| |
| 1. 2603640 - Vatnshlíð lífsgæðakjarni deiliskipulag | | Skipulagshöfundar mæta til fundarins og kynna drög að deiliskipulagi lifsgæðakjarna í Vatnshlíð. | Skipulags- og byggingarráð þakkar kynninguna.
Skipulags- og byggingarráð fagnar framkomnum drögum að deiliskipulagi lífsgæðakjarnans í Vatnshlíð við Bláberjahrygg. Um er að ræða mikilvægt og metnaðarfullt verkefni sem mun efla búsetuúrræði, þjónustu og lífsgæði í sveitarfélaginu til framtíðar.
Fulltrúi Framsóknar bókar: Fulltrúar Framsóknar hafa stutt verkefnið frá upphafi og lýsa ánægju með þann góða árangur sem náðst hefur við undirbúning þess. Lífsgæðakjarninn er mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins og mun skapa verðmæti fyrir íbúa um ókomin ár. Fulltrúar Framsóknar þakka fyrir kynninguna og lýsa yfir áframhaldandi stuðningi við framgang verkefnisins. | | Vatnshlíð lífsgæðakjarni slóð á skipulagsgátt.pdf | | |
|
| 2. 2605480 - Ísallínur 3 og 4, framkvæmdaleyfi | | Á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 19. ágúst sl. var samþykkt að grenndarkynna umsókn Landsnets ásamt fylgigögnum um framkvæmdaleyfi skv. heimild 44. gr. skipulagslaga. Ný gögn um áhrifamat á vatnshlot höfðu ekki hlotið kynningu almennings. Auk þess var leitað umsagnar Náttúruverndarstofnunar á framkvæmdum vegna náttúruminja sem njóta sérstakrar verndar. Gögnin voru í kynningu 14.9.- 12.10.2026. Athugasemdir Sem bárust á kynningartíma lagðar fram ásamt viðbrögðum Landsnets við framkomnum athugasemdum. | | Lagt fram og vísað til skipulagsráðgjafa að taka saman svör við athugasemdum. | | slóð á skipulagsgátt.pdf | | Viðbrögð við umsögnum um grenndarkynningu.pdf | | |
|
| 3. 2306477 - Hvaleyrarholt suðaustur, Þorlákstún, Lyngbarð, deiliskipulag | | Á fundi bæjarstjórnar þ. 25. mars 2026 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hvaleyrarholts suðausturs vegna Þorlákstúns. Þorlákstún er opið svæði norðan við Reykjanesbraut í Hafnarfirði. Gert er ráð fyrir 46 nýjum lóðum undir 46 sérbýlishús með risþökum í anda gamla bæjarins í Hafnarfirði. Í deiliskipulagstillögunni er ekki leitast við að byggja sem þéttast, heldur að leggja byggðina vel í landið, taka tillit til umhverfisáhrifa og aðliggjandi byggðar, ásamt því að ráðstafa góðum hluta svæðisins til útivistar og sem leiksvæði ásamt sleða-/skíðabrekku fyrir nýju byggðina og aðliggjandi byggð. Lögð er áhersla á góða tengingu við þjónustu og nálæg útivistarsvæði og að íbúum standi til boða fjölbreyttar leiðir til daglegrar hreyfingar innan svæðisins. Sveigjanleiki er í uppbyggingu þannig að heimilt verður að stækka hús innan byggingarreits. Húsin mega vera 1 hæð og ris eða 1 hæð og kjallari og raðast annars vegar meðfram nýrri aðalgötu um miðbik svæðisins, sem fylgir landhalla, og hins vegar á jaðar svæðisins meðfram Lyngbarði og Suðurbraut. Tillagan var í auglýsingu 24.4-11.6.2026. Lögð fram svör við athugasemdum og uppfærður uppdráttur. | | Skipulags- og byggingarráð tekur undir svör við athugasemdum og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja uppfærða tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hvaleyrarholts suðausturs vegna Þorlákstúns. | | Þorlákstún - Deiliskipulagstillaga 4 draft 12.pdf | | Þorlákstún, samantekt athugasemda og svör.pdf | | Greinargerð_Þorlákstún uppfært eftir kynningu.pdf | | Slóð á skipulagsgátt.pdf | | |
|
| 4. 2601436 - Merkurgata, deiliskipulag | | Bæjarráð, í umboði bæjarstjórnar, samþykkti á fundi sínum 25.6.2026 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vesturbæjar Hafnarfjarðar vegna Merkurgötu. Breytingin felst í því að torgi hverfisins verður breytt í malbikað plan með bílastæðum og gróðurbeðum. Tillagan var í kynningu 23.7.2026 með athugasemdafresti til 6.9.2026. Athugasemdir bárust. Lögð fram samantekt athugasemda og svör. | | Skipulags- og byggingarráð tekur undir svör við athugasemdum og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu að breytingu á deiliskipulagi Merkurgötu. | | Merkurgata, Samantekt athugasemda og svör.pdf | | DSK_breyting_Merkurgata_22.09.2026.pdf | | Merkurgata slóð á skipulagsgátt.pdf | | |
|
| 5. 2609300 - Ofanvatnslausn við Reykjavíkurveg, deiliskipulagsbreyting | | Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Norðurbæjar. Tillagan felst í að tekið sé frá svæði fyrir 880 m² ofanvatnslausn/geymslutank sem verður undir yfirborði á grænu svæði á milli Suðurvangs og Reykjavíkurvegs. Hverfisvernd fellur út að hluta. Jafnframt er bætt við kvöð um lögn sem tengir ofanvatnslausnina við ofanvatnskerfi frá Hraun vestur. | | Skipulags- og byggingarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Norðurbæjar vegna ofanvatnslausnar milli Suðurvangs og Reykjavíkurvegar. | | Deiliskipulagsuppdráttur Norðurbær 14_10_2026 (002).pdf | | |
|
| 6. 2610282 - Suðurholt 2b, breyting á deiliskipulagi | | Páll Poulsen f.h. Mílu hf. sækir 07.10.2026 um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felst í nýrri lóð undir farsímaloftnet, Suðurholt 2b. Aðkoma að lóð er um Suðurbraut líkt og er fyrir lóðina Suðurholt 2a. Stærð lóðar er 8 x 8m og stærð byggingarreits 6 x 6m. Stálstaur farsímaloftnets verður 16m að hæð. | | Skipulags- og byggingarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hvaleyrarholts suð vesturs vegna nýrrar lóðar undir farsímaloftnet, Suðurholt 2b. | | Suðurholt 2b - Deiliskipulagsbreyting.pdf | | |
|
| 7. 2503513 - Straumhella 6, breyting | | Farið yfir stöðu málsins. Umsagnir aðliggjandi lóðarhafa lagðar fram til kynningar. | | Tekið til umræðu. | | |
|
| 8. 1604079 - Húsnæðisáætlun | | Lögð fram til kynningar Húsnæðisáætlun 2026. | | Lagt fram. | | Húsnæðisáætlun Hafnafjarðarkaupstaðar 2026.pdf | | |
|
| 9. 2610072 - Svæðisskipulagsnefnd SSH, starfs- og fjárhagsáætlun 2027 | | Lögð fram tillaga að starfs- og fjárhagsáætlun svæðisskipulagsnefndar SSH. | | Lagt fram og vísað til vinnu við fjárhagsáætlun. | | Fylgibréf HAF Fjárhagsáætlun svæðisskipulag 2027.pdf | | Tillaga að fjárhagsáætlun svæðisskipulagsnefndar fyrir árið 2027.pdf | | Tillaga að starfsáætlun nefndarinnar ágúst 2026 til júní 2027.pdf | | |
|
| 10. 2609080 - Skútahraun 2, stjórnsýslukæra UUA2609002 | | Lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 2609002 | | Lagt fram. | | Úrskurður í máli nr. UUA2609002.pdf | | |
|
| 11. 2601493 - Miðbær starfshópur | | Lögð fram skýrsla starfshóps um miðbæ Hafnarfjarðar. | | Lagt fram. | | Skýrsla_starfshópur um miðbæ Hafnarfjarðar.pdf | | |
|
| 12. 2610220 - Blýhella 7-9, breyting á deiliskipulagi | | Snorri Steinn Þórðarson f.h. Flensborgar hf. sækir 07.10.2026 um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felst í að lóðirnar Blýhella 7 og Blýhella 9 verða sameinaðar í eina lóð sem mun heita Blýhella 7. Lóðarmörk til austurs stækka út að grænu svæði. Byggingarreitur er sameinaður og stækkaður til austurs í hlutfalli við lóðina. Hluti vegarins Blýhellu verður lagður niður. Innkeyrslur á lóð 7 og 9 frá Blýhellu verða lagðar niður og ný innkeyrsla á sameinaða lóð verður frá Stálhellu. Nýtingarhlutfall lóðar verður 0.77. Hæð byggingar innan byggingarreits fer úr 8,5m og verður allt að 14 m. | | Skipulags- og byggingarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Iðnaðarsvæðis Kapelluhrauns vegna lóðanna að Blýhellu 7 og 9. Fulltrúi Miðflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins. | | Blýhella 7-9 Deiliskipulagsbreyting uppf..pdf | | |
|
| |
| 13. 2609361 - Vesturgata 4, fyrirspurn útisvæði | | Lögð fram fyrirspurn Andra Björgvins Arnþórssonar fh. Food & Banquet ehf. vegna útisvæðis. | | Skipulags- og byggingarráð tekur neikvætt í þann hluta fyrirspurnarinnar er snýr að yfirbyggingu yfir útisvæði. Verkefnastjóra falið að vinna fyrirspurnina áfram með lóðarhafa. Fulltrúi Miðflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins. | | |
|
| 14. 2610291 - Skipulags- og byggingarráð fyrirspurnir kjörinna fulltrúa 2026-2030 | | Lögð fram fyrirspurn fulltrúa Miðflokksins um ástæður þess að mál nr. 2609215, Þróun og úthlutun lóðar fyrir tímabundna búsetu, samkomulag var ekki lagt fyrir ráðið áður en það var samþykkt fyrir bæjarráði. | | Meirihluti skipulags- og byggingarráðs bendir á að bæjarráð tekur ákvarðanir um úthlutanir lóða og lóðamál koma ekki til umfjöllunar í skipulags- og byggingarráði fyrr en komið er að deiliskipulagsvinnu. | | |
|
| |
| 15. 2609025F - Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 956 | | Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar. | | https://hafnarfjordur.is/fundagerd/?meeting_id=a9NM5Qf1V0KDvA7Npi9MQ1
| |
|