Til bakaPrenta
Skipulags- og byggingarráð - 842

Haldinn Fundarsalurinn Hamarinn, Norðurhellu 2 (1. hæð),
05.02.2026 og hófst hann kl. 14:00
Fundinn sátu: Orri Björnsson formaður,
Árni Rúnar Árnason varaformaður,
Lovísa Björg Traustadóttir aðalmaður,
Stefán Már Gunnlaugsson aðalmaður,
Jón Ingi Hákonarson varamaður,
Ágúst Arnar Þráinsson varamaður,
Fundargerð ritaði: Anna María Elíasdóttir, skrifstofustjóri
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Lilja Grétarsdóttir skipulagsfulltrúi, Anna Margrét Tómasdóttir, Berglind Guðmundsdóttir, Anne Steinbrenner verkefnastjórar, Ívar Bragason bæjarlögmaður og Sigurður Haraldsson sviðsstjóri.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2601476 - Samgöngugreining á Hafnarsvæði
Lögð fram til kynningar samgöngugreining á hafnarsvæði. Skýrsluhöfundur mætir til fundarins og kynnir.
Skipulags- og byggingarráð þakkar Alberti Skarphéðinssyni fyrir kynninguna.

Jón Ingi Hákonarson varaáheyrnarfulltrúi bókar:
Staðan í samgöngumálum í kringum hafnarsvæðið er þegar slæm og virðist umferðarmagn aukast um allt að 10% á ári óháð nýrri uppbyggingu á svæðinu. Tillögur um úrbætur til að leysa áskoranir vegna uppbyggingar Tækniskóla og stórrar íbúðabyggðar á svæðinu miða við ýmsar forsendur sem bæjaryfirvöld hafa litla stjórn á, svo sem vonir um breyttar ferðavenjur nemenda, samgöngusamninga fyrirtækja og aukna starfsemi deilibílafyrirtækja. Það er ljóst að það þarf að ganga lengra í úrbótum á samgöngukerfinu og bæjaryfirvöld þurfa að beita sér af fullri hörku í kröfugerð gagnvart ríkinu, Vegagerðinni og Betri samgöngum til þess að fá fullnægjandi úrbætur áður en allar uppbyggingarhugmyndir koma til framkvæmda á svæðinu.

Fulltrúar Samfylkingarinnar þakka fyrir kynninguna á samgöngugreiningunni sem dregur upp alvarlega mynd af umferðarálaginu á svæðinu sem nú þegar er komið að þolmörkum og að fyrirhuguð uppbygging, þar á meðal nýr Tækniskóli og íbúða, mun auka álag verulega nema gripið verði til markvissa úrbóta. Nauðsynlegt er að hefja sem fyrst vinnu við rýna þær tillögur sem lagðar eru fram í skýrslunni og forgangsraða svo þær geti komið til framkvæmda hið fyrsta.
104228-SKY-001-V03 Samgöngugreining (jan 2026) með viðaukum.pdf
2. 2501113 - Suðurhöfn, breyting á deiliskipulagi
Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar þann 8. október 2025 var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi suðurhafnar vegna áforma um byggingu Tækniskóla á svæði sem afmarkast af Óseyrargötu, Fornubúðum og Cuxhavengötu. Tillagan var í kynningu 16.10-28.11.2025. Samantekt athugasemda og svör voru lögð fram á fundi skipulags- og byggingarráðs 22.1.2026.
Skipulags- og byggingarráð tekur undir svör skipulagsdeildar og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja uppfærða tillögu að breytingu á deiliskipulagi suðurhafnar og að erindinu verði lokið í samræmi við skipulagslög.

Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna uppbyggingu Tækniskólans á Suðurhöfn sem hefur alla burði til að vera lyftistöng fyrir bæjarfélagið, efla mannlíf og verk- og tæknimenntun í landinu. Einnig orðið lykilþáttur í umbreytingu Suðurhafnar til framtíðar.

Í greinargerð deiliskipulagsins er áhersla á vistvænar samgöngur, en jafnframt gert ráð fyrir verulegri aukningu bílaumferðar eða 4.500-5.500 ökutæki á sólarhring. Þessu til viðbótar eru áform um 1300 íbúða í næsta nágrenni við Óseyrarbraut og Hvaleyrarbraut eða um 3500 íbúar. Við þetta bætist umferð vegna starfsemi fyrirtækja á hafnarsvæðinu, s.s. þungaflutningar. Núverandi gatnakerfi er nú þegar komið að þolmörkum og þær fáu hugmyndir sem nefndar hafa verið til lausnar munu ekki leysa þann vanda. Fulltrúar Samfylkingarinnar kalla ákveðið eftir því að raunhæfar og gagnlegar tillögur verði lagðar fram í samgöngumálum á svæðinu og leitað samráðs við Vegagerðina.

Þá er áréttað að enn er ósamið við þrjá lóðarhafa innan svæðis Tækniskólans sbr. fyrrspurn fulltrúa Samfylkingarinnar í bæjarraáði frá 26. janúar. Hér er komin upp óvenjuleg staða þar sem skipulagið skólans er fullklárað, en samningaviðræður við lóðarhafa hafa staðið yfir í meira en 5 ár með engu árangri. Nú er nauðsynlegt að málinu verði fylgt eftir að festu svo tímaáætlanir um uppbyggingu skólans fái staðist. Í þessu sambandi minna fulltrúar Samfylkingarinnar á tillögu þess efnis að setja á fót samninganefnd þriggja kjörinna fulltrúa til þess að hraða vinnslu málsins.

112003-GRG-001-V04 DSK Suðurhöfn -v Tæknisk.pdf
D001-A Deiliskipulagsuppdráttur 16jan2026.pdf
S001-A Deiliskipulags SKÝRINGAR -16jan2026.pdf
D004 -A Skuggavarp 16jan2026.pdf
D002 -A SKILMÁLASNEIÐINGAR-16jan2026.pdf
D003-A Skuggavarp 16jan2026.pdf
3. 2601512 - Flensborgarhöfn, deiliskipulag
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Flensborgarhafnar í samræmi við breytingu á aðalskipulagi sem nú er í auglýsingu. Breytingin felst í að heimilað verði að byggja 3 hæðir og ris á svæðinu, að fallið sé frá því að á öllum jarðhæðum svæðisins skuli vera verslun og þjónusta og að leitast skuli eftir fremsta megni að tryggja sjónræn tengsl milli hafnar og nærliggjandi byggðar með sjónlínum milli húsa.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Flensborgarhafnar samhliða breytingu á aðalskipulagi og vísar erindinu til staðfestingar í bæjarstjórn.
2220-deiliskipulag-01.pdf
2220-deiliskipulag-02.pdf
2220-Greinargerð-01.pdf
4. 2512025 - Snókalönd, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Snókalanda auk umsagna Heilbrigðiseftirlits Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness og umhverfis- og veitustjóra Hafnarfjarðarbæjar. Tillagan gerir ráð fyrir nýjum byggingarreit, BR2, fyrir allt að 18 kúluhús ásamt viðbyggðu baðherbergi. Á núverandi byggingarreit, BR1, er gert ráð fyrir tveimur þjónustubyggingum til viðbótar við núverandi byggingar.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Snókalanda og vísar erindinu til staðfestingar í bæjarstjórn.
25116-Snokalond-Aurora-dskbr.pdf
Umsögn umhverfis- og veitustjóra.pdf
Snókaland - Umsögn Heilbrigðiseftirlits - Deiliskipulagsbreyting og öflun neysluvatns.pdf
5. 2601436 - Merkurgata, deiliskipulag
Umhverfis- og framkvæmdaráð vísar erindi varðandi opið svæði, malarplan við Merkurgötu, til skipulags- og byggingarráðs með beiðni um að skipulag við Merkurgötu verði endurskoðað í samræmi við óskir íbúa.
Skipulags- og byggingarráð heimilar að hafin verði vinna við breytingu á deiliskipulagi Merkurgötu, sem skilgreint er sem torg í núgildandi deiliskipulagi.
6. 2511390 - Óseyrarbraut 26, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram að nýju tillaga að breytingu á deiliskipulagi Óseyrarbrautar 26 ásamt bókun Hafnarstjórnar frá 21.1.sl. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits, aukningu nhl., hámarkshæð verði 16m, kvöð um lagnir í jörð á lóðinni aflögð, þakform verði frjálst hækkun á gólfkóta. Að öðru leyti gilda eldri skilmálar.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Óseyrarbrautar 26 og vísar erindinu til staðfestingar í bæjarstjórn.

Fulltrúar Samfylkingarinnar vísa til bókunar sinnar í Hafnarstjórn 21.1.2026.
Hafnarstjórn - 1697 (21.1.2026) - Óseyrarbraut 26, breyting á deiliskipulagi.pdf
25033 deiliskipulag Óseyrarbraut 26, breyting.pdf
7. 2208015 - Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2026-2038
Lagt fram til samþykktar í kynningu Bíla- og hjólastæðastefna Hafnarfjarðarbæjar.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að Bíla- og hjólastæðastefna Hafnarfjarðarbæjar verði auglýst sem hluti af, viðauki 06, tillögu aðalskipulags Hafnarfjarðar 2025-2040.
06_Bíla- og hjólastæðastefna.pdf
Fyrirspurnir
8. 2101532 - Skipulags- og byggingarráð, fyrirspurnir kjörinna fulltrúa
Lögð fram fyrirspurn fulltrúa Samfylkingarinnar.

Hvað hafa verið gerðar margar breytingar á aðalskipulagi Hafnarfjarðar frá samþykkt þess árið 2013?

Hvað hafa verið gerðar margar breytingar á þessu kjörtímabili, þ.e. frá júní 2022?

Hvenær er áætlað að lögð verði fram tillaga um útfærslu vaxtamarka höfuðborgarsvæðisins í Hafnarfirði sbr. samþykkt skipulags- og byggingaráðs þess efnis frá 30. október, 2026 og átti að liggja fyrir núna í janúar.
Lagt fram.
9. 2601463 - Drangsskarð 15, Hádegisskarð 24, fyrirspurn
Fyrirspurn Lárusar Kristins Ragnarssonar um fjölgun íbúða úr 7 í 8 og að fjölga bílastæðum úr 7 í 8 var vísað til skipulags- og byggingarráðs frá afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 28. janúar sl.
Meirihluti skipulags- og byggingarráðs tekur jákvætt í fyrirspurnina.
Fundargerðir
10. 2601015F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 90
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar.
11. 2601020F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 91
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar.
https://hafnarfjordur.is/fundagerd/?meeting_id=fP2dq45kOf_PhQpAYAw1
12. 2601012F - Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 95
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar.
https://hafnarfjordur.is/fundagerd/?meeting_id=XN6SeMG3Zke3M4AbrPmsA1
13. 2601018F - Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 96
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar.
https://hafnarfjordur.is/fundagerd/?meeting_id=Me1Z_d5bEeyzKTCmkdgIQ1
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:40 

Til bakaPrenta