| |
| 1. 2602044 - Hvaleyrarbraut 20, breyting á deiliskipulagi vegna djúpgáma | | Lögð er fram þann 02.02.2026 breyting á deiliskipulagi Suðurhafnar vegna Hvaleyrarbrautar 20. Breytingin felst í því að djúpgámar sem staðsettir eru við innkeyrslu í bílakjallara eru fluttir til á lóðinni og þeim fjölgað. Ný staðsetning djúpgáma er nyrst á lóðinni við bílastæðin. Bílastæði breytast. | | Erindinu verður lokið í samræmi við skipulagslög. Fallið er frá grenndarkynningu í ljósi þessa að breytingin telst óveruleg. Málsmeðferð fer skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga. | | Hvaleyrarbraut 20, breyting á deiliskipulagi ný.pdf | | |
|
| 2. 2512714 - Hryggjarás 11, breyting á deiliskipulagi | Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 07.01.2026 var samþykkt að grenndarkynna með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga umsókn Andra Ingólfssonar f.h. lóðarhafa um breytingu á deiliskipulagi. Tillagan gerir ráð fyrir breytingu á texta í greinargerð varðandi útbyggingar og skjólvegg við anddyri. Erindið var grenndarkynnt frá 12.01.2026 til 09.02.2026. Engar athugasemdir bárust. | | Erindinu verður lokið í samræmi við skipulagslög. | | Slóð á skipulagsgátt.pdf | | |
|
| 3. 2508498 - Hringbraut 36, breyting á deiliskipulagi | Á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 07.01.2026 var samþykkt að grenndarkynna með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga umsókn Andra Ingólfssonar f.h. lóðarhafa um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felst í því að nýjum byggingarreit fyrir bílskúr verði bætt við á lóðina. Byggingarreiturinn verði 800 x 550 cm við lóðarmörkin að Hringbraut 38 og ca 2200 cm frá lóðarmörkum að Hringbraut. Bílastæði verði bætt við fyrir framan bílskúrinn. Erindið var grenndarkynnt frá 12.01.2026 til 09.02.2026. Engar athugasemdir bárust. | | Erindinu verður lokið í samræmi við skipulagslög. | | Slóð á skipulagsgátt.pdf | | |
|
| |
| 4. 2602106 - Norðurbraut 35, fyrirspurn | | Garðar Snæbjörnsson f.h. eiganda hússins leggur þann 04.02.2026 fram fyrirspurn þess efnis að skipta húss upp í tvær íbúðir. Engar breytingar eru fyrirhugaðar á umfangi hússins umfram heimildir. | | Tekið er jákvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10.02.2026. | | Norðurbraut 35, umsögn skipulags.pdf | | |
|
| 5. 2602187 - Selhella 7-9, fyrirspurn | | Gunnlaugur Jónasson leggur 09.02.2026 fram fyrirspurn þar sem óskað er eftir að breyta byggingarreit vöruhúss á lóðinni Selhellu 7-9 svo stækka megi vörusal hússins Selhellu 9 (MHL 02). | | Tekið er jákvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10.02.2026. | | Selhella 7-9, umsögn skipulags.pdf | | |
|