Til bakaPrenta
Bæjarráð - 3703

Haldinn í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6,
20.03.2026 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Orri Björnsson formaður,
Margrét Vala Marteinsdóttir varaformaður,
Árni Rúnar Þorvaldsson aðalmaður,
Guðmundur Árni Stefánsson aðalmaður,
Kristinn Andersen aðalmaður,
Jón Ingi Hákonarson áheyrnarfulltrúi,
Fundargerð ritaði: Ívar Bragason, Bæjarlögmaður


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2603146 - Flatahraun 12 og 14, uppbygging, þróun
Lagt fram erindi varðandi uppbyggingu og þróun á reit sem samanstendur af Flatahrauni 12 og 14.Einar Páll Tamimi mætir til fundarins.
FL12 - erindi til bæjarráðs Hafnarfjarðar.pdf
2. 2412631 - Almenningssamgöngur
Lögð fram til samþykktar drög að þjónustusamningi sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og ríkisins við Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf.
Lögð fram til samþykktar drög að samstarfssamningi milli Strætó bs. og Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins ohf. um rekstur almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu.
Páll Björgvin Guðmundsson og Hildigunnar Hafsteinsdóttir frá SSH mæta til fundarins
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samning og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar.
Fylgibréf HFJ- almenningssamgöngur_þjónustusamningur og samstarfssamningur.pdf
a Minnisblað framkvæmdastjóra SSH um þjónustusamning og samstarfssamning vegna almenningssamgangna 020326.pdf
b Lokadrög þjónustusamnings sveitarfélaga og ríkis við Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf..pdf
c Lokadrög samstarfssamnings Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins ohf og Strætó bs. um rekstur almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu.pdf
Kynning í byggðarráðum mars 2026.pdf
3. 2504185 - Samþykkt um bílastæðasjóð
Lögð fram tillaga um að lögð verði fram beiðni til innviðaráðherra um heimild til álagningar og innheimtu gjalda vegna stöðubrota í sveitarfélaginu.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu um gjaldskrá Bílastæðasjóðs ásamt því að senda beiðni til innviðaráðherra. Vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar.
Innviðaráðuneytið - beiðni.pdf
Tillaga að gjaldskrá Bílastæðasjóðs vegna stöðvunarbrota.pdf
Kynning fyrir ráð apríl 2026.pdf
4. 2603403 - Dómsmál
Lagt fram minnisblað.
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja eftirfarandi fram:
Ljóst er á fyrirliggjandi upplýsingum að ýmis ágreiningsmál, sem varða háar fjárhæðir hafa ratað til meðferðar dómsmála. Sum varða háar upphæðir og eru einnig hugsanlega fordæmisgefandi. Það er í sjálfu sér ekki óeðlilegt á stóru heimili eins og hjá bæjarfélagi á borð við Hafnarfjörð. Það var að beiðni bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar í bæjarstjórn að þessara upplýsinga var aflað og komið á framfæri við bæjarráð, enda eðlilegt að kjörnir fulltrúar komi að umfjöllun grundvallarmála sem varða verulega fjárhagslega hagsmuni bæjarfélagsins og hvernig afstöðu bæjarins skuli háttað í hverju tilfelli fyrir sig.
Rétt er að rifja upp að fyrir hálfum mánuði var birt niðurstaða dóms héraðsdóms, þar sem Hafnarfirði var stefnt vegna greiðslna persónuuppbóta til tímavinnustarfsfólks bæjarins. Og bærinn tók til varna á árinu 2023, en tapaði málinu í júní 2025. Ekkert gerðist svo í málinu fyrr en Verkalýðsfélagið Hlíf vakti athygli á málinu og gagnrýndi að bærinn viðurkenndi ekki dóminn og neitaði að greiða öðrum starfsmönnum með sambærileg réttindi. Í kjölfarið óskaði Samfylkingin eftir málinu á dagskrá bæjarráðs 5.mars s.l. Þar var staðfest að dómurinn hefði fordæmisgildi fyrir um 5-600 starfsmenn, núverandi og fyrrverandi. Auk þess var samhljóða samþykkt að greiða rétthöfum. Bæjarráð sneri þannig við blaði í afstöðu bæjarins.
Ekki síst í þessu ljósi er mikilvægt er að kjörnir fulltrúar séu upplýstir um gang þessara mála og móti afstöðu í samráði við stjórnkerfi bæjarins, enda liggur fyrir að um háar upphæðir er að tefla, svo skiptir tugum ef ekki hundruðum milljónum króna. Bæjarlögmanni skal þakkað fyrir þennan lista.

Minnisblað - Samantekt á dómsmálum_fyrir bæjarráð.pdf
5. 2106263 - Hafnarfjarðarbær, heildstæð stefnumótun, heimsmarkmið
Lögð fram drög að uppfærslu á meginmarkmiðum og stefnumarkandi áherslum 2026-2028 í heildarstefnu Hafnarfjarðar til 2035. Arnar Pálsson frá Arcur og Árdís Ármannsdóttir sviðsstjóri þjónustu- og þrónarsviðs mæta til fundarins.
Stefna Hafnarfjarðarbæjar v03.pdf
6. 1809298 - Tækniskólinn, nýbygging, erindi
Til umræðu
Bæjarstjóra er falið að vinna málið áfram og senda aðilum fyrirliggjandi bréf með afstöðu bæjarins ásamt minnisblaði lögmanna.

Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja eftirfarandi fram:
Um stórverkefni eins og bygging nýs Tækniskóla í Hafnarfirði er góð samvinna aðila forsenda þess að vel takist til. Ljóst er að margt er óunnið af hendi meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks en meirihlutanum hefur enn ekki tekist að ljúka því verkefni að semja við lóðarhafa og eigendur mannvirkja á lóðinni, eins og bænum ber að gera samkvæmt stofnsamningi aðila. Þar eru stórverkefni ókláruð og mjakast hægt. Einnig eru nú uppi álitamál millum Tækniskólans og bæjarins um túlkun sem þarf að greiða úr. Samfylkingin styður fyrirliggjandi svar bæjarráðs við erindi Tækniskólans þar um. Framkvæmdir eiga að hefjast í byrjun næsta árs og hönnun er í gangi. Sú tímalína er í mikilli hættu. Allt ber þetta að sama brunni. Meirihluti bæjarstjórnar er ekki að standa sig í stykkinu í þessu stórmáli fremur en mörgum öðrum.

7. 2511201 - Vigdísarholt ehf, viljayfirlýsing, samstarf, nýtt hjúkrunarheimili, Vatnshlíð
Lögð fram drög að erindisbréfi samráðshóps um lífsgæðakjarna og óskað eftir tilnefningum í hópinn.
Erindisbréf Starfshópur um þjónustu lífsgæðakjarna dr2.pdf
8. 2504698 - Namystów, Pólland, ósk um vinabæjarsamband
Lagt fram. Sunna Magnúsdóttir verkefnastjóri mætir til fundarins.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.
Letter to Mayor of Hafnarfjörður.pdf
9. 2503793 - Hämeenlinna, vinabæjarmót 2026
Vinabæjarmót 22.aprítl - 25.apríl nk.
Bæjarráð tilnefnir Guðmund Fylkisson og Stefán Má Gunnlaugsson sem fulltrúa á vinabæjarmótið.
10. 2603199 - Víðistaðatún, viðburður, tónleikar
Lögð fram beiðni um afnot af Víðistaðatúni vegna viðburðarhalds
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.
11. 2602306 - Brunnás 29, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn Sigurgeirs Sigurgeirssonar um lóðina nr. 29 við Brunnás
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni samkvæmt umsókn og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar.
12. 2603304 - Vörðuás 17, umsókn um lóð
Lögð fram unsókn Jóns Rúnars Ariliussonar um lóðina nr. 17 við Vörðuás.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni samkvæmt umsókn og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar.
13. 2602619 - Vörðuás 1-3, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn OFG - Verk ehf um lóðina nr. 1-3 við Vörðuás.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni samkvæmt umsókn og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar.
14. 2603136 - Vörðuás 5-7, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn OFG - Verk ehf. um lóðina nr. 5-7 við Vörðuás.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni samkvæmt umsókn og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar.
15. 2601344 - Brunnás 20, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn SG eigna ehf. um lóðina nr. 20 við Brunnás.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni samkvæmt umsókn og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar.
16. 2601343 - Brunnás 22, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn SG eigna ehf. um lóðina nr. 22 við Brunnás.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni samkvæmt umsókn og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar.
17. 2601342 - Brunnás 24, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn SG eigna ehf. um lóðina nr. 24 við Brunnás.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni samkvæmt umsókn og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar.
18. 2601341 - Brunnás 26, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn SG eigna ehf. um lóðina nr. 26 við Brunnás.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni samkvæmt umsókn og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar.
19. 2601340 - Brunnás 28, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn SG eigna ehf. um lóðina nr. 28 við Brunnás
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni samkvæmt umsókn og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar.
20. 2601339 - Brunnás 30, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn SG eigna ehf. um lóðina nr. 30 við Brunnás.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni samkvæmt umsókn og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar.
21. 2601338 - Brunnás 32, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn SG eigna ehf. um lóðina nr. 32 við Brunnás.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni samkvæmt umsókn og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar.
22. 2603259 - Hryggjarás 3, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn Eggerts Ólafssonar um lóðina nr. 3 við Hryggjarás
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn Aðalsteins Ingvarssonar og til vara umsókn Egils Björnssonar og til þrautavara umsókn Ásrúnar Óskar Bragadóttur.
23. 2603254 - Hryggjarás 3, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn Ólafs Hilmarssonar um lóðina nr. 3 við Hryggjarás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn Aðalsteins Ingvarssonar og til vara umsókn Egils Björnssonar og til þrautavara umsókn Ásrúnar Óskar Bragadóttur
24. 2603186 - Hryggjarás 3, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn Gísla Bragasonar um lóðina nr. 3 við Hryggjarás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn Aðalsteins Ingvarssonar og til vara umsókn Egils Björnssonar og til þrautavara umsókn Ásrúnar Óskar Bragadóttur
25. 2603167 - Hryggjarás 3, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn Helgu Björgu Sigurðardóttur um lóðina nr. 3 við Hryggjarás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn Aðalsteins Ingvarssonar og til vara umsókn Egils Björnssonar og til þrautavara umsókn Ásrúnar Óskar Bragadóttur
26. 2603137 - Hryggjarás 3, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn Helga Gíslasonar um lóðina nr. 3 við Hryggjarás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn Aðalsteins Ingvarssonar og til vara umsókn Egils Björnssonar og til þrautavara umsókn Ásrúnar Óskar Bragadóttur
27. 2603132 - Hryggjarás 3, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn Pálmars Péturssonar um lóðina nr. 3 við Hrayggjarás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn Aðalsteins Ingvarssonar og til vara umsókn Egils Björnssonar og til þrautavara umsókn Ásrúnar Óskar Bragadóttur.
28. 2603131 - Hryggjarás 3, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn Orra Péturssonar um lóðina nr. 3 við Hryggjarás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn Aðalsteins Ingvarssonar og til vara umsókn Egils Björnssonar og til þrautavara umsókn Ásrúnar Óskar Bragadóttur.
29. 2603130 - Hryggjarás 3, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn Halldórs Jóns Karlssonar um lóðina nr. 3 við Hryggjarás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn Aðalsteins Ingvarssonar og til vara umsókn Egils Björnssonar og til þrautavara umsókn Ásrúnar Óskar Bragadóttur.
30. 2603109 - Hryggjarás 3, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn Hafsteins Þórs Guðjónssonar um lóðina nr. 3 við Hryggjarás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn Aðalsteins Ingvarssonar og til vara umsókn Egils Björnssonar og til þrautavara umsókn Ásrúnar Óskar Bragadóttur.
31. 2603108 - Hryggjarás 3, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn Hjartar Pálma Jónssonar um lóðina nr. 3 við Hryggjarás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn Aðalsteins Ingvarssonar og til vara umsókn Egils Björnssonar og til þrautavara umsókn Ásrúnar Óskar Bragadóttur.
32. 2603107 - Hryggjarás 3, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn Aðalsteins Ingvasonar um lóðina nr. 3 við Hryggjarás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn Aðalsteins Ingvarssonar og til vara umsókn Egils Björnssonar og til þrautavara umsókn Ásrúnar Óskar Bragadóttur. Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni í samræmi við útdrátt og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar.
33. 2603106 - Hryggjarás 3, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn Bergrúnar Lilju Sigurjónsdóttur um lóðina nr. 3 við Hryggjarás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn Aðalsteins Ingvarssonar og til vara umsókn Egils Björnssonar og til þrautavara umsókn Ásrúnar Óskar Bragadóttur.
34. 2603102 - Hryggjarás 3, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn Ingva Arnars Sigurjónssonar um lóðina nr. 3 við Hryggjarás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn Aðalsteins Ingvarssonar og til vara umsókn Egils Björnssonar og til þrautavara umsókn Ásrúnar Óskar Bragadóttur.
35. 2603094 - Hryggjarás 3, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn Lilju Guðrúnar Jónsdóttur um lóðina nr. 3 við Hryggjarás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn Aðalsteins Ingvarssonar og til vara umsókn Egils Björnssonar og til þrautavara umsókn Ásrúnar Óskar Bragadóttur.
36. 2603093 - Hryggjarás 3, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn Smára Björnssonar um lóðina nr. 3 við Hryggjarás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn Aðalsteins Ingvarssonar og til vara umsókn Egils Björnssonar og til þrautavara umsókn Ásrúnar Óskar Bragadóttur.
37. 2603092 - Hryggjarás 3, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn MA Verktaka ehf. um lóðina nr. 3 við Hryggjarás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn Aðalsteins Ingvarssonar og til vara umsókn Egils Björnssonar og til þrautavara umsókn Ásrúnar Óskar Bragadóttur.
38. 2603091 - Hryggjarás 3, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn Matthíasar Barðarsonar um lóðina nr. 3 við Hryggjarás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn Aðalsteins Ingvarssonar og til vara umsókn Egils Björnssonar og til þrautavara umsókn Ásrúnar Óskar Bragadóttur.
39. 2603086 - Hryggjarás 3, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn Péturs Þórarinssonar um lóðina nr. 3 við Hryggjarás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn Aðalsteins Ingvarssonar og til vara umsókn Egils Björnssonar og til þrautavara umsókn Ásrúnar Óskar Bragadóttur.
40. 2603080 - Hryggjarás 3, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn Tómasar Óskarssonar um lóðina nr. 3 við Hryggjarás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn Aðalsteins Ingvarssonar og til vara umsókn Egils Björnssonar og til þrautavara umsókn Ásrúnar Óskar Bragadóttur.
41. 2603011 - Hryggjarás 3, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn Guðjóns Aðalsteinssonar um lóðina nr. 3 við Hryggjarás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn Aðalsteins Ingvarssonar og til vara umsókn Egils Björnssonar og til þrautavara umsókn Ásrúnar Óskar Bragadóttur.
42. 2603010 - Hryggjarás 3, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn Mána Borgarssonar um lóðina nr. 3 við Hryggjarás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn Aðalsteins Ingvarssonar og til vara umsókn Egils Björnssonar og til þrautavara umsókn Ásrúnar Óskar Bragadóttur.
43. 2603009 - Hryggjarás 3, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn Borgars Þorsteinssonar um lóðina nr. 3 við Hryggjarás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn Aðalsteins Ingvarssonar og til vara umsókn Egils Björnssonar og til þrautavara umsókn Ásrúnar Óskar Bragadóttur.
44. 2603008 - Hryggjarás 3, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn Steins Borgarssonar um lóðina nr. 3 við Hryggjarás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn Aðalsteins Ingvarssonar og til vara umsókn Egils Björnssonar og til þrautavara umsókn Ásrúnar Óskar Bragadóttur.
45. 2603007 - Hryggjarás 3, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn Ásrúnar Bragadóttur um lóðina nr. 3 við Hryggjarás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn Aðalsteins Ingvarssonar og til vara umsókn Egils Björnssonar og til þrautavara umsókn Ásrúnar Óskar Bragadóttur.
46. 2603006 - Hryggjarás 3, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn Ástþórs Guðmundssonar um lóðina nr. 3 við Hryggjarás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn Aðalsteins Ingvarssonar og til vara umsókn Egils Björnssonar og til þrautavara umsókn Ásrúnar Óskar Bragadóttur.
47. 2603370 - Hryggjarás 3, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn Braga Reynissonar um lóðina nr. 3 við Hryggjarás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn Aðalsteins Ingvarssonar og til vara umsókn Egils Björnssonar og til þrautavara umsókn Ásrúnar Óskar Bragadóttur.
48. 2603325 - Hryggjarás 3, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn Egils Kristbjörnssonar um lóðina nr. 3 við Hryggjarás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn Aðalsteins Ingvarssonar og til vara umsókn Egils Björnssonar og til þrautavara umsókn Ásrúnar Óskar Bragadóttur.
49. 2603324 - Hryggjarás 3, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn Friðriks Ottesen um lóðina nr. 3 við Hryggjarás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn Aðalsteins Ingvarssonar og til vara umsókn Egils Björnssonar og til þrautavara umsókn Ásrúnar Óskar Bragadóttur.
50. 2512579 - Byrgisás 9-21, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn Þúfuhlíðar ehf. um lóðina nr. 9-21 við Byrgisás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn Þórssmíði ehf. og til vara umsókn Viðja ehf. og til þrautavara umsókn Byggbræðra ehf.
51. 2512557 - Byrgisás 9-21, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn Bygg bræðra ehf. um lóðina nr. 9-21 við Byrgisás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn Þórssmíði ehf. og til vara umsókn Viðja ehf. og til þrautavara umsókn Byggbræðra ehf
52. 2512551 - Byrgisás 9-21, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn SG eigna ehf. um lóðina nr. 9-21 við Byrgisás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn Þórssmíði ehf. og til vara umsókn Viðja ehf. og til þrautavara umsókn Byggbræðra ehf
53. 2512539 - Byrgisás 9-21, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn Green Data ehf. um lóðina nr. 9-21 við Byrgisás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn Þórssmíði ehf. og til vara umsókn Viðja ehf. og til þrautavara umsókn Byggbræðra ehf.
54. 2512510 - Byrgisás 9-21, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn Kjarralda ehf. um lóðina nr. 9-21 við Byrgisás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn Þórssmíði ehf. og til vara umsókn Viðja ehf. og til þrautavara umsókn Byggbræðra ehf.
55. 2512502 - Byrgisás 9-21, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn Helgatúns ehf. um lóðina nr. 9-21 við Byrgisás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn Þórssmíði ehf. og til vara umsókn Viðja ehf. og til þrautavara umsókn Byggbræðra ehf.
56. 2512258 - Byrgisás 9-21, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn Viðju ehf um lóðina nr. 9-21 við Byrgisás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn Þórssmíði ehf. og til vara umsókn Viðja ehf. og til þrautavara umsókn Byggbræðra ehf.
57. 2512239 - Byrgisás 9-21, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn Fjarðarmóta ehf. um lóðina nr. 9-21 við Byrgisás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn Þórssmíði ehf. og til vara umsókn Viðja ehf. og til þrautavara umsókn Byggbræðra ehf.
58. 2512223 - Byrgisás 9-21, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn SÁR ehf. um lóðina nr. 9-21 við Byrgisás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn Þórssmíði ehf. og til vara umsókn Viðja ehf. og til þrautavara umsókn Byggbræðra ehf.
59. 2512051 - Byrgisás 9-21,umsókn um lóð
Lögð fram umsókn Þórs smíði sf. um lóðina nr. 9-21 við Byrgisás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn Þórs smíði sf. og til vara umsókn Viðja ehf. og til þrautavara umsókn Byggbræðra ehf. Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni í samræmi við útdrátt og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar.
60. 2512036 - Byrgisás 9-21, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn Oddafells ehf. um lóðina nr. 9-21 við Byrgisás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn Þórssmíði ehf. og til vara umsókn Viðja ehf. og til þrautavara umsókn Byggbræðra ehf.
61. 2512576 - Byrgisás 2-12, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn Þúfuhlíðar ehf. um lóðina nr. 2-12 við Byrgisás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn SG eigna ehf. og til vara umsókn SÁR ehf. og til þrautavara umsókn Viðju ehf.
62. 2512548 - Byrgisás 2-12, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn Bygg bræðra ehf. um lóðina nr. 2-12 við Byrgisás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn SG eigna ehf. og til vara umsókn SÁR ehf. og til þrautavara umsókn Viðju ehf.
63. 2512546 - Byrgisás 2-12, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn SG eigna ehf. um lóðina nr. 2-12 við Byrgisás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn SG eigna ehf. og til vara umsókn SÁR ehf. og til þrautavara umsókn Viðju ehf. Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni í samræmi við útdrátt og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar.
64. 2512513 - Byrgisás 2-12, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn Kjarralda ehf. um lóðina nr. 2-12 við Byrgisás
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn SG eigna ehf. og til vara umsókn SÁR ehf. og til þrautavara umsókn Viðju ehf.
65. 2512505 - Byrgisás 2-12, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn Helgatúns ehf. um lóðina nr. 2-12 við Byrgisás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn SG eigna ehf. og til vara umsókn SÁR ehf. og til þrautavara umsókn Viðju ehf.
66. 2512376 - Byrgisás 2-12, umsókn um lóð
lögð fram umsókn Við tjarnarbakkann ehf. um lóðina nr. 2-12 við Byrgisás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn SG eigna ehf. og til vara umsókn SÁR ehf. og til þrautavara umsókn Viðju ehf.
67. 2512260 - Byrgisás 2-12, Umsókn um lóð
Lögð fram umsókn Viðju ehf. um lóðina nr. 2-12 við Byrgisás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn SG eigna ehf. og til vara umsókn SÁR ehf. og til þrautavara umsókn Viðju ehf.
68. 2512242 - Byrgisás 2-12, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn Fjarðarmóta ehf. um lóðina nr. 2-12 við Byrgisás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn SG eigna ehf. og til vara umsókn SÁR ehf. og til þrautavara umsókn Viðju ehf.
69. 2512221 - Byrgisás 2-12, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn SÁR ehf. um lóðina nr. 2-12 við Byrgisás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn SG eigna ehf. og til vara umsókn SÁR ehf. og til þrautavara umsókn Viðju ehf.
70. 2512033 - Byrgisás 2-12, umsókn um lóð
Lögð fram umsókn Oddafells ehf. um lóðina nr. 2-12 við Byrgisás.
Fulltrúi sýslumanns dregur úr umsóknum. Dregin var út um umsókn SG eigna ehf. og til vara umsókn SÁR ehf. og til þrautavara umsókn Viðju ehf.
71. 2309164 - Mannauðsmál Hafnarfjarðarbæjar, fyrirspurnir
Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá og ítreka óskir sínar frá 15. des. sl. og síðar, m.a. á fundum bæjarstjórnar, eftir upplýsingum um úttekt á stjórnunarháttum í Víðistaðaskóla, sem greint hefur verið frá í fjölmiðlum sem og öllum gögnum málsins fram að þessu. Jafnframt verði gerð grein fyrir síðustu ákvörðunum í málinu, þ.á.m. flutning í starfi, sem Hafnarfjarðarbær hefur upplýst um í fjölmiðlum, en ekki gert grein kjörnum fulltrúum grein fyrir.
Fulltrúar Samfylkingarinnar taka undir eftirfarandi bókun fulltrúa Samfylkingar og Viðreisnar í fræðsluráði sem lögð var fram á síðasta fundi fræðsluráðs: Hluta yfirstandandi vetrar hafa birst fréttir í fjölmiðlum um óánægju innan Víðistaðaskóla. Fyrir nokkrum mánuðum var skólastjóri sendur í leyfi og nýr skólastjóri settur tímabundið í starfið. Samhliða var leitað til sérfræðinga á sviði mannauðsmála til að framkvæma úttekt á stöðunni og leggja fram tillögur til úrbóta. Samkvæmt fjölmiðlum felst niðurstaða þeirrar úttektar í tilfærslu ráðins skólastjóra og ákvörðun um að auglýsa starfið laust til umsóknar en að settur skólastjóri gegni starfinu út skólaárið. Þetta mál hefur þróast áfram án þess að fræðsluráði hafi verið greint frá málinu. Fræðsluráði ber að hafa umsjón með gæðum skólastarfs og eftirlit með stærri ákvörðunum sem varða hag og velferð nemenda og starfsfólks. Í ljósi þessa óska fulltrúar Samfylkingarinnar og Viðreisnar eftir minnisblaði frá sviðsstjóra Mennta- og lýðheilsusviðs um málið.
Fulltrúar Samfylkingarinnar í bæjarráði telja það gagnrýnisvert að fræðsluráði hafi aldrei verið greint frá málinu þar sem ráðinu ber að hafa umsjón með gæðum skólastarfs og eftirlit með stærri ákvörðunum sem varða hag og velferð nemenda og starfsfólks.
72. 2512324 - Álit umboðsmanns, fallið frá ráðningu
Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá. Óskað er á ný eftir skriflegum svörum við þeim fyrirspurnum Samfylkingarinnar á síðasta fundi bæjarráðs og þau verði lögð fram. Þar var óskað eftir því að svör sem áður hafa verið lögð fram verði sundurliðuð eftir sviðum. Einnig að gerð verði grein fyrir málavöxtum er varðar þau þrjú mál, þar sem hæstar starfslokagreiðslur voru inntar af hendi.
73. 2206161 - Íbúðir fyrir eldra fólk
Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá og óska eftir upplýsingum um útfærslu á þeirri vinnu sem boðuð er af meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks m.a. um greiningu á raunþörf og uppsafnaðri þörf vegna lífsgæðaíbúða. Ítrekuð er ósk um að þeir þrír fulltrúar sem sátu í starfshópi um málið mæti til fundarins.
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja eftirfarandi fram:
Samfylkingin lagði á síðasta bæjarstjórnarfundi að nýju til að hafinn yrði undirbúningur uppbyggingar lífsgæðaíbúða á Sólvangsreitnum í samræmi við tillögu starfshóps um málið. Meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks vísaði hins vegar tillögunni frá á þeirri forsendu að nú væri á vettvangi bæjarráðs unnið að heildstæðri 10 ára uppbyggingaráætlun sem byggi á þarfagreiningu, forgangsröðun byggingarreita og samspili við skipulag bæjarins. Ekkert af þessu hefur gerst. Þessi staða málsins er með nokkrum ólíkindum þar sem meirihlutinn lagði til í upphafi kjörtímabilsins að uppbygging íbúða fyrir eldri íbúa yrði sett í forgang. Það er þess vegna ótrúlegt að þessi greiningarvinna sé að fara af stað núna undir lok kjörtímabilsins. Fulltrúar Samfylkingarinnar telja mikilvægt að fulltrúar fyrrnefnds starfshóps um uppbyggingu íbúða fyrir eldra fólk mæti á fund bæjarráðs sem fyrst til þess að fara yfir málið. Samfylkingin mun halda málinu til streitu og leggja málið fram að nýju á næsta bæjarstjórnarfundi. Ef núverandi meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks skortir hins vegar vilja til þess að taka ákvörðun um þessa eðlilegu uppbyggingu þá mun Samfylkingin einfaldlega tryggja það að byggðar verði lífsgæðaíbúðir í nýjum meirihluta á næsta kjörtímabili.
74. 2601425 - Frítt í strætó fyrir 12-17 ára ungmenni
Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá og óska eftir upplýsingum um stöðuna á vinnslu þess innan stjórnar Strætó BS og SSH.
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja eftirfarandi fram:
Frá því Samfylkingin lagði fram tillögu í bæjarráði um frítt í strætó fyrir 12-17 ára í febrúar sl. hafa bæði Ungmennaráð og Foreldraráð Hafnarfjarðar lýst yfir stuðningi við meginmarkmið tillöguna á fundum fræðsluráðs. Á síðasta fundi bæjarstjórnar vísaði meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks tillögunni frá á þeirri forsendu að málið væri til skoðunar innan stjórnar Strætó og ASH. Fulltrúar Samfylkingarinnar hvetja til þess að þessari vinnu ljúki sem fyrst en minna um leið á að allar forsendur fyrir bæjarstjórn til að taka ákvörðun í málinu liggja fyrir og nauðsynlegt að meirihlutinn hætti tafaleikjum í málinu. Eina sem skortir er pólitískur vilji - hann er sannarlega til staðar hjá Samfylkingunni, en enn óljós hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks. Samfylkingin mun áfram halda þessu mikilvæga máli á lofti og mun leggja tillöguna fram enn að nýju á næsta fundi bæjarstjórnar, enda liggja öll gögn málsins fyrir.
75. 2311460 - Ný heilsugæsla í Hafnarfirði
Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá og óska eftir upplýsingum stöðu vinnu vegna nýrrar heilsugæslu á Völlunum. Farið er fram á að fulltrúar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins mæti til fundarins. Tilkynnt um tillögu um nýja heilsugæslu í Hafnarfirði sem verður lögð fram í bæjarstjórn 25.mars nk.
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja eftirfarandi fram:

Samfylkingin hefur ítrekað lagt til að farið yrði í formlegar viðræður við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins um nýja heilsugæslu miðsvæðis á Völlum sem gæti þjónustað um 20 þúsund notendur sem meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks hefur jafnan vísað frá. Einnig höfum við margsinnis kallað eftir því að fulltrúar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins mættu til fundar við bæjarráð en við því hefur ekki verið brugðist af fulltrúum meirihlutans. Í nýjustu hverfum bæjarins, Völlum, Skarðshlíð, Hamranesi og Áslandi er orðin gríðarleg þörf fyrir nýja heilsugæslu. Langur biðtími er eftir tíma hjá heilsugæslulækni í Hafnarfirði. Upphaflega var gert ráð fyrir því að ný heilsugæsla myndi byggjast upp samhliða nýju hjúkrunarheimili í Hamranesi en horfið var frá þeim hugmyndum og lítið hefur þokast í málinu síðan. Brýnt er að ný heilsugæsla, sem þjónar fyrrnefndum hverfum, rísi sem fyrst enda mikil þörf fyrir endurbætta þjónustu í bænum. Nú verður að setja kraft í viðræður við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins um þetta brýna málefni en ljóst er að betur hefði farið á því ef tillaga Samfylkingarinnar, sem lögð var fram í nóvember 2023 um að fara í formlegar viðræður við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, hefði verið samþykkt. Ítrekuð er ósk um að fulltrúar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins mæti til fundar við bæjarráð.


Meirihluti bæjarráðs ítrekar að á fundi fjölskylduráðs þann 17.mars sl var eftirfarandi bókað og tóku allir fulltrúar ráðsins heilshugar undir bókunina.

Fjölskylduráð Hafnarfjarðar lýsir yfir alvarlegum áhyggjum af aðgengi íbúa að heimilislæknum og heilsugæsluþjónustu í Hafnarfirði. Í lok árs 2024 voru skráðir 29.968 skjólstæðingar á heilsugæslustöðvum bæjarins að Sólvangi og í Firði og ljóst að það er löngu tímabært að ríkið veiti leyfi og ráðstafi fjármagni í nýja heilsugæslu í bænum. Ekki hefur staðið á sveitarfélaginu sem hefur líst yfir vilja á undanförnum árum og óskað eftir viðræðum við ríkið um aðkomu að verkefninu með því að leggja fram lóð eða taka þátt í verkefninu með öðrum hætti. Fjölskylduráð Hafnarfjarðar minnir á að markmið laga um heilbrigðisþjónustu geri ráð fyrir jöfnu aðgengi og að heilsugæslan sé að jafnaði fyrsti viðkomustaður sjúklinga og að viðmið um viðtal við heilsugæslulækni skuli almennt vera innan 5 daga. Fjölskylduráð Hafnarfjarðar skorar á heilbrigðisráðherra að leggja fram skriflega og tímasetta aðgerðaáætlun um eflingu heilsugæslu í Hafnarfirði, með það að markmiði að tryggja mönnun sem samræmist opinberum viðmiðum og tryggja nauðsynlega fjármögnun og samningsheimildir til fjölgunar heimilislæknaþjónustu í Hafnarfirði með byggingu á nýrri heilsugæslustöð í Vallarhverfi. Fjölskylduráð felur bæjarstjóra að taka saman minnisblað um þær viðræður sem hafa átt sér stað að undanförnum árum um uppbyggingu á Heilsugæslu í Vallarhverfi og fylgja eftir ályktun fjölskylduráðs.

76. 2512706 - Sveitarstjórnarkosningar 2026
Samfylkingin óskar eftir málinu á dagskrá. Kosningar til bæjarstjórnar í Hafnarfirði 16.maí næstkomandi. Framkvæmd kosninganna rædd og tillaga lögð fram af hálfu Samfylkingar um fjölgun kjörstaða úr tveimur í þrjá - Víðistaðaskóli verði kjörstaður til viðbótar.
Meirihluti bæjarráðs fellir fyrirliggjandi tillögu Samfylkingar um fjölgun kjörstaða með atkvæðum meirihluta.
Fundargerðir
77. 2601493 - Miðbær starfshópur
Lagðar fram fundargerðir starfshópsins frá 12. febrúar og 4. mars sl.
4. fundur starfshóps um miðbæ Hafnarfjarðar 120226.pdf
5. fundur starfshóps um miðbæ Hafnarfjarðar 040326.pdf
78. 2601467 - Framkvæmdahópur um uppbyggingu golfvallar
Lagðar fram fundargerðir framkvæmdahópsins frá 30.jan. og 11.mars sl.
2. fundur framkvæmdahóps um golfvöll.pdf
3. fundur framkvæmdahóps um golfvöll.pdf
79. 2603001F - Hafnarstjórn - 1700
Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 4.mars sl.
80. 2603012F - Hafnarstjórn - 1701
Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 18.mars sl.
81. 2602024F - Menningar- og ferðamálanefnd - 470
Lögð fram fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 4.mars sl.
82. 2603003F - Menningar- og ferðamálanefnd - 471
Lögð fram fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 11. mars sl.
83. 2601435 - Stjórn SSH, fundargerðir 2026
Lagðar fram fundargerðir stjórnar SSH frá 2 og 16. mmars sl.
Kristinn Andersen vék af fundi kl. 11:35.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:30 

Til bakaPrenta