| |
| 1. 2604116 - Dagforeldrar, þjónustukönnun | | Þjónustukönnun dagforeldra lögð fram. | | Könnun lögð fram. | | |
|
| 2. 2406200 - Yfirlit á stöðu innritunar í leikskólum | | Minnisblað lagt fram. | | Fræðsluráð fagnar því hversu vel hefur gengið að manna leikskóla Hafnarfjarðar sem tryggir að hægt er að bjóða börnum fædd í júní 2025 eða 14 mánaða leikskólapláss næsta haust. Þær breytingar sem gerðar hafa verið á leikskólastarfi í Hafnarfirði skila árangri og stuðla þar með að betri þjónustu við fjölskyldur bæjarins. | | Minnisblað_innritun og faghlutfall..pdf | | |
|
| 3. 2601014 - Skóladagatal 2026 - 2027 leikskólar | | Skóladagatöl lögð fram til afgreiðslu. | | Fræðsluráð samþykkir skóladagatöl leikskóla fyrir árið 2026-2027 að undanskildum leikskólans Hjalla, 5 ára deild Barnaskóla Hjallastefnunnar og leikskólans Hvamms þar sem þau samræmast ekki samþykkt fræðsluráðs síðan 2022 um skerta daga. | | |
|
| 4. 2601013 - Skóladagatal 2026 - 2027 grunnskólar | | Skóladagatöl lögð fram til afgreiðslu. | | Fræðsluráð samþykkir skóladagatöl grunnskóla fyrir árið 2026-2027. | | |
|
| 5. 2604125 - Söngvavor | | Lagt fram. | | Fræðsluráð fagnar samstarfi milli leikskólanna og Tónlistarskóla Hafnarfjarðar til að efla enn frekar tónlistarþáttöku barna í Hafnarfirði | | Söngvavor_minnisblað..pdf | | |
|
| 6. 2604115 - Kraftheimar | | Kynning á starfsemi Kraftheima. | | Fræðsluráð þakkar fyrir kynninguna og fagnar því góða starfi sem unnið er í Kraftheimum. Ráðið lýsir ánægju með að sjá verkefni, sem áður var samþykkt í fræðsluráði, dafna og þróast með þessum hætti. Sérstaklega er mikilvægt að börn geti áfram starfað í skólaumhverfi, viðhaldið félagslegum tengslum við aðra nemendur og notið stuðnings sem byggir á styrkleikum hvers og eins. | | |
|
| 7. 2604126 - Einhverf börn innan skólakerfis Hafnarfjarðar | | Foreldraráð óskar eftir umræðu. | | Fræðsluráð felur sviðsstjóra að taka saman svör í samræmi við umræðu á fundi varðandi þau úrræði og stuðning sem einhverfum börnum og börnum á einhverfurófi innan skólakerfisins í Hafnarfirði stendur til boða. Jafnframt er óskað eftir upplýsingum um hvernig þau eru kynnt foreldrum og nemendum. | | |
|
| 8. 2604100 - Stafræn velferð | | Lagt fram. | Fræðsluráð fagnar frumkvæði foreldraráðs Hafnarfjarðar og samþykkir verkefni, Stafræn velferð, vinnustofa til að bregðast við aukinni skjánotkun barna sem aukist hefur hratt á undanförnum árum. Verkefnið felst í fræðslu fyrir nemendur og sameiginlegar vinnustofur fyrir nemendur, foreldra og starfsfólk.
| | Stafræn velferð vinnustofa.pdf | | |
|
| 9. 2602377 - Fyrirspurn Samfylkingar, Hreiðrið ungmennahús | | Minnisblað lagt fram. | Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Samfylkingarinnar þakka framlögð svör og fagna því að ungmenni í Hafnarfirði séu að sækja þjónustu ungmennahússins Hreiðursins, sem var opnað í september 2025.
Á sama tíma furða fulltrúar Samfylkingarinnar sig á því að búið sé að skerða opnunartíma Hreiðursins frá því sem var í upphafi og spyrja hvaða skilaboð það séu til hafnfirskra ungmenna að ungmennahús bæjarins sé lokað á föstudögum.
Fulltrúar Samfylkingarinnar minna á að þegar meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar í fræðsluráði tók ákvörðun um að loka ungmennahúsinu Hamrinum í maí 2024 þá var það gert undir þeim formerkjum að verið væri að „efla og útvíkka frístundastarf fyrir ungmenni í bæjarfélaginu til mikilla muna,“ eins og sagði í bókun meirihlutans.
Nú er búið að stytta opnunartíma hins nýja ungmennahúss um heilan dag frá því sem var í ungmennahúsinu Hamrinum. Fulltrúar Samfylkingarinnar telja slíka skerðingu á opnunartíma ekki í samræmi við fyrirheit meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknar um að „efla og útvíkka frístundastarf fyrir ungmenni í bæjarfélaginu til mikilla muna.“
Þá hefur mikil umræða átt sér stað í samfélaginu um líðan ungmenna og áhyggjur af vaxandi ofbeldismenningu og áfengisneyslu. Í því sambandi telja fulltrúar Samfylkingarinnar það senda kolröng skilaboð út í samfélagið að skella ungmennahúsi bæjarins í lás á föstudögum.
Að lokum benda fulltrúar Samfylkingarinnar á að svo umfangsmikla skerðingu á opnunartíma ungmennahússins beri að ræða á vettvangi fræðsluráðs. Sé það mat starfsfólks og stjórnenda að ekki sé hægt að halda úti föstudagsopnun miðað við þá mönnun sem er til staðar þá ber fræðsluráði að bregðast við því.
| | 2602377_minnisblað.pdf | | |
|
| 10. 2602399 - Efling starfssemi félagsmiðstöðva - tillaga fulltrúa Viðreisnar | | Minnisblað lagt fram. | Fulltrúi Viðreisnar þakkar fyrir þessa samantekt, það er greinilegt að starfsmenn félagsmiðstöðva eru sífellt að finna leiðir til þess að mæta börnunum okkar. Jafnframt ítrekum við fyrri tillögum okkar um aukið svigrúm félagsmiðstöðva Hafnarfjarðar til að rýmka opnunartíma. Lögð verði sérstök áhersla á að koma á sumaropnun félagsmiðstöðva fyrir komandi sumar. Jafnframt verði lögð rík áhersla á að efla markvisst hópastarf innan félagsmiðstöðvanna, með sérstakri áherslu á stuðning við og inngildingu jaðarsettra hópa barna.
Bókun frá Foreldraráði Hafnarfjarðar vegna eflingar starfsemi félagsmiðstöðva.
Foreldraráð Hafnarfjarðar lýsir yfir skýrum stuðningi við tillögu um eflingu starfsemi félagsmiðstöðva bæjarins.
Félagsmiðstöðvar eru lykilþáttur í forvarnarstarfi og veita börnum og ungmennum öruggt rými til félagslegra tengsla og uppbyggilegs frítíma. Mikilvægt er að opnunartími endurspegli þarfir ungmenna og að tryggt sé aukið svigrúm til lengri og sveigjanlegri opnunar í takt við útivistarreglur.
Foreldraráð styður sérstaklega aukna áherslu á markvisst hópastarf, enda hentar hefðbundið opið starf ekki öllum. Smærri og skipulagðir hópar geta skipt sköpum fyrir börn í viðkvæmri stöðu og geta stuðlað að inngildingu, bættri líðan og aukinni þátttöku.
Samhliða leggur foreldraráð áherslu á að nauðsynlegt fjármagn og mannafli fylgi auknum metnaði. Hér er um mikilvæga fjárfestingu í velferð barna og ungmenna í Hafnarfirði að ræða og mikilvægt að veita þeirra velferð það fjármagn sem þarf.
Fræðsluráð tekur undir bókun foreldraráðs.
| | 2602399_minnisblað.pdf | | |
|
| 11. 2410019 - Kaplakriki, frjálsíþróttasvæði, ástand, hvatning um viðhald | | Lagt fram. | Fulltrúi Viðreisnar þakkar fyrir svör. Það er þó sorglegt að sjá að ekki hafi verið hægt að mæta alvarlegri þörf deildarinnar um viðhalda á hlaupabrautinni. Það að veita svona stórri og farmúrskarandi deild, sem hefur verið meðal þeirra fremstu hérna á Íslandi ekki nema 5 milljóna krónum af þeim næstum því 150 milljónir sem þau óskuðu eftir í fjárhagsáætlun fyrir árið 2026. Þetta verður til þess að ekki verði hægt að halda frjálsíþróttamót í Hafnarfirði komandi sumar.
| | Svar umhverfis- og skipulagssviðs við fyrirspurn fulltrúa Viðreisnar í fræðsluráði.pdf | | |
|
| 12. 2511508 - Fundargerðir mánaðarlegra samráðsfunda M&L með Í-mat | | Fundargerð lögð fram. | | Fundargerð lögð fram. | | Matarstund_fundargerd_09.04.2026.pdf | | |
|
|