Til bakaPrenta
Hafnarstjórn - 1705

Haldinn á hafnarskrifstofu,
16.06.2026 og hófst hann kl. 10:00
Fundinn sátu: Viktor Pétur Finnsson formaður,
Guðmundur Fylkisson aðalmaður,
Jón Grétar Þórsson aðalmaður,
Þröstur Valmundsson Söring varamaður,
Fundargerð ritaði: Lúðvík Geirsson, hafnarstjóri
Til fundarins mætti Þórður Þórarinsson bæjarstjóri.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2606257 - Hafnarstjórn 2026-2030
Lögð fram tilkynning um kjör hafnarstjórnar á fundi bæjarstjórnar þann 3. júní sl. fyrir kjörtímabilið 2026-2030. Viktor Pétur Finnsson formaður bauð stjórnarmenn velkomna til fyrsta fundar á kjörtímabilinu.
Bæjarstjórn - 1977 2605484 - Ráð og nefndir 2026-2030 kosningar tilkynning um afgreiðslu máls.pdf
2. 2606255 - Umsókn um styrk vegna björgunarskips
Lagt fram erindi frá Björgunarsveit Hafnarfjarðar dags. 8. júní 2026 þar sem óskað er eftir fjárstuðningi frá hafnarsjóði til að ljúka smíði björgunarskips sveitarinnar.
Styrktarbeiðni v. björgunarskips júní 2026.pdf
Kynningar
3. 2601004 - Framkvæmdir á hafnarsvæðum
Hafnarstjóri fór yfir stöðu helstu framkvæmda á hafnarsvæðinu.
4. 2606261 - Fjárhags- og rekstraráætlun 2026
Lagt fram yfirlit um rekstur hafnarsjóðs á fyrsta ársþriðjungi 2026.
5. 2606259 - Stækkun Straumsvíkurhafnar
Hafnarstjóri fór yfir stöðu mála varðandi undirbúning stækkunar hafnarsvæðis í Straumsvík.
6. 2606260 - Öryggismál á hafnarsvæði
Rætt um almenn öryggismál barna og ungmenna og annarra gesta á opnum hafnarsvæðum.
Hafnarstjóra falið að fylgja málinu eftir.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:30 

Til bakaPrenta