Til bakaPrenta
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 104

Haldinn Fundarsalurinn Ásfjall, Norðurhellu 2,
15.04.2026 og hófst hann kl. 10:00
Fundinn sátu: Lilja Grétarsdóttir skipulagsfulltrúi,
Berglind Guðmundsdóttir arkitekt,
Anna Margrét Tómasdóttir arkitekt,
Anne Steinbrenner starfsmaður,
Aleksandra Julia Wegrzyniak starfsmaður,
Fundargerð ritaði: Aleksandra Wegrzyniak, þjónustufulltrúi


Dagskrá: 
B-hluti skipulagserindi
1. 2601109 - Stapahraun 8 og 10 og Flatahraun 27, nýtt deiliskipulag
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 28.01.2026 að auglýsa nýtt deiliskipulag fyrir lóðirnar Flatahraun 27 og Stapahraun 8 og 10 í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Deiliskipulagið er á þegar byggðu athafnarsvæði Hrauns austurs og felst í að gerðir eru stærri byggingarreitir fyrir lóðirnar Flatahraun 27 og Stapahraun 8 og 10.
Tillagan var í auglýsingu frá 05.02.2026 til 23.03.2026.
Engar athugasemdir bárust en Míla og Veitur óska eftir samráði þegar til framkvæmda kemur.
Erindinu verður lokið í samræmi við skipulagslög.
Bent er á að hafa þarf samráð við veitustofnanir tengt framkvæmd, ef tilefni er til.
Stapahraun-Flatahraun slóð á skipulagsgátt.pdf
2. 2604105 - Norðurbraut 35, breyting á deiliskipulagi
Garðar Snæbjörnsson f.h. lóðarhafa sækir 10.04.2026 um breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felst í því að skilmálum vegna Norðurbrautar 35 er breytt þannig að heimilt verður að hafa 2 íbúðir í húsinu.
Erindið verður grenndarkynnt með vísan til 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Nordurbraut 35, deiliskipulagsbreyting í grennd.pdf
D-hluti fyrirspurnir
3. 2603441 - Hlíðarás 20, fyrirspurn
Hallgrímur Þór Sigurðsson leggur 18.03.2026 fram fyrirspurn varðandi byggingu sólskála að bakhlið húss. Breytingin felur í sér aukið byggingarmagn fyrir lóðina og myndi nýtingarhlutfall hækka úr 0,45 í 0,47. Jafnframt er gert ráð fyrir nýrri klæðningu á allt húsið sem hefur í för með sér að á 3 hliðum færi klæðningin ca. 75 mm út fyrir byggingarreit hússins.
Tekið er jákvætt í erindið, breyta þarf deiliskipulagi.
4. 2604097 - Klettaberg 48, fyrirspurn
Inga María Backman og Daniel Michael Gilbert leggja þann 09.04.2026 fram fyrirspurn þess efnis að setja glugga og hurðar á bílskúrshurðina.
Tekið er neikvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14.04.2026.
Klettaberg 48, umsögn skipulags.pdf
5. 2604090 - Stálhella 18, fyrirspurn
Davíð Árnason f.h. Reisingar byggingarfélags ehf. leggur þann 09.04.2026 fram fyrirspurn er varðar leyfi fyrir hækkun nýtingarhlutfalls, uppsetningu millilofta í samtals 16 geymslurýmum (4 í mhl.02 og 12 í mhl.03) þar sem hátt er til lofts. Rúmtak hússins breytist ekki.
Tekið er jákvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14.04.2026.
Stálhella 18, umsögn skipulags.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:00 

Til bakaPrenta