Til bakaPrenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 74

Haldinn Fundarsalurinn Ásfjall, Norðurhellu 2,
04.09.2025 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Hildur Bjarnadóttir byggingafulltrúi,
Eva Ósk Guðmundsdóttir aðstoðarmaður byggingafulltrúa,
Anne Steinbrenner starfsmaður,
Aleksandra Julia Wegrzyniak starfsmaður,
Fundargerð ritaði: Aleksandra Wegrzyniak, þjónustufulltrúi


Dagskrá: 
A-hluti byggingarleyfa
2. 2509151 - Hjallabraut 49A, 49B, 49C, breytingar
Bjarni Snæbjörnsson f.h. lóðarhafa sækir 01.09.2025 um minniháttar breytingar á framkvæmdatíma.
Erindið er samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
3. 2506202 - Jötnahella 2, byggingarleyfi
Viktor Þór Sigurðsson f.h. lóðarhafa sækir 10.06.2025 um byggingarleyfi fyrir iðnaðarhúsnæði.
Erindið er samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
4. 2508442 - Dofrahella 4, reyndarteikningar
Jón Grétar Magnússon, f.h. lóðarhafa, leggur 26.08.2025 inn reyndarteikningar vegna lokaúttektar. Um er að ræða breytingar á áður samþykktu byggingarleyfi.
Erindið er samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
5. 2507340 - Dalshraun 8, viðbygging
Haraldur Ingvarsson f.h. lóðarhafa sækir 28.07.2025 um leyfi til að byggja viðbyggingu vestan við núverandi hús, bak við húsið. Um er að ræða stálgrindarbygging sem hýsir bílaþvottastöð.
Erindið er samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
6. 2506148 - Gullhella 2, breyting
Hákon Ingi Sveinbjörnsson f.h. lóðarhafa leggur 04.06.2025 inn uppfærða aðaluppdrætti á byggingarleyfi.
Erindið er samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
7. 2508418 - Fagrihvammur 3, stoðveggur
Eggert Guðmundsson f.h. lóðarhafa sækir 26.08.2025 um leyfi fyrir stoðveggi á lóðarmörkum og steypt bílaplan.
Erindið er samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
16. 2505598 - Sléttuhlíð B0, breyting á deiliskipulagi
Gunnar Logi Gunnarsson f.h. lóðarhafa sækir 27.05.2025 um óverulega breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felst á skilmálum í kafla 3.3 þar sem bætt er við nýtt ákvæði er varðar einstaka lóð B-0. Þar kemur fram að heimilt sé að koma fyrir aðkomu að húsi í gegnum undirgöng sem liggja undir byggingu, með það að markmiði að vernda sérstakt landslag lóðarinnar.
17. 2504841 - Suðurgata 35b, breyting
Kristján Örn Kjartansson f.h. lóðarhafa sækir 30.04.2025 um breytingu á þegar samþykktum teikningum af viðbyggingu við Suðurgötu 35b. Sótt er um að hækka gólfkóta og breyta innra skipulagi viðbyggingar með tilheyrandi færslum á gluggum og hurðum.
C-hluti tilkynningarskyldar framkvæmdir
8. 2508517 - Blómvangur 20, tilkynningarskyld framkvæmd
Magnús Óskarsson sækir 29.08.2025 um breytingu innanhúss þar sem hluti af steyptum vegg á 1. hæð er fjarlægður frá gólfplötu upp á lofti. Í stað veggs koma stálbiti og stálstoðir. Greinargerð burðarþolshönnuðar fylgir umsókninni.
Erindið er samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
E-hluti frestað
1. 2508407 - Virkisás 24, byggingarleyfi
Kristján Bjarnason f.h. lóðarhafa sækir um að byggja steinsteypt einbýlishús á tveimur hæðum.
Erindi frestað, gögn ófullnægjandi.
9. 2508504 - Álhella 3, MHL.03, byggingarheimild
Hlynur Axelsson f.h. lóðarhafa leggur 28.08.2025 inn reyndarteikningu og breytingu á kaldri stálgrindar vélaskemmu, sem var reist sem tjald árið 2023 á stöðuleyfi. Breytingin felst í því að tjaldið verður fjarlægt og skemman klædd að utan með gráu bárujárni.
Erindi frestað, gögn ófullnægjandi.
10. 2508223 - Hryggjarás 23, byggingarleyfi
Björgvin Jónsson f.h. lóðarhafa sækir 18.08.2025 um byggingarleyfi fyrir einbýlishús á tveimur hæðum og kalda garðáhaldageymslu (smáhýsi).
Erindi frestað, gögn ófullnægjandi.
11. 2508519 - Linnetsstígur 6, breyting
Sveinn Bjarki Þórarinsson f.h. lóðarhafa sækir 29.08.2025 um nýja tveggja hæða viðbyggingu vestan við upprunalegt hús og endurgerð og stækkun á viðbyggingu austan við upprunalegt hús. Ný viðbygging er steinsteypt og þjónar sem stækkun á samkomusal á efri hæð og sem skrifstofur kirkjunnar á þeirri neðri. Endurgerð viðbygging að austan þjónar sem tröppuhús og forrými lyftu. Að utan verður skipt um allar klæðningar og húsinu.
Erindi frestað, gögn ófullnægjandi.
12. 2508520 - Hryggjarás 4, byggingarleyfi
Valdimar Gunnarsson, f.h. lóðarhafa, sækir 29.08.2025 um byggingarleyfi fyrir einbýlishús á einni hæð með innbyggðri bílgeymslu. Húsið er með steyptum undirstöðum og botnplötu, en veggir og þak úr timbri.
Erindi frestað, gögn ófullnægjandi.
13. 2508328 - Kaplahraun 24, byggingarleyfi
Jón Ólafur Ólafsson f.h. HS-veitna sækir 21.08.2025 um leyfi fyrir aðveitustöð veitna. Byggingin er raforkudreifistöð sem sér öðrum dreifistöðvum í bæjarfélaginu fyrir raforku.
Erindi frestað, gögn ófullnægjandi.
14. 2509137 - Jötnahella 5, byggingarleyfi
Anton Svanur Guðmundsson f.h. lóðarhafa sækir 01.09.2025 um byggingarleyfi fyrir atvinnuhúsnæði. Byggingin er 1-2 hæða stálgrindarhús sem verður notað fyrir skrifstofur og léttan iðnað.
Erindi frestað, gögn ófullnægjandi.
F-hluti önnur mál
15. 2509338 - Fjóluhlíð 11, beiðni um aðgerðir byggingarfulltrúa
Sigurður Valgeirsson leggur 25.8.2025 inn beiðni um að byggingarfulltrúi beiti sér fyrir því að hæðarlega lóðar Furuhlíðar 10 verði lagfærð.
Erindinu er synjað. Um er að ræða teikningar sem voru samþykktar á árunum 1993-1997 og ekki hafa verið gerðar athugasemdir við lóðarfrágang fyrr en nú. Af þeim sökum er ekki hægt að krefjast aðgerða byggingarfulltrúa vegna þessa.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 08:45 

Til bakaPrenta