| |
| 1. 2208015 - Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2026-2038 | | Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar þann 22. apríl sl. var samþykkt uppfærð tillaga að aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2025-2040. Tillagan var í auglýsingu 7.5.-18.6.2026. Kynningarfundur var haldinn að Ásvöllum 20. maí sl. Athugasemdir sem bárust á kynningartíma voru lagðar fram í skipulags- og byggingarráði 23.6.2026. Farið yfir vinnu við viðbrögð við athugasemdum. Skipulagsráðgjafi mætir til fundarins. | | Skipulags- og byggingarráð þakkar skipulagsráðgjafa yfirferðina. | | |
|
| 2. 2604031 - Undirhlíðar breyting á deiliskipulag | | Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar þann 24. apríl var samykkt að auglýsa vinnslutillögu deiliskipulags Undirhlíðanámu. Tillagan er kynnt samhliða tillögu að aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2025 - 2040 m.a. til að samnýta mikilvægt samráð við Vegagerðina, Náttúruverndarstofnun, Minjastofnun Íslands, HMS og heilbrigðiseftirlitið. Með gildistöku deiliskipulagsins mun deiliskipulag fyrir Undirhlíðar, sem var samþykkt 2006 m.s. br. falla úr gildi. Vinnslutillagan var í auglýsingu 7.5.-19.6.2026. Svör við athugasemdum vinnslutillögunnar ásamt tillögu að breytingu á deiliskipulagi Undirhlíðanámu. | | Skipulags- og byggingarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Undirhlíðanámu. | | Slóð á skipulagsgátt.pdf | | Samantekt umsagna Undirhlíðar.pdf | | DSK_Undirhlíðarnáma_greinargerð.pdf | | DSK_Undirhlíðarnáma_uppdráttur.pdf | | |
|
| 3. 2306477 - Hvaleyrarholt suðaustur, Þorlákstún, Lyngbarð, deiliskipulag | Á fundi bæjarstjórnar þ. 25. mars 2026 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hvaleyrarholts suðausturs vegna Þorlákstúns. Tillagan var í auglýsingu 24.4-11.6.2026. Athugasemdir sem bárust á kynningartíma voru lagðar fram á fundi skipulags- og byggingarráðs 23.6.2026. Kynnt staða verkefnisins. | | Skipulags- og byggingarráð þakkar yfirferðina og vísar því til skipulagsráðgjafa að vinna tillöguna áfram. | | |
|
| 4. 2607215 - Hellubraut 9, breyting á deiliskipulagi | | Lögð fram umsókn Sigríðar Arngrímsdóttur f.h. lóðarhafa um breytingu á deiliskipulagi. Óskað er eftir að rífa núverandi hús og reisa nýtt hús. Ný bygging verður ein hæð ásamt kjallara sem verður að hluta til niðurgrafinn. | | Skipulags- og byggingarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að auglýsa og kynna fyrir nágrönnum tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hellubrautar 9. | | Deiliskipulagsuppdráttur - 2.pdf | | Skuggavarp uppdráttur.pdf | | |
|
| 5. 2608419 - Græn svæði í nýjum hverfum | | Tekin til umræðu græn svæði innan hverfa. | | Skipulags- og byggingarráð felur sviðinu að taka saman yfirlit yfir opin græn svæði í Áslandi, Völlunum, Skarðshlíð og Hamranesi. | | |
|
| 6. 1901181 - Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins, fundargerðir | | Lögð fram 147. fundargerð. | | Svæðisskipulagsnefnd - 147 .pdf | | |
|
| |
| 7. 2608002F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 110 | | Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar. | | https://hafnarfjordur.is/fundagerd/?meeting_id=1Nk63mYzIkWVjD0KkXJXsA1
| |
|
| 8. 2607009F - Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 116 | | Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar. | | https://hafnarfjordur.is/fundagerd/?meeting_id=7V_9esW33E6eRVZKnJO8Uw1
| |
|
| 9. 2608010F - Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 117 | | Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar. | | https://hafnarfjordur.is/fundagerd/?meeting_id=tDJU2i3JlEa7dWxziViOfg1
| |
|