Til bakaPrenta
Bæjarstjórn - 1977

Haldinn í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg,
03.06.2026 og hófst hann kl. 14:00
Fundinn sátu: Orri Björnsson aðalmaður,
Kristín María Thoroddsen aðalmaður,
Viktor Pétur Finnsson aðalmaður,
Karólína Helga Símonardóttir aðalmaður,
Árni Stefán Guðjónsson aðalmaður,
Hildur Rós Guðbjargardóttir aðalmaður,
Árni Rúnar Þorvaldsson aðalmaður,
Valdimar Víðisson aðalmaður,
Kolbrún Magnúsdóttir aðalmaður,
Einar Geir Þorsteinsson aðalmaður,
Stefán Már Víðisson varamaður,
Sigurður Nordal sviðsstjóri.
Fundargerð ritaði: Ívar Bragason, Ritari bæjarstjórnar og bæjarlögmaður


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2606101 - Bæjarfulltrúi,lausn frá störfum
Lögð fram beiðni Guðmundar Árna Stefánssonar um lausn frá störfum í bæjarstjórn.

Undirritaður, Guðmundur Árni Stefánsson boðar forföll á fyrsta fundi nýrrar bæjarstjórnar 3.júní 2026 og væntir þess að 2.aldursforseti setji þá fund og stýri honum þar til kjör nýs forseta hefur átt sér stað. Jafnframt óskar undirritaður eftir því að eftirfarandi erindi verði tekið fyrir á fundinum og afgreitt.

Undirritaður, Guðmundur Árni Stefánsson, sem var kjörinn til setu í bæjarstjórn Hafnarfjarðar í bæjarstjórnarkosningum 16.maí síðastlðinn, óskar eftir lausn frá störfum sem bæjarfulltrúi. Og óskar samþykkis nýrrar bæjarstjórnar þar um.
Ég hef með hléum setið í bæjarstjórn Hafnarfjarðar í 16 ár.

Fyrst 1982 - 1994 og síðan frá 2022 - 2026. Ég hef notið þeirra starfa til fullnustu og haft ánægju af og skynjað vilja bæjarfulltrúa á öllum tímum, í öllum stjórnmálaflokkum, til að vinna bænum sínum og bæjarbúum vel.
Á þessum 16 árum í bæjarstjórn hefur skapast varanlegur vinskapur við fjölda kollega.

Fyrir það er ég þakklátur.

Ég óska nýrri bæjarstjórn Hafnarfjarðar alls hins besta í mikilvægum störfum.
Virðingarfyllst,

Guðmundur Árni Stefánsson
Forseti les upp erindi Guðmundar Árna Stefánssonar.

Árni Rúnar Þorvaldsson, Orri Björnsson, Viktor Pétur Finnsson, Valdimar Víðisson, Hildur Rós Guðbjargardóttir.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framkomna ósk um lausn frá störfum.
2. 2512706 - Sveitarstjórnarkosningar 2026
Lögð fram skýrsla yfirkjörstjórnar í Hafnarfirði um úrslit sveitarstjórnarkosninganna 16.maí 2026
Starfsaldursforseti fór yfir fyrirliggjandi skýrslu.
Greinargerð yfirkjörstjórnar v. kosninga 2026 .pdf
kosningaskyrsla o.fl..pdf
úrslit 16.5.2026.pdf
3. 2605485 - Forseti bæjarstjórnar, varaforsetar og skrifarar, kosning
Gengið var til kosninga á forseta bæjarstjórnar.

Starfsaldursforseti bar upp tillögu um að Árni Stefán Guðjónsson yrði kosinn forseti. Er tillagan samþykkt samhljóða.

Lýsti starfsaldursforseti Árna stefán Guðjónsson því réttkjörinn forseta bæjarstjórnar til eins árs.

Nýkjörinn forseti tók nú við fundarstjórn.

Þá var gengið til kosningar á 1. og 2. varaforseta. Bar forseti upp tillögu um að Valdimar Víðisson yrði 1. varaforseti og Árni Rúnar Þorvaldsson yrði 2. varaforseti. Auk þess að áheyrnarfulltrúar í forsetanefnd verði Kristín Thoroddsen og Einar Geir Þorsteinsson.

Var tillagan samþykkt samhljóða með 11 greiddum atkvæðum.

Var næst gengið til kosningar 2ja skrifara bæjarstjórnar og 2ja til vara.

Lögð fram tillaga um að Kristín María Thoroddsen og Árni Rúnar Árnason verði skrifarar og þau Árni Rúnar Þorvaldsson og Einar Geir Þorsteinsson yrðu kjörin skrifarar til vara. Var það samþykkt samhljóða.


4. 2605484 - Ráð og nefndir 2026-2030, kosningar
Teknar fyrir kosningar í ráð og nefndir.


Kosið til 1 árs:

Bæjarráð 5 aðalmenn, 5 varamenn
Fjölskylduráð 5 aðalmenn, 5 varamenn
Fræðsluráð 5 aðalmenn, 5 varamenn
Umhverfis- og framkvæmdaráð 5 aðalmenn, 5 varamenn
Skipulags- og byggingarráð 5 aðalmenn, 5 varamenn
Íþrótta- og tómstundanefnd 3 aðalmenn, 3 varamenn
Menningar- og ferðamálanefnd 3 aðalmenn, 3 varamenn
Stjórn Hafnarborgar 2 aðalmenn auk bæjarstjóra
Forsetanefnd Forsetar sjálfkjörnir

Kosið til 2 ára:

Stjórn SORPU bs. 1 aðalmaður, 1 varamaður


Kosið til 4 ára:

Almannavarnanefnd hbs. 1 aðalmaður auk bæjarstjóra, 2 varamenn
Hafnarstjórn 5 aðalmenn, 5 varamenn
Heilbrigðisnefnd 1 aðalmaður, 1 varamaður
Kjörstjórn sveitarstj. og alþ.kosn. 3 aðalmenn, 3 varamenn
Stjórn Strætó bs. 1 aðalmaður, 1 varamaður.
Samstarfsnefnd skíðasvæða hbs. 1 aðalmaður, 1 varamaður
Stefnuráð áfangastaðarins hbs. 2 aðalmenn
Stefnuráð byggðasamlaga 2 aðalmenn auk Bstj.
Stjórn SSH 1 varamaður, bæjarstjóri aðalmaður
Stjórn Slökkviliðs hbs. 1 varamaður, bæjarstjóri aðalmaður
Svæðisskipulagsnefnd hbs. 2 aðalmenn, 2 varamenn


Eftirfarandi samþykkt samhljóða:

Forsetanefnd
Forseti Árni Stefán Guðjónsson, Kvíholti 1 (C)
1. varaforseti Valdimar Víðisson, Brekkuás 7 (B)
2. varaforseti Árni Rúnar Þorvaldsson Stekkjarhvammi 5 (S)
Áheyrnarfulltrúi Kristín Thoroddsen, Burknaberg 4 (D)
Áheyrnarfulltrúi Einar Geir Þorsteinsson, Norðurvangi 5 (M)

Skrifarar
Aðalmaður Kristín Thoroddsen, Burknaberg 4 (D)
Aðalmaður Árni Rúnar Árnason, Birkihlíð 2a (B)

Varamaður Árni Rúnar Þorvaldsson, Stekkjarhvammi 5 (S)
Varamaður Einar Geir Þorsteinsson, Norðurvangi 5 (M)

Bæjarráð
Formaður Orri Björnsson, Kvistavöllum 29 (D)
Varaformaður Hildur Rós Guðbjargardóttir, Ölduslóð 5 (S)
Aðalfulltrúi Karólína Helga Símonardóttir, Hlíðarbraut 5 ( C )
Aðalfulltrúi Valdimar Víðisson, Brekkuás 7 (B)
Aðalfulltrúi Einar Geir Þorsteinsson, Norðurvangi 5 (M)

Varafulltrúi Árni Stefán Guðjónsson (C)
Varafulltrúi Árni Rúnar Þorvaldsson, Stekkjarhvammi 5 (S)
Varafulltrúi Kristín Thoroddsen, Burknaberg 4 (D)
Varafulltrúi Kolbrún Magnúsdóttir, Akurvöllum 2 (B)
Varafulltrúi Böðvar Ingi Guðbjartsson, Hádegisskarði 29 (M)

Fjölskylduráð
Formaður Árni Rúnar Þorvaldsson, Stekkjarhvammi 5 (S)
Varaformaður Margrét Vala Marteinsdóttir, Selvogsgötu 22 (D)
Aðalfulltrúi Hjördís Hlíðberg, Erluási 2 ( C)
Aðalfulltrúi Lena Karen Andreasdóttir, Kríuási 47 (M)
Aðalfulltrúi Jóhanna Erla Guðjónsdóttir, Miðvangur 10 (B)

Varafulltrúi C Amanda K. Ólafsdóttir, Þrastarási 6 ( C)
Varafulltrúi Auður Brynjólfsdóttir, Dvergholti 23 (S)
Varafulltrúi Örn Geirsson, Skipalóni 7 (D)
Varafulltrúi Petrea Ómarsdóttir, Völuskarð 15b (B)
Varafulltrúi Vilhjálmur Skúli Steinarsson, Suðurbraut 8 (M)

Fræðsluráð
Formaður Kristín Thoroddsen Burknabergi 4 (D)
Varaformaður Árni Stefán Guðjónsson, Kvíholti 1 ( C)
Aðalfulltrúi Elín Anna Baldursdóttir, Blikaási 11 (S)
Aðalfulltrúi Kolbrún Magnúsdóttir Akurvöllum 2 (B)
Aðalfulltrúi Eva Rún Helgadóttir, Suðurbraut 8 (M)

Varafulltrúi Aron Eydal Sigurðsson, Bæjarholti 1 ( C)
Varafulltrúi Óskar Steinn Ómarsson, Kirkjuvegi 11B (S)
Varafulltrúi Kristjana Ósk Jónsdóttir, Suðurhvammi 5 (D)
Varafulltrúi Alexander Árnason, Birkihlíð 21a (B)
Varafulltrúi Einar Geir Þorsteinsson, Norðurvangi 5 (M)

Umhverfis- og framkvæmdaráð
Formaður Hildur Rós Guðbjargardóttir, Ölduslóð 5 (S)
Varaformaður Óli Örn Eiríksson, Hverfisgötu 52B ( C)
Aðalfulltrúi Helga Björg Loftsdóttir, Drekavöllum 5 (D)
Aðalfulltrúi Árni Rúnar Árnason, Birkihlíð 2a (B)
Aðalfulltrúi Arnhildur Ásdís Kolbeins, Gauksási 57 (M)

Varafulltrúi Björn Sighvatsson, Fögrukinn 15 (C)
Varafulltrúi Margrét Lilja Pálsdóttir, Álfholti 34A (S)
Varafulltrúi Júlíus Freyr Bjarnason Traðarbergi 27 (D)
Varafulltrúi Ragnar Þór Reynisson, Engjavöllum 5a (B)
Varafulltrúi Sig Stefán Sveinn Gunnarsson, Burknavöllum 19 (M)

Skipulags- og byggingarráð
Formaður Karólína Helga Símonardóttir, Hlíðarbraut 5 ( C)
Varaformaður Guðbjörg Oddný Jónasdóttir, Hraunbrún 48 (D)
Aðalfulltrúi Stefán Már Gunnlaugsson, Drangsskarði 17B (S)
Aðalfulltrúi Stefán Már Víðisson, Miðvangi 149 (B)
Aðalfulltrúi Böðvar Ingi Guðbjartsson, Hádegisskarði 29 (M)

Varafulltrúi Sigurjón Ingvason, Suðurgötu 70 ( C)
Varafulltrúi Hrund Biering Valdsdóttir, Staðarhvammi 19 (S)
Varafulltrúi Einar Páll Þorgilsson Mathiesen, Breiðvangur 24 (D)
Varafulltrúi Árni Rúnar Árnason, Birkihlið 2a (B)
Varafulltrúi Arnhildur Ásdís Kolbeins, Gauksási 57 (M)

Íþrótta- og tómstundanefnd
Aðalfulltrúi Júlíus Andri Þórðarson, Lindarbergi 6( C)
Aðalfulltrúi Hekla Sóley Arnarsdóttir, Mánastíg 2 (S)
Aðalfulltrúi Oddný Helga Einarsdóttir, Lindarberg 64 (B)

Varafulltrúi Jóhanna Ósk Maríudóttir Nielsen, Hringhamri 1 (S)
Varafulltrúi Bragi Hinrik Magnússon, Hólabraut 4A ( C)
Varafulltrúi Elísabet Rós Birgisdóttir, Drekavöllum 63 (B)

Áheyrnarfulltrúi Stefán Sveinn Gunnarsson, Burknavöllum 19 (M)
Áheyrnarfulltrúi Kristjana Ósk Jónsdóttir, Suðurhvammi 5 (D)
Varaáheyrnarfulltrúi Júlíus Bjarnason, Traðarbergi 27 (D)
Varaáheyrnarfulltrúi Kristín Þóra L. Reynisdóttir, Norðurvangi 5 (M)

Menningar- og ferðamálanefnd
Aðalfulltrúi Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Hraunbrún 48 (D)
Aðalfulltrúi Sigurður Þórður Ragnarsson, Móabarði 14 (S)
Aðalfulltrúi Alexander Árnason, Birkihlíð 21a (B)

Varafulltrúi Birkir Snær Brynleifsson, Norðurvangur 25 (D)
Varafulltrúi Ragnar Már Jónsson, Þrastarási 39 (S)
Varafulltrúi Ásdís Jóhannesdóttir, Suðurvangi 12 (B)

Áheyrnarfulltrúi Kristín Þóra L. Reynisdóttir, Norðurvangi 5 (M)
Áheyrnarfulltrúi Steinar Bragi Sigurjónsson, Norðurvangi 40 ( C)
Varaáheyrnarfulltrúi Sigurður Orri Kristjánsson, Hjallabraut 49b ( C)
Varaáheyrnarfulltrúi, Stefán Sveinn Gunnarsson, Burknavöllum 19 (M

Stjórn Hafnarborgar
Bæjarstjóri, sjálfkj. Þórður Þórarinsson, Hávallagata 35
Aðalfulltrúi Karitas Möller, Tjarnarbraut 17 ( C)
Aðalfulltrúi Ragnar Þór Reynisson, Engjavöllum 5a (B)

Kosið til 2 ára
Stjórn SORPU
Aðalfulltrúi Viktor Pétur Finnsson, Lækjarberg 52 (D)
Varafulltrúi Hildur Rós Guðbjargardóttir, Ölduslóð 5 (S)

Kosið til 4 ára
Stjórn Strætó
Aðalfulltrúi Kristín Thoroddsen Burknabergi 4 (D)
Varafulltrúi Karólína Helga Símonardóttir, Hlíðarbraut 5 ( C)

Almannavarnanefnd hbs.
Bæjarstjóri, sjálfkj. Þórður Þórarinsson, Hávallagata 35
Aðalfulltrúi Orri Björnsson, Kvistavöllum 29 (D)

Varafulltrúi Stefán Már Gunnlaugsson, Drangsskarði 17B (S)
Varafulltrúi Jóhanna Guðrún Snæfeld Magnúsdóttir ( C)

Hafnarstjórn
Formaður Viktor Pétur Finnsson, Lækjarberg 52 (D)
Varaformaður Jón Grétar Þórsson, Álfaskeið 82 (S)
Aðalfulltrúi Sigrún Jónsdóttir, Norðurbakka 9A ( C)
Aðalfulltrúi Guðmundur Fylkisson, Móabarð 20 (B)
Aðalfulltrúi Þórður Hugo Björnsson, Sævangi 51 (M)

Varafulltrúi Þröstur V. Söring, Álfabergi 28 ( C)
Varafulltrúi Kristjana Ósk Jónsdóttir, Suðurhvammi 5 (D)
Varafulltrúi Árni Freyr Ársælsson, Staðarhvammi 21 (S)
Varafulltrúi Garðar Smári Gunnarsson, Kirkjuvöllum 7 (B)
Varafulltrúi Böðvar Ingi Guðbjartsson, Hádegisskarði 29 (B)

Heilbrigðisnefnd
Aðalfulltrúi Þórey Þórisdóttir, Þúfubarði 9 ( C)
Varafulltrúi Sigrid Foss, Arnarhrauni 40 (S)

Kjörstjórn við sv.stj. og alþ.kosn.
Aðalfulltrúi Þórdís Bjarnadóttir Heiðvangi 80 (D)
Aðalfulltrúi Helena Mjöll Jóhannsdóttir, Austurgötu 29B (S)
Aðalfulltrúi Hildur Helga Gísladóttir, Klausturhvammur 15 (B)

Varafulltrúi Kolbrún Lára Kjartansdóttir, Arnarhrauni 21 (S)
Varafulltrúi Auðunn Arnórsson, Kelduhvammi 9 ( C)
Varafulltrúi Kristján Rafn Heiðarsson, Klausturhvammur 15 (B)

Samstarfsnefnd skíðasvæða hbs.
Aðalfulltrúi Kristín Thoroddsen Burknabergi 4 (D)
Varafulltrúi Óli Örn Eiríksson, Hverfisgötu 52b (C)

Stefnuráð byggðasamlaga
Bæjarstjóri Þórður Þórarinsson, Hávallagata 35
Aðalfulltrúi Karólína Helga Símonardóttir, Hlíðarbraut 5 (C)
Aðalfulltrúi Kolbrún Magnúsdóttir, Akurvöllum 2 (B)

Stjórn SSH
Bæjarstjóri, Þórður Þórarinsson, Hávallagata 35
Varafulltrúi Orri Björnsson, Kvistavöllum 29 (D)

Stjórn Slökkviliðs hbs.
Bæjarstjóri, Þórður Þórarinsson, Hávallagata 35
Varafulltrúi Orri Björnsson, Kvistavöllum 29 (D)

Svæðisskipulagsnefnd hbs.
Aðalfulltrúi Karólína Helga Símonardóttir, Hlíðarbraut 5 ( C)
Aðalfulltrúi Stefán Már Víðisson, Miðvangi 149 (B)

Varafulltrúi Guðbjörg Oddný Jónasdóttir, Hraunbrún 48 (D)
Varafulltrúi Árni Rúnar Árnason, Birkihlíð 2a (B)
5. 2605590 - Málefnasamningur meirihluta bæjarstjórnar
Lagður fram málefnasamningur meirihluta bæjarstjórnar.
Orri Björnsson tekur til máls.

Karólína Helga Símonardóttir tekur til máls og leggur til að eftirfarandi málum verði vísað til viðeigandi ráða:

Við setjum skólana í fyrsta sæti
Skólarnir eru ekki bara málaflokkur; þeir eru hjarta samfélagsins; þarna dafnar framtíð bæjarins. Við ætlum að bæta starfsaðstæður í grunnskólum, draga úr álagi og skapa umhverfi þar sem bæði nemendur og starfsfólk geta náð árangri.
Þetta er ekki valkostur.
Þetta er skylda.

Við stöndum með þeim sem standa utanveltu
Samfélag er mælt eftir því hvernig það styður þá sem eiga erfiðast.
Við munum styrkja sérstaklega þjónustu við jaðarsett og félagslega einangruð ungmenni á aldrinum 16?25 ára.
Enginn á að detta út úr samfélaginu án þess að við bregðumst við.

Við tryggjum að öll börn fái að taka þátt
Þátttaka í íþróttum og tómstundum er ekki lúxus; hún er forsenda og forvarnir.

Við ætlum að auka þátttöku barna í skipulögðu frístundastarfi, því þar verða tengsl, sjálfstraust og framtíð byggð.
Þetta er fjárfesting í samfélaginu.

Ég legg til að þess þrjú verkefni verði vísað til Fræðsluráðs.

Við byggjum bæ sem við erum stolt af
Við ætlum ekki bara að byggja af skynsemi; við ætlum að klára það sem við byrjum á.

Við setjum af stað markvissa vinnu við að fullgera hverfin, með áherslu á græn svæði, trjárækt og mannvænna umhverfi.
Bærinn á að virka; fyrir fólk.

Ég legg til að vísa þessu til Umhverfis- og framkvæmdaráðs.

Þá tekur Valdimar Víðisson til máls.

Einar Geir Þorsteinsson tekur til máls. Árni Rúnar Þorvaldsson kemur til andsvars.

Árni Rúnar Þorvaldsson tekur til máls.

Orri Björnsson tekur til máls öðru sinni og leggur til að eftirfarandi málum verði vísað til bæjarráðs:

Framkvæma rekstrar- og stjórnsýsluúttekt á bænum - Bæjarráð

Stækka innkauparáð; Endurskrifa verkferla og reglur innkauparáðs með það að markmiði að endurskoða innkaupa- og útboðsferla - Bæjarráð

Hefja samtal um endurskoðun tímalínu samgöngusáttmálans með það að markmiði að ná fram mikilvægum úrbótum í samgöngum í Hafnarfjarðar - Bæjaráð

Forseti leggur til að málefnum í málefnasamningi verði vísað til þeirra ráða og nefnda sem þau tilheyra. Er það samþykkt samhljóða.

Valdimar Víðisson kemur að svohljóðandi bókun:

Bæjarfulltrúar Framsóknar koma að eftirfarandi bókun:

Framsókn tekur undir að í málefnasamningi nýs meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar séu ýmis góð og mikilvæg mál. Þar má nefna áherslu á börn og ungmenni, velferðarþjónustu, uppbyggingu húsnæðis fyrir fatlað fólk, þjónustu við eldra fólk, ábyrgan rekstur og öflugt atvinnulíf. Slík mál mun Framsókn styðja.
Það vekur þó athygli hversu skýr merki samningurinn ber um áherslur Sjálfstæðisflokksins. Þrátt fyrir að flokkurinn hafi tapað bæði fylgi og fulltrúa heldur hann mjög sterkri stöðu við stjórnvölinn, meðal annars með bæjarstjórastól og formennsku í bæjarráði. Það er sterk niðurstaða fyrir Sjálfstæðisflokkinn en vekur um leið eðlilegar spurningar um vægi hinna flokkanna í meirihlutanum og hvaða breytingar í stjórn bæjarins þessi nýi meirihluti boðar í raun.

Framsókn saknar skýrari sýnar í húsnæðismálum, sérstaklega þegar kemur að óhagnaðardrifnum úrræðum og húsnæðisöryggi þeirra hópa sem eiga erfiðast með að komast inn á markaðinn. Húsnæðismál eru eitt stærsta velferðarmál sveitarfélaga og þar þurfa almenn orð um fjölbreytni og uppbyggingu að skila sér í raunhæfum lausnum.
Framsókn mun nálgast þetta kjörtímabil af ábyrgð og festu. Við munum styðja góð mál, sama hvaðan þau koma en jafnframt veita skýrt og málefnalegt aðhald. Við munum fylgjast með því hvort orð um gagnsæi, samráð, húsnæði, velferð og ný vinnubrögð verði að raunverulegum verkum.
Framsókn mun leggja sitt af mörkum með hagsmuni Hafnfirðinga að leiðarljósi, styðja það sem vel er gert og benda skýrt á það sem betur má fara.

Einar Geir Þorsteinsson kemur að svohljóðandi bókun:

Miðflokkurinn fagnar því að hækkun heimgreiðslna til foreldra að loknu fæðingarorlofi, sem var eitt af kjarnamálum flokksins í kosningabaráttunni, hafi verið tekin upp í málefnasamning nýs meirihluta. Miðflokkurinn lagði til 250 þúsund króna mánaðargreiðslu en meirihlutinn boðar 230 þúsund krónur. Það er fagnaðarefni, enda telur Miðflokkurinn brýnt að hagsmunir fjölskyldna í bænum séu í forgrunni á kjörtímabilinu.

Þá fagnar Miðflokkurinn því að móttaka hælisleitenda sé nú nefnd í málefnasamningi í fyrsta sinn. Sú málefnalega og nauðsynlega umræða sem Miðflokkurinn hefur staðið einn fyrir hefur þegar skilað árangri. Nú þarf hins vegar að fylgja orðum eftir með skýrum aðgerðum. Miðflokkurinn mun á kjörtímabilinu krefjast skýrra svara og fylgja því fast eftir að jafnræðis sé gætt milli sveitarfélaga, ríkið fjármagni málaflokkinn að fullu og að skýr mörk verði sett um getu og innviði sveitarfélagsins. Hafnarfjörður hefur gert nóg í þessum málaflokki.

Miðflokkurinn saknar þess að sjá raunverulega stefnu í skólamálum. Fræðslu- og uppeldismál eru stærsti kostnaðarliður bæjarins, yfir 25 milljarðar króna á ári, og samningurinn segir ekkert um innihald kennslu, mælanlegan námsárangur eða gagnsæi gagnvart foreldrum. Samningurinn gefur til kynna að langt sé á milli þessara þriggja flokka í skólamálum og að þeir hafi leyst þann ágreining með því að segja ekkert. Við getum ekki látið stærsta málaflokk sveitarfélagsins óáreittan í fjögur ár. Miðflokkurinn mun leggja fram tillögur um skólamál á kjörtímabilinu og meirihlutinn mun þurfa að taka afstöðu.
Miðflokkurinn vill einnig benda á að í samningnum er að engu farið í nokkur kosningamál sem snerta daglegt líf Hafnfirðinga. Ekkert er sagt um hvort meirihlutinn ætli að endurskoða þéttingarstefnuna sem hefur vakið almenna óánægju meðal íbúa. Ekkert er sagt um afnám hámarks á bílastæði við nýbyggingar. Þetta eru mál sem Miðflokkurinn mun halda á lofti.

Að lokum beinir Miðflokkurinn því til meirihlutans að nýta yfirstandandi endurskoðun samgöngusáttmálans til að verja hagsmuni Hafnarfjarðar af hörku. Krefjast verður skýrrar afstöðu til Borgarlínunnar, sem er eitt dýrasta og umdeildasta innviðaverkefni höfuðborgarsvæðisins en er hvergi nefnd á nafn í málefnasamningnum. Miðflokkurinn leggur til að meirihlutinn boði til íbúakosningar meðal Hafnfirðinga um framtíð samgöngumála í bænum, þar á meðal varðandi Borgarlínuna.
Miðflokkurinn mun starfa af ábyrgð, festu og málefnalegri einurð á kjörtímabilinu, hrósa því sem vel er gert en veita kröftugt aðhald og krefjast gagnsæis í öllum þeim málum sem snerta íbúa Hafnarfjarðar.

Kristín Thoroddsen kemur að svohljóðandi bókun:

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar í Hafnarfirði bóka eftirfarandi:
Meirihlutaáttmálinn byggir á sameiginlegri sýn um að efla rekstur bæjarins, styrkja grunnþjónustu og auka lífsgæði íbúa með áherslu á traustan rekstur, skilvirka stjórnsýslu, öfluga skóla og bætta þjónustu við íbúa á öllum æviskeiðum.
Þau verkefni sem farið verður í í upphafi kjörtímabils eru, rekstrar- og stjórnsýsluúttekt á bænum til að auka skilvirkni og bæta ákvarðanatöku og efling innkauparáðs með endurskoðun á innkaupa- og útboðsferlum. Farið verður að bæta starfsaðstæður í grunnskólum, auka stuðning við jaðarsett ungmenni 16-25 ára og lögð verður aukin áhersla æa þátttöku barna í frístundastarfi. Farið verður í vinnu við að klára hverfin og græn svæði.

Þessi verkefni leggja grunninn að sterkari rekstri, betri þjónustu og auknum lífsgæðum fyrir Hafnfirðinga.


Málefnasamningur meirihluta bæjarstjórnar.pdf
6. 2605600 - Ráðning bæjarstjóra
Lögð fram tillaga um ráðningu bæjarstjóra
Orri Björnsson tekur til máls og leggur fram tillögu um að Þórður þórarinsson verði ráðinn í starf bæjarstjóra Hafnarfjardar til loka kjörtímabilsins. Formanni bæjarráðs verði falið að ganga frá skriflegum ráðningarsamningi við bæjarstjóra þar sem starfskjör hans eru ákveðin, sbr. 2. mgr. 54. gr. sveitarstjórnarlaga. Samningurinn skal lagður fyrir bæjarráð og til staðfestingar í bæjarstjórn.

Árni Rúnar Þorvaldsson tekur til máls.

Er framangreint samþykkt með 7 atkvæðum en 4 fulltrúar Framsóknar og Miðflokksins sitja hjá.

7. 2511554 - Blýhella 7 og 9, atvinnulóðir, lóðavilyrði
8.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 12.maí sl.
Lögð fram umsókn Flensborgar hf. um lóðirnar nr. 7 og við Blýhellu

Samþykkt að úthluta lóðunum nr. 7 og 9 við Blýhellu til Flensborgar hf. og málinu vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar.
Samþykkt með 10 atkvæðum. Fulltrúi Miðflokks situr hjá.
Blýhella 7-9 vilyrði.pdf
8. 2605192 - Tunguhella 6, úthlutun lóðar
9.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 12.maí sl.
Lögð fram umsókn FimmX Verk ehf. um lóðina nr. 6 við Tunguhellu

Samþykkt að úthluta lóðina nr. 6 við Tunguhellu til FimmX Verks ehf. Málinu vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar.
Samþykkt samhljóða.
9. 2605486 - Sumarleyfi bæjarstjórnar
Forseti leggur til að sumarleyfi bæjarstjórnar 2026 standi frá mánudeginum 8. júní til og með mánudeginum 3. ágúst og bæjarráð annist fullnaðarafgreiðslu allra mála meðan á sumarleyfinu stendur. Fyrsti fundur bæjarstjórnar að loknu sumarleyfi fari fram miðvikudaginn 12. ágúst, vikan sem hefst þriðjudaginn 4. ágúst verði fyrsta reglubundin ráðsvika að loknu sumarleyfi, en ráð og nefndir geti að öðru leyti hagað fundum eftir þörfum

Samþykkt samhljóða.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:46 

Til bakaPrenta