| |
| 1. 2609164 - Hjartasvellið, rekstrarsamningur vegna skautasvells | | Páll Eyjólfsson frá Bæjarbíó sem rekur Hjartasvellið mætir til fundarins. | | Menningar- og ferðamálanefnd þakkar Páli Eyjólfssyni fyrir kynninguna og fagnar áframhaldandi rekstri Hjartasvellsins. Nefndin lýsir ánægju með að miðaverð verði það sama og undanfarin ár. Hjartasvellið opnar 13. nóvember, sama dag og Jólaþorpið, og hægt verður að kaupa miða á hjartasvellid.is. | | |
|
| 2. 2608181 - Jólaþorpið 2026 | | Verkefnastjóri fer yfir undirbúning á Jólaþorpinu 2026. | | Menningar- og ferðamálanefnd þakkar verkefnastjóra fyrir góða kynningu á skipulagi Jólaþorpsins og starfsfólki bæjarins fyrir vandaðan undirbúning, útfærslu og fallegar jólaskreytingar. Það er ánægjulegt að sjá bæinn smám saman komast í jólabúning með ljósum og skreytingum. Nefndin hlakkar til opnunar Jólaþorpsins föstudaginn 13. nóvember og hvetur Hafnfirðinga og gesti til að njóta alls þess sem Jólabærinn Hafnarfjörður hefur upp á að bjóða á aðventunni. | | |
|
| 3. 2611022 - Jólaskreytingarkeppni 2026 | | Rætt um fyrirkomulag árlegrar jólaskreytingarkeppni. | | Menningar- og ferðamálanefnd samþykkir að efna áfram til jólaskreytingakeppni í Hafnarfirði, líkt og undanfarin ár, og felur verkefnastjóra menningar- og ferðamála að auglýsa keppnina. Nefndin hvetur íbúa og fyrirtæki til þátttöku og hlakkar til að sjá bæinn lýsast upp fyrir jólin. | | |
|
| 4. 2608319 - Aðgerðaráætlun menningar- og ferðamálanefndar 2026-2030 | | Drög að aðgerðaráætlun menningar- og ferðamálanefndar lögð fram. | | Menningar- og ferðamálanefnd samþykkir uppfærða aðgerðaáætlun nefndarinnar fyrir árin 2026?2030. Áætlunin byggir á þeim góða grunni sem þegar hefur verið lagður og markar skýra leið fyrir áframhaldandi uppbyggingu menningar- og ferðamála í Hafnarfirði. | | Aðgerðaráætlun menningar- og ferðamálanefndar 2026-2030.pdf | | |
|