Til bakaPrenta
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 90

Haldinn Fundarsalurinn Ásfjall, Norðurhellu 2,
03.12.2025 og hófst hann kl. 10:00
Fundinn sátu: Lilja Grétarsdóttir skipulagsfulltrúi,
Berglind Guðmundsdóttir arkitekt,
Anna Margrét Tómasdóttir arkitekt,
Anne Steinbrenner starfsmaður,
Aleksandra Julia Wegrzyniak starfsmaður,
Fundargerð ritaði: Aleksandra Wegrzyniak, þjónustufulltrúi


Dagskrá: 
B-hluti skipulagserindi
1. 2508049 - Suðurhella 12-20, breyting á deiliskipulagi
Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 13.08.2025 var málinu vísað til bæjarráðs út af lóðarstækkun. Bæjarráð samþykkti stækkunina á fundi sínum 21.08.2025.
Breytingin felst í því að fallið er frá innkeyrslum frá Ásbraut inn á lóðina, bílastæðum fjölgar, breyting er á lóðarmörkum, gönguleiðum, staðsetningu sorpskýla, staðsetningu hjólastæða og byggingarreitir við inngang stækka lítillega.
Erindinu verður lokið í samræmi við skipulagslög. Fallið er frá grenndarkynningu í ljósi þessa að breytingin telst óveruleg. Málsmeðferð fer skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga.
Suðurhella 12-20, nýr, í gildi.pdf
D-hluti fyrirspurnir
2. 2511567 - Áshamar 50, fyrirspurn
Sigurbjörg H Gunnbjörnsdóttir og Miðsteinn ehf. leggja 25.11.2025 inn fyrirspurn vegna fjölgunar íbúða á jarðhæð.
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa vísar erindinu til skipulags- og byggingarráðs.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:30 

Til bakaPrenta