| |
| 1. 2602450 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2027 og 2028-2030. | | Gjaldskrár teknar til umræðu. | Umhverfis- og framkvæmdaráð vísar gjaldskrám til fyrri umræðu um fjárhagsáætlun í bæjarráði.
Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar leggur fram eftirfarandi bókun:
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðarbæjar kallar á ábyrgar og markvissar aðgerðir til að tryggja sjálfbæran rekstur til framtíðar og ljóst er að miklar áskoranir eru í rekstri bæjarins.
Mikilvægt er að þær hagræðingar- og aðhaldsaðgerðir sem ráðist verður í vegna fjárhagsáætlunar 2027 séu á þann veg að fjármagn sé nýtt með skilvirkum hætti. Endurskoða þarf verklag og skipulag þar sem tækifæri eru til staðar og tryggja að fjármunir séu nýttir með skynsömum hætti.
Hagsmunir íbúa, velferð þeirra og gæði þjónustunnar skulu ávallt vera í forgrunni við ákvarðanatöku vegna fjárhagsáætlunar næsta árs. | | |
|
| 2. 2606120 - Strandgata, frumdrög frá Reykjanesbraut að tengingu við Flensborgarhöfn | | Fulltrúi Verkís mætir til fundarins og kynnir frumdrög breytinga á Strandgötu. | | Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar kynninguna. | | |
|
| 3. 2204112 - Skólalóð Hraunvallaskóla | | Tekið til umræðu. | | Tekið til umræðu. | | |
|
| 4. 1110006 - Vesturbær, endurgert og nýtt deiliskipulag | | Tekið til umræðu. | | Umhverfis- og framkvæmdaráð vísar akstursstefnu Merkurgötu í gildandi deiliskipulagi til skoðunar í skipulags- og byggingarráði. | | |
|
| 5. 2610499 - Kaldárbotnar ný aðveitulögn | | Kynnt fyrirhuguð framkvæmd við nýja aðveituæð vatnsveitu frá Kaldárbotnum. | | Umhverfis- og framkvæmdaráð felur veitustjóra að bjóða út verkið. | | |
|
| 6. 2512663 - Reykdalsstífla, umhverfi | | Lögð fram umsögn bæjarminjavarðar. | | Umhverfis- og framkvæmdaráð tekur undir umsögn bæjarminjavarðar og felur sviðinu að vinna málið áfram. | | Umsögn - Reykdalsstífla.pdf | | |
|
| 7. 2609168 - Lækurinn, hjólastígur | | Tekið fyrir að nýju. | | Umhverfis- og framkvæmdaráð felur sviðinu að vinna áfram að hönnun hjólastígs við lækinn. | | |
|
| 8. 1803113 - Krýsuvíkurbjarg, uppbygging og afmörkun gönguleiða, landsáætlun | | Tekið til umræðu. | | Umhverfis- og framkvæmdaráð vísar deiliskipulagi Krýsuvíkurbjargs til endurskoðunar skipulags- og byggingarráðs vegna breyttra forsendna svæðisins. | | URN26100049 - Hafnarfjarðarbær - undirritað.pdf | | |
|
| 9. 1809488 - Tjaldstæðið, Víðistaðatúni | | Tekið til umræðu. | | Umhverfis- og framkvæmdaráð vísar rekstri tjaldsvæðisins á Víðistæðatúni til fjárhagsáætlunargerðar 2027. | | |
|
| |
|
| 11. 2601552 - Strætó bs, fundargerðir 2026 | | Lögð fram fundargerð stjórnar Strætó bs. nr. 427. | | Fundargerð stjórnarfundar nr 427 17092026.pdf | | |
|