| |
| 1. 2604290 - Stálhella 18, breyting á deiliskipulagi | | Davíð Árnason f.h. Reisingar byggingarfélags ehf. sækir 20.04.2026 um breytingu á deiliskipulagi. Skipulagsbreytingin varðar hækkun nýtingarhlutfalls miðað við 2. hæðir fyrir lóð Stálhellu 18. | | Erindinu verður lokið í samræmi við skipulagslög, þegar uppfærð gögn hafa borist. Fallið er frá grenndarkynningu í ljósi þessa að breytingin telst óveruleg. Málsmeðferð fer skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga. | | |
|
| 2. 2605431 - Tunguhella 1- 7, breyting á deiliskipulagi | | Þorleifur Eggertsson f.h. lóðarhafa sækir þann 21.05.2026 um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felst í að lóðirnar að Tunguhellu 1, 3, 5 og 7 í eru sameinaðar í eina lóð og gerður er einn sameinaður byggingarreitur. Nýtingarhlutfall helst óbreytt. | | Erindinu verður lokið í samræmi við skipulagslög. Fallið er frá grenndarkynningu í ljósi þessa að breytingin telst óveruleg. Málsmeðferð fer skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga. | | Tunguhella 1-7, DSK breyting.pdf | | |
|
| 3. 2604105 - Norðurbraut 35, breyting á deiliskipulagi | Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 15.04.2026 var samþykkt að grenndarkynna með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga erindi Garðars Snæbjörnssonar f.h. lóðarhafa um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felst í því að skilmálum vegna Norðurbrautar 35 er breytt þannig að heimilt verður að hafa 2 íbúðir í húsinu. Erindið var grenndarkynnt frá 17.04.2026 til 20.05.2026. Engar athugasemdir bárust. | | Erindinu verður lokið í samræmi við skipulagslög. | | slóð á skipulagsgátt.pdf | | |
|
| |
| 4. 2605364 - Rauðhella 12, fyrirspurn | | Páll Poulsen f.h. Blikkhellu ehf. leggur þann 19.05.2026 fram fyrirspurn þar sem óskað er eftir stækkun á lóðinni Rauðhella 12 til vesturs inn í núverandi opið svæði og nýrri lóð á opnu svæðinu þar vestur af. | | Tekið er jákvætt í stækkun lóðar en neikvætt í gerð nýrrar lóðar samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19.05.2026. | | Rauðhella 12, umsögn skipulags.pdf | | |
|
| 5. 2605407 - Íshella 5, breyting á deiliskipulagi, fyrirspurn | | Blendi ehf. óskar þann 20.05.2026 eftir smávægilegri breytingu á deiliskipulagi sem felur í sér stækkun byggingarreits til að skapa rými fyrir tvö geymslutjöld í 3 m fjarlægð frá lóðarmörkum. | | Tekið er neikvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21.05.2026. | | Íshella 5, umsögn skipulags.pdf | | |
|
| 6. 2605388 - Sævangur 29, stækkun innkeyrslu, fyrirspurn | | Guðrún Signý Guðmundsdóttir sækir þann 20.05.2026 um breytingu á innkeyrslu um 1 m í hvora átt. | | Tekið er jákvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27.05.2026. | | Sævangur 29, umsögn skipulags.pdf | | |
|
| |
| 7. 2605480 - Ísallínur 3 og 4, framkvæmdaleyfi | | Daníel Scheving Hallgrímsson f.h. Landsnet sækir 22.05.2026 um framkvæmdaleyfi vegna byggingar á Ísallínum 3 og 4 og niðurrifs núverandi Ísallína 1 og 2. | | Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa samþykkir að gefa út framkvæmdaleyfi. | | |
|