| |
| 1. 2603477 - Ársreikningur Hafnarfjarðarhafnar 2025 | | Lagður fram ársreikningur Hafnarfjarðarhafnar fyrir árið 2025. Til fundarins mættu Eiríkur Kristófersson og Valgerður Kristjánsdóttir frá PWC. | | Hafnarstjórn samþykkir ársreikning Hafnarfjarðarhafnar fyrir árið 2025 og vísar honum til afgreiðslu í bæjarstjórn. | | Ársreikningur Hafnarsjóðs Hafnafjarðar 2025 (27.4.26).pdf | | |
|
| |
| 2. 2604415 - Lyktarmengun á hafnarsvæði | | Tekin til umræðu lyktarmengun sem vart hefur orðið við frá tankasvæði Colas síðustu daga. Skýrt frá samskiptum við stjórnendur Colas og Umhverfis og orkustofnunar varðandi viðbrögð og framgang úrbótaáætlunar sem liggur fyrir og er að hluta komin til framkvæmdar. | Hafnarstjórn leggur ríka áherslu á að brugðist verði hið fyrsta við þeirri lyktarmengun sem komið hefur frá asfalt tönkum Colas við Óseyrarbraut. Jafnframt harmar hafnarstjórn að Umhverfis- og orkustofnun skuli ekki hafa framfylgt því ákvæði sem stofnunin hefur sett fram og hvetur til þess að ekki verði veittir frekari frestir af hálfu stofnunarinnar.
| | |
|
| 3. 1907215 - Umhverfisstefna Hafnarfjarðarhafnar | | Teknar fyrir að nýju endurskoðaðar tillögur á útfærslu umhverfisstefnu Hafnarfjarðarhafnar. | | |
|
| 4. 1808526 - Starfsskipulag og vinnufyrirkomulag | | Hafnarstjóri lagði fram yfirlit um rekstur og starfsskipulag hjá Hafnarfjarðarhöfn og kynnti tillögur að breytingum á vinnuskipulagi vegna aukinna umsvifa á hafnarsvæðinu. | | Hafnarstjórn samþykkir að hafnarstjóri útfæri framlagðar tillögur í samvinnu við fjármálasvið og þær taki gildi fyrir komandi vetur. | | |
|