| |
| 1. 2601513 - Heimili fyrir fötluð börn | | Sviðsstjóri leggur fram minnisblað | | Fjölskylduráð þakkar fyrir framlagðar upplýsingar. | | |
|
| 2. 2305270 - Sameiginlegt vistheimili í barnaverndarþjónustu | | Sviðstjóri leggur fram minnisblað | Fjölskylduráð þakkar fyrir framlagðar upplýsingar. Afar ánægjulegt er að Hafnarfjöður og Kópavogur hafa hafið formlegt samtal um nánari greiningu og útfærslu á sameiginlegu vistheimili fyrir börn. Fjölskylduráð óskar eftir upplýsingum reglulega um vinnslu málsins.
| | |
|
| 3. 2510216 - Þjónusta við eldra fólk í Hafnarfirði | | Til umræðu. | Meirihluti fjölskylduráðs leggur til að bætt verði við vakt í kvöld-og helgarþjónustu í heimaþjónustu í Hafnarfirði.
Sviðsstjóra falið að skoða möguleika á tilfærslum innan liða hjá sviðinu vegna kostnaðar á auknu stöðugildum fyrir 1.maí, ef ekki er möguleiki á tilfærslum verði gerður viðauki.
Fjölskylduráð samþykkir framlagða tillögu. | | |
|
| 4. 2304615 - Málefni heimilislausra | Lagt fram til kynningar.
Sigurður Haraldsson, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs, mætir til fundar undir þessum lið. | Fjölskylduráð felur sviðsstjóra að taka saman minnisblað um undirbúning fyrir rekstur og þjónustu í smáhýsum sem fyrirhugað er að reisa á hentugum stað í bænum. Jafnframt að kynna fyrir Fjölskylduráði á næsta fundi hver reynsla er í nágrannasveitarfélögum sem hafa sett upp sambærileg búsetuúrræði.
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun: Fulltrúar Samfylkingarinnar, ítreka mikilvægi þess að unnið sé hratt og vel í þessu mikilvæga máli. Við bendum á að í fjárhagsáætlun síðasta árs var gert ráð fyrir uppsetningu og rekstri 6 smáhýsa fyrir heimilislausa án þess að meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks hafi tekist að koma þeim í nýtingu. Og enn er beðið. Það er ljóst að þessi málefni hafa ekki verið efst á forgangslista meirihlutans vegna þess að í fjárhagsáætlun síðasta árs var einnig að finna áætlanir um að setja á fót starfshóp sem ætlað var að móta stefnu bæjarins í þessum mikilvæga málaflokki til framtíðar. Því miður hefur ekkert orðið af þeirri vinnu enn þá og ekkert bólar á þeim áformum hjá meirihlutanum í fjölskylduráði.
Meirihluti fjölskylduráðs bendir á að með frumkvæði meirihlutans hefur sveitarfélagið gengið að samkomulagi við VOR-teymið í Reykjavík. Þá hefur einnig verið sett á laggirnar að frumkvæði meirihlutans sértæk heimaþjónusta. Þar er um að ræða gríðarlega mikilvæg skref í málaflokknum.
Nú stendur yfir vinna við að finna smáhýsum staðsetningu í Hafnarfirði sem og vinna við að móta raunverulega stefnu sem mun tryggja að heimilislaust fólk fái viðeigandi aðstoð. Vinna að slíku ferli krefst tíma og samvinnu. Meirihlutinn hefur verið að vinna að því að setja þessi málefni í forgang, og við erum staðráðin í að halda áfram í því ferli. Meirihlutinn hvetur fulltrúa Samfylkingarinnar til að vinna með okkur að lausnum frekar en að einblína á gagnrýni.
| | |
|
| 5. 2311460 - Ný heilsugæsla í Hafnarfirði | Til umræðu. Sigurður Haraldsson, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs, mætir til fundar undir þessum lið. | Fjölskylduráð Hafnarfjarðar lýsir yfir alvarlegum áhyggjum af aðgengi íbúa að heimilislæknum og heilsugæsluþjónustu í Hafnarfirði. Í lok árs 2024 voru skráðir 29.968 skjólstæðingar á heilsugæslustöðvum bæjarins að Sólvangi og í Firði og ljóst að það er löngu tímabært að ríkið veiti leyfi og ráðstafi fjármagni í nýja heilsugæslu í bænum. Ekki hefur staðið á sveitarfélaginu sem hefur líst yfir vilja á undanförnum árum og óskað eftir viðræðum við ríkið um aðkomu að verkefninu með því að leggja fram lóð eða taka þátt í verkefninu með öðrum hætti. Fjölskylduráð Hafnarfjarðar minnir á að markmið laga um heilbrigðisþjónustu geri ráð fyrir jöfnu aðgengi og að heilsugæslan sé að jafnaði fyrsti viðkomustaður sjúklinga og að viðmið um viðtal við heilsugæslulækni skuli almennt vera innan 5 daga. Fjölskylduráð Hafnarfjarðar skorar á heilbrigðisráðherra að leggja fram skriflega og tímasetta aðgerðaáætlun um eflingu heilsugæslu í Hafnarfirði, með það að markmiði að tryggja mönnun sem samræmist opinberum viðmiðum og tryggja nauðsynlega fjármögnun og samningsheimildir til fjölgunar heimilislæknaþjónustu í Hafnarfirði með byggingu á nýrri heilsugæslustöð í Vallarhverfi. Fjölskylduráð felur bæjarstjóra að taka saman minnisblað um þær viðræður sem hafa átt sér stað að undanförnum árum um uppbyggingu á Heilsugæslu í Vallarhverfi og fylgja eftir ályktun fjölskylduráðs.
| | |
|
| 6. 2601229 - Vettvangs- og ráðgjafateymi Reykjarvíkurborgar (VoR) | | Lagt fram til kynningar. | | Lagt fram til kynningar. | | |
|
| 7. 2412667 - Aðgengi fólks með fötlun að almennum vinnumarkaði | | Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá sbr. bókun fjölskylduráðs þann 17. febrúar sl. um að tekið verði saman minnisblað um atvinnuþátttöku fólks með fötlun. | | Fulltrúar Samfylkingarinnar ítreka bókun ráðsins frá 17. febrúar sl. | | |
|
| |
|
| 9. 0701243 - Málskot | Lögð fram niðurstaða málskotsnefndar í málum nr. 7-8/2026. Fjölskylduráð staðfestir afgreiðslu málskotsnefndar.
Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála nr. 735/2025. | | |
|