Völlum sem gæti þjónustað um 20 þúsund notendur í nýjustu hverfum bæjarins; Völlum, Hamranesi, Skarðshlíð og Áslandi. En meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks hefur jafnan vísað þeirri tillögu frá. Í framlögðu minnisblaði bæjarstjóra er ekki minnst á þessa tillögu Samfylkingarinnar og eingöngu að finna bókanir meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks vegna málsins. Fulltrúar Samfylkingarinnar gera athugasemdir við þessa framsetningu bæjarstjóra í fyrrnefndu minnisblaði. Lítið hefur þokast í málinu síðan horfið var frá þeim fyrirætlunum að ný heilsugæsla myndi rísa samhliða nýju hjúkrunarheimili í Hamranesi. Brýnt er að ný heilsugæsla, sem þjónar fyrrnefndum hverfum, rísi sem fyrst enda mikil þörf fyrir endurbætta þjónustu í nýjum hverfum bæjarins.
9. 2206161 - Íbúðir fyrir eldra fólk
Til umræðu
Fulltrúar meirihluta Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks leggja fram eftirfarandi bókun:

Á áætlun er uppbygging um 400 íbúða fyrir eldra fólk í Hafnarfirði á næstu árum, m.a. á Sólvangsreitnum, við Hrafnistu og í Vigdísarholti.

Með þessari uppbyggingu verða til þrír öflugir lífsgæðakjarnar fyrir eldra fólk þar sem áhersla verður lögð á samþætta þjónustu, gott aðgengi og öruggt nærumhverfi.

Vinna við skipulagsmál er þegar hafin í Vigdísarholti og ljóst að gera þarf breytingar á deiliskipulagi á Sólvangsreitnum og við Hrafnistu til að unnt sé að hrinda verkefninu í framkvæmd.

Meirihluti fjölskylduráðs hvetur til þess að þessi vinna hefjist án tafar og í samræmi við niðurstöður starfshóps um uppbyggingu íbúða fyrir eldra fólk.

Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun:

Fulltrúar Samfylkingarinnar furða sig á því í ljósi bókunar meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks að meirihlutinn hafi ekki getað samþykkt tillögu Samfylkingarinnar um að hefja undirbúning uppbyggingar á lífsgæðaíbúðum fyrir eldra fólk á Sólvangsreitnum. Frá því Samfylkingin lagði fram þá tillögu í kjölfar skýrslu starfshóps um uppbyggingu íbúða fyrir eldra fólk hafa fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sagt að til stæði að hefja vinnu gerð 10 ára uppbyggingaráætlunar. En núna á einum af síðustu fundum fjölskylduráðs á kjörtímabilinu leggur meirihlutinn fram bókun þar sem segir að 400 nýjar lífsgæðaíbúðir séu nánast handan við hornið. Það sjá allir að hér er á ferðinni örvæntingarfull tilraun til þess að slá ryki í augu kjósenda til þess að hylja þá staðreynd að lítið sem ekkert hefur gerst í þessum málum á kjörtímabili þrátt fyrir fögur fyrirheit meirihlutans í upphafi kjörtímabilsins.
10. 2506556 - Heimahreyfing
Þjónustusamningur um DigiRehab heimahreyfingarþjónustu lagður fram til kynningar
11. 2604117 - Málefni fólks með einhverfu
Til umræðu
12. 2602377 - Fyrirspurn Samfylkingar, Hreiðrið ungmennahús
Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir upplýsingum um stöðu vinnu um að koma af stað starfi með ungu fólki með innflytjendabakgrunn í Hreiðrinu, sbr. upplýsingar sem fram komu í minnisblaði sem lagt var fram á fundi fjölskylduráðs þann 3. mars sl.
Lagt fram
13. 2512706 - Sveitarstjórnarkosningar 2026
Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir upplýsingum hvernig kynningarfundir bæjarins með innflytjendum um sveitarstjórnarkosningarnar hafa gengið og hvernig sé unnið að því að öðru leyti að koma upplýsingum til innflytjenda í aðdraganda kosninga.
Lagt fram
Fundargerðir
14. 2412078 - Fundargerðir til kynningar í fjölskylduráði
Lagðar fram fundargerðir:
1) Öldungaráð frá 10. mars sl.
2) Stjórnenda í velferðarþjónustu SSH 18. mars sl.
Lagt fram
15. 0701243 - Málskot
Lögð fram niðurstaða málskotsnefndar í málum nr. 11-14/2026.

Fjölskylduráð staðfestir afgreiðslu málskotsnefndar.
Helga Ingólfsdóttir, vék af fundi 10:40.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:55 

Til bakaPrenta