| |
| 2. 2608196 - Fjölskyldu- og barnamálasvið - kynning á starfsemi | | Soffía Ólafsdóttir, deildarstjóri ráðgjafarteymis, mætir til fundar undir þessum lið. | | Fjölskylduráð þakkar deildarstjóra ráðgjafarteymis fyrir kynninguna. | | |
|
| |
| 1. 2602450 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2027 og 2028-2030. | | Helga Benediktsdóttir, fjármálastjóri, mætir til fundar undir þessum lið. | | Fjölskylduráð þakkar fjármálastjóra yfirferðina. | | |
|
| 3. 2512234 - Þjónustusamningur um heimsendan mat og mat í mötuneyti | | Elín Ósk Baldursdóttir, deildarstjóri og Ágúst Þór Ragnarsson, innkaupastjóri, mæta til fundar undir þessum lið. | | Lagt fram. | | |
|
| 4. 2411320 - Barnvænt samfélag, kynning, lok umsóknarferils | | Þórunn Þórarinsdóttir, verkefnastjóri Barnvæns sveitarfélags, mæti til fundar undir þessum lið. | | Fjölskylduráð þakka Þórunni Þórarinsdóttur, verkefnastjóra barnvæns sveitarfélags, fyrir kynninguna. | | Kynning fyrir ráð og nefndir haust 2026.pdf | | |
|
| 5. 2608398 - Styrkir fjölskylduráðs 2026 | | Svðsstjóri leggur fram minnisblað. | | Fjölskylduráð samþykkir að auglýsa úthlutun styrkja fjölskylduráðs. | | Auglýsing - styrkir til félagssamtaka 1.9.2026.pdf | | |
|
| 6. 2608260 - Aðgerðaráætlun Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins, 2026-2030, samvinna í þágu barna | Hanna Borg Jónsdóttir verkefnastjóri farsældarráðs mætir til fundarins.
Á fundi bæjarráðs þ. 20.ágúst var eftirfarandi tekið fyrir: 2608260 - Aðgerðaráætlun Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins, 2026-2030, samvinna í þágu barna Lagt fram til kynningar. Hanna Borg Jónsdóttir verkefnastjóri farsældarráðs mætir til fundarins. Bæjarráðs þakkar Hönnu Borg kynninguna. Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar í fjölskylduráði og fræðsluráði. Bæjarráð fagnar framlagðri aðgerðaáætlun Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins 2026-2030 og styður samþykkt hennar. Vinna í þágu barna er eitt mikilvægasta verkefni samfélagsins. Þegar börn þurfa stuðning skiptir öllu að þjónustan sé aðgengileg, að ólíkir aðilar vinni saman og að barnið og fjölskyldan þurfi ekki sjálf að rata á milli kerfa. Þess vegna eru áherslur áætlunarinnar á samþætta þjónustu, bætt upplýsingaflæði og öflugra samstarf sérstaklega mikilvægar. Við fögnum jafnframt skýrum áherslum á bætta líðan barna í skólum, öflugri forvarnir og geðrækt, sterkara samstarf heimila og skóla, aukið öryggi barna og jafnræði. Sérstaklega er mikilvægt að horfa til barna í viðkvæmri stöðu og grípa snemma inn í þegar merki eru um að barn þurfi stuðning. Það er styrkur aðgerðaáætlunarinnar að henni fylgja skilgreindar aðgerðir, ábyrgð og mælikvarðar. Nú skiptir mestu að henni verði fylgt eftir af festu. Gert er ráð fyrir árlegri framvinduskýrslu og endurskoðun aðgerða, forgangsröðunar og kostnaðaráætlunar sem við teljum mikilvægt til að tryggja að áætlunin verði lifandi verkfæri en ekki skjal sem situr uppi í hillu. Samvinna sveitarfélaga, skóla, heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu, íþróttahreyfingar, foreldra og annarra sem koma að lífi barna getur skipt sköpum. Við styðjum þessa vegferð og leggjum áherslu á að Hafnarfjörður verði áfram virkur og metnaðarfullur þátttakandi í henni. Þegar kemur að farsæld barna eigum við alltaf að leitast við að gera betur. | | Fjölskylduráð þakkar Hönnu Borg, verkefnastjóra farsældarráð fyrir kynninguna. | | Kynning fyrir fjölskylduráði Hafnarfjarðar 1.9.2026 - Aðgerðaáætlun Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins.pdf | | |
|
| |
| 7. 0701243 - Málskot | Lögð fram niðurstaða málskotsnefndar í máli nr. 26/2026. Fjölskylduráð staðfestir afgreiðslu málskotsnefndar. | | |
|