| |
| 1. 2608302 - Ferðamálaþing höfuðborgarsvæðisins, 2026 | | Ferðamálaþing höfuðborgarsvæðisins 2026 verður haldið 16.september n.k. undir yfirskriftinni Seglar og straumar. | | Menningar- og ferðamálanefnd hvetur áhugasama og fyrirtæki í ferðaþjónustu í Hafnarfirði til að sækja Ferðamálaþing höfuðborgarsvæðisins í Hlégarði 16. september. Þar verður sérstaklega fjallað um þróun, dreifingu og framtíðarsýn ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu. Nefndin hvetur jafnframt til þess að vakin verði athygli á þinginu meðal hagaðila í ferðaþjónustu í Hafnarfirði. | | |
|
| 2. 2512005 - Menningarstyrkir 2026 | | Umsóknir sem bárust í seinni úthlutun menningarstyrkja 2026 lagðar fram. | | |
|
| 3. 2608181 - Jólaþorpið 2026 | | Fjallað um Jólaþorpið 2026. Ása Karin Hólm kom til fundarsins vegna uppfærslu á aðgerðaráætlun Jólaþorpsins til 2029. | Menningar- og ferðamálanefnd þakkar fyrir góða kynningu og þá miklu vinnu sem lögð hefur verið í endurskoðun aðgerðaráætlunar Jólabæjarins. Nefndin vill einnig þakka starfsfólki Hafnarfjarðarbæjar fyrir frábæra vinnu við útfærslu og framkvæmd Jólabæjarins undanfarin ár.
Það er mjög ánægjulegt að sjá hversu mikið Jólaþorpið og Jólabærinn hafa vaxið og þróast frá því að framtíðarsýnin var sett fram árið 2022. Margar af þeim hugmyndum hafa orðið að veruleika og verkefnið hefur síðan haldið áfram að stækka og þróast.
Jólaþorpið og Jólabærinn eru orðin stór hluti af aðventunni í Hafnarfirði og eitthvað sem við getum verið virkilega stolt af. Nefndin vill halda áfram að byggja þetta upp og styrkja Jólabæinn enn frekar á næstu árum.
Nefndin mun nú fara yfir drögin og koma með sínar ábendingar og hugmyndir á næsta fundi. Að því loknu getur verkefnastjóri menningarmála unnið aðgerðaráætlunina áfram út frá þeirri umræðu.
| | |
|