Til bakaPrenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 109

Haldinn Fundarsalurinn Ásfjall, Norðurhellu 2,
27.07.2026 og hófst hann kl. 09:00
Fundinn sátu: Hildur Bjarnadóttir byggingafulltrúi,
Anna Margrét Tómasdóttir arkitekt,
Berglind Guðmundsdóttir arkitekt,
Anne Steinbrenner starfsmaður,
Fundargerð ritaði: Aleksandra Wegrzyniak, þjónustufulltrúi


Dagskrá: 
A-hluti byggingarleyfa
1. 2607282 - Drangahraun 2, reyndarteikningar
Helgi Mar Hallgrímsson f.h. lóðarhafa leggur 23.07.2026 inn reyndarteikningar vegna þegar samþykkts máls. Um er að ræða minniháttar tilfærslur og útfærslubreytingar innanhúss.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
2. 2606752 - Brunnás 29, byggingarleyfi
Kristinn Ragnarsson f.h. lóðarhafa sækir þann 30.06.2026 um leyfi fyrir tvílyft einbýlishús með innbyggðum bílskúr.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
3. 2606755 - Axlarás 21, breyting
Axel Kaaber f.h. lóðarhafa sækir 30.06.2026 um minniháttar breytingar á þegar samþykktu byggingarleyfi. Byggingarlýsing á uppbyggingu þakvirkis uppfærð, hurðargat á steyptum vegg inn í herbergi á jarðhæð fært til.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
4. 2607005 - Ölduslóð 14, reyndarteikningar
Friðrik Friðriksson f.h. lóðarhafa leggur þann 01.07.2026 inn reyndarteikningar af kjallara vegna þeirra breytinga sem hafa verið gerðar á húsnæðinu frá samþykktum teikningum. Innra skipulagi sameiginlegs rýmis er breytt.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
5. 2605079 - Vörðuás 15, byggingarleyfi
Sveinn Aron Sveinsson sækir 04.05.2026 um leyfi til að byggja einbýlishús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
6. 2605611 - Steinholt 1, viðbygging
Snorri Steinn Þórðarson f.h. lóðarhafa sækir þann 29.05.2026 um viðbyggingu við Golfskála Keilis ásamt sjálfstæðu geymsluhúsi. Einnig eru fyrirhugaðar breytingar á innra rými núverandi skála.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
7. 2606611 - Stapahraun 8, byggingarleyfi, viðbygging
Snorri Steinn Þórðarson f.h. lóðarhafa sækir 22.06.2026 um heimild fyrir stækkun á núverandi húsnæði.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
8. 2602261 - Sólvangsvegur 2, breyting
Jón Þór Þorvaldsson f.h. lóðarhafa sækir 12.02.2026 um breytingu í eldri hluta Sólvangs. Sótt er um að breyta núverandi setustofum á 3. og 4. hæð í herbergi og loka svölum á vesturhlið.
Byggingaráform eru samþykkt í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:45 

Til bakaPrenta