Til bakaPrenta
Hafnarstjórn - 1702

Haldinn á hafnarskrifstofu,
15.04.2026 og hófst hann kl. 10:00
Fundinn sátu: Guðmundur Fylkisson formaður,
Kristín María Thoroddsen varaformaður,
Helga Björg Loftsdóttir aðalmaður,
Tryggvi Rafnsson aðalmaður,
Sigrún Jónsdóttir áheyrnarfulltrúi,
Helena Mjöll Jóhannsdóttir varamaður,
Valdimar Víðisson bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Lúðvík Geirsson, hafnarstjóri
Til fundarins mætti Valdimar Víðisson bæjarstjóri.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2512655 - Hafnsaga 2026
Hafnarstjóri lagði fram tillögu að breyttri starfsskipan við hafnsögu hjá Hafnarfjarðarhöfn.
Hafnarstjórn samþykkir með vísan til 21. gr. b. hafnarlaga nr. 61/2003 að Bragi Finnbogason og Bergur Páll Sigurðsson verði ráðnir til að sinna hafnsögustörfum hjá Hafnarfjarðarhöfn.
Kynningar
2. 2601577 - Umhverfisuppgjör v. 2025
Lögð fram til kynningar niðurstöður sjálfbærniuppgjörs hjá Hafnarfjarðarhöfn fyrir árið 2025 unnið af Klöppum grænum lausnum hf.
Hafnarfjarðarhöfn 2025 ESG 2026-04-15.pdf
3. 1907215 - Umhverfisstefna Hafnarfjarðarhafnar
Farið yfir tillögur að endurskoðun á umhverfisstefnu Hafnarfjarðarhafnar.
4. 2603180 - Ályktun um verndun og aðgengi að strandlengju Íslands
Lögð fram til kynningar ályktun frá Siglingaþingi um verndun og aðgengi að strandlengju Íslands.
5. 2408585 - Fjárhags- og rekstraráætlun 2025
Kynntar helstu niðurstöður varðandi rekstur hafnarinnar á árinu 2025.
6. 2511136 - Farþegaskip 2026 - aðstaða á Suðurbakka
Skýrt frá undirbúningsvinnu vegna uppsetningar á þjónustuaðstöðu v. farþegaskipa við Suðurbakka og vinnu við þjónstu- og kynningarstörf á farþegaskipasvæði hafnarinnar í sumar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:00 

Til bakaPrenta