Til bakaPrenta
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 107

Haldinn Fundarsalurinn Ásfjall, Norðurhellu 2,
05.05.2026 og hófst hann kl. 10:00
Fundinn sátu: Lilja Grétarsdóttir skipulagsfulltrúi,
Berglind Guðmundsdóttir arkitekt,
Anna Margrét Tómasdóttir arkitekt,
Anne Steinbrenner starfsmaður,
Aleksandra Julia Wegrzyniak starfsmaður,
Fundargerð ritaði: Aleksandra Wegrzyniak, þjónustufulltrúi


Dagskrá: 
B-hluti skipulagserindi
1. 2602595 - Selhella 7-9, breyting á deiliskipulagi
Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 04.03.2026 var samþykkt að grenndarkynna með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga erindi Gunnlaugs Jónassonar f.h. lóðarhafa um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felst í því að byggingarreitur hússins Selhellu 9 er stækkaður um 10,5 m til norðurs til að stækka megi flokkunarsal í húsinu. Reiturinn stækkar um 294 fermetra. Erindið var grenndarkynnt frá 25.03.2026 til 29.04.2026. Engar athugasemdir bárust.
Erindinu verður lokið í samræmi við skipulagslög.
slóð á skipulagsgátt.pdf
2. 2603164 - Álfhella 9-11, breyting á deiliskipulagi
Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 18.03.2026 var samþykkt að grenndarkynna með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga erindi Smára Björnssonar f.h. lóðarhafa um breytingu á deiliskipulagi. Tillagan gerir ráð fyrir færslu lóðarmarka á milli Álfhellu 9 og 11 um 4 metra til vesturs auk þess sem innkeyrsla færast til. Erindið var grenndarkynnt frá 25.03.2026 til 29.04.2026. Engar athugasemdir bárust.
Erindinu verður lokið í samræmi við skipulagslög.
slóð á skipulagsgátt.pdf
D-hluti fyrirspurnir
3. 2602202 - Dverghella 2, fyrirspurn
Páll Poulsen leggur 10.02.2026 fram fyrirspurn varðandi stækkun lóðar og byggingarreits og hækkun nýtingarhlutfalls Dverghellu 2. Málið er tekið fyrir á ný þar sem netpóstur, frá PPVerki barst dags. 26.2.2026, þar sem fallið var frá ósk um hækkun á nýtingarhlutfalli.
Tekið er jákvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 04.05.2026.
Dverghella 2, umsögn 04.05.2026.pdf
4. 2604434 - Breiðvangur 38, fyrirspurn
Styrmir Svavarsson og Ester Inga Sveinsdóttir leggja 27.04.2026 fram fyrirspurn þar sem óskað er eftir áliti Hafnarfjarðarbæjar á viðbættum sólpalli ofan á bílskúrum í sameign.
Tekið er neikvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 04.05.2026.
Breiðvangur 38, umsögn skipulags.pdf
5. 2604475 - Norðurhella 17, fyrirspurn
Arnar Hauksson f.h. E-fasteignafélags ehf. leggur þann 28.04.2026 fram fyrirspurn um hvort félagið þurfi að gera eitthvað gagnvart skipulagssviði Hafnarfjarðar áður en sótt verður um gistileyfi til reksturs gistiheimilis.
Tekið er jákvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 04.05.2026.
Norðurhella 17, umsögn skipulags.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:00 

Til bakaPrenta