| |
| 1. 1902356 - Setberg, endurskoðun deiliskipulags | | Kynnt staða vinnu við endurskoðun deiliskipulags Setbergs. Skipulagsráðgjafi mætir til fundarins. | Skipulags- og byggingarráð þakkar kynninguna og felur skipulagsráðgjafa að vinna málið áfram.
| | |
|
| 2. 2605480 - Ísallínur 3 og 4, framkvæmdaleyfi | | Á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 19. ágúst sl. var samþykkt að grenndarkynna umsókn Landsnets ásamt fylgigögnum um framkvæmdaleyfi skv. heimild 44. gr. skipulagslaga. Ný gögn um áhrifamat á vatnshlot höfðu ekki hlotið kynningu almennings. Auk þess var leitað umsagnar Náttúruverndarstofnunar á framkvæmdum vegna náttúruminja sem njóta sérstakrar verndar. Gögnin voru í kynningu 14.9.- 12.10.2026. Athugasemdir sem bárust á kynningartíma voru lagðar fram ásamt viðbrögðum Landsnets við framkomnum athugasemdum á fundi ráðsins þann 14. október 2026. Lögð fram svör við athugasemdum. | Skipulags- og byggingarráð tekur undir svör við athugasemdum og beinir því til bæjarstjórnar að fela skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi.
Skipulags- og byggingarráð ítrekar bókun sína frá 19. ágúst 2026.
Skipulags- og byggingarráð fagnar því að nú sé komið að framkvæmdum við færslu Ísallína í nýtt línubelti og að með þeim breytingum muni háspennulínur á stórum hluta færast fjær íbúðabyggð.
Jafnframt vill ráðið árétta mikilvægi þess að sú lausn sem nú er unnið að verði áfangi á leið að varanlegri framtíðarlausn. Í samkomulagi Hafnarfjarðarbæjar og Landsnets er gert ráð fyrir að loftlínur frá Hamranesi að Hrauntungum séu tímabundin lausn. Í aðalskipulagi Hafnarfjarðar er gert ráð fyrir að háspennulínur verði lagðar í jörðu og að nýtt tengivirki verði staðsett í Hrauntungum.
Þá er í gildandi svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins lögð áhersla á að fjölgun háspennulína innan svæðisins verði takmörkuð og að horft verði til þess að leggja háspennustrengi í jörðu. Í því samhengi er mikilvægt að hafa í huga að hvergi á höfuðborgarsvæðinu liggja háspennu loftlínur jafn nærri íbúðabyggð og við Vellina.
Ráðið ítrekar jafnframt bókun skipulags- og byggingaráðs frá 28. nóvember 2024 um Ísallínur og þá afstöðu að mikilvægt sé að Landsnet standi við fyrirliggjandi samkomulag um að loftlínur verði fjarlægðar úr sjónlínu byggðar þegar aðstæður leyfa.
Með hagsmuni íbúa, umhverfis og framtíðarþróunar svæðisins að leiðarljósi telur ráðið mikilvægt að sett verði skýr tímasett áætlun um næstu skref. Ráðið óskar eftir því að unnið verði að því markmiði að innan tíu ára verði komin varanleg lausn án loftlína frá Hamranestengistöð, í samræmi við stefnu skipulagsáætlana Hafnarfjarðarbæjar og höfuðborgarsvæðisins. | | slóð á skipulagsgátt.pdf | | Viðbrögð við umsögnum um grenndarkynningu.pdf | | Greinargerð_Ísallínur_3og4-261028.pdf | | |
|
| 3. 2606120 - Strandgata, frumdrög frá Reykjanesbraut að tengingu við Flensborgarhöfn | | Erna Bára Hreinsdóttir fulltrúi Vegagerðarinnar mætir til fundarins og kynnir niðurstöður úttektar samgöngugreiningar. | Skipulags- og byggingaráð þakkar Vegagerðinni fyrir kynningu á frumdrögum og niðurstöðum samgöngugreiningar fyrir svæðið. Ráðið telur mikilvægt að tryggðar verði raunhæfar lausnir í samgöngu- og umferðarmálum þar sem umferð á svæðinu er komin að þolmörkum.
Fram undan er aukin uppbygging á hafnarsvæðinu og við Flensborgarhöfn. Nauðsynlegt er að tryggja leiðir Borgarlínu, bæta umferðarflæði um hringtorgið eða koma á nýjum gatnamótum, auk þess að fjölga akreinum þar sem það á við. Brýnt er að leita heildstæðra lausna til að mæta þeim áskorunum sem fram undan eru.
Næstu skref felast í að vinna mögulegar sviðsmyndir fyrir svæðið með hliðsjón af fyrirhugaðri uppbyggingu og áhrifum hennar á umferð. Ráðið mun taka það til umfjöllunar á næsta fundi sínum | | |
|
| 4. 2608393 - Reykjanesbraut 200, breyting á deiliskipulagi | | Óskar Örn Gunnarsson f.h. Kvartmíluklúbbsins sækir 27.08.2026 um breytingu á deiliskipulagi aksturs- og skotæfingarsvæðis í Kapelluhrauni. Með deiliskipulagsbreytingu þessari er verið staðfæra brautarsvæðin með tilliti til núverandi stöðu sem og ökukennslusvæðið þannig að það mæti framtíðarþörfum með viðbótarbrautir í huga. Breytingin er í 13 liðum. | | Skipulags- og byggingarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að eiga samtal við forsvarsmenn kvartmíluklúbbsins um framtíðarnotkun svæðisins. | | |
|
| 5. 2609176 - Hjallar, reitur 3.2, breyting á deiliskipulagi | | Lögð fram til kynningar tillaga að breytingu á deiliskipulagi reitar 3.2. Tillagan gerir ráð fyrir 3-6 hæða byggingum auk bílakjallara. Skipulagshöfundur mætir til fundarins. | | Skipulags- og byggingarráð þakkar kynninguna og tekur jákvætt í fyrirhugaða uppbyggingu. | | |
|
| 6. 2607313 - Hellisgata 13 og 15, breyting á deiliskipulagi | Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 19.08.2026 var samþykkt að grenndarkynna með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga erindið Einars Inga Reynissonar um breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðirnar Hellisgötu 13 og 15. Breytingin felur í sér að fallið er frá skilmálum um viðbyggingu við núverandi íbúðarhús að Hellisgötu nr. 13 til að varðveita upprunalega formgerð þess. Í staðinn er skilgreindur nýr stakstæður byggingarreitur fyrir vinnustofu á einni hæð með risi á norðanverðri lóðinni fyrir sambærilega byggingarheimild. Með breytingunni er nýtingarhlutfall lóðarinnar aukið úr 0,25 í 0,34. Fallið er frá byggingarreit á framlóð að Hellisgötu 15. Heimilað byggingarmagn, 50 fm. er fært að núverandi byggingu og nýtt til viðbygginga í norðvesturhluta hennar. Nýtingarhlutfall helst óbreytt. Erindið var grenndarkynnt frá 24.08.2026 til 21.09.2026. Á meðan grenndarkynningu stóð barst ósk um frekari gögn frá lóðarhafa Vesturgötu 22. Viðbótargögn vöru send lóðarhafa Vesturgötu 22 og frestur til að gera athugasemdir lengdur til 13.10.2026. Lögð fram svör við athugasemdum. | Skipulags- og byggingarráð tekur undir svör við athugasemdum og vísar erindinu til staðfestingar í bæjarstjórn.
| | Hellisgata 13 og 15, samantekt athugasemda og svör.pdf | | slóð á Skipulagsgátt.pdf | | Hellisgata 13-15, deiliskipulagsbreyting, í grennd.pdf | | |
|
| 7. 2604387 - Lónsbraut, breyting á deiliskipulagi | | Á fundi bæjarráðs þann 11. júní sl. var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Lónsbrautar. Tillagan gerir ráð fyrir nýrri lóð fyrir smáhýsi. Tillagan var í auglýsingu 25.6-9.8.2026. Lögð fram svör við athugasemdum. | Skipulags- og byggingarráð tekur undir svör við athugasemdum og vísar erindinu til staðfestingar í bæjarstjórn.
| | Lónsbraut-smáhýsi-amt2.pdf | | Lónsbraut slóð á skipulagsgátt.pdf | | |
|
| 8. 2610200 - Áshamar 50, breyting á deiliskipulagi | | Erna Þráinsdóttir f.h. lóðarhafa óskar 07.10.2026 eftir að fjölga íbúðum úr 40 í 46. Verslunarrými á 1. hæð verða íbúðir fyrir utan eitt rými. | | Lagt fram og afgreiðslu frestað. | | |
|
| 9. 2610553 - Brunnás 8, breyting á deiliskipulagi | | Hulda Jónsdóttir f.h. lóðarhafa sækir 21.10.2026 um lítilsháttar breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felst í því að í kafla 3 um sérákvæði í greinargerð og skipulagsskilmálum. | | Skipulags- og byggingarráð tekur undir umsögn skipulags og synjar breytingu á deiliskipulagi Brunnás 8. | | Brunnás 8, umsögn.pdf | | |
|
| 11. 2609247 - Herjólfsgata, sauna, fyrirspurn | | Sveinn Ingi Bjarnason leggur þann 15.09.2026 fram fyrirspurn um heimild til að staðsetja færanlega sánu við enda Herjólfsgötu á grasbala nálægt bílastæðunum við sjóinn. | | Skipulags- og byggingarráð felur umhverfis- og skipulagssviði að finna svæði þar sem starfsemi sem þessi samræmist landnotkun. | | |
|
| 12. 2609588 - Hvaleyrarlón, sauna, fyrirspurn | | Hjalti Magnússon leggur þann 30.09.2026 fram fyrirspurn þess efnis að breytta notkun bátaskýlis við Hvaleyrarlón þannig að þar verði komið fyrir sauna-aðstöðu fyrir almenning. | | Skipulags- og byggingarráð felur umhverfis- og skipulagssviði að skoða mögulega framtíðarsýn á svæðinu. | | |
|
| |
| 10. 2610141 - Brunnás 10, fyrirspurn | | Andri Ingólfsson f.h. lóðarhafa leggur 06.10.2026 fram fyrirspurn varðandi stærðir á húsi og byggingarreiti lóðar. | | Skipulags- og byggingarráð tekur neikvætt í fyrirspurnina. | | Brunnás 10, fyrirspurn umsögn.pdf | | |
|
| 13. 2609361 - Vesturgata 4, fyrirspurn útisvæði | | Tekið til umræðu. | | Skipulags- og byggingarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarráðs. | | |
|
| |
| 14. 2610010F - Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 957 | | Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar. | | https://hafnarfjordur.is/fundagerd/?meeting_id=POFhuHSPwkyxnCJSBFrTLA1
| |
|
| 15. 1901181 - Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins, fundargerðir | | Lögð fram fundargerð 149. fundar. | | Svæðisskipulagsnefnd - 149.pdf | | |
|