| |
| 1. 2601475 - Norðurbraut 33, breyting á deiliskipulagi | Garðar Snæbjörnsson f.h. lóðarhafa sækir 22.01.2026 um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felst í því að heimilt verði að rífa núverandi bílskúr og byggja nýbyggingu innan byggingarreits í hans stað. Nýbyggingin megi vera ein hæð og allt að 48 fm. Heimilt verði að breyta landhæðum í kringum skúrinn. Heimilt verði að byggja við íbúðarhús með viðbyggingu sem er allt að 41 fm að grunnfleti, hæð og kjallari ef landhæð leyfir. Eitt bílastæði heimilt á lóð. Lóð stækkar frá skráningu. | | Erindið verður grenndarkynnt með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga, þegar samþykki hafa borist. | | Norðurbraut 33, tillaga, deiliskipulagsbreyting.pdf | | |
|
| |
| 2. 2602197 - Suðurhella 6, fyrirspurn | | Kristinn Már Þorsteinsson og Guðjón Ármann Jónsson f.h. eigenda leggja fram 10.02.2026 fyrirspurn þar sem óskað er eftir því að gerð verði breyting á deiliskipulagi fyrir lóðina Suðurhellu 6, þannig að hámarks nýtingarhlutfall verði aukið úr 0,6 í 0,645. | | Tekið er neikvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19.02.2026. | | Suðurhella 6, umsögn skipulags.pdf | | |
|
| 3. 2602202 - Dverghella 2, fyrirspurn | | Páll Poulsen leggur 10.02.2026 fram fyrirspurn varðandi stækkun lóðar og byggingarreits ásamt hækkun nýtingarhlutfalls á lóðinni Dverghella 2. | | Tekið er neikvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23.02.2026. | | Dverghella 2, umsögn skipulags.pdf | | |
|
| 4. 2602252 - Álhella 9, fyrirspurn | | Össur Imsland og Kraftur ehf. leggja 12.02.2026 fram fyrirspurn þar sem óskað er eftir breytingu á deiliskipulagi til að koma fyrir byggingarreit fyrir skilti ásamt tilfærslu- og auka innkeyrslustútum inn á lóð. | | Tekið er jákvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16.02.2026. | | Álhella 9, umsögn skipulags.pdf | | |
|
| |
| 5. 2602436 - Hellnahraun 4. áfangi, framkvæmdaleyfi | | Framkvæmda- og rekstrardeild Hafnarfjarðar óskar eftir framkvæmdaleyfi til að fara í gatnagerð í Hellnahrauni 4. áfanga. Framkvæmdin felur í sér gatnagerð, stígagerð og lagnavinnu og er í samræmi við samþykkt deiliskipulag. Sótt er um framkvæmdaleyfi fyrir allt svæðið. | | Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa samþykkir að gefa út framkvæmdaleyfi. | | |
|
| 6. 2602443 - Kapelluhraun 2. áfangi, framkvæmdaleyfi | | Framkvæmda- og rekstrardeild Hafnarfjarðar óskar eftir framkvæmdaleyfi til að fara í gatnagerð Gullhellu og Málmhellu í Kapelluhrauni 2. áfanga. Framkvæmdin felur í sér gatnagerð, stígagerð og lagnavinnu og er í samræmi við samþykkt deiliskipulag. | | Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa samþykkir að gefa út framkvæmdaleyfi. | | |
|