Til bakaPrenta
Umhverfis- og framkvæmdaráð - 474

Haldinn Fundarsalurinn Hamarinn, Norðurhellu 2 (1. hæð),
03.09.2025 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu: Guðbjörg Oddný Jónasdóttir formaður,
Árni Rúnar Árnason varaformaður,
Ólafur Ingi Tómasson aðalmaður,
Hildur Rós Guðbjargardóttir aðalmaður,
Fannar Freyr Guðmundsson aðalmaður,
Þórey Svanfríður Þórisdóttir áheyrnarfulltrúi,
Fundargerð ritaði: Anna María Elíasdóttir, skrifstofustjóri
Auk ofangreindra ráðsmanna sat fundinn Sigurður Haraldsson sviðsstjóri.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2303964 - Ásvallalaug, útisvæði
Tekið til umræðu.
Umhverfis- og framkvæmdaráð leggur til að frumdrög hönnunar útisvæðis Ásvallarlaugar verði kynnt íbúum á íbúafundi ásamt ítarlegri hönnunar og kostnaðaráætlun. Umhverfis- og framkvæmdaráð leitar einnig eftir umsögn samráðshóps um málefni fatlaðs fólks varðandi aðgengismál.
2. 2508284 - Reykjavíkurvegur, gangandi vegfarendur, umferðaröryggi
Lögð fram bókun bæjarstjórnar frá 27. ágúst sl. þar sem tillögu um undirbúning og hönnun undirganga undir Reykjavíkurveg er vísað til umfjöllunar í umhverfis- og framkvæmdaráði.
Fulltrúar Samfylkingarinnar bóka: Reykjavíkurvegur er varasamur yfirferðar fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur og mikilvægt að gripið verði til aðgerða til þess að bregðast við stöðunni. Einkum er vegurinn varasamur ungmennum í norður- og vesturbæ, sem þurfa að sækja íþróttaæfingar, aðrar tómstundir eða þjónustu á hraunum eða austan Reykjavíkurvegar. Þess vegna lögðu bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar fram tillögu á síðasta fundi bæjarstjórnar um að hefja þegar í stað undirbúning og hönnun undirgangna fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Samþykkt var að vísa henni til umræðu og umfjöllunar í umhverfis- og framkvæmdaráði. Fulltrúar Samfylkingarinnar telja mikilvægt að unnið verði hratt að lausn þessa máls enda ekki eftir neinu að bíða og nú þurfa verkin að tala.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks benda á að frá Flatahrauni í átt að Engidal eru þrenn gönguljós. Samkvæmt kortavef Hafnarfjarðar eru engin slys á gangandi vegfarendum á umræddum kafla á árinu 2024. Búið er að lækka umferðarhraða á veginum, verið er að bæta göngu- og hjólastíga meðfram veginum ásamt því að aðalskipulag Hafnarfjarðar gerir ráð fyrir tvennum undirgöngum undir veginn. Benda má á að von er á skýrslu frá Betri samgöngum varðandi legu Borgarlínu um Reykjavíkurveg þar mun koma fram frekari hönnun á umferðaröryggi gangandi og akandi.
3. 2104588 - Gangstéttir, endurnýjun
Tekið til umræðu.
Umhverfis- og framkvæmdaráð óskar eftir yfirliti yfir framkvæmdir á árinu.
4. 2411643 - Viðhald húsnæðis og lóðar 2024 og viðhaldsáætlun 2025
Tekið til umræðu verkefni á lóðum skóla í sumar.
Umhverfis- og framkvæmdaráð óskar eftir yfirliti yfir framkvæmdir á árinu.
5. 2103424 - Grænkun Valla
Tekið til umræðu.
Umhverfis- og framkvæmdaráð óskar eftir yfirliti yfir framkvæmdir á árinu.
6. 2110577 - Hámarkshraði stofn- og tengigatna
Tekið til umræðu.
Umhverfis- og framkvæmdaráð óskar eftir því að skoðaðar verði staðsetningar skilta og að hraðatakmarkanir séu í samræmi við samþykkt umhverfis- og framkvæmdaráðs um hámarkshraða í bænum.
7. 2411558 - Nýr golfvöllur, framtíðarsvæði
Skýrsla starfshóps um nýjan golfvöll lögð fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Fundargerðir
8. 1510061 - Ásvellir, uppbygging
Lögð fram fundargerð 11. fundar framkvæmdarnefndar.
11. fundur framkvæmdanefndar um uppbyggingu knatthúss á Ásvöllum 11. febrúar 2025.pdf
9. 1903474 - Hestamannafélagið Sörli, framkvæmdasamningur, erindi
Lagðar fram fundargerðir starfshóps nr. 9 og 10.
9 fundur framkvæmdanefndar um uppbyggingu á athafnasvæði Hestamannafélagsins Sörla 5 mars 2025.pdf
10 fundur framkvæmdanefndar um uppbyggingu á athafnasvæði Hestamannafélagsins Sörla 2 apríl 2025.pdf
10. 2501142 - Strætó bs, fundargerðir 2025
Lagðar fram fundargerðir stjórnarfundar strætó bs. nr. 408 og 409.
Fundargerð stjórnarfundar nr 408 13062025.pdf
Fundargerð stjórnarfundar nr 409 15082025.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 9:30 

Til bakaPrenta