Til bakaPrenta
Bæjarráð - 3689

Haldinn í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6,
04.09.2025 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Rósa Guðbjartsdóttir formaður,
Margrét Vala Marteinsdóttir varaformaður,
Árni Rúnar Þorvaldsson aðalmaður,
Guðmundur Árni Stefánsson aðalmaður,
Skarphéðinn Orri Björnsson aðalmaður,
Jón Ingi Hákonarson áheyrnarfulltrúi,
Valdimar Víðisson bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Ívar Bragason, Bæjarlögmaður


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 1806351 - Menntasetrið við Lækinn
Lagt fram minnisblað um kostnaðarmat vegna aðgengi og endurbóta
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun:
Samfylkingin fagnar því að tryggja eigi aðgengi fyrir alla að þessu merka húsi sem hýsir alls kyns félags- og tómstundastarf, en leggur áherslu á að flýta verkinu eins og kostur er.

Fulltrúi Viðreisnar fagnar því að aðgengismál við Menntasetrið við Lækinn verði uppfærð til sjálfsagðrar kröfu um aðgengi fyrir alla.
Minnisblað. Nýsköpunarsetrið áætlun varðandi framkvæmdir vegna útleigu á 3 hæð.pdf
2. 2507116 - Gjaldskrá fyrir Nýsköpunarsetrið
7. liður úr fundargerð bæjarstjórnar frá 27.ágúst sl.
5. liður úr fundargerð bæjarráðs frá 21. ágúst sl.
Lögð fram greinagerð um gjaldskrá fyrir þjónustu Nýsköpunarseturs. Geir Bjarnason mætir til fundarins.

Bæjarráð vísar gjaldskránni til afgreiðslu í bæjarstjórn.

Kristín Thoroddsen tekur til máls. Stefán Már Gunnlaugsson kemur til andsvars. Kristín svarar andsvari.

Þá tekur Guðmundur Árni Stefánsson til máls og leggur fram svohljóðandi tillögu:

Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi tillögu ásamt greinargerð:

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að kalla eftir tillögum og ábendingum um nýtingu Menntasetursins við Lækinn til framtíðar. Þar verði stefnt að miðstöð frístunda og tómstunda af ýmsum toga, sem gæti hýst ungmennastarf af ólíku tagi, hugsanlegri aðstöðu fyrir eldri borgara, áhugahópa og félagasamtök í bænum. Fræðsluráði, starfshópi um Menntasetrið um Lækinn, Íþrótta- og tómstundaráði og Ungmennaráði verði falið að skila inn tillögum sínum um málið fyrir 1. nóvember næstkomandi. Jafnframt verði kallað eftir hugmyndum frá frjálsum félagasamtökum eins og Félagi eldri borgara og fleirum. íþrótta- og tómstundafulltrúi og aðrir hlutaðeigandi starfsmenn bæjarins haldi utan um ferlið. Bæjarráð taki við tillögunum og móti síðan heildstæða tillögu um málið, sem bæjarstjórn afgreiði síðan og taki mið af við afgreiðslu fjárhagsáætlunar bæjarins fyrir árið 2026. Jafnframt verði hið fyrsta ráðist í framkvæmdir við húsnæðið, með uppsetningu lyftu, sem tryggi aðgengi allra að húsinu.

Greinargerð: Ljóst er að Menntasetrið við Lækinn (gamli Lækjarskólinn) er reisulegt húsnæði á í miðju bæjarins, sem á langa sögu og merka. Á síðustu árum hefur ýmis starfsemi þrifist þar, þar á meðal hefur Háskóli Íslands leigt stóran hluta húsnæðisins, en áður voru Námsflokkar Hafnarfjarðar þar með öfluga starfsemi. Háskólinn mun hætta starfsemi á næsta ári. Á síðustu árum hefur verið gangsett Nýsköpunarsetur á neðstu hæð hússins, sem er að sinna mikilvægu starfi ekki síst fyrir ungmenni bæjarins. Þar eru ýmsar spennandi hugmyndir uppi og starfsemi að þróast. Eins hefur Gaflaraleikhúsið fengið aðstöðu á þriðju hæð hússins sem og Músíkhluti Músík og mótor. Allt er þetta ágætt, en óljóst er hins vegar hvernig ætlunin er að nýta húsnæðið í heild sinni, en fyrir liggur að Háskólinn mun fara úr húsinu á næsta ári. Sérstakur starfshópur var kjörinn í upphafi kjörtímabilsins til að stýra nýtingu hússins. Hann hefur aldrei komið saman þrátt fyrir eftirgangssemi Samfylkingarinnar í þeim efnum.

Starfsemin í húsinu hefur því þróast með tilviljanakenndum hætti og án stefnumörkunar. Starfsemi Nýsköpunarseturs er ágæt og lofar góðu. Hins vegar er nauðsynlegt að fyrir liggi skipulag og skýr stefnumörkun um starfsemi í þessu merka húsi og að þar verði að leiðarljósi að leysa úr læðingi hugmyndir og virkni unga fólksins í Hafnarfirði, en jafnframt hugað að hag eldri borgara bæjarins. Það samspil gæti verið spennandi. Víða á Norðurlöndum þekkjast svonefnd "Folkets hus? eða hús Fólksins, þar sem íbúar og ólík samtök þeirra hafa þak yfir höfuð og aðstöðu til listsköpunar, fundahalda og frístundastarfs af ólíkum toga. Með þessari tillögu er kallað eftir hugmyndum í þessa veru og kemur til álita af hálfu flutningsfólks, að kalla eftir með skipulögðum hætti hugmyndum frá bæjarbúum og fjölmörgum áhugafélögum um nýtingu hússins.

Valdimar Víðisson kemur til andsvars.

Kristín tekur til máls öðru sinni og leggur fram eftirfarandi tillögu:

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar fagnar þeirri öflugu og fjölbreyttu starfsemi sem byggst hefur upp í Menntasetrinu við Lækinn að undanförnu, einkum auknum tækifærum ungs fólks til að blómstra í nýsköpunar- og tómstundarstarfi.

Nýsköpunarsetrið er lykilvettvangur fyrir ungmenni þar sem þau hafa aðgang að tækni, leiðsögn og aðstöðu til að þróa hugmyndir sínar, efla hæfni sína og öðlast reynslu sem styrkir þau til framtíðar. Þetta hefur þegar sýnt árangur og lagt grunn að lifandi nýsköpunarmenningu meðal ungs fólks í bænum.

Auk þess hafa aðrir aðilar bæst við fjölbreytta starfsemi í Menntasetrinu við lækinn, svo sem Gaflaraleikhúsið sem hefur komið á fót leiklistarstarfi með áherslu á börn og ungmenni. Þá hefur músíkhluti Músík og mótor fært starfsemi sína í Menntasetrið sem mun með bættri aðstöðu efla tónlistarlíf bæjarins enn frekar. Nú þegar hefur verið hafin vinna við að koma fyrir lyftu við húsið til að tryggja aðgengi fyrir alla að öllum hæðum, þar til hún verður komin í notkun verður notast við rými á fyrstu hæð hússin ef á þarf að halda eins og fram kom á fundi fræðsluráðs.

Bæjarstjórn leggur áherslu á að halda áfram á þessari braut með skýrum hætti. Mennta- og lýðheilsusviði í samstarfi við fræðsluráð er falið að þróa starfsemina í húsinu áfram og leggja fram tillögur um áframhaldandi nýtingu á húsnæðinu. Í þeirri vinnu verði ungmennin höfð sérstaklega í forgrunni þannig að Menntasetri við Lækinn verði áfram kjarninn í framsæknu og fjölbreyttu ungmennastarfi þar sem skapandi hugsun, nýsköpun, menning og frístundir haldast í hendur. Vel hefur tekist til að ráðstafa húsnæðinu fram að þessu og hefur samstarf við ungmenni, meðal annars í gegnum Ungmennaráð og Ungmennaþing reynst dýrmætt og gefið mikilvæga sýn inn í þróun starfseminnar. Mennta- og lýðheilsusvið mun áfram vinna að stefnumótun í nánu samstarfi við fræðsluráð, aðrar viðeigandi nefndir og aðila þannig að næstu skref verði byggð á sterkum grunni og í góðu samráði við samfélagið.

Greinargerð
Á þessu kjörtímabili hefur verið stigið mikilvægt skref í að móta Menntasetrið við Lækinn að lifandi miðstöð nýsköpunar, menningar og samfélagsstarfs. Þar hefur þegar tekist að byggja upp öflugt starf sem þjónar íbúum bæjarins á fjölbreyttan hátt.

Sérstaklega ber að nefna starfsemi Nýsköpunarsetursins sem hefur skapað vettvang þar sem ungmenni fá aðgang að tækni, leiðsögn og aðstöðu til að láta hugmyndir sínar verða að veruleika. Með því eru þau að efla skapandi hugsun, sjálfstraust og hæfni sem nýtist þeim í námi, starfi og daglegu lífi. Það er afar jákvætt að sjá hvernig ungt fólk hefur tekið þátt í þessari starfsemi og nýtt sér þau tækifæri sem Menntasetrið við Lækinn býður upp á.

Við þessa jákvæðu uppbyggingu hafa bæst við önnur mikilvæg verkefni. Gaflaraleikhúsið hefur fengið aðstöðu til að þróa leiklistarstarf með börnum og ungmennum og Músíkhluti Músík og mótor hefur komið með aukna fjölbreytni í tónlistarlíf hússins. Með þessu er Menntasetrið við Lækinn orðið vettvangur þar sem ólíkir hópar fá að njóta sín, hvort sem um er að ræða listsköpun, frístundir eða samfélagsverkefni.

Það sem þegar hefur verið byggt upp er afar jákvætt og mikilvægt að halda áfram á sömu braut. Með því að fela Mennta- og lýðheilsusviði í samstarfi við fræðsluráð að þróa starfsemina áfram er tryggt að næstu skref verði tekin með markvissum hætti. Lögð verður sérstök áhersla á ungt fólk og að skapa áfram vettvang fyrir nýsköpun og framsækið starf.
Menntasetrið við Lækinn hefur með þessum hætti þegar sýnt hversu mikill kraftur felst í því að sameina nýsköpun, listir og samfélagsstarf undir sama þaki. Það er því eðlilegt og mikilvægt að halda áfram á þeirri braut til framtíðar.

Guðmundur Árni kemur til andsvars. Margrét Vala Marteinsdóttir kemur einnig til andsvars.

Guðmundur Árni og Margrét Vala taka til máls undir fundarstjórn forseta.
Fundarhlé kl. 15:44. Fundi framhaldið kl. 15:49.

Forseti tekur til máls og leggur til að framkomnar tillögur að breytingum á þeirri gjaldskrá sem liggur fyrir fundinum verði vísað til umfjöllunar í bæjarráði.

Næst ber forseti upp fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá sem liggur fyrir fundinum. Er hún samþykkt samhljóða.



Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi tillögu:
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja til að tillögunum verði vísað til umsagnar í menningar- og ferðamálanefnd, starfshóps um menntasetrið við lækinn og fræðsluráðs. Þessir aðilar leiti umsagna frá hagaðilum, félagasamtökum hjá ungum og eldri bæjarbúum.

Tillagan er felld þar sem þrír fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar greiða atkvæði gegn tillögunni. Fulltrúar Samfylkingar greiða atkvæði mð tillögunni.

Bæjarráð samþykkir að vísa þeim tillögum sem lagðar voru fram í bæjarstjórn þann 27. ágúst sl. til bæjarstjórnar.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar leggja fram svohljóðandi bókun:

Tillaga meirihlutans sem lögð var fram á bæjarstjórnarfundi 27. ágúst sl.
tryggir áframhaldandi þróun starfseminnar fyrir ungt fólk í Menntasetrinu við lækinn. Skýr aðkoma kjörinna fulltrúa verður í gegnum fræðsluráð.
Ungt fólk á öllum aldri hefur nú aðgengi að fjölbreyttri afþreyingu, kennslu og skapandi starfi sem kallað hefur verið eftir. Tækifæri sem skapast í húsinu eru fjölmörg en unnið er að því að setja upp dagskrá í samstarfi við ungt fólk. Það er fagnaðarefni að fulltrúar minnihlutans séu sammála því að efla enn frekar það góða starf sem meirihlutinn hefur unnið að á undanförnum misserum. Stýrihópurinn lagði traustan grunn að stefnu hússins, m.a. með ákvörðunum um Nýsköpunarsetrið. Nú liggur fyrir skýr stefna sem hægt er að byggja á með markvissri innleiðingu og virku samráði.

Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúar Samfylkingarinnar lýsa yfir vonbrigðum með meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks sem hafnar því að leita til hagsmunaaðila og áhugafólks um nýtingu þessa merka húss. Stefnumótun varðandi nýtingu Menntasetursins við Lækinn er óljós og tilviljanakennd þó þar hafi þróast ágæt starfsemi, en án framtíðarsýnar um nýtingu alls hússins.

Í ítarlegri tillögu sem Samfylkingin lagði fram á fundi bæjarstjórnar þann 27. ágúst sl. er gert ráð fyrir aðkomu allra hagaðila að málinu. Þar er einnig lagt til að kallað verði eftir heildartillögu um nýtingu hússins og leitað hófanna hjá breiðum hópi kjörinna fulltrúa, sem og frá félagasamtökum í bænum, sem hýsa ungmennastarf og starfsemi eldri borgara.
Minnisblað. Nýsköpunarsetrið áætlun varðandi framkvæmdir vegna útleigu á 3 hæð.pdf
3. 2306463 - Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins
Lögð fram drög að samningi sveitarfélaganna og Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samning og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar.

Fulltrúi Viðreisnar telur ekki forsvaranlegt að Hafnarfjarðarbær verji tæpum 14 milljónum á ári til rekstur Markaðsstofu Höfuðborgarsvæðisins. Ávinningurinn er óljós ef einhver og ljóst að Hafnarfjarðarbær mun geta nýtt þessar milljónir á mun uppbyggilegri hátt til markaðssetningar á Hafnarfirði. Þetta er sóun á útsvari Hafnfirðinga.

Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúar Samfylkingarinnar telja mikilvægt að ferðamál í Hafnarfirði verði tekin föstum tökum og leggja til að í kjölfar samantektar og greiningarvinnu vegna ferðamálanna, þá verði á næstu vikum og mánuðum mótuð tímasett aðgerðaráætlun. Í henni verði einstök verkefni listuð upp og í þau farið í samstarfi bæjarins, Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins og annarra hagaðila í ferðaiðnaði. Eins sýnir skýrslan mikilvægi þess að boðið verði upp á fleiri hótelrými í Hafnarfirði. Stækkun Fjörukráarinnar er í burðarliðnum og eins er að vænta hótelíbúða í Firði. En betur má ef duga skal. Hátíðir í Hafnarfirði, svo sem Hjarta Hafnarfjarðar, jólaþorpið og fleira hafa tekist vel, en Hafnarfjörður þarf að fá fleiri erlenda ferðamenn á degi hverjum í bæinn, svo sem frá skemmtiferðarskipum.


Fylgibréf HFJ - samningur við Markaðsstofu.pdf
1 Drög að samningi sveitarfélaganna og Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins.pdf
Lokaskýrsla Hafnarfjörður (1)-compressed.pdf
4. 2502731 - Hringbraut 54a, til úthlutunar
Óskað var eftir tilboðum í lóðina og bárust 6 gild tilboð frá eftirtöldum aðilum: Eignanet ehf. Helga Má Guðjónssyni, Blátönn ehf. Bryndísi Skarphéðinsdóttur og Stefáni Snæ Ágústssyni. Lágmarksverð í auglýsingu var miðað við gjaldskrá þ.e. 10.337.300 kr og hús skuli vera flutningshús.
Lögð fram tilboð í lóðina.

Hæsta tilboðið var frá Eignanet ehf. Kr. 17.100.000.-
Lagt fram.
5. 2203163 - Hellnahraun 4. áfangi-uppkaup á landi
Til umræðu. Sigurður Haraldsson sviðsstjóri mætir til fundarins.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi gagntilboð frá Rio Tinto og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar. Jafnframt er sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs falið að útbúa tillögu vegna viðræðna um uppkaup á landi í eigu Lands og skóga.
Gagntilboð Rio Tinto tölvupóstur 29.08.2025.pdf
Minnisblað vegna skipti á lóðum við Rio Tinto Alcan og uppkaup á landssvæði vegna Hellnahrauns 4.pdf
Fylgiskjal 1 skipti á fermetrum Spanhella og Blýhella.pdf
Fylgiskjal 2 Hellnahraun_4 - Kaup a landi-08.07.2025.pdf
Fylgiskjal 3 Víkurgata_3-5_m (1).pdf
6. 2306391 - HS Orka, samkomulag um rannsóknir og nýtingarrétt, Krýsuvík
Til umræðu
Bæjarstjóra falið að vinna að því að setja saman samráðsvettvang samningsaðila.
7. 2507133 - Urðarstígur 10, fyrirspurn, stækkun lóðar
Lögð fram fyrirspurn um stækkun lóðar. Umsögn umhverfis- og skipulagssviðs liggur fyrir.
Bæjarráð samþykkir stækkun lóðar í samræmi við fyrirliggjandi minnisblað.
Urðarstígur 10, umsögn skipulags.pdf
8. 2505348 - Ljósatröð, fyrirspurn um lóð, stýrishús veitna
Veitur óska eftir lóð undir stýrishús við Ljósatröð. Lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs.
Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar i samræmi vijð fyrirliggjandi erindi og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar.
Breyting á deiliskipulagi, lóð og stígur Ljósatröð-180725.pdf
9. 2310818 - Hvaleyrarbraut 22, bruni,
12.liður úr fundargerð bæjarráðs frá 27.ágúst sl.
Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá og leggja fram eftirfarandi tillögu:
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að leita samkomulags við Dverghamra, sem hefur náð samkomulagi við alla 18 eigendur að Hvaleyrarbraut 22, þannig að þegar í stað verði unnt að hreinsa brunarústir á lóðinni og undirbúa uppbyggingu á svæðinu.

Guðmundur Árni Stefánsson tekur til máls. Valdimar Víðisson kemur til andsvars og leggur til að málinu verði vísað til bæjarráðs til umfjöllunar. Guðmundur Árni svarar andsvari. Valdimar kemur að andsvari öðru sinni sem Guðmundur Árni svarar.

Þá tekur Stefán Már Gunnlaugsson til máls. Valdimar kemur til andsvars.

Guðmundur Árni tekur til máls öðru sinni.

Forseti ber næst upp framkomna tillögu um að vísa málinu til umfjöllunar í bæjarráði. Er það samþykkt samhljóða.
Fyrir liggur nýtt og endurbætt kauptilboð af hálfu Dverghamars til eigenda mannvirkja á lóðinni Hvaleyrarbraut 22. Í nýju tilboði skuldbindur tilboðsgjafi sig til þess að tryggja hreinsun lóðarinnar innan 8 vikna frá undirritun kaupsamnings og útgáfu tilskilinna leyfa, og færist þannig ábyrgð á skjótri hreinsun lóðarinnar frá eigendum mannvirkja til væntanlegs framkvæmdaraðila. Svo tryggja megi sem hraðasta hreinsun og uppbyggingu á lóðinni samþykkir bæjarráð að falla frá ákvörðun frá 2. maí sl. um að nýta sér 2. gr. lóðarleigusamnings og gera þess í stað sambærilegan samning um uppbyggingu og bærinn hefur gert við lóðarhafa m.a. á Hvaleyrarbraut 20, Hvaleyrarbraut 26-30.

Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun:
Bæjarráðsmenn Samfylkingarinnar styðja þessa niðurstöðu málsins enda er hún í fullu samræmi við fyrri tillögur Samfylkingarinnar frá því í sumar.

Fulltrúi Viðreisnar styður málið. Það er mikilvægt að fá niðurstöðu í málið og almannahagsmunir skýrir að hreinsun svæðisins er forgangsatriði.

10. 2306006 - Verktakasamningar um ráðgjafastörf
Lagt fram svar við fyrirspurn Samfylkingar.
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúar Samfylkingarinnar þakka framlagðar upplýsingar og svör. Ljóst er að afar háum fjármunum er varið til kaupa á ráðgjafarþjónustu úti í bæ, gjarnan frá aðilum utan bæjar, hjá aðalskrifstofu bæjarins og oft vegna verkefna sem eru fullkomlega á færi starfsmanna bæjarins.
Athygli vekur að nokkrir aðilar virðast í eins konar áskrift vegna þessa eins og háar ráðgjafargreiðslur til aðila vegna viðræðna um lóðakaup bæjarins og samninga við lóðahafa við Óseyrarbraut og á hafnarsvæði, m.a. vegna Tækniskólans, sem hafa þó gengið afar hægt og treglega fram. Sjálfsagt er að leitað sé ráðgjafar annað slagið þegar þörf er á slíku hjá Hafnarfjarðarbæ. Slíkt þarf að gera með gagnsæjum og málefnalegum hætti hverju sinni og að þörfin liggi sannalega fyrir. Þær forsendur blasa ekki við í þeim upplýsingum sem kynntar hafa verið.
Ráðgjöf bæjarskr fyrirspurn Samfylkingar svar 28082025.pdf
11. 2411219 - Útboð skólamatar 2024-2025
Til umræðu. Fanney Halldórsdóttir sviðsstjóri mætir til fundarins.
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun:
Samfylkingin óskaði eftir þessum upplýsingum fyrir margt löngu um að upplýsingar yrðu veittar um samanburð á verði og gæðum, á aðkeyptum mat fyrir grunn- og leikskóla og mat sem eldaður er á staðnum. Nú hafa almennar upplýsingar komið fram og sýnt að óverulegur munur virðist á verði í þessu sambandi. Gæði matar eru vissulega matskennd, en almennt virðist almennari ánægja með það, þegar eldað er á staðnum. Full ástæða er til að gaumgæfa þessi mál nánar og vinna áfram.
Minnisblað_samanburður á fæðiskostnaði FDH .pdf
Fundargerðir
12. 2508007F - Hafnarstjórn - 1687
Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 20.ágúst sl.
13. 2501145 - Heilbrigðiseftirlit, fundargerðir 2025
Lögð fram fundargerð heilbrigðisnefndar frá 25. ágúst sl.
14. 2508010F - Menningar- og ferðamálanefnd - 456
Lögð fram fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 27. ágúst sl.
15. 2501142 - Strætó bs, fundargerðir 2025
Lögð fram fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 15. ágúst sl.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:24 

Til bakaPrenta