| |
| 1. 2212198 - Fimleikafélagið Björk, húsnæðisvandi, erindi | | Lagt fram minnisblað | | Starfshópur um nýja íþróttamiðstöð í Hafnarfirði, m.a. fyrir fimleikafélagið Björk, er að störfum og mun skila tillögum á næstu vikum. Erindinu er vísað til umfjöllunar í íþrótta- og tómstundarnefnd. | | MARS 2026 Minnisblað - Húsnæðisþörf fimleikadeildar Fimleikafélagsins Björk.pdf | | |
|
| 2. 2603579 - Vinnustaðagreining 2026 | | Til kynningar. Lind Einarsdóttir mannauðsstjóri mætir til fundarins. | | |
|
| 3. 2511201 - Vigdísarholt ehf, viljayfirlýsing, samstarf, nýtt hjúkrunarheimili, Vatnshlíð | | Lögð fram drög að erindisbréfi samráðshóps um lifsgæðakjarna. | Bæjarráð samþykkir uppfært erindisbréf og skiptar eftirfarandi í starfshópinn:
Orri Björnsson Valdimar Víðisson Árni Rúnar Þorvaldsson | | |
|
| 4. 2510170 - Víðistaðakirkja, endurbætur á nánasta umhverfi | | Lagt fram erindi frá sóknarnefnd Víðistaðakirkju dags. 4. mars sl. varðandi endurbætur á lýsingu í nánasta umhverfi,. | | Tekið jákvætt í erindið og sviðsstjóra falið að vinna málið áfram. | | |
|
| 5. 2603405 - Beiðni um kaup á lóðaréttindum við Álfaskeið | | Lagt fram bréf dags. 16.mars sl., beiðni um kaup á lóðarréttindum. Sigurður Haraldsson sviðsstjóri mætir til fundarins. | | Bæjarráð hafnar fyrirliggjandi erindi en ítrekar um leið fyrri afstöðu til málsins um uppgjör á lóðarleiguréttindum fyrir 625 fm. lóð skv. lóðarleigusamningi frá 1926. | | |
|
| 6. 2603457 - Viðbragðsáætlun neyðarstjórnar Hafnarfjarðarbæjar | | Lögð fram drög að viðbragðsáætlun. | | |
|
| 7. 2603199 - Víðistaðatún, viðburður, tónleikar | | Til umræðu | | Bæjarráð tekur jákvætt í fyrirhugaðan viðburð á Víðstaðatúni í ágúst. Lögð áhersla á gott samstarf við viðburðahaldara og lögreglu. | | |
|
| 8. 2601425 - Frítt í strætó fyrir 12-17 ára ungmenni | | Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá og óska eftir upplýsingum um stöðuna á vinnslu þess innan stjórnar Strætó BS og SSH | Fyrir fundinum liggur svohljóðandi tillaga sem áður hefur verið lögð fram af fulltrúum Samfylkingar bæði í bæjarráði 5. febrúar sl. og bæjarstjórn 11. febrúar sl.:
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að frá 1.júní næstkomandi verði endurgjaldslaust í Strætó fyrir öll hafnfirsk ungmenni til 18 ára aldurs. Kostnaður er á yfirstandandi ári um 28 milljónir króna. Breytingar verði gerðar á gildandi fjárhagsáætlun til að fjármagna þessa réttarbót og það gert með aðhaldi og sparnaði; með sérstakri sjálfstæðri tillögu, þar sem samþykkt verður að lækka kostnað við aðkeypta þjónustu um 30 milljónir.
Bæjarráð samþykkir að vísa framangreindri tillögu til bæjarstjórnar.
Meirihluti bæjarráðs leggur fram eftirfarandi tillögu:
Börn og ungmenni á aldrinum 12 - 17 ára hafi aðgang að gjaldfrjálsum ferðum strætó á höfuðborgarsvæðinu. Slíkt tekur gildi þegar greiðslukerfi strætó hefur verið þróað með þeim hætti að Hafnarfjarðarbær verði skuldfærður á grundvelli raunnotkunar ungmenna.
Fulltrúar Samfylkingar leggja fram viðbót við framangreinda tillögu þannig að aftan við tillöguna bætist eftirfarandi:
"Nýtt fyrirkomulag taki gildi eigi síðar 1. júní næstkomandi."
Framkomin viðbót við tillögu er felld þar sem þrír fulltrúar meirihluta greiða atkvæði gegn breytingunni. Fulltrúar Samfylkingar greiða atkvæði með breytingunni.
Bæjarráð samþykkir óbreytta tillögu með þremur atkvæðum frá fulltrúum meirihluta. Fulltrúar Samfylkingar sitja hjá.
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúar Samfylkingarinnar geta ekki greitt fyrirliggjandi tillögu meirihlutans atkvæði sitt, þar sem tillagan er ótímasett og er bundin skilyrðum. Hins vegar er fagnaðarefni að loksins samþykkir meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins efnislega fyrirliggjandi tillögu Samfylkingarinnar um að frítt verði í strætó fyrir hafnfirsk ungmenni. En vill áfram flækja málið með tæknilegum tafaleikjum. En dropinn holar steininn.
Fulltrúar meirihlutans furða sig á því að fulltrúar Samfylkingarinnar geti ekki samþykkt tillögu meirihlutans sem fjallar um frítt í strætó fyrir börn og ungmenni. Hér er um að ræða skynsama leið að málinu. Meirihlutinn hefur ávallt verið hlynntur því að frítt skuli verða í strætó fyrir börn og ungmenni og leitað leiða til að gera það á skynsaman og ábyrgan hátt. Fulltrúar Samfylkarinnar vilja heldur æða fram í málinu og geta síðan ekki samþykkt góða leið að málinu, einfaldlega af því að hún kemur frá meirihlutanum.
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun: Bókun meirihlutans er með eindæmum og málinu fullkomlega snúið á hvolf - eggið farið að kenna hænunni. Loksins er meirihlutinn kominn til byggða og þorir ekki öðru en að lúta leiðsögn jafnaðarmanna um meginatriði málsins - frítt í strætó fyrir hafnfirsk ungmenni. En þorir ekki að taka skrefið til fulls og ýtir málinu áfram í ótímasetta bið og í hendur komandi meirihluta.
| | |
|
| 9. 2206161 - Íbúðir fyrir eldra fólk | | Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá og óska eftir upplýsingum um útfærslu á þeirri vinnu sem boðuð er af meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks m.a. um greiningu á raunþörf og uppsafnaðri þörf vegna lífsgæðaíbúða. Ítrekuð er í þriðja skipti sú ósk að þeir þrír fulltrúar sem sátu í starfshópi um málið mæti til fundarins. | Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi bókun:
Samfylkingin hefur allt kjörtímabilið ýtt á eftir aðgerðum í húsnæðismálum eldra fólks í bænum. Að frumkvæði jafnaðarfólks var settur á fót starfshópur um uppbyggingu íbúða fyrir eldra fólk. Á grundvelli niðurstaðna og tillagna starfshópsins hefur Samfylkingin lagt til að hafinn verði undirbúningur að uppbyggingu lífsgæðaíbúða á Sólvangssvæðinu. Meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks lagði til í upphafi kjörtímabilsins að uppbygging íbúða fyrir eldri íbúa yrði sett í forgang og hraðað og var Sólvangssvæðið sérstaklega nefnt í því sambandi. Þess vegna er ótrúlegt að við lok kjörtímabilsins skuli meirihlutinn ekki samþykkja tillögu Samfylkingarinnar um að hefja undirbúning framkvæmda á íbúðum fyrir eldra fólk á Sólvangssvæðinu en ætlar þess í stað, undir lok kjörtímabilsins, að fara í greiningarvinnu þar sem skoða eigi raunþörf og uppsafnaða þörf. Í ljósi þessa aðgerðaleysis meirihlutans á kjörtímabilinu þarf ekki að koma á óvart að hann hafi kosið að beita meirihlutavaldi til þess að henda þessu máli af dagskrá síðasta bæjarstjórnarfundar eins og tillögunni um frítt í strætó fyrir 12-17 ára. Enn og aftur fara fulltrúar Samfylkingarinnar fram á það að fulltrúar starfshóps um uppbyggingu íbúða fyrir eldri íbúa mæti á fund bæjarráðs. Af því hefur því miður ekki enn orðið. Enn fremur er upplýst að málið fari fyrir fjölskylduráð eftir páska og að unnið sé að 10 ára áætlun.
| | |
|
| 10. 1809298 - Tækniskólinn, nýbygging, erindi | | Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá. Umræður um stöðu málsins, m.a. um stöðu uppkaupa á lóðum vegna nýs Tækniskóla á Suðurhöfn og aðrar fjárhagslegar skuldbindingar Hafnarfjarðar vegna verkefnisins.Óskað upplýsinga frá bæjarstjóra. | | |
|
| 11. 2512324 - Álit umboðsmanns, fallið frá ráðningu | | Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá. Óskað er eftir að svör við fyrirspurnum Samfylkingarinnar frá tveimur síðustu fundum bæjarráðs verði lögð fram. Þar verði gerð verði grein fyrir málavöxtum er varðar þau þrjú mál, þar sem hæstar starfslokagreiðslur voru inntar af hendi. Ósk um skrifleg svör. | | |
|
| 12. 2603611 - Hvaleyrarbraut 32, Björgunarsveit Hafnarfjarðar húsnæðismál | | Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir upplýsingum um stöðu viðræðna við björgunarsveitina vegna húsnæðismála félagsins. | | Upplýst um stöðu málsins. | | |
|
| |
| 13. 2601550 - Samband íslenskra sveitarfélaga, fundargerðir 2026 | | Lögð fram fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 20.mars sl. | | |
|
| 14. 2601553 - Sorpa bs., fundargerðir 2026 | | Lögð fram fundargerð stjórnar SORPU bs. frá 11. febrúar sl. | | |
|