| |
| 1. 2609469 - Eftirlitsnefnd um fjármál íþróttafélaga, ársskýrsla 2026 | | Lögð fram skýrsla eftirlitsnefndar um fjármál íþróttafélaga 2026. Jón Sigurðsson formaður eftirlitsnefndarinnar og Helga Benediktsdóttir sviðsstjóri fjármálasviðs mæta til fundarins. | Fulltrúi Framsóknar þakkar eftirlitsnefnd um fjármál íþrótta- og æskulýðsfélaga fyrir ítarlega og mikilvæga vinnu. Skýrslan sýnir að almennt hefur orðið jákvæð þróun í skilum ársreikninga og gæðum fjárhagsupplýsinga félaganna en jafnframt koma fram ýmis atriði sem kalla á skýr viðbrögð og markvissa eftirfylgni af hálfu Hafnarfjarðarbæjar. Framsókn leggur áherslu á að ljúka þurfi þeirri vinnu sem eftirlitsnefndin hefur ítrekað kallað eftir varðandi endurnýjun og samræmingu samninga við íþrótta- og æskulýðsfélögin. Jafnframt þarf að tryggja aukið gagnsæi, betri yfirsýn yfir styrki, þjónustusamninga og önnur fjárframlög bæjarins og skýrari ábyrgð á eftirfylgni með þeim samningum sem í gildi eru. Íþrótta- og æskulýðsstarf er einn af hornsteinum samfélagsins í Hafnarfirði og mikilvægt að rekstrarumhverfi félaganna sé traust, fyrirsjáanlegt og byggt á skýrum leikreglum fyrir alla. Framsókn telur mikilvægt að skýrsla sem þessi verði ekki aðeins lögð fram til kynningar heldur leiði til skýrra aðgerða og reglulegrar eftirfylgni með þeim ábendingum sem eftirlitsnefndin setur fram.
| | Eftirlitsnefnd um fjármál skýrsla 2026 - Lokaskýrsla.pdf | | |
|
| 2. 2602450 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2027 og 2028-2030. | | Fulltrúar KPMG mæta til fundarins vegna undirbúnings fjárhagsáætlunargerðar. | | |
|
| 3. 2502769 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2026 og 2027-2029 | Lagður fram viðauki 1.liður úr fundargerð hafnarstjórnar frá 23. september sl. 2507355 - Fjárhagsrammi 2026 Lögð fram tillaga að viðaukum við fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarhafnar fyrir árið 2026. Hafnarstjórn samþykkir fyrir liggjandi tillögu að viðauka við fjárhagsáætlun 2026 og vísar til afgreiðslu í bæjarráði.
| | Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi viðauka og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar. | | |
|
| 4. 1502214 - Markaðsstofa Hafnarfjarðar | | Kynning. Þóra Hrund Guðbrandsdóttir frá Markaðsstofu Hafnarfjarðar og Árdís Ármannsdóttir sviðsstjóri þjónustu- og þrónarsviðs mæta til fundarins. | | Lagt fram. | | |
|
| 5. 2511143 - Sala á Bæjarhrauni 2 | | Lagt fram tilboð | | Bæjarráð hafnar fyrirliggjandi kauptilboði. | | |
|
| 6. 2609164 - Hjartasvellið, rekstrarsamningur vegna skautasvells | 4.liður úr fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 23.september sl. Drög að rekstrarsamningi vegna Hjartasvellsins lögð fram. Fyrirlagður samningur samþykktur og vísað til bæjarráðs til staðfestingar. | | Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi rekstrarsamning. | | |
|
| 7. 2607231 - Blýhella 7-9, fyrirspurn um deiliskipulagsbreytingu | 5. liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 16.september sl. Snorri Steinn Þórðarson f.h. lóðarhafa leggur 21.07.2026 inn fyrirspurn um breytingu á deiliskipulagi. Fyrirspurnin felst í að lóðirnar Blýhella 7 og 9 verða sameinaðar í eina lóð og lóðarmörk til austurs stækkuð út að grænu svæði. Byggingarreitur er sameinaður og stækkaður til austurs í hlutfalli við lóðina. Hluti vegarins Blýhellu verður lagður niður. Innkeyrslur á lóð 7 og 9 verða lagðar niður og ný innkeyrsla á sameinaða lóð verður frá Stálhellu. Gert er ráð fyrir útisvæði austan við húsið, kvöð um lagnir heldur sér í núverandi mynd. Nýtingarhlutfall lóðar verður 0.77. Hæð byggingar innan byggingarreits verður allt að 14 m. Skipulags- og byggingarráð tekur undir umsögn verkefnastjóra og tekur jákvætt í fyrirspurnina með þeim fyrirvörum vegna stofnlagna sem fram koma í umsögninni og vísar fyrirspurn varðar stækkun lóðar til umsagnar bæjarráðs. | | Bæjarráð samþykkir beiðni um stækkun lóðar. | | |
|
| 8. 2609525 - Furuhella 11 og 13 og Birkihella 12 og 14, ósk um lóðavilyrði | | Lögð fram beiðni T13 Verk ehf um lóðavilyrði fyrir Furuhellu 11 og 13 og Birkihellu 12 og 14. | | Bæjarráð samþykkir að veita vilyrði í samræmi við umsókn. Vilyrðið gildir í 6 mánuði. | | |
|
| 9. 2609504 - Frumvarp til laga um breytingu á umferðarlögum, umsögn | | Lögð fram drög að umsögn Hafnarfjarðarkaupstaðar við frumvarp um breytingu á umferðarlögum. | | Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi umsögn. | | |
|
| 10. 2609517 - Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga, ársreikningur 2025 | | Lagt fram bréf frá Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga dagsett 24. september 2026. | | |
|
| 11. 2609204 - Hafnarfjarðarbær, efnahagslegur stöðuleiki, afstaða | | Lögð fram áskorun frá Starfsgreinasambandi Íslands og 18 aðildarfélögum þess. | Bæjarráð vísar til ályktunar Sambands íslenskra sveitarfélaga um að almennar gjaldskrárhækkanir verði ekki umfram 2,5% og verður það viðmið við fjárhagsáætlunargerð bæjarins.
Fulltrúi Miðflokksins fagnar framlögnu erindi SGS um þjóðarsátt enda er hún í samræmi við tillögu Miðflokksins um að almennar gjaldskrárhækkanir A-hluta Hafnarfjarðarbæjar verði ekki umfram 2,5%, sem Bæjarráð hefur vísað til vinnu við fjárhagsáætlun.
| | |
|
| |
| 12. 2601467 - Framkvæmdahópur um uppbyggingu golfvallar | | Lögð fram fundargerð framkvæmdahópsins frá 21. september sl. | | 5. fundur Framkvæmdahóps um uppbyggingu golfvallar í landi Hafnarfjarðar.pdf | | |
|
| 13. 2609005F - Hafnarstjórn - 1708 | | Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 8.september sl. | | |
|
| 14. 2609010F - Hafnarstjórn - 1709 | | Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 23. september sl. | | |
|
| 15. 2608022F - Menningar- og ferðamálanefnd - 478 | | Lögð fram fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 9.september sl. | | |
|
| 16. 2609012F - Menningar- og ferðamálanefnd - 479 | | Lögð fram fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 23.september sl. | | |
|
| 17. 2601550 - Samband íslenskra sveitarfélaga, fundargerðir 2026 | | Lögð fram fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 11. september sl. | | |
|
| 18. 2502502 - Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs, fundargerðir | | Lögð fram fundargerð stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 21. ágúst sl. ásamt fylgigögnum. | | |
|
| 19. 2601435 - Stjórn SSH, fundargerðir 2026 | | Lögð fram fundargerð stjórnar SSH frá 21. september sl. | | |
|