| |
| 1. 2606684 - Norðurbraut 33, byggingarleyfi | | Garðar Snæbjörnsson f.h. lóðarhafa sækir þann 25.06.2026 um leyfi fyrir nýju húsi á baklóð í samræmi við heimild í deiliskipulagi. Húsið kemur í stað bílskúrs. | | Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010. | | |
|
| 2. 2606727 - Sörlaskeið 13a, breyting | | Þorkell Magnússon f.h. lóðarhafa leggur 24.06.2026 inn reyndarteikningar. Brunavarnir uppfærðar. | | Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010. | | |
|
| 3. 2609135 - Straumhella 26, breyting | | Jón Grétar Magnússon f.h. lóðarhafa sækir 09.09.2026 um breytingar sem felast í því að stálgrind er breytt í límtré, texti um útstöð, sorpgerði og svalir fjarlægður, innkeyrslu bætt við, bílastæði færð. | | Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010. | | |
|
| 4. 2609195 - Álhella 9, breyting | | Össur Imsland f.h. lóðarhafa sækir þann 14.09.2026 um leyfi fyrir lítilsháttar breytingar á áður samþykktu erindi 2510279. | | Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010. | | |
|
| 5. 2609461 - Álfaskeið 31, svalir | | Haraldur Ingvarsson f.h. lóðarhafa sækir 23.09.2026 um leyfi til að stækka svalir á 1. hæð um 7,9 fm. | | Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010. | | |
|
| |
| 6. 2608337 - Axlarás 7, breyting á deiliskipulagi | | Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 26.08.2026 var samþykkt að grenndarkynna, með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga, erindi Andra Ingólfssonar f.h. lóðarhafa um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin gerir ráð fyrir breytingu á texta í greinargerð varðandi útbyggingar og skyggni/skjólvegg við anddyri. Erindið var grenndarkynnt frá 28.08.2026 til 25.09.2026. Engar athugasemdir bárust. | | Erindinu verður lokið í samræmi við skipulagslög. | | Slóð á skipulagsgátt.pdf | | |
|
| 7. 2607193 - Hlíðarbraut 2, breyting á deiliskipulagi | Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 21.07.2026 var samþykkt að grenndarkynna, með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga, erindi ARK Design ehf. f.h. lóðarhafa um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felur í sér stækkun hússins til vesturs, á 1. og 2. hæð, um 28 m² á hvorri hæð. Heildarbyggingarmagn verður 187,6 m². Nýtingarhlutfall lóðarinnar hækkar úr 0,28 í 0,37. Fallið er frá byggingarreit fyrir bílskúr. Erindið var grenndarkynnt frá 12.08.2026 til 22.09.2026. Á meðan grenndarkynningu stóð barst ósk um frekari gögn. Nánari gögn voru lögð fram og tímabil grenndarkynningar framlengd. Engar athugasemdir bárust. | | Erindinu verður lokið í samræmi við skipulagslög. | | Slóð á skipulagsgátt.pdf | | |
|
| 8. 2608210 - Hraunbrún 28, deiliskipulag | Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 19.08.2026 var samþykkt að grenndarkynna, með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga, breytingu á deiliskipulagi Vesturbæjar Hafnarfjarðar vegna Hraunbrúnar 28. Breytingin felst í því að leiðrétt er lóðarstærð í skilmálatöflu. Jafnframt breytist nýtingarhlutfall lóðarinnar úr 0,34 í 0,23. Erindið var grenndarkynnt frá 25.08.2026 til 22.09.2026. Engar athugasemdir bárust. | | Erindinu verður lokið í samræmi við skipulagslög. | | slóð á Skipulagsgátt.pdf | | |
|
| 9. 2608339 - Straumhella 18, breyting á deiliskipulagi | Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 26.08.2026 var samþykkt að grenndarkynna, með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga, erindi Jóns Davíðs Ásgeirssonar f.h. lóðarhafa um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felst í tilfærslu á innkeyrslu um 25 m til austurs. Erindið var grenndarkynnt frá 28.08.2026 til 25.09.2026. Engar athugasemdir bárust. | | Erindinu verður lokið í samræmi við skipulagslög. | | Slóð á skipulagsgátt.pdf | | |
|
| 10. 2607218 - Kirkjuvegur 3 og 3a, breyting á deiliskipulagi | | Lögð er fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felst í að lóðinni verður skipt í tvær lóðir og kvöð um aðgengi er felld niður. | | Erindinu verður lokið í samræmi við skipulagslög. Fallið er frá grenndarkynningu í ljósi þessa að breytingin telst óveruleg. Málsmeðferð fer skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga. | | Kirkjuvegur 3 og 3A, breyting á deiliskipulagi.pdf | | |
|
| 11. 2609492 - Heiðvangur 16, breyting á deiliskipulagi | | Sigurður Þorvarðarson f.h. lóðarhafa sækir 28.09.2026 um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felst í gerð nýs byggingarreits fyrir bílskúr á suðvesturhluta lóðarinnar ásamt innkeyrslu og tilfærslu á bílastæðum. Jafnframt er gert ráð fyrir tengibyggingu innan núverandi byggingarreits. | | Erindið verður grenndarkynnt með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga. | | Heidvangur 16, deiliskipulagsbreyting.pdf | | |
|
| 12. 2609435 - Hverfisgata 13, breyting á deiliskipulagi | | Haraldur Ingvarsson f.h. lóðarhafa sækir þann 23.09.2026 um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felur í sér að heimilt verði að hækka mæni aðalþaksins og koma fyrir kvistum á fram- og bakhlið þess. | | Erindið verður grenndarkynnt með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga. | | Hverfisgata 13, breyting á deiliskipulagi.pdf | | |
|
| |
| 13. 2609188 - Brekkugata 12, fyrirspurn, tenging við lögn | | Helga Lára Þorsteinsdóttir og Pétur Örn Friðriksson óska eftir leyfi til að tengja frárennsli inn á frárennslislögn veitna. | | Tekið er neikvætt í erindið, samræmist ekki notkun á kaldri geymslu. | | |
|
| 14. 2609458 - Virkisás 22, fyrirspurn | | Valur Þór Sigurðsson f.h. lóðarhafa óskar 23.09.2026 eftir að skrá aukaíbúð með sjálfstætt fasteignanúmer. | | Tekið er neikvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23.09.2026. | | Virkisás 22, umsögn skipulags.pdf | | |
|
| 15. 2609174 - Sævangur 30, fyrirspurn | | Bjarni Birgir Fáfnisson leggur 10.09.2026 fram fyrirspurn hvort heimilt sé að setja kvist á núverandi þak hússins. | | Tekið er neikvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22.09.2026. | | Sævangur 30, umsögn skipulags.pdf | | |
|
| 16. 2609265 - Drangahraun 7, fyrirspurn | | Stefán Hallsson leggur þann 17.09.2026 fram fyrirspurn þar sem óskað er eftir því að færa byggingarreit á lóðinni Drangahraun 7. Ekki er gert ráð fyrir auknu byggingarmagni. | | Tekið er neikvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21.09.2026. | | Drangahraun 7, umsögn skipulags.pdf | | |
|
| 17. 2609490 - Títanhella 12-14, fyrirspurn | | Kári Eiríksson leggur þann 28.09.2026 fram fyrirspurn þar sem óskað er eftir leyfi til að breyta deiliskipulagi. Lóðamörk milli lóða færast til og innkeyrslu er bætt við aðra lóðina. | | Tekið er jákvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 29.09.2026. | | Títanhella 12-14, umsögn skipulags.pdf | | |
|
| 18. 2606153 - Álfholt 12, fyrirspurn bf | | Engilbert Þórðarson og Aðalheiður Bragadóttir leggja þann 05.06.2026 fram fyrirspurn þess efnis að byggja 15 fm sólpall við bakdyr íbúðarinnar (0102). | | Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa óskar eftir ítarlegri gögnum sem sýna nánar um hvað verið er að óska eftir. Bent er á að lóð er sameign allra og samþykki allra eigenda þarf fyrir slíkri framkvæmd auk þess sem gera þyrfti viðauka við eignaskiptayfirlýsingu. | | |
|
| 19. 2606072 - Stekkjarhvammur 8, fyrirspurn bf | | Stefán Ómar Jakobsson leggur þann 02.06.2026 fram fyrirspurn um möguleika á að sækja um sólskála sem yrði fastur við húsið undir svölum efri hæðar. Einnig er óskað eftir upplýsingum um afnot af grasflötinni aftan við húsið. | | Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa óskar eftir ítarlegri gögnum sem sýna nánar um hvað verið er að óska eftir. Bent er á að lóð er sameign allra og samþykki allra eigenda þarf fyrir slíkri framkvæmd auk þess sem gera þyrfti viðauka við eignaskiptayfirlýsingu. | | |
|