Til bakaPrenta
Bæjarráð - 3716

Haldinn í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6,
17.09.2026 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Orri Björnsson formaður,
Hildur Rós Guðbjargardóttir varaformaður,
Karólína Helga Símonardóttir aðalmaður,
Valdimar Víðisson aðalmaður,
Einar Geir Þorsteinsson aðalmaður,
Þórður Þórarinsson bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Ívar Bragason, Bæjarlögmaður


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2609177 - Árshlutareikningur 2026
Lagt fram. Helga Benediktsdóttir sviðsstjóri mætir til fundarins.
Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar og Viðreisnar, sem tók við eftir kosningarnar í vor, var í grunninn myndaður til að bæta rekstur og fjárhag Hafnarfjarðarbæjar. Við erum einbeitt í þeirri vinnu og munum af kjarki og þori takast á við þær áskoranir sem framundan eru. Það hálfsársuppgjör sem hér er lagt fram sýnir glögglega þær áskoranir sem við er að etja í rekstri sveitarfélagsins.

Á næstu vikum munu úttektir á bæði fjárhag og stjórnsýslu bæjarins klárast og verða þær nýttar sem undirstöður þeirrar vinnu sem framundan er. Traustur fjárhagur Hafnarfjarðar er grundvallarmarkmið og því munum við ná í góðu samstarfi við alla flokka og Hafnfirðinga.
Árshlutareikningur Hafnarfjarðarbæjar 30.júní 2026 (Loka 15.9.26).pdf
2. 2503049 - Brynja leigufélag ses., umsókn um stofnframlög 2025 og 2026
Lagt fram minnisblað. Helga Benediktsdóttir sviðsstjóri mætir til fundarins.
Fulltrúi Framsóknar kemur að svohljóðandi bókun:

Með samþykktum stofnframlögum er verið að fjölga íbúðum fyrir öryrkja í Hafnarfirði og um leið skapa fleiri möguleika fyrir fólk sem þarf á öruggu og viðeigandi húsnæði að halda. Nú þegar hafa fjórar íbúðir verið keyptar af þeim sextán sem samþykkt stofnframlög ná til og mikilvægt er að verkefnið haldi áfram af krafti.

Þetta samstarf sýnir vel hversu miklu við getum áorkað þegar sveitarfélagið vinnur með öflugum óhagnaðardrifnum aðilum að húsnæðismálum. Ávinningurinn er margþættur. Nýjum íbúðum er bætt við, fleiri Hafnfirðingar fá húsnæðisúrræði við sitt hæfi og um leið geta losnað félagslegar íbúðir hjá bænum sem nýtast öðrum sem bíða eftir húsnæði. Það er því full ástæða til að halda áfram á þessari leið. Þörfin fyrir fjölbreytt og örugg húsnæðisúrræði er mikil og við eigum að vera óhrædd við að nýta fleiri slíkar leiðir til að mæta henni.

Framsókn telur mikilvægt að Hafnarfjarðarbær haldi áfram að leita markvisst að samstarfi við Brynju og aðra sambærilega aðila.
Markmiðið á að vera skýrt en það er að fleiri Hafnfirðingar hafi aðgang að öruggu og hentugu húsnæði.
Minnisblað til bæjarráðs varðandi nýtingu Brynju leigufélags ses. á samþykktum stofnframlögum.pdf
3. 1701030 - Matsnefnd, stofnframlag
Minnisblað frá matsnefnd um stofnframlög lagt fram til kynningar. Helga Benediktsdóttir sviðsstjóri mætir til fundarins.
Húsnæðisskrifstofa Hafnarfjarðar - Eftirlit vegna stofnframlaga - Ágúst 2025.pdf
4. 1809298 - Tækniskólinn, nýbygging, erindi
Til umræðu
5. 2609215 - Þróun og úthlutun lóðar fyrir tímabundna búsetu, samkomulag.
Þróun og úthlutun lóðar fyrir tímabundna búsetu, samkomulag.
Meirihluti bæjarráðs samþykkir með fjórum atkvæðum gegn einu frá fulltrúa Miðflokks fyrirliggjandi samkomulag og felur bæjarstjóra að undirrita samkomulagið sem verður svo sent bæjarstjórn til endanlegrar staðfestingar.

Bókun fulltrúa Miðflokksins:

Samkomulagið vekur fleiri spurningar en það svarar. Hafnarfjarðarbær skuldbindur sig til að úthluta tilteknu einkahlutafélagi lóðum á um tíu hektara svæði undir 260 íbúðareiningar fyrir starfsmenn fyrirtækja í verkefnatengdri vinnu. Búsetan verður bundin við vinnusamband, fjölskyldubúseta er ekki fyrirhuguð og húsnæðið verður utan hins almenna leigumarkaðar.
Veruleg hætta er á að slíkt starfsmannahverfi verði einsleitt og félagslega einangrað frá nærsamfélaginu. Saga braggahverfanna í Reykjavík sýnir að tímabundið húsnæði getur orðið mun langlífara en upphaflega var ráðgert og skapað viðvarandi húsnæðis- og skipulagsvanda.

Þá liggur ekki fyrir fullnægjandi rökstuðningur fyrir því að einum einkaaðila sé tryggð lóðaúthlutun, undanþága frá gatnagerðar- og innviðagjöldum og skilyrtur réttur til síðari lóðaúthlutunar undir varanlega íbúðabyggð. Ekki verður heldur séð að fram hafi farið auglýsing, samanburður við aðra aðila eða sjálfstætt mat á verðmæti þeirra réttinda sem samkomulagið veitir.

Fulltrúi Miðflokksins fær ekki séð að samkomulagið sé Hafnarfjarðarbæ í hag og getur því ekki samþykkt það af sinni hálfu.



20260915_Samkomulag milli Hafnarfjarðarbæjar og Styrkás_DRÖG_hreint.pdf
6. 2608128 - Afsláttur af leikskólagjöldum
Árný Steindórsdóttir sviðsstjóri mætir til fundarins. Lagðar fram breytingar á afslætti á leikskólagjöldum.
Breytingartillaga fulltrúa Miðflokksins:
Afsláttarhlutföll sambúðarfólks verði óbreytt, 100% og 75%, og núverandi systkinaafsláttur helst óbreyttur.
Tekjuviðmið afsláttarkerfisins verði hækkuð í samræmi við breytingu vísitölu neysluverðs frá ágúst 2025. Fjármálasviði verði falið að staðfesta fjárhæðirnar áður en breytingarnar taka gildi.
Tekjuflokkarnir verði samfelldir þannig að ekkert bil myndist milli þeirra.

Bæjarráð hafnar framkominni breytingartillögu.

Fyrirliggjandi tillögur eru samþykktar óbreyttar af meirihluta bæjarráðs. Fulltrúi Miðflokks greiðir atkvæði á móti. Fulltrúi Framsóknar situr hjá.

Bókun fulltrúa Miðflokksins:

Fyrirliggjandi tillaga felur í sér verulega hækkun leikskólagjalda hjá hluta barnafjölskyldna, þótt hún sé ekki sett fram sem gjaldskrárhækkun.
Afsláttur sambúðarfólks lækkar úr 75% í 50% og úr 50% í 40%, auk þess sem systkinaafsláttur er skertur. Fyrir fjölskyldu sem fer úr 75% í 50% afslátt tvöfaldast gjaldið. Við lækkun úr 50% í 40% hækkar það um 20%.
Tekjuviðmið hafa aðeins hækkað um 6,3% frá árinu 2019 á meðan vísitala neysluverðs hefur hækkað um tæp 48%. Raunvirði viðmiðanna hefur því rýrnað um rúm 28%. Fjölskyldur missa þannig afslátt án þess að kjör þeirra hafi batnað að raunvirði.

Hækkun heimgreiðslna var eitt af stefnumálum Miðflokksins fyrir kosningar og fulltrúi Miðflokksins fagnar því að meirihlutinn hafi tekið það mál upp. Áhrif þeirrar aðgerðar verða þó minni ef leikskólagjöld annarra barnafjölskyldna eru hækkuð samtímis.

Engin gögn fylgja um fjárhagsleg áhrif breytinganna eða fjölda þeirra heimila sem verða fyrir skerðingu. Samanburður við önnur sveitarfélög nægir ekki sem rökstuðningur fyrir auknum álögum á barnafjölskyldur, sérstaklega þegar forsendur kjarasamninga hafa brugðist.
7. 2604127 - Krýsuvík, lóðafyrirkomulag
Fulltrúi Framsóknarflokksins óskar eftir málinu á dagskrá og upplýsingum um stöðu málsins og framvindu.
8. 2509575 - Bótaskylda NTÍ og áhrif 16. greinar laga nr. 55/1992.
Áminning frá NTÍ um skipulag byggðar á þekktum hættusvæðum.
Bæjarráð vísar málinu til skipulags- og byggingarráðs þar sem það skal kynnt.
Áminning til sveitarfélaga vegna bréfs frá 10 september 2025 um 16 gr laga NTÍ.pdf
Bréf til sveitarfélaga frá NTÍ 10. september 2025.pdf
9. 2405745 - Hvaleyrarbraut 26-30, samningur vegna uppbyggingar
Lagt fram erindi frá Fjarðarmót ehf.
Bæjarráð hafnar beiðni um niðurfellingu á gatnagerðargjaldi fyrir bílakjallara. Hluti erindis er varðar beiðni um greiðsludreifingu á gjöldum er vísað til afgreiðslu starfsmanna með hliðsjón af áður samþykktum verklagsreglum.
10. 2503513 - Straumhella 6, breyting
Lagt fram bréf Fjarðarmóta ehf. dags. 9.sept.sl.
Bæjarráð vísar framkomnu erindi til skoðunar hjá byggingarfulltrúa.
Varðandi Straumhellu 6, starfsemi og lóð.pdf
11. 2609012 - Gervigreindarstefna Hafnarfjarðarbæjar 2026
Gervigreindarstefna Hafnarfjarðarbæjar lögð fram. Árdís Ármannsdóttir sviðsstjóri þjónustu og þróunarsviðs mætir til fundarins.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi stefnu.

Fulltrúi Framsóknar leggur fram eftirfarandi bókun:

Framsókn fagnar framlagðri gervigreindarstefnu Hafnarfjarðarbæjar og þakkar starfsfólki fyrir vel unna og mikilvæga vinnu við gerð hennar.
Hröð þróun gervigreindar felur í sér mikil tækifæri fyrir sveitarfélög bæði til að styðja starfsfólk í daglegum störfum, bæta þjónustu við íbúa, nýta upplýsingar betur og auka skilvirkni. Um leið fylgja þessari þróun mikilvægar áskoranir þegar kemur að ábyrgð, persónuvernd, upplýsingaöryggi og gagnsæi. Því skiptir máli að sveitarfélagið hafi skýr viðmið um hvernig þessi tækni er nýtt.

Samþykkt stefna er þó aðeins fyrsta skrefið. Mikilvægt er að hún verði kynnt vel fyrir öllu starfsfólki Hafnarfjarðarbæjar, að starfsfólk fái viðeigandi fræðslu og stuðning og að skýrt verklag fylgi stefnunni. Jafnframt þarf að tryggja reglulega eftirfylgni og endurskoðun enda er þróunin á þessu sviði hröð.

Gervigreind mun án efa gegna sífellt stærra hlutverki í starfsemi sveitarfélaga. Verkefnið er því ekki að standa gegn þróuninni heldur að nýta þau tækifæri sem hún býður upp á með ábyrgum, öruggum og skynsamlegum hætti í þágu starfsfólks og íbúa Hafnarfjarðar.

Aðrir fulltrúar í bæjarráði taka undir bókunina.
GervigreindarstefnaHafnarfjardarbaejar17September2026.pdf
12. 2503793 - Hämeenlinna, vinabæjarmót 2026
Lagt fram bréf frá Fredriksberg um fyrirkomulag vinabæjarsamskipta. Sunna Magnúsdóttir mætir til fundarins.
Bæjarráð felur bæjastjóra að svara erindinu þar sem tekið verður neikvætt í tillögur sveitarfélagsins Fredriksberg að breytingum á vinabæjarsamstarfi.
Frá Frederiksberg_1.pdf
Frá Frederiksberg_2.pdf
Letter regarding proposed changes to the framework 12.08.26.pdf
13. 2608383 - Boð á ráðstefnu, Tartu, nóvember 2026
Lagt fram boð á ráðstefnu í tengslum við vinabæjarsamstarf. Sunna Magnúsdóttir mætir til fundarins.
Bæjarráð felur Sunnu að svara boðinu.
Invitation to a seminar.pdf
Seminar2_Topics.pdf
Invitation_Seminar.pdf
14. 2005180 - Samgöngusáttmáli
Lagt fram bréf frá Innviðaráðuneytinu dags. 11.sept. sl.
Bókun fulltrúa Miðflokksins
Fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar er enn ein rósin í hnappagat þessa verkefnis. Það er eitt verst geymda leyndarmál íslenskra stjórnmála að samgöngusáttmálinn er ófjármagnaður og byggir tilvist hans á vonum um fjárveitingar sem ekki liggja fyrir.
Samgöngusáttmálinn var fyrst undirritaður árið 2019 og endurskoðaður árið 2024. Sjö árum eftir upphaflega samninginn er lítið að sjá í Hafnarfirði. Á sama tíma og skipulag bæjarins hefur um árabil miðast við að Borgarlínan verði að veruleika og fjármögnun stærstu verkefna sáttmálans er frestað á að ráðast í enn eitt hjólastígaverkefnið. Eini sýnilegi ávinningur Hafnfirðinga af samgöngusáttmálanum til þessa hefur verið hjólastígar, á meðan brýnar framkvæmdir sem bæta umferðarflæði og leysa umferðarteppur Hafnarfjarðar sitja á hakanum.
Það stefnir því í enn eitt kjörtímabilið án teljandi samgöngubóta fyrir þann mikla fjölda Hafnfirðinga sem reiðir sig daglega á fjölskyldubílinn. Meirihluti bæjarstjórnar getur ekki endalaust falið eigið athafnaleysi í málaflokknum á bakvið ríkið eða Betri samgöngur. Fulltrúi Miðflokksins telur að Hafnarfjarðarbær eigi að taka af skarið og óska eftir viðræðum við ríkið og önnur aðildarsveitarfélög um heildarendurskoðun samgöngusáttmálans. Endurskoðunin verði byggð á tryggðri og raunhæfri fjármögnun og skýrri forgangsröðun framkvæmda sem skila Hafnfirðingum raunverulegum samgöngubótum.
Bréf - Fjárlagafrumvarp 2027 - Betri samgöngur.pdf
15. 1604079 - Húsnæðisáætlun
Lagt fram
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi húsnæðisáætlun.

Bókun fulltrúa Miðflokksins
Fulltrúi Miðflokksins leggur til að bærinn beiti sér fyrir afnámi vaxtarmarka höfuðborgarsvæðisins og tryggi aukið og fjölbreytt lóðaframboð, þar á meðal sérbýlislóðir.

Húsnæðisáætlun Hafnafjarðarkaupstaðar 2026.pdf
16. 2609023 - Hringhamar 10-14, umsókn um breytingu á stærð lóðar
Lögð fram umsókn um lóðarstækkun. Umsögn umhverfis- og skipulagssviðs liggur fyrir.
Bæjarráð samþykkir að veita lóðarstækkunina þannig að hægt sé að klára frágang milli göturýmis og lóðar. Bent er á að lóðarhafi þarf að láta gera breytingu á deiliskipulagi á sinn kostnað.
Hringhamar 10-14, stækkun lóðar.pdf
17. 2609179 - Sveitarfélög, notendaráð, lögbundin
Lagt fram.
Notendaráð sveitarfélaga.pdf
18. 2609180 - Álit um vindorkuhugmyndum í 6. áfanga rammaáætlunar
Lagt fram álit.
Lög um breytingu á ramma (vindorka og verndarflokkur), samþykkt 19.6.2026.pdf
Álit sveitarstjórna á vindorkuhugmyndum sem er til umfjöllunar í 6. áfanga rammaáætlunar.pdf
19. 2609204 - Hafnarfjarðarbær, efnahagslegur stöðuleiki, afstaða
Lagt fram bréf frá formanni VR, formanni Landsambands isl. verslunarmanna og formanni Rafiðnaðarsambandsins dags. 14.sept. sl.
Hafnarfjarðarbær.pdf
20. 2602450 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2027 og 2028-2030.
5.liður úr fundargerð bæjarstjórnar frá 9. september sl.
Fulltrúi Miðflokksins óskar eftir málinu á dagskrá.

Einar Geir Þorsteinsson tekur til máls og leggur fram svohljóðandi tillögu:

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að við gerð fjárhagsáætlunar ársins 2027 verði miðað við að almennar gjaldskrárhækkanir A-hluta Hafnarfjarðarbæjar verði ekki umfram 2,5%, í samræmi við verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands.

Lagt er fyrir bæjarráð að útfæra viðmiðið nánar við undirbúning fjárhagsáætlunar og leggja fyrir bæjarstjórn yfirlit yfir fjárhagsleg áhrif þess og tillögur að því hvernig þeim verði mætt. Við þá vinnu verði sérstaklega horft til forgangsröðunar og aðhalds í rekstri og samanlagðra áhrifa gjaldskrárbreytinga á barnafjölskyldur. Teljist nauðsynlegt að víkja frá viðmiðinu vegna einstakra gjaldskráa skal leggja fram sérstakan rökstuðning fyrir því.

Markmiðið er að halda aftur af útgjöldum íbúa vegna þjónustu bæjarins og að Hafnarfjarðarbær geri það sem hann getur til að stuðla að minni verðbólguþrýstingi. Jafnframt að þessari tillögu verði vísað til bæjarráðs.

Árni Rúnar Þorvaldsson tekur til máls.

Orri Björnsson tekur til máls.

Valdimar Víðisson tekur til máls undir fundarstjórn forseta.

Bæjarstjórn samþykkir að framlagðri tillögu verði vísað til bæjarráðs.

Karólína Helga Símonardóttir kemur að svohljóðandi bókun:

Meirihluti bæjarstjórnar tekur undir mikilvægi þess að sýna hófsemi við ákvörðun gjaldskráa sveitarfélagsins. Heimili og fyrirtæki hafa á undanförnum árum þurft að takast á við miklar verðlags- og vaxtahækkanir og það er sameiginlegt verkefni okkar allra að gæta að því að kostnaðarauki hins opinbera leggist ekki óþarflega á íbúa.

Ábyrg fjármálastjórn felst þó ekki eingöngu í því að halda aftur af gjaldskrárhækkunum heldur einnig í því að tryggja skilvirkan og traustan rekstur. Þess vegna er nú unnið að ítarlegri rekstrarúttekt á starfsemi bæjarins. Meirihlutinn bindur vonir við að niðurstöður hennar liggi fyrir sem fyrst og muni nýtast til að finna raunveruleg tækifæri til hagræðingar og bæta nýtingu fjármuna, í samræmi við það markmið sem sett er fram í málefnasamningi meirihlutans um traustan rekstur og sterka fjárhagsstöðu Hafnarfjarðar.

Jafnframt er skýr stefna meirihlutans að bæta fjárhagsstöðu bæjarins án þess að skerða þjónustu við íbúa. Útsvar verður ekki hækkað á kjörtímabilinu og fasteignagjöld munu ekki hækka umfram verðlag.
Meirihlutinn mun því halda áfram að leita allra leiða til hagræðingar og forgangsraða fjármunum af ábyrgð. Markmiðið er að halda álögum á íbúa í hófi, standa vörð um öfluga grunnþjónustu og tryggja að Hafnarfjörður byggi upp traustan og sjálfbæran rekstur til framtíðar.
Bæjarráð vísar málinu til vinnu við fjárhagsáætlun.
Fundargerðir
21. 2601467 - Framkvæmdahópur um uppbyggingu golfvallar
Lögð fram fundargerð framkvæmdahóps um uppbyggingu golfvallar frá 7.september sl.
4. fundur framkvæmdahóps um golfvöll.pdf
22. 2601493 - Miðbær starfshópur
Lagðar fram fundargerðir starfshópsins frá 28.apr., 27.maí og 4.júní sl. ásamt skýrslu starfshópsins.
9. fundur starfshóps um miðbæ Hafnarfjarðar 280426.pdf
10. fundur starfshóps um miðbæ Hafnarfjarðar 270526.pdf
11. fundur starfshóps um miðbæ Hafnarfjarðar 040626.pdf
23. 2608023F - Hafnarstjórn - 1707
Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 2. september sl.
24. 2601554 - Heilbrigðiseftirlit, fundargerðir 2026
Lögð fram fundargerð heilbrigðisnefndar frá 2.september sl.
25. 2601550 - Samband íslenskra sveitarfélaga, fundargerðir 2026
Lögð fram fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 28.ágúst sl.
26. 2010357 - Samtök orkusveitarfélaga, fundargerðir
Lagðar fram fundargerðir orkusveitarfélaga frá 27.april, 18.júní, 7. og 21. ágúst sl.
27. 2601553 - Sorpa bs., fundargerðir 2026
Lagðar fram fundargerðir stjórnar SORPU bs. frá 24.ágúst og 11.september sl.
28. 1909104 - SORPA bs, eigendafundir, fundargerðir
Lögð fram fundargerð 56. eigendafundar Sorpu bs. frá 7.sepember sl.
29. 2601435 - Stjórn SSH, fundargerðir 2026
Lögð fram fundargerð stjórnar SSH frá 7.september sl.
30. 2601552 - Strætó bs, fundargerðir 2026
Lögð fram fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 28.ágúst sl.
31. 1904277 - Strætó bs., eigendafundir, fundargerðir
Lögð fram fundargerð 56. eigendafundar Strætó bs. frá 7. september sl.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:52 

Til bakaPrenta