| Til baka | Prenta |
| Bæjarstjórn - 1974 |
Haldinn í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg,
08.04.2026 og hófst hann kl. 16:07 | | Fundinn sátu: Valdimar Víðisson bæjarstjóri,
Kristinn Andersen forseti,
Kristín María Thoroddsen aðalmaður,
Margrét Vala Marteinsdóttir aðalmaður,
Guðmundur Árni Stefánsson aðalmaður,
Árni Rúnar Þorvaldsson aðalmaður,
Hildur Rós Guðbjargardóttir aðalmaður,
Jón Ingi Hákonarson aðalmaður,
Guðbjörg Oddný Jónasdóttir aðalmaður,
Auður Brynjólfsdóttir varamaður,
Helga Ingólfsdóttir varamaður,
| | Fundargerð ritaði: Ívar Bragason, Ritari bæjarstjórnar og bæjarlögmaður | | Árni Rúnar Þorvaldsson tekur til máls undir fundarstjórn forseta. Einnig Guðmundur Árni Stefánsson.
Árni Rúnar kemur að svohljóðandi bókun:
Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun um fundarstjórn forseta: Í upphafi síðasta bæjarstjórnarfundar bar forseti bæjarstjórnar upp þá tillögu að tveimur málum Samfylkingarinnar yrði vísað frá, annars vegar máli nr. 20 á útsendri dagskrá, Frítt í strætó fyrir 12-17 ára og hins vegar máli nr. 21 á útsendri dagskrá, Íbúðir fyrir eldra fólk.
Á síðasta fundi forsetanefndar lagði fulltrúi Samfylkingarinnar fram ósk um greinargerð frá bæjarlögmanni á framkvæmd fyrrnefnds bæjarstjórnarfundar þann 25. mars 2026. Þar er óskað eftir áliti bæjarlögmanns á lögmæti frávísunartillögu forseta bæjarstjórnar sem og á afgreiðslu hennar í bæjarstjórn út frá sveitarstjórnarlögum og samþykkt um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar Hafnarfjarðar. Einnig er farið fram á það að bæjarlögmaður leggi mat á það hvort málin tvö sem um ræðir hafi ekki verið á dagskrá bæjarstjórnarfundar í samræmi við 10. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar. Auk þess er farið fram á að bæjarlögmaður leggi mat á að það hvort og þá hvernig tillaga forseta og afgreiðsla bæjarstjórnar samræmist 27. gr. sveitarstjórnarlaga, sérstaklega m.t.t. þess hvort ekki þurfi aukinn meirihluta til að taka mál af dagskrá eins og þegar mál eru sett á dagskrá sem ekki voru í fundarboði. Einnig er farið fram á að bæjarlögmaður leggi mat mat á það hvort ekki þurfi að leita afbrigða, og þar með aukins meirihluta, þegar tillaga um að taka mál af dagskrá er lögð fram í upphafi fundar eins og gert var á umræddum fundi þar sem um breytingu á útsendri dagskrá er að ræða. Að lokum er óskað eftir áliti bæjarlögmanns á því hvaða aðstæður og ástæður þurfa að vera til staðar svo hægt sé að taka mál af dagskrá sem farið hafa á dagskrá bæjarstjórnarfunda eftir réttum leiðum sem getið er um í 10. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar.
Farið var fram á að greinargerðin myndi liggja frammi fyrir fund bæjarstjórnar í dag en það hefur ekki gengið eftir. Hér er um grundvallaratriði að ræða í stjórnsýslu sveitarfélaga sem lýtur að lýðræðislegum rétti kjörinna fulltrúa og mikið er því í húfi. Þess vegna fara fulltrúar Samfylkingarinnar fram á að greinargerðin verði lögð fram sem allra fyrst, í síðasta lagi fyrir næsta reglulega fund bæjarráðs, þannig að hægt verði að taka hana til umfjöllunar á vettvangi bæjarstjórnar. | |
| | Dagskrá: | | | | | 1. 2601425 - Frítt í strætó fyrir 12-17 ára ungmenni | 8.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 30.mars Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá og óska eftir upplýsingum um stöðuna á vinnslu þess innan stjórnar Strætó BS og SSH Fyrir fundinum liggur svohljóðandi tillaga sem áður hefur verið lögð fram af fulltrúum Samfylkingar bæði í bæjarráði 5. febrúar sl. og bæjarstjórn 11. febrúar sl.:
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að frá 1.júní næstkomandi verði endurgjaldslaust í Strætó fyrir öll hafnfirsk ungmenni til 18 ára aldurs. Kostnaður er á yfirstandandi ári um 28 milljónir króna. Breytingar verði gerðar á gildandi fjárhagsáætlun til að fjármagna þessa réttarbót og það gert með aðhaldi og sparnaði; með sérstakri sjálfstæðri tillögu, þar sem samþykkt verður að lækka kostnað við aðkeypta þjónustu um 30 milljónir.
Bæjarráð samþykkir að vísa framangreindri tillögu til bæjarstjórnar.
Meirihluti bæjarráðs leggur fram eftirfarandi tillögu:
Börn og ungmenni á aldrinum 12 - 17 ára hafi aðgang að gjaldfrjálsum ferðum strætó á höfuðborgarsvæðinu. Slíkt tekur gildi þegar greiðslukerfi strætó hefur verið þróað með þeim hætti að Hafnarfjarðarbær verði skuldfærður á grundvelli raunnotkunar ungmenna.
Fulltrúar Samfylkingar leggja fram viðbót við framangreinda tillögu þannig að aftan við tillöguna bætist eftirfarandi:
"Nýtt fyrirkomulag taki gildi eigi síðar 1. júní næstkomandi."
Framkomin viðbót við tillögu er felld þar sem þrír fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar greiða atkvæði gegn breytingunni. Fulltrúar Samfylkingar greiða atkvæði með breytingunni.
Bæjarráð samþykkir óbreytta tillögu með þremur atkvæðum frá fulltrúum Sjálfstæðisflokks og Framsóknar. Fulltrúar Samfylkingar sitja hjá.
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúar Samfylkingarinnar geta ekki greitt fyrirliggjandi tillögu meirihlutans atkvæði sitt, þar sem tillagan er ótímasett og er bundin skilyrðum. Hins vegar er fagnaðarefni að loksins samþykkir meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins efnislega fyrirliggjandi tillögu Samfylkingarinnar um að frítt verði í strætó fyrir hafnfirsk ungmenni. En vill áfram flækja málið með tæknilegum tafaleikjum. En dropinn holar steininn.
Fulltrúar meirihlutans furða sig á því að fulltrúar Samfylkingarinnar geti ekki samþykkt tillögu meirihlutans sem fjallar um frítt í strætó fyrir börn og ungmenni. Hér er um að ræða skynsama leið að málinu. Meirihlutinn hefur ávallt verið hlynntur því að frítt skuli verða í strætó fyrir börn og ungmenni og leitað leiða til að gera það á skynsaman og ábyrgan hátt. Fulltrúar Samfylkarinnar vilja heldur æða fram í málinu og geta síðan ekki samþykkt góða leið að málinu, einfaldlega af því að hún kemur frá meirihlutanum.
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun: Bókun meirihlutans er með eindæmum og málinu fullkomlega snúið á hvolf - eggið farið að kenna hænunni. Loksins er meirihlutinn kominn til byggða og þorir ekki öðru en að lúta leiðsögn jafnaðarmanna um meginatriði málsins - frítt í strætó fyrir hafnfirsk ungmenni. En þorir ekki að taka skrefið til fulls og ýtir málinu áfram í ótímasetta bið og í hendur komandi meirihluta. | Árni Rúnar Þorvaldsson tekur til máls. Valdimar Víðisson kemur til andsvars. Árni Rúnar svarar andsvari. Valdimar kemur að andsvari öðru sinni sem Árni Rúnar svarar.
Guðmundur Árni Stefánsson tekur til máls.
Hildur Rós Guðbjargardóttir tekur til máls.
Árni Rúnar tekur til máls öðru sinni.
Kristín Thorodddsen tekur til máls. Guðmundur Árni kemur að andsvari sem Kristín svarar. Guðmundur Árni kemur til andsvars öðru sinni sem Kristín svarar. Árni Rúnar kemur að andsvari. Kristín svarar andsvari. Árni Rúnar kemur að andsvari öðru sinni.
Guðmundur Árni tekur til máls. Kristín kemur til andsvars sem Guðmundur Árni svarar.
Valdimar tekur til máls og leggur fram tillögu um að tillögu Samfylkingarinnar verði vísað frá. Guðmundur Árni kemur til andsvars.
Forseti ber næst upp til atkvæða framkomna frávísunartillögu og er hún samþykkt þar sem sex fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar greiða atkvæði með frávísun málsins. Fulltrúar Samfylkingar greiða atkvæði gegn frávísun og fulltrúi Viðreisnar situr hjá.
Fundarhlé kl. 15:18. Fundi framhaldið kl. 15:21.
Árni Rúnar kemur að svohljóðandi bókun:
Þetta er fimmta skipti sem meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks hefur annað hvort fellt eða vísað frá tillögu Samfylkingarinnar um frítt í strætó fyrir ungmenni að 18 ára aldri. Það segir alla söguna um afstöðu hans í málinu.
Kristín Thoroddsen kemur að svohljóðandi bókun:
Fulltrúar meirihlutans furða sig á því að fulltrúar Samfylkingarinnar sátu hjá og gátu þannig ekki samþykkt tillögu sem lögð var fram í bæjarráði af hálfu meirihlutans sem fjallar um gjaldfrjálsan strætó fyrir börn og ungmenni. Tillagan tekur gildi þegar greiðslukerfi strætó hefur verið þróað með þeim hætti að Hafnarfjarðarbær verði skuldfærður á grundvelli raunnotkunar ungmenna. Meirihlutinn er hlynntur gjaldfrjálsum strætó fyrir börn og ungmenni og leitað leiða til að gera það á skynsaman og ábyrgan hátt. Fulltrúar Samfylkingarinnar vilja heldur æða fram í málinu og geta síðan ekki samþykkt góða leið að málinu, einfaldlega af því að hún kemur frá meirihlutanum.
| | |
| | 2. 2409735 - Málefni barna - og ungmenna í Hafnarfirði | | Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá. Tillaga lögð fram. | Hildur Rós Guðbjargardóttir tekur til máls og leggur fram svohljóðandi tillögu fyrir hönd Samfylkingarinnar:
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að frístundastyrkur fyrir börn og ungmenni 3-18 ára verði alls 75 þúsund krónur á hvern einstakling á ári frá og með 01.06.2026. Árlegur viðbótarkostnaður vegna þess er um 45 milljónir króna. Hækkunin verði fjármögnuð með lækkun útgjalda vegna aðkeyptrar þjónustu, einkum verði litið til aðkeyptrar ráðgjafaþjónustu á stjórnsýslusviði. Fjármálastjóra er falið að leggja fram tillögu um sundurliðun á lækkun þessara útgjalda í bæjarráði.
Greinargerð: Markmið frístundastyrksins er að gera öllum börnum og ungmennum kleift að taka þátt í skipulögðu frístundastarfi óháð efnahag og félagslegum aðstæðum. Þess vegna varð Hafnarfjörður fyrst íslenskra sveitarfélaga, undir forystu jafnaðarmanna, til þess að koma á frístundastyrk árið 2002. Árið 2020 var frístundastyrkurinn hæstur í Hafnarfirði eða 54 þús. kr. Nú blasir hins vegar við önnur mynd og Hafnarfjörður hefur dregist aftur úr á síðustu árum. Hæstur er styrkurinn í Reykjavík að upphæð 75. þús. kr., hann er 70 þús. kr. í Kópavogi og 67. þús. kr. í Garðabæ. Það þýðir að frístundastyrkurinn hefur ekki fylgt verðlagi og þyrfti að vera á bilinu 70-75 þús. kr. til þess hann héldi raunvirði sínu frá 2020. Jöfn tækifæri barna og ungmenna eru ekki sjálfgefin og því er mikilvægt að styðja við frístundastyrkinn og tryggja það að hann geti raunverulega sinnt hlutverki sínu. Þess vegna leggur Samfylkingin það til að upphæð frístundastyrksins hækki frá og með 1. júní nk. um 10 þús. kr. og verði 75 þús. kr. líkt og hann er í Reykjavík. Samfara þessu er mikilvægt að farið verði í viðræður við þá aðila sem halda úti skipulögðu frístundastarfi um leiðir til þess að halda iðkendakostnaði niðri og passa upp á að hækkun frístundastyrks leiði ekki til hækkunar iðkendagjalda.
Kostnaðarauki á yfirstandandi fjárhagsári vegna þessa verður um 45 milljónir kr. og lagt er til að honum verði mætt með lækkun kostnaðar vegna aðkeyptrar þjónustu, einkum með því að minnka aðkeypta ráðgjafaþjónustu á stjórnsýslusviði. Ljóst er af fyrirliggjandi upplýsingum sem lagðar hafa verið fram að beiðni Samfylkingarinnar, að útgjöld bæjarins vegna aðkeyptrar þjónustu eru ekki skorin við nögl. Og sömu upplýsingar hafa leitt í ljós að verið er að leita ráðgjafar hjá pólitískum vildarvinum og í þeim tilvikum alls óljóst í hverju sú ráðgjöf er falin eða um hvað hún snýst. Allt að einu er ljóst að þarna er unnt að spara fé, svo unnt sé að gera vel við æsku bæjarins.
Kristín Thoroddsen kemur til andsvars og leggur til að málinu verði vísað til fjárhagsáætlunar.
Árni Rúnar Þorvaldsson tekur til máls. Kristín kemur til andsvars. Árni Rúnar svarar andsvari. Kristín kemur að andsvari öðru sinni.
Jón Ingi Hákonarson tekur til máls.
Guðmundur Árni Stefánsson tekur til máls.
Forseti ber næst upp framkomna tillögu um að vísa málinu til fjárhagsáætlunar. Er það smaþykkt þar sem sexx fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar ásamt fulltrúa Viðreisnar greiða atkvæði með tillögunni. Fjórir fulltrúar Samfylkingar sitja hjá.
Hildur Rós kemur að svohljóðandi bókun:
Hildur Rós kom að eftirfarandi bókun: Jafnaðarfólk í bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur ítrekað á þessu kjörtímabili lagt fram tillögur um hækkun frístundastyrks og talað fyrir málefnum barna og ungmenna. Frístundastyrkurinn er mikilvægur liður í því að styðja við börn og ungmenni í bænum enda er markmið hans að gera öllum börnum kleift að taka þátt í skipulögðu frístundastarfi óháð efnahag og félagslegum aðstæðum. Þátttaka barna og ungmenna í hvers kyns skipulögðu frístundastarfi hefur gríðarlegt forvarnargildi og af þeim sökum verður bæjarstjórn að leita allra leiða til þess að styðja við þátttöku barna og ungmenna í slíku starfi. Við viljum að börnum og ungmennum líði vel og séu virkir þátttakendur í því skipulagða frístundastarfi sem boðið er upp á í Hafnarfirði.
Tölur sýna að Hafnarfjörður hefur dregist aftur úr öðrum sveitarfélögum þegar kemur að upphæð frístundastyrksins og hann hefur rýrnað að verðgildi síðan 2020 þegar hann var 54 þús. kr. og sá hæsti á landinu. Í dag er hann 65 þús. kr. og er í dag hærri í Garðabæ, Kópavogi og Reykjavík þar sem hann er hæstur, eða 75 þús. kr. Til þess að halda í við þessi sveitarfélög og til þess að styrkurinn haldi virði sínu er mikilvægt að hann verði hækkaður. Það kemur verulega á óvart að fulltrúar meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks skuli ekki vera tilbúnir í þá vegferð með Samfylkingunni og það sýnir enn og aftur ráðvilltan og erindislausan meirihluta sem ekkert hefur fram að færa eins og sést á þessum fundi bæjarstjórnar. Þar eru tvö mál á dagskrá og bæði komin frá Samfylkingunni. Engu er líkara en meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks sé hreinlega hættur störfum. Það styttist í kosningar og Samfylkingin mun, í nýjum meirihluta að loknum kosningum 16. maí nk., einfaldlega ljúka þessum mikilvægu hagsmunamálum bæjarbúa.
Jón Ingi kemur að svohljóðandi bókun:
Bæjarfulltrúi Jón Ingi Hákonarson bókar: Þessi ákvörðun um hækkun frístundastyrks á að vera ákvörðun nýrrar bæjarstjórnar sem tekur við í lok maí. Einnig er það mikilvægt að ný bæjarstjórn geri úttekt á fylgni hækkunar frístundastyrks og hækkunar æfingagjalda þannig ávinningur hækkunar frístundastyrks komi til fjölskyldna.
Kristín Thoroddsen kemur að svohljoðandi bókun:
Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn koma að eftirfarandi bókun: Við fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 var samþykkt að hækka frístundarstyrk fyrir börn og ungmenni úr 57 þúsund krónum í 65 þúsund krónur. Þá var aðgengi að styrknum aukið verulega með því að frá 1. janúar fengu börn á aldrinum þriggja til fjögurra ára styrk í fyrsta sinn auk þess sem fimm ára börn hafa fengið hálfan styrk frá því í haust. Þessar breytingar endurspegla skýran vilja meirihlutans til að styðja við barnafjölskyldur og efla þátttöku barna og ungmenna í íþrótta- og tómstundastarfi. Slík uppbygging skiptir miklu máli fyrir velferð barna, félagslega þátttöku og jöfn tækifæri. Þá hefur meirihlutinn einnig lagt mikla áherslu á uppbyggingu íþróttamannvirkja á síðastliðnum tveimur kjörtímabilum.
Mikilvægt er að frekari ákvarðanir um þróun frístundastyrks séu teknar á grundvelli heildstæðrar fjárhagsáætlunar þar sem tryggt er að áfram sé hægt að byggja upp þjónustu við barnafjölskyldur með ábyrgum og sjálfbærum hætti.
| | |
| | | | 3. 2601097 - Fundargerðir 2026, til kynningar í bæjarstjórn | Fundargerð bæjarráðs frá 30.mars sl. a. Fundargerð Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 20.mars sl. b. Fundargerð stjórnar SORPU bs. frá 11. febrúar sl. Fundargerð forsetanefndar frá 31. mars sl. | | |
|
| | Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14:00 |
|
|
| Til baka | Prenta |