Til bakaPrenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 108

Haldinn Fundarsalurinn Ásfjall, Norðurhellu 2,
15.07.2026 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu: Hildur Bjarnadóttir byggingafulltrúi,
Anna Margrét Tómasdóttir arkitekt,
Anne Steinbrenner starfsmaður,
Fundargerð ritaði: Aleksandra Wegrzyniak, þjónustufulltrúi


Dagskrá: 
A-hluti byggingarleyfa
1. 2604312 - Hvaleyrarbraut 20, (hús C), byggingarleyfi
Andri Klausen f.h. lóðarhafa sækir 21.04.2026 um byggingarleyfi fyrir húshluta með staðfang Hvaleyrarbraut 20C. Íbúðir eru 32 í 7 hæða húsi.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
2. 2601025 - Dofrahella 2O, rými 02 0109, milliloft
Ragnar Magnússon f.h. Chorobates ehf sækir 05.01.2026 um milliloft með stiga í rými 02 0109. Einnig er bætt við tveim gluggum á suður hlið og einum glugga á norður hlið. Rýmisnúmer frá 02 0111 breytast.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
3. 2606768 - Gullhella 1, MHL.07, reyndarteikningar
Alexander Helgason f.h. lóðarhafa leggur 30.06.2026 inn reyndarteikningar af mhl.07.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
4. 2606277 - Hryggjarás 19, byggingarleyfi
Rúnar Ólafsson f.h. lóðarhafa sækir þann 11.06.2026 um leyfi til að reisa 214,5 fm. einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
5. 2606096 - Álfhella 9, MHL.02, byggingarleyfi
Smári Björnsson f.h. lóðarhafa sækir þann 02.06.2026 um leyfi til að byggja atvinnuhúsnæði, vinnusmiðju í MHL.02.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
6. 2606465 - Einhella 11, breyting
Gunnar Sigurðsson f.h. lóðarhafa sækir 15.6.2026 um breytingar á áður samþykktu erindi.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
7. 2607131 - Hjallahraun 2, niðurrif
Jón Eyjólfsson f.h. lóðarhafa sækir 08.07.2026 um leyfi til að rifa skemmu sem stendur á lóðinni.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
C-hluti tilkynningarskyldar framkvæmdir
8. 2607134 - Stálhella 24d, tilkynningarskyld framkvæmd
Guðmundur Elíasson f.h. Hafnarfjarðarkaupstað sækir 09.07.2026 um að byggja dæluhús fyrir fráveitu.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
9. 2607088 - Merkurgata 4, tilkynningarskyld framkvæmd
Ingólfur Freyr Guðmundsson f.h. lóðarhafa sækir 07.07.2026 um leyfi fyrir nýjan glugga sem settur verður á vesturgafl hússins í herbergi á 2. hæð.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
F-hluti önnur mál
10. 2605277 - Reykjavíkurvegur, breyting á skilti
Lagt fram erindi Fimleikafélagsins Bjarkar vegna breytinga á skilti við Reykjavíkurveg. Nýjar teikningar bárust 13.07.2026.
Afgreiðslufundur samþykkir að setja upp búnað á auglýsingaskilti sem stendur við Reykjavíkurveg svo framarlega sem ljósmagn skiltisins samræmist samþykkt um skilti í Hafnarfirði og þá einkum í tengslum við umhverfisbirtu en leiðbeiningar má finna um hámarksljóma í kafla 7.

https://hafnarfjordur.is/wp-content/uploads/2023/05/skilti-i-hafnarfirdi-2023.pdf
11. 2607168 - Hvaleyrarvatn, kvikmyndataka
Róbert Garcia sækir 14.07.2026 um leyfi til kvikmyndatöku við vesturenda Hvaleyrarvatns 17.07.2026 eða 18.07.2026.
Leyfið er veitt með skilyrðum um góða umgengni, eins litla röskun og unnt er og að allt verði lagað sem raskað verður. Þar sem Hvaleyrarvatn er vinsælt útivistarsvæði verður sérstaklega að gæta þess að valda ekki mengun, spjöllum eða neikvæðum umhverfisáhrifum. Hafnarfjarðarbær ber ekki ábyrgð á neinu tjóni sem kann að hljótast vegna þessara kvikmyndagerðar.
Allt rusl og drasl skal fjarlægt að kvikmyndatöku lokinni og svæðið skilið eftir í sama ástandi og fyrir tökur. Það þarf að sækja um götulokanir á graftarleyfi@hafnarfjordur.is og upplýsa Skógræktarfélag Hafnarfjarðar um hvað standi til að gera á svæðinu.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:00 

Til bakaPrenta