| |
| 1. 2608196 - Fjölskyldu- og barnamálasvið - kynning á starfsemi | | Lagt fram til kynningar. | | Fjölskylduráð þakkar kynninguna. | | |
|
| 2. 2609196 - Samningur um samræmda móttöku flóttafólks | | Lagður fram viðauki. | Lagt er til að samþykkt verði að framlengja þjónustusamning Hafnarfjarðar og félags- og húsnæðismálaráðuneytis um samræmda móttöku flóttafólks um eitt ár eða til 31. desember 2027. Þá er jafnframt lagt til að fjöldi flóttafólks sem Hafnarfjörður veitir þjónustu á grundvelli samningsins verði allt að 350 manns.
Samþykkt með fjórum atkvæðum fulltrúa meirihluta og Framsóknar. Fulltrúi Miðflokksins greiðir atkvæði gegn samningnum.
Fulltrúi Framsóknar leggur fram eftirfarandi bókun:
Framsókn styður fyrirliggjandi samning um samræmda móttöku flóttafólks enda er mikilvægt að tryggja að þjónusta við þann hóp sem nýtur hennar skerðist ekki eða falli niður.
Jafnframt telur Framsókn mikilvægt að benda á að ekki fari saman hljóð og mynd í þeim ákvörðunum sem lagðar hafa verið fram af hálfu bæjaryfirvalda. Á sama tíma og lagt er til að sveitarfélagið framlengi samninginn og haldi áfram umfangsmikilli þjónustu við flóttafólk hefur starfsfólki Alþjóðateymisins verið sagt upp. Með þeirri ákvörðun hefur sú sérhæfða þekking, reynsla og fagþekking sem byggð hefur verið upp á undanförnum árum horfið úr starfseminni.
Fulltrúar Framsóknar telja því eðlilegt að spurt sé hvernig tryggja eigi faglega og skilvirka framkvæmd samningsins þegar það teymi sem bar uppi meginþekkingu verkefnisins hefur verið lagt niður. Það er þversagnakennt að annars vegar sé sveitarfélagið að skuldbinda sig til áframhaldandi móttöku og þjónustu við flóttafólk en hins vegar að draga úr þeim mannauði og þeirri sérfræðiþekkingu sem nauðsynleg er til að sinna verkefninu með þeim gæðum sem gert hefur verið hingað til. Jafnframt gerir Framsókn þá kröfu að bæjaryfirvöld leggi fram skýra áætlun um það með hvaða hætti tryggja eigi áframhaldandi fagþekkingu, samfellu og gæði þjónustunnar eftir að starfsmönnum teymisins var sagt upp. Að öðrum kosti er hætta á að sveitarfélagið sé að samþykkja áframhaldandi skyldur án þess að hafa tryggar forsendur fyrir því að þær verði framkvæmdar með fullnægjandi hætti.
Fulltrúi Miðflokksins leggur fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúi Miðflokksins vekur athygli á því að meirihluti fjárhagsaðstoðar Hafnarfjarðarbæjar rennur til erlendra ríkisborgara, sem eru um 16% íbúa bæjarins. Árið 2024 runnu um 70% aðstoðarinnar til erlendra ríkisborgara, samkvæmt svari bæjarins við fyrirspurn Miðflokksins. Stærstu hóparnir eru einstaklingar með úkraínskt og palestínskt ríkisfang. Ríkið endurgreiðir fjárhagsaðstoð við erlenda ríkisborgara fyrstu tvö árin eftir skráningu lögheimilis. Ef einstaklingur þarf áfram fjárhagsaðstoð eftir að þessu tímabili lýkur, fellur sá kostnaður á bæinn. Stór hluti þeirra sem komu á árunum 2022 og 2023 hefur nú lokið tveggja ára tímabilinu. Hins vegar liggur ekki fyrir hversu margir þeirra þiggja enn fjárhagsaðstoð eða hversu mikill kostnaður bæjarins er vegna þeirra. Samkvæmt tölum Hagstofunnar fjölgaði úkraínskum ríkisborgurum með lögheimili í Hafnarfirði úr 27 í byrjun árs 2022 í 342 í byrjun árs 2026 og palestínskum ríkisborgurum úr 14 í 148. Þar eru ekki taldir þeir sem hafa fengið íslenskan ríkisborgararétt. Mögulegur áframhaldandi kostnaður bæjarins vegna fjárhagsaðstoðar eftir að endurgreiðslutímabili lýkur er áhyggjuefni, sérstaklega á sama tíma og A-hluti er rekinn með 2.360 milljóna króna halla og 23 störf hafa verið lögð niður. Miðflokkurinn leggst gegn endurnýjun samnings um samræmda móttöku flóttafólks. Með samningnum tekur bærinn að sér þjónustu við flóttafólk sem ríkið vísar til hans, umfram lögbundna grunnþjónustu. Að mati Miðflokksins er ekki forsvaranlegt að endurnýja slíka skuldbindingu án þess að fyrir liggi skýrar upplýsingar um fjárhagsleg áhrif hennar. Fulltrúi Miðflokksins leggur því fram fyrirspurn um skiptingu fjárhagsaðstoðar, endurgreiðslur ríkisins og kostnað bæjarins eftir lok endurgreiðslutímabils. Óskað er eftir svörum fyrir síðari umræðu um fjárhagsáætlun 2027.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar leggja fram eftirfarandi bókun:
Hafnarfjarðarbær hefur á undanförnum árum unnið afar gott og mikilvægt starf í málefnum fólks á flótta og byggt upp öfluga þjónustu á því sviði. Á sama tíma hefur þeim einstaklingum sem njóta þjónustu á grundvelli samræmdrar móttöku fækkað verulega á undanförnum árum. Þrátt fyrir þessa þróun er ljóst að áfram er mikilvægt að tryggja faglega og góða þjónustu við þann hóp sem á henni þarf að halda. Meirihluti fjölskylduráðs telur því mikilvægt að framlengja þjónustusamning við félags- og húsnæðismálaráðuneytið um samræmda móttöku fólks á flótta. Í nýjum samningi er gert ráð fyrir að Hafnarfjarðarbær veiti allt að 350 einstaklingum þjónustu í stað 450 áður sem endurspeglar breyttar aðstæður og þróun verkefnisins á undanförnum árum. Spár Vinnumálastofnunar gera auk þess ráð fyrir áframhaldandi fækkun dvalarleyfa á næsta ári.
Meirihlutinn áréttar að breytingar á skipulagi þjónustunnar fela ekki í sér að dregið sé úr mikilvægi verkefnisins eða þeim kröfum sem gerðar eru til gæða þjónustunnar. | | Samræmd mótttaka - viðauki v. 2027.pdf | | Samningur um samræmda móttöku 1.1.2024-30.6.2024.pdf | | Samræmd móttaka - samningur 10.11.2026.pdf | | |
|
| 3. 2604117 - Málefni fólks með einhverfu | | Sviðsstjóri leggur fram minnisblað. | Framsókn þakkar fyrir framlagt minnisblað en telur að það svari ekki þeirri fyrirspurn sem lögð var fram á fundi fjölskylduráðs þann 15. september 2026. Þar var óskað eftir upplýsingum um stöðu málefna fólks með einhverfu og í framhaldi af því sérstaklega um framvindu þess máls sem þáverandi bæjarstjóri ræddi við félags- og húsnæðismálaráðherra á fundi í apríl 2026. Samkvæmt minnisblaði dags. 13. apríl 2026 kom fram að ráðherra hygðist vinna málið áfram milli ráðuneyta, að Hafnarfjarðarbær hefði lýst yfir vilja til þátttöku í verkefninu og að stefnt væri að framhaldsfundi í byrjun maí sama ár. Einnig kom fram að niðurstaða fundarins hefði verið að taka málið áfram.
Framlagt svar sviðsstjóra fjallar hins vegar að mestu um almenna verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, stöðu greiningarmála, fyrirhugaða stofnun Setursins og stefnumótun stjórnvalda á landsvísu. Þótt þær upplýsingar séu gagnlegar svara þær ekki þeim spurningum sem óskað var eftir svörum við, þ.e. hvaða framgang málið sem rætt var á fundi bæjarstjóra og ráðherra hefur haft, hvort fyrirhugaður framhaldsfundur hafi farið fram, hvaða aðgerðir hafi verið ráðist í í kjölfarið og hvaða ávinningur eða niðurstöður hafi hlotist fyrir íbúa Hafnarfjarðar með einhverfu og fjölskyldur þeirra.
Framsókn ítrekar því fyrri fyrirspurn sína og óskar eftir skýru minnisblaði um framvindu málsins frá fundinum í apríl sl., þ.á.m. hvort fyrirhugaður framhaldsfundur hafi farið fram. | | Málefni einhverfra 10.11.2026.pdf | | |
|
| 4. 2611169 - Hagræðingaraðgerðir í rekstri sveitarfélagsins, fyrirspurn | Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram eftirfarandi fyrirspurn:
Óskað er eftir upplýsingum um þær uppsagnir starfsfólks sem ákveðnar hafa verið hjá Hafnarfjarðarbæ í tengslum við hagræðingaraðgerðir í rekstri sveitarfélagsins.
Sérstaklega er óskað eftir eftirfarandi upplýsingum: Fjöldi uppsagna: Sundurliðun á fjölda uppsagna eftir einstökum sviðum og starfseiningum sveitarfélagsins.
Hlutfallsleg skipting: Upplýsingum um hlutfall uppsagna miðað við heildarfjölda stöðugilda á hverju sviði, bæði fyrir og eftir fyrirhugaðar breytingar.
Forsendur og viðmið: Greinargerð um þær forsendur, faglegu sjónarmið og viðmið sem lágu til grundvallar ákvörðunum um fjölda og skiptingu uppsagna milli einstakra sviða og starfseininga.
Mat á áhrifum: Upplýsingum um hvort unnin hafi verið greining á rekstrarlegum, faglegum og þjónustutengdum áhrifum uppsagnanna á einstök svið og starfseiningar. Hafi slík greining verið unnin er óskað eftir að hún verði lögð fram.
Áhrif á þjónustu: Greinargerð um hvernig tryggt verði að lögbundin þjónusta sveitarfélagsins verði áfram veitt með fullnægjandi hætti og hvaða áhrif fækkun starfsfólks kunni að hafa á þjónustustig, gæði þjónustunnar og aðgengi íbúa að henni.
Mat á öðrum úrræðum: Upplýsingum um hvort önnur úrræði til hagræðingar hafi verið metin áður en ákveðið var að grípa til uppsagna. Ef svo er, er óskað eftir upplýsingum um hvaða leiðir voru skoðaðar og hvaða sjónarmið réðu því að uppsagnir urðu fyrir valinu.
Óskað er eftir að framangreindar upplýsingar verði lagðar fram á samanteknu formi og án persónugreinanlegra upplýsinga um einstaka starfsmenn. Komi upp álitamál um persónuvernd vegna fámennra starfseininga er óskað eftir að upplýsingarnar verði settar fram með þeim hætti að persónuvernd sé tryggð án þess að það komi í veg fyrir nauðsynlega upplýsingagjöf til kjörinna fulltrúa.
Greinargerð
Ákvarðanir um uppsagnir starfsfólks eru umfangsmiklar og geta haft veruleg áhrif á starfsemi sveitarfélagsins, þá þjónustu sem íbúum er veitt og starfsumhverfi þeirra sem áfram starfa hjá Hafnarfjarðarbæ. Mikilvægt er að kjörnir fulltrúar hafi skýra yfirsýn yfir umfang aðgerðanna, þær forsendur sem liggja þeim til grundvallar og hvaða áhrif þær kunna að hafa á rekstur og þjónustu sveitarfélagsins. Upplýsingabeiðnin snýr ekki að persónulegum málefnum einstakra starfsmanna heldur að heildstæðu mati á þeim ákvörðunum sem teknar hafa verið og afleiðingum þeirra.
Með vísan til upplýsingaréttar sveitarstjórnarmanna samkvæmt 28. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 er eðlilegt að þessar upplýsingar liggi fyrir svo kjörnir fulltrúar geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu, lagt sjálfstætt mat á forsendur ákvarðananna og fylgt eftir áhrifum þeirra á starfsemi og þjónustu Hafnarfjarðarbæjar. | Lagt fram og sviðsstjóra falið að svara fyrirspurninni.
Fulltrúi Framsóknar leggur fram eftirfarandi bókun: Framsókn gerir athugasemdir við að þær upplýsingar sem lagðar hafa verið fram um fyrirhugaðar uppsagnir og hagræðingaraðgerðir séu ófullnægjandi til að kjörnir fulltrúar geti metið áhrif ákvarðanna með fullnægjandi hætti. Í gögnum má finna upplýsingar um heildarfækkun starfa og almennan rökstuðning fyrir aðgerðunum, en þar skortir lykilupplýsingar um hvernig fækkunin skiptist milli sviða og hvaða forsendur lágu að baki þeirri skiptingu.
Framsókn óskar eftir því að lagðar verði fram sundurliðaðar upplýsingar um fjölda uppsagna og stöðugilda eftir sviðum og starfseiningum, hlutfallsleg áhrif fækkunar á hvert svið, ásamt greinargerð um þau faglegu og rekstrarlegu sjónarmið sem réðu skiptingu uppsagnanna. Þá er jafnframt nauðsynlegt að fram komi hvort og með hvaða hætti áhrif breytinganna á þjónustu, þjónustustig og lögbundin verkefni hafi verið metin.
Framsókn telur að ekki sé ásættanlegt að jafn umfangsmiklar aðgerðir séu lagðar fram án þess að kjörnir fulltrúar hafi aðgang að þeim gögnum sem nauðsynleg eru til að meta áhrif þeirra á rekstur sveitarfélagsins og þjónustu við íbúa. Við leggjum því ríka áherslu á að umbeðin gögn verði lögð fram án tafar svo tryggja megi gagnsæi og upplýsta ákvarðanatöku.
Fundarhlé kl. 10:01-10:03. | | Tillaga bæjarstjóra um hagræðingu í miðlægri stjórnsýslu_LOKA (1) Copy.pdf | | |
|
| |
| 5. 2412078 - Fundargerðir til kynningar í fjölskylduráði | | Lagðar fram fundargerðir samráðshóps SSH um velferðarmál frá 7. október og 4. nóvember sl. | | Lagt fram til kynningar. | | Fundargerð samráðshóps SSH um velferðarmál 4.11.2026.pdf | | |
|
| 6. 0701243 - Málskot | Fulltrúi Miðflokks vék af fundi undir þessum lið.
Lögð fram niðurstaða málskotsnefndar í málum nr. 38 og 39/2026. Fjölskylduráð staðfestir afgreiðslu málskotsnefndar. | | |
|