Til bakaPrenta
Fræðsluráð - 575

Haldinn í Krosseyri, Linnetsstíg 3,
29.04.2026 og hófst hann kl. 14:00
Fundinn sátu: Kristín María Thoroddsen formaður,
María Jonný Sæmundsdóttir varaformaður,
Hilmar Ingimundarson aðalmaður,
Kolbrún Lára Kjartansdóttir aðalmaður,
Elín Anna Baldursdóttir aðalmaður,
Júlíus Andri Þórðarson varaáheyrnarfulltrúi,
Fundargerð ritaði: Hugrún Valtýsdóttir, 
Auk ofantalinna sátu fundinn:
Fanney D. Halldórsdóttir sviðsstjóri, Jenný D. Gunnarsdóttir þróunarfulltrúi leikskóla, Tinna Rós Steinsdóttir rekstrarstjóri íþrótta- og tómstundamál, Margrét Sverrisdóttir fulltrúi grunnskólastjóra, Inga Fríða Tryggvadóttir fulltrúi leikskólastjóra, Margrét Össurardóttir áheyrnarfulltrúi grunnskólakennara, Lóa Björk Hallsdóttir áheyrnafulltrúi starfsfólks leikskóla, Elísa Axelsdóttir fulltrúi ungmennaráðs, Svanhildur Ýr Sigurþórsdóttir áheyrnarfulltrúi foreldra grunnskólabarna, Margrét T. L. Hallgrímsdóttir áheyrnarfulltrúi foreldra leikskólabarna.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2601014 - Skóladagatal 2026 - 2027 leikskólar
Skóladagatöl leikskólans Hvamms, leikskólans Hjalla og 5 ára leikskólaeiningu Barnaskóla Hjallastefnunnar fyrir skólaárið 2026-2027 lögð fram til afgreiðslu.
Fræðsluráð samþykkir skóladagatal Hvamms.
Framlögðu skóladagatali Hjalla er synjað þar sem ekki er farið eftir samþykkt fræðsluráðs um fyrirkomulag skerts dags sem segir að skertan dag skuli taka að morgni en ekki seinnipart eins og lagt er til í fyrirliggjandi skóladagatali. Fræðsluráð hvetur Barnaskólann til að taka tillit til samþykktar fræðsluráðs frá 2022 líkt og aðrir leikskólar bæjarins hafa gert. Óski aðstandendur barna í Hjalla að fyrirkomulaginu verði breytt er hvatt til þess að erindi þess efnis berist fræðsluráði fyrir framlögn skóladagatals fyrir árið 2027-2028.
2. 2406200 - Yfirlit á stöðu innritunar í leikskólum
Fulltrúar Samfylkingar Óska eftir umræðu um innritun í leikskóla haustið 2026 og fyrirspurn lögð fram
Fyrirspurn lögð fram.
Fulltrúar Samfylkingar óska eftir því að fá nánari upplýsingar um stöðu innritunar.
1. Hvert er miðgildi og meðaltal aldurs barna sem innritast í leikskóla haustið 2026.
2. Hversu mörg börn sem eru fædd í júlí og ágúst 2025 eiga umsókn um leikskólavist?
3. 2604405 - Erindi - Uppeldi til ábyrgðar - Ósk um samning um þjónustu og ráðgjöf
Erindi lagt fram.
Fræðsluráð samþykkir að gerður verði samningur við Félag um uppbyggingu sjálfsaga ? uppeldi til ábyrgðar um faglegan stuðning við hugmyndafærði Uppeldis til ábyrgðar (Restitution) í þeim leik- og grunnskólum bæjarins sem fylgja þeirri hugmyndafræði sem og þeim sem vilja kynna sér leiðir hennar. Aðferðin eflir félagsfærni, uppbyggilegan aga og ábyrgðartilfinning. Nemendur kynnast eigin þörfum og efla samkennd sína í garð annarra og átta sig á að þeir hafa val um eigin hegðun. Þetta er í samræmi við menntastefnu Hafnarfjarðar um að hver og einn fái að blómstra á sínum forsendum, í sátt og samlyndi við aðra, fjölbreytni í kennsluháttum og inngildandi hugsunar. Samningurinn er auk þess einn liður í markmiðum bæjarins um að styðja við farsæld barna og ungmenna í Hafnarfirði.
Fræðsluráð felur sviðsstjóra mennta- og lýðheilsusviðs að leggja fram drög að samning og undirrita samninginn f.h. Hafnarfjarðar.
4. 2604455 - Fyrirspurn Samfylkingar, verkefni Brúarsmíða og framtíðar áform
Fulltrúar Samfylkingar óska eftir að fá upplýsingar um verkefni Brúarsmíða og framtíðar áform með verkefnið.
Fyrirspurn lögð fram.
Fulltrúar Samfylkingar óska eftir upplýsingum um verkefni Brúarsmiða menningartengla.
1. Hvernig er hefur árangur verkefnisins verið, hversu mörg börn og fjölskyldur hafa sótt þjónustuna?
2. Hvaða börn og fjölskyldur geta sótt þjónustuna, eru það aðeins börn með alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi?
3. Ná brúarsmiðir að sinna aðsókn eða er biðlisti eftir þeirra þjónustu? Hver eru framtíðar áform um verkefni brúarsmiða?
5. 2604119 - Sveitarstjórnarkosningar 2026, lýðræðisleg þátttaka barna, Krakkakosningar
Lagt fram bréf frá Umboðsmanni barna varðandi Krakkakosningar.
Fræðsluráð felur sviðsstjóra mennta- og lýðheilsusviðs að undirbúa krakkakosningar í samstarfi við skólastjórnendur. Lagt er til að umrædd kosning verði framkvæmd með svipuðum hætti og í alþingiskosningum.
Bréf til Hafnarfjarðarbæjar.pdf
6. 2509071 - Hreiðrið ungmennahús
Minnisblað lagt fram.
Fræðsluráð fagnar því að opnunartími Hreiðursins á föstudögum hafi verið leiðréttur. Tekið skal fram að lokunin á föstudögum var framkvæmd án samráðs við fræðsluráð og án vitneskju kjörinna fulltrúa.
Fræðsluráð þakkar fyrirliggjandi minnisblað og samþykkir að lengja opnunartíma út júní til að þjónusta enn betur ungmenni í Hafnarfirði. Einnig fagnar fræðsluráð því að unnið verði markvisst í að efla tengsl við ungmenni sem eru að útskrifast úr 10.bekk. Í kjölfar þess að þjónusta við ungmenni var flutt í Nýsköpunarsetrið hefur aukin og fjölbreytt starfsemi fyrir ungmenni verið efld til muna og betri samfella í frístundastarfi verið tryggð. Jákvætt er að sjá að unnin verði markviss vinna við að tengja saman ólíka hópa

Fulltrúi Viðreisnar leggur fram eftirfarandi bókun:

Fulltrúi Viðreisnar fagnar þeirri ákvörðun að rýmka opnunartíma ungmennahússins Hreiðursins þannig að opið verði á föstudagskvöldum og starfstímabilið lengt öll virk kvöld út júní. Þetta rímar fullkomlega við stefnu Viðreisnar í Hafnarfirði um að efla frístundastarf og auka opnunartíma félagsmiðstöðva, ekki síst yfir sumartímann. Það er gríðarlega mikilvægt að tryggja þessa samfellu í frístundastarfi fyrir ungmenni sem eru að klára grunnskóla, líkt og minnisblaðið kveður á um. Til að tryggja farsæld ungmenna er lykilatriðið að þau hafi öruggan, uppbyggilegan og aðgengilegan samastað og þetta skref styður vel við þá sýn okkar að setja börn og ungmenni í fyrsta sæti.
Hreiðrið minnisblað.pdf
7. 2604153 - Dagskrá sumarstarfs tómstundamiðstöðva
Minnisblað lagt fram.
Fræðsluráð fagnar því fjölbreytta tómstundastarfi sem börnum í Hafnarfirði stendur til boða og þeirri aukningu á framboði fyrir börn í 4. ? 7. bekk sem hefur átt sér stað milli ára.
Sumarstarf tómstundamiðstöðvanna 2026.pdf
8. 2604406 - Tillögur til tilnefninga íslensku menntaverðlaunanna
Erindi lagt fram.
Lagt fram.
Tillögur til tilnefninga Íslensku menntaverðlaunanna.pdf
9. 2509651 - Fundargerðir ungmennaráðs
Fundargerðir ungmennaráðs lagðar fram.
Fundargerðir lagðar fram.
Ungmennaráð_fundargerð_fundur279.pdf
Ungmennaráð_fundargerð_fundur280.pdf
10. 2603378 - Barnvænt sveitarfélag, fundargerðir
Fundargerð lögð fram.
Fundargerð lögð fram.
Barnvænt sveitarfélag_fundargerð_fundur2..pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:00 

Til bakaPrenta