| |
| 1. 2601511 - Gallup, þjónusta sveitarfélaga 2025 | | Til kynningar. Jóna Karen Sverrisdóttir mætir til fundarins. | Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun: Við framlagningu sambærilegrar skýrslu frá Gallup fyrir ári síðan lögðu fulltrúar Samfylkingarinnar til að gerðar yrðu sérstakar þjónustukannanir á meðal notenda vegna þjónustu við eldri borgara og þjónustu við fatlað fólk í sveitarfélaginu. Sú tillaga var samþykkt og vísað til fjölskylduráðs og því óska fulltrúar Samfylkingarinnar eftir upplýsingum um stöðu vinnu við gerð þessara þjónustukannana meðal notenda. Á því er full þörf og sýna niðurstöður þessarar almennu könnunar um ánægjuvogina að ástæða er til að gera slíka þjónustukönnun gagnvart fyrrgreindum hópum.
| | Hafnarfjordur_Thjonusta_sveitarfelaga_2025_an_samanburðar.pdf | | |
|
| 2. 2602006 - Útboð á váttryggingastarfsemi Hafnarfjarðarbæjar og tengdra félaga 2026-2028 | | Niðurstaða útboðs á vátryggingarstarfsemi lögð fram til kynningar. Helga Benediktsdóttir sviðsstjóri og Ágúst Þór Ragnarsson innkaupastjóri mæta til fundarins. | | Lagt fram til kynningar. | | minnisblad_baejarrad_vatryggingautbod_2026-2028.pdf | | |
|
| 3. 2505128 - Elliðavatnsvegur, Flóttamannaleið (410-02) | | Lagt fram minnisblað. Sigurður Haraldsson sviðsstjóri mætir til fundarins. | Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúar Samfylkingarinnar minna á að tillögu flokksins um Flóttamannaveginn frá 3. desember síðastliðnum var frestað milli funda, en í henni var lagt til að Hafnarfjarðarbær lýsti yfir stuðningi sínum við málið með því að leggja til flýtifé til að tryggja skjótari meðferð þess. Hins vegar er ljóst að með stuðningi nýrrar ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur, þá eru endurbætur Flóttamanavegar komnar á dagskrá fyrir alvöru, eins og ný Samgönguáætlun innviðaráðherra og ríkisstjórnarinnar ber með sér. Þetta er eðlisbreyting frá fyrri ríkisstjórn sem var skipuð sömu flokkum og mynda meirihluta í bæjarstjórn Hafnarfjarðar, Framsókn og Sjálfstæðisflokki auk VG, en þá var gert ráð fyrir því að leggja Flóttamannaveginn af og gera hann að innanbæjarvegi í viðkomandi sveitarfélögum; Hafnarfirði, Garðabæ og Kópavogi sem og að allar framkvæmdir yrðu kostaðar af þeim. Það er fagnaðarefni að núna 100 dögum fyrir kosningar skuli fulltrúar meirihlutans vakna af værum blundi og styðja málflutning Samfylkingarinnar í málinu. En orðum þurfa að fylgja efndir og nú þurfa verkin að tala.
Einnig benda fulltrúar Samfylkingarinnar á að í fyrirliggjandi minnisblaði er þess getið að Hafnarfjarðarbær eigi inneign hjá Vegagerðinni vegna þegar afstaðinna framkvæmda við Kaldárselsveg/Flóttamannaleiðar. Hver er staða þeirra mála. Óskað eftir minnisblaði.
Í þriðja lagi er óska fulltrúar Samfylkingarinnar eftir því að fulltrúar Verkís komi á fund bæjarráðs og geri grein fyrir tillögum um samgöngubætur við tengingu Strandgötu og hafnarsvæðis.
| | Minnisblað_Elliðavatnsarvegur.pdf | | Flottamannavegur.pdf | | |
|
| 4. 2511201 - Vigdísarholt ehf, viljayfirlýsing, samstarf, nýtt hjúkrunarheimili, Vatnshlíð | | Lagt fram erindi varðandi uppbyggingu lífsgæðakjarna í Vatnshlíð. | Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna því að Vígdísarholt undirbúi byggingu hjúkrunarheimilis í Hafnarfirði og viðtengda stoðþjónustu, svonefndan lífsgæðakjarna. Ljóst er að núverandi ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur leyst þau klakabönd sem voru á byggingu hjúkrunarheimila í meira en áratug undir ríkisstjórn Framsóknar, VG og Sjálfstæðisflokks. Nú eru framkvæmdir að hefjast í Hamranesi hjá Sóltúni og samstarfsaðilum og eins standa vonir til þess að stækkun á Hrafnistu getið orðið að veruleika fljótlega. Allt þetta hefur orðið til vegna forystu Samfylkingarinnar og samstarfsflokka í ríkisstjórn sem auk þess að fara í verkefnin hafa breytt kostnaðarskiptingu við byggingu hjúkrunarheimila til hagsbóta fyrir sveitarfélögin á þann veg að sveitarfélög á borð við Hafnarfjörð kosta ekki lengur hluta framkvæmda heldur þvert á móti fá að innheimta gatnagerðargjöld af fyrirhuguðum mannvirkjum. En mest er um vert að bygging hjúkrunarheimila er loksins komin á skrið eftir stórt stopp um langa hríð. Jafnaðarmenn láta verkin tala.
| | Bæjarráð_Hafnarfjarðar_LÞ290126.pdf | | frumdrög_lífsgæðakjarni.pdf | | |
|
| 5. 2601508 - Kórsjóður Hafnarfjarðar | 4. liður úr fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 28.janúar sl.
Í fjárhagsáætlun 2026 var samþykkt að setja á laggirnar kórsjóð Hafnarfjarðar. Drög að reglum vegna úthlutunar styrkja úr sjóðnum lagðar fram.
Menningar- og ferðamálanefnd samþykkir fyrirliggjandi drög og óskar eftir samþykki bæjarráðs. | | Bæjarráð staðfestir afgreiðslu menningar- og ferðamálanefndar. | | Reglur vegna úthlutunar styrkja úr kórsjóði Hafnarfjarðar_drög_yfirfarið.pdf | | |
|
| 6. 2501729 - Barnvænt sveitarfélag, aðgerðaráætlun | Lögð fram drög að erindisbréfi stýrihóps Barnvæns sveitarfélags. Til afgreiðslu. Tilnefna í starfshóp. | | Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi erindisbréf og skipað verður í starfshópinn á næsta fundi bæjarráðs. | | Erindisbref Barnvænt sveitarfélag.pdf | | |
|
| 7. 2511554 - Blýhella 7 og 9, atvinnulóðir, lóðavilyrði | | Lagt fram bréf Flensborgar hf., beiðni um lóðarvilyrði fyrir atvinnulóðirnar nr. 7 og 9 við Blýhellu. | | Samþykkt. | | Blýhella 7-9 vilyrði.pdf | | |
|
| 8. 2601011 - Brunnás 9, umsókn um lóð | | Lögð fram umsókn Viss verk ehf. um lóðina nr. 9 við Brunnás. | | Bæjarráð samþykkir umsóknina og leggur til við bæjarstjórn að lóðinni verði úthlutað til félagsins. | | |
|
| 9. 2601010 - Brunnás 11, umsókn um lóð | | Lögð fram umsókn Ívars Hauks ehf. um lóðina nr. 11 við Brunnás | | Bæjarráð samþykkir umsóknina og leggur til við bæjarstjórn að lóðinni verði úthlutað til félagsins. | | |
|
| 10. 2601633 - Brunnás 18, umsókn um lóð | | Lögð fram umsókn SG eigna ehf. um lóðina nr. 18 við Brunnás | | Bæjarráð samþykkir umsóknina og leggur til við bæjarstjórn að lóðinni verði úthlutað til félagsins. | | |
|
| 11. 2601425 - Frítt í strætó fyrir 12-17 ára ungmenni | | Lögð fram svör við fyrirspurn Samfylkingarinnar. | Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi tillögu:
Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkir að frá 1.júní næstkomandi verði endurgjaldslaust í Strætó fyrir öll hafnfirsk ungmenni til 18 ára aldurs. Kostnaður er á yfirstandandi ári um 28 milljónir króna. Breytingar verði gerðar á gildandi fjárhagsáætlun til að fjármagna þessa réttarbót og það gert með aðhaldi og sparnaði; með sérstakri sjálfstæðri tillögu, þar sem samþykkt verður að lækka kostnað við aðkeypta þjónustu um 30 milljónir.
Bæjarráð samþykkir að vísa framlagðri tillögu til bæjarstjórnar. | | Minnisblað - fyrirspurn SF um Strætu fyrir 12 til 17 ára feb2026.pdf | | |
|
| 12. 2309164 - Mannauðsmál Hafnarfjarðarbæjar, fyrirspurnir | | Lögð fram svör við fyrirspurn Samfylkingarinnar um fjarvistir starfsfólks hjá Hafnarfjarðarbæ. | Fulltrúar Samfylkingarinnar þakka framlögð svör á fundinum við fyrirspurn okkar frá 8. jan. sl.
| | Fyrirspurn Samfylking veikindatölfræði og aðgerðir feb26.pdf | | |
|
| 13. 0703337 - Fráveitukerfi, tenging við Garðabæ | | Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá og kalla eftir nýjustu upplýsingum frá veitustjóra um endurbættan samning við Garðabæ um þjónustu Hafnarfjarðar við bæjarfélagið í fráveitumálum. | Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun: Upplýst er á fundinum enn og aftur, að gjaldtaka Hafnarfjarðarbæjar vegna þjónustu við Garðabæ í fráveitumálum er langt undir kostnaðarverði. Samfylkingin hefur ítrekað lagt fram tillögur í málinu og nú loksins er tekið undir málflutning jafnaðarmanna um að Garðabær greiði eðlilegt afgjald og í samræmi við holræsagjöld Hafnfirðinga. Samfylkingin mun hér eftir sem hingað til þrýsta á að frá málinu verði gengið hið fyrsta og að í því verði gætt fyllstu hagsmuna Hafnfirðinga.
| | 2424-084-MIN-004-V01 Tillaga um fyrirkomulag samnings milli Garðabæjar og Hafnarfjarðar - fráveita.pdf | | Útreikningur á gjaldi fyrir fráveitu frá Garðabæ - jan 26.pdf | | |
|
| 14. 2503513 - Straumhella 6, breyting | | Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá og leita eftir upplýsingum um stöðu þess, m.a. hvað varðar umfjöllun úrskurðarnefndar, en málið var kært þangað. | | |
|
| 15. 2005180 - Samgöngusáttmáli | | Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá og kalla eftir kynningu á þeim valkostum sem unnir hafa verið af hálfu Vegagerðar ríkisins og Betri samgangna skv. Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins um samgöngubætur á Reykjanesbraut frá hringtorgi við Lækjargötu og fram hjá Kaplakrika. | Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja áherslu á að skýrir valkostir um fyrirkomulag stórfelldra endurbóta á samgöngum á Reykjanesbraut, milli hringtorgs við Lækjargötu og meðfram Kaplakrika liggi fyrir hið fyrsta. Það er skoðun Samfylkingarinnar miðað við fyrirliggjandi upplýsingar að undirgöng eða jarðgöng undir Setbergshamar skili varanlegasta árangrinum til lengri tíma, enda verði þau samkeppnishæf hvað kostnað varðar, auk þess sem það verklag mun raska umferð á svæðinu minna á framkvæmdatíma. Nú sem fyrr leggja fulltrúar Samfylkingarinnar áherslu á að skýr skilaboð komi frá Hafnarfjarðarbæ um forgangsröðun. Eins vill Samfylkingin að nú þegar hefjist viðræður við Vegagerðina og Betri samgöngur um næstu skref í málinu og það verði gert með virkri og skýrri aðkomu kjörinna fulltrúa allra flokka í bæjarstjórn Hafnarfjarðar.
| | |
|
| 16. 2512324 - Álit umboðsmanns, fallið frá ráðningu | Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá og fara fram á svör við fyrirspurn sem lögð var fram á fundi bæjarráðs þann 22. janúar sl. sem var svohljóðandi:
"Fyrir liggur að Hafnarfjörður greiddi skaðabætur vegna ólöglegrar afturköllunar ráðningar í starf deildarstjóra tómstunda í Hraunvallaskóla. Í framhaldi af því leggja fulltrúar Samfylkingarinnar fram eftirfarandi fyrirspurn: Hafa verið gerðir sérsamningar um greiðslu bóta vegna starfsmannamála á yfirstandandi kjörtímabili? Hafa verið gerðir starfslokasamningar við einstaka starfsmenn á kjörtímabilinu eða sérstakir samningar umfram umsamin starfskjör við starfslok? Óskað er sundurliðunar." | Unnið er að taka saman umbeðnar upplýsingar.
| | |
|
| 17. 2306006 - Verktakasamningar um ráðgjafastörf | | Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá og fara fram á svör við fyrirspurnum Samfylkingarinnar sem lagðar voru fram á fundum bæjarráðs þann 11. des. og 8. jan. sl. | | Fulltrúar Samfylkingarinnar þakka framlögð svör á fundinum og vísa í fyrri bókanir sínar um málið í bæjarráði, þar sem vakin hefur verið athygli á mikilvægi stjórnfestu þegar ráðgjafar eru kallaðir til starfa. Sannarlega er oft þörf á sérfræðiráðgjöf, en um leið er ljóst að þörf er á þéttu utanumhaldi og formfestu þegar samið er um ráðgjafastörf fyrir Hafnarfjarðarbæ. Þar þarf að skilgreina verkefnin vel og tímasetja þau og koma í veg fyrir þann freistnivanda að ráðgjafar úti í bæ verði í raun í óbeinni áskrift að lítt skilgreindum verkefnum um langan tíma. | | Samantekt verktakasamninga fyrirspurn Sf framhald minnisblað 4feb2026.pdf | | Verktakasamningar 2024 og 2025 svar við fyrirspurn bæjarráð.pdf | | Samningur v Tækniskóla HÞI 2021.pdf | | Haraldur Sverrisson samningur júní 2023.pdf | | |
|
| |
| 18. 2601467 - Framkvæmdahópur um uppbyggingu golfvallar | | Lögð fram fundargerð framkvæmdahópsins frá 22.janúar sl. | | 1. fundur framkvæmdahóps um golfvöll.pdf | | |
|
| 19. 2601014F - Hafnarstjórn - 1697 | | Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 21.janúar sl. | | |
|
| 20. 2512006F - Stjórn Hafnarborgar - 364 | | Lögð fram fundargerð stjórnar Hafnarborgar frá 16.desember sl. | | |
|
| 21. 2601550 - Samband íslenskra sveitarfélaga, fundargerðir 2026 | | Lögð fram fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 23.janúar sl. | | |
|
| 22. 2601435 - Stjórn SSH, fundargerðir 2026 | | Lögð fram fundargerð stjórnar SSH frá 19.janúar sl. | | |
|
| 23. 2108583 - SSH, byggðasamlag, stefnuráð | | Lögð fram fundargerð stefnuráðs byggðasamlaganna frá 7.nóvember sl. | | |
|
| 24. 1909104 - SORPA bs, eigendafundir, fundargerðir | | Lögð fram fundargerð 55.eigendafundar Sorpu bs. frá 19.janúar sl. | | |
|
| 25. 2601552 - Strætó bs, fundargerðir 2026 | | Lögð fram fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 23.janúar sl. | | |
|