Til bakaPrenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 67

Haldinn Fundarsalurinn Ásfjall, Norðurhellu 2,
19.06.2025 og hófst hann kl. 13:00
Fundinn sátu: Hildur Bjarnadóttir byggingafulltrúi,
Eva Ósk Guðmundsdóttir aðstoðarmaður byggingafulltrúa,
Anne Steinbrenner starfsmaður,
Fundargerð ritaði: Hildur Bjarnadóttir, byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
A-hluti byggingarleyfa
1. 2506261 - Virkisás 1, byggingarleyfi
Smári Björnsson fh. lóðarhafa sækir 11.6.2025 um að byggja einbýlishús á einni hæð, með innbyggðum bílskúr.
Erindið er samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
2. 2505368 - Vörðuás 18, byggingarleyfi
Gunnar Páll Kristinsson f.h. lóðarhafa sækir 19.05.2025 um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi á tveimur hæðum með innbyggðri bílageymslu.
Erindið er samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
3. 2505111 - Hryggjarás 14, byggingarleyfi
Róbert Svavarsson f.h. lóðarhafa sækir 08.05.2025 um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi á einni hæð. Byggingin mun verða staðsteypt, einangruð að utanverðu og klædd af með álklæðningu.
Erindið er samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
4. 2506264 - Mávahraun 16, breyting
Sigríður Arngrímsdóttir f.h. lóðrahafa sækir 12.06.2025 um breytingu innanhúss: breyting á hurð úr hjónaherbergi í bílskúr.
Erindið er samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
5. 2504481 - Fjarðargata 13-15, breyting
Andri Klausen f.h. lóðarhafa sækir 14.04.2025 um að setja svalalokanir á inndregnar svalir íbúðarhluta og breytingu á innra fyrirkomulagi verslunarmiðstöðvar á 1. og 2. hæð.
Erindið er samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
6. 2505495 - Dverghella 3, byggingarleyfi
Sigríður Ólafsdóttir f.h. lóðarhafa sækir 22.05.2025 um leyfi fyrir byggingu atvinnuhúsnæðis sem mun hýsa geymslur/léttan iðnað. Alls verða í húsinu 19 aðskilin rými, ýmist á einni hæð eða með millilofti. Húsið er byggt úr límtré og PIR einingum.
Erindið er samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
E-hluti frestað
7. 2506202 - Jötnahella 2, byggingarleyfi
Viktor Þór Sigurðsson f.h. lóðarhafa sækir 10.06.2025 um byggingarleyfi fyrir iðnaðarhúsnæði.
Erindi frestað gögn ófullnægjandi.
F-hluti önnur mál
8. 1612230 - Suðurhella 6,dagsektir, rými 0110, vegna millilofts
Tekin fyrir að nýju óleyfisframkvæmd, milliloft, í rými 0110. Eiganda hafa verið send bréf vegna þessa og ekki hefur verið brugðist við.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa samþykkir að leggja dagsektir 20.000 kr. pr. dag, á eiganda rýmis 0110 að Suðurhellu 6, frá og með 3. júlí 2025 skv. heimild 56. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010.
9. 1610386 - Suðurhella 6, dagsektir, milliloft reist án leyfis 0109.
Tekin fyrir að nýju óleyfisframkvæmd, milliloft, í rými 0109. Eiganda hafa verið send bréf vegna þessa og ekki hefur verið brugðist við.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa samþykkir að leggja dagsektir 20.000 kr. pr. dag, á eiganda rýmis 0109 að Suðurhellu 6, frá og með 3. júlí 2025 skv. heimild 56. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14:00 

Til bakaPrenta