| |
| 1. 2310763 - Starfshópur um framtíðarsýn í málefnum fatlaðs fólks | | Lögð fram skýrsla starfshóps um framtíðarsýn í málefnum fatlaðs fólks. Linda Hrönn Þórisdóttir mætir til fundar undir þessum lið. | Fjölskylduráð þakkar Lindu Hrönn Þórisdóttur fyrir kynninguna. Fjölskylduráð vísar skýrslu starfshóps um framtíðarsýn í málefnum fatlaðs fólks til frekari úrvinnslu á fjölskyldu- og barnamálasviði.
| | Skýrsla starfshóps um framtíðarsýn í málefnum fatlaðs fólks.pdf | | |
|
| 2. 2403403 - Barnavernd - staða mála | | Kolbrún Þorkelsdóttir, deildarstjóri barnaverndar, og Hrafnhildur Ágústsdóttir, lögfræðingur, mæta til fundar undir þessum lið. | Fjölskylduráð óskar eftir að teknar verði saman upplýsingar um fjölda fóstursamninga hjá sveitarfélaginu.
| | |
|
| 3. 2506556 - Heimahreyfing | | Lagt fram tilboð frá Sóltúni öldrunarþjónustu um heimahreyfingu. | Fjölskylduráð samþykkir fyrirliggjandi tilboð frá Sóltúni öldrunarþjónustu og felur sviðsstjóra að vinna málið áfram. Um er að ræða afar spennandi tilraunaverkefni. Verkefnið verði svo endurmetið eftir eitt ár.
| | |
|
| 4. 2410529 - Samstarf um heilsueflingu 65 | | Lögð fram beiðni um stækkun á samningi. | Fjölskylduráð samþykkir stækkun á samningi við Hress heilsueflingu fyrir 65 ára og eldri úr 50 í 100. Verkefnið verði svo endurmetið eftir eitt ár.
| | |
|
| 5. 24011080 - Reglur um úthlutun á félagslegu húsnæði | | Lagt fram til umræðu. | | Lagt fram til kynningar. | | |
|
| 6. 2602248 - Miðlægt bráða- og viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna | Drög að samstarfssamningi um miðlægt bráða- og viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna lagður fram til umræðu og afgreiðslu. Drög að verklagsreglum bráða- og viðbragðsteymis og stýrihóps er lagður fram til umræðu og afgreiðslu. Önnur gögn eru lögð fram til kynningar. | Fjölskylduráð samþykkir samstarfssamning um miðlægt bráða-og viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna. Fjölskylduráð samþykkir jafnframt verklagsreglur bráða- og viðbragðsteymis og stýrihóps.
Sviðsstjóra falið að vinna málið áfram. | | 1. Drög að samstarfssamningi sveitarfélaganna um miðlægt bráða- og viðbragðsteymi_.pdf | | 2. Drög að verklagsreglum bráða- og viðbragðsteymis og stýrihóps (2).pdf | | 3. Samstarfsyfirlýsing vegna þátttöku BOFS og Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu_.pdf | | 4. Styrktarsamningur mennta- og barnamálaráðuneytisins og Reykjavíkurborgar_.pdf | | 5. Umsókn um styrk til sveitarfélaga í þágu farsældar barna_.pdf | | Fylgibréf HFJ - viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna.pdf | | |
|
| 7. 2312015 - Aðstoð við ungt fólk sem ekki er í vinnu, námi eða starfsþjálfun | | Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá sbr. bókun fjölskylduráðs á síðasta fundi. | | Fulltrúar Samfylkingarinnar þakka framlagðar upplýsingar á fundinum varðandi þá vinnu sem er í gangi við gerð minnisblaðs um stöðu málsins. Við ítrekum einnig fyrirspurnir okkar frá 11. mars og 16. sept. á síðasta ári um málið. | | |
|
| 8. 2501737 - Verkefnastjóri fjölmenningar | | Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá. Fyrirspurn lögð fram. | Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja fram eftirfarandi fyrirspurn:
Í svörum við fyrirspurn fulltrúa Samfylkingarinnar sem lögð voru fram á fundi fjölskylduráðs þann 25. nóvember sl. kom fram að Hreiðrið væri nýtt ungmennahús í Nýsköpunarsetrinu fyrir öll ungmenni á aldrinum 16-25 ára. Þar sagði einnig að verkefnastjóri fjölmenningar ásamt verkefnastjóra Hreiðursins ynni að því í samstarfi við Rauða krossinn að koma á og starfrækja ungmennahús í húsinu sem styður sérstaklega við þátttöku ungmenna með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn.
Óskað er upplýsinga um stöðu þessa verkefnis.
Í fyrrnefndum svörum frá 25. nóvember sl. kom einnig fram að stefnt væri að endurvekja fjölmenningarráð og að fundargerðir ráðsins myndu berast til fjölskylduráðs í kjölfar funda. Því er spurt hvort fjölmenningarráð hafi verið boðað til fundar? Ef það hefur ekki verið boðað til fundar þá er óskað upplýsinga um það hvenær það standi til. | | |
|
| 9. 2504679 - Þjónustukannanir á fjölskyldu- og barnamálasviði | | Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá og óska eftir upplýsingum um stöðu málsins. | | Fulltrúar Samfylkingarinnar þakka fyrir veittar upplýsingar á fundinum. | | |
|
| 10. 2206161 - Íbúðir fyrir eldra fólk | | Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá og óska eftir stöðu eftirfylgni við niðurstöður starfshóps sem skilaði niðurstöðum til fjölskylduráðs þann 25. nóv. sl. | | Fjölskylduráð óskar eftir að tekið verði saman minnisblað um málið. | | |
|
| 11. 2412667 - Aðgengi fólks með fötlun að almennum vinnumarkaði | Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir málinu á dagskrá.
Á fundi bæjarstjórnar þann 3. des. 2025 var eftirfarandi tillaga Samfylkingarinnar samþykkt: Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að fela fjölskylduráði að móta leiðir, í samstarfi við atvinnulífið í bænum, til þess að styðja við fyrirtæki í bæjarfélaginu til þess að auka aðgengi og ýta undir atvinnuþátttöku fólks með fötlun á almennum vinnumarkaði.
Greinargerð: Atvinnuþátttaka fólks með fötlun er mikilvægt jafnréttismál og almennur vinnumarkaður er ekki nógu aðgengilegur fötluðu fólki. Fyrir liggur að slæmt aðgengi í atvinnuhúsnæði dregur úr þátttöku fólks með fötlun á almennum vinnumarkaði. Úr því þarf að bæta. Því er vert að skoða hvort styðja skuli fyrirtæki til breytinga á atvinnuhúsnæði.
Fólk með fötlun er ólíklegra til að vera ráðið til starfa en ófatlað fólk og því standa ekki nægjanlega fjölbreytt störf til boða. Í 27. grein samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sem Alþingi að frumkvæði ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur hefur nú lögfest, er því lýst hvernig fólk á rétt til vinnu án aðgreiningar. Af þessum sökum verða stjórnvöld að leita leiða til þess að auka atvinnuþátttöku fatlaðs fólks og þar hefur Hafnarfjörður sem þriðja stærsta sveitarfélag landsins mikilvægu hlutverki að gegna. Þess vegna er brýnt að setja þessi mál í markvissan farveg innan stjórnsýslu sveitarfélagsins. | | Fjölskylduráð óskar eftir kynningu á starfsemi Miðstöðvarinnar og að tekið verði saman minnisblað um atvinnuþátttöku fólks með fötlun. | | |
|
| |
| 12. 0701243 - Málskot | Lögð fram niðurstaða málskotsnefndar í máli nr. 5/2026. Fjölskylduráð staðfestir afgreiðslu málskotsnefndar. | | |
|