Til bakaPrenta
Umhverfis- og framkvæmdaráð - 497

Haldinn Fundarsalurinn Hamarinn, Norðurhellu 2 (1. hæð),
30.09.2026 og hófst hann kl. 08:45
Fundinn sátu: Hildur Rós Guðbjargardóttir formaður,
Óli Örn Eiríksson varaformaður,
Arnhildur Ásdís Kolbeins aðalmaður,
Árni Rúnar Árnason aðalmaður,
Helga Björg Loftsdóttir aðalmaður,
Fundargerð ritaði: Anna María Elíasdóttir, skrifstofustjóri
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Guðmundur Elíasson umhverfis- og veitustjóri og Sigurður Haraldsson sviðsstjóri.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2504185 - Samþykkt um bílastæðasjóð
Hafsteinn Viktorsson forstöðumaður þjónustumiðstöðvar mætir til fundarins og fer yfir stöðu sjóðsins.
Umhverfis- og framkvæmdaráð minnir á að aðvörun/álagning er lögð á ökutæki sem er stöðvað eða lagt við eftirfarandi merki/aðstæður:

Bannað að stöðva.
Bannað að leggja.
Bannað að leggja á svæði.
Stöðvað/lagt á gangbraut eða innan 5 metra frá henni.
Stöðvað/lagt á vegamótum eða innan 5 metra frá næstu brún akbrautar á þvervegi.
Stöðvað/lagt á/við biðstöð hópbifreiða innan 15 metra frá merki.
Stöðvað/lagt á gangstétt, göngustíg, umferðareyju eða aðra svipaða staði.
Stöðvað/lagt í merktu stæði fyrir leigubifreið, vörubifreið eða hópbifreið.
Stöðvað/lagt á móti akstursstefnu.
Stöðvað/lagt í merktu stæði ætluðu fólksbifreiðum.
Stöðvað/lagt í merkt stæði ætluðu lögreglu eða sjúkrabifreið.
Lagt við vatnshana slökkviliðs.
Brot sbr. d- og e- lið 1. mgr. 109. gr.
Brot á reglum um notkun stöðureita (aukastöðugjald).
Stöðvað/lagt í merktu stæði fyrir ökutæki fatlaðs fólks.
Þar sem akbraut er skipt í akreinar með óbrotinni mið- eða deililínu milli akreina eða svo nálægt slíkri línu að torveldi akstur inn á rétta akrein.
Ekki má stöðva ökutæki eða leggja: á merktu stæði ætluðu bifreið til rafhleðslu.
Ekki má leggja ökutæki: að hluta eða í heild fyrir framan innkeyrslu að húsi eða lóð.

Umhverfis- og framkvæmdaráð felur sviðinu að fara í vinnu við að útfæra tillögur og finna stað á bæjarlandi fyrir eftirvagna og tengivagna, s.s. hestaflutningavagna, hjólhýsa, tjaldvagna, dráttarkerra, báta og þess háttar tækja sem og húsbíla sem þykja valda óþægindum, óþrifnaði eða hættu og eru bönnuð á götum og almennum bifreiðastæðum. Tillögur að útfærslum verði lagðar fyrir ráðið til umræðu þegar þær liggja fyrir.
2. 2602450 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2027 og 2028-2030.
Farið yfir drög að rekstraráætlun 2027 og þær gjaldskrár sem tengjast sviðinu.
Lagt fram.
3. 2609459 - Minningarbekkir í landi Hafnarfjarðar
Lögð fram tillaga að móttöku og vinnslu umsókna um minningarbekki í landi bæjarins.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir tillögu að verklagi við móttöku og vinnslu umsókna um minningarbekki í landi bæjarins.
4. 2609295 - Bekkur til minningar um Guðnýju Ólafsdóttur og Danival Finnbogason
Lögð fram beiðni Jónínu Katrínar og Guðnýjar Hildar Danivalsdætra um leyfi til að setja upp bekk í bæjarlandi til minningar um Guðnýju Ólafsdóttur og Danival Finnbogason.
Umhverfis- og framkvæmdaráð tekur jákvætt í beiðni um bekk í bæjarlandi og leggur til að bekkurinn verði staðsettur á Víðistaðatúni. Ráðið felur sviðinu nánari útfærslu í samráði við afkomendur.
5. 2609168 - Lækurinn, hjólastígur
Tekið fyrir að nýju.
Umhverfis- og framkvæmdaráð vísar svæði 7, 8 og 9 til frekari skoðunar á sviðinu.
6. 2512663 - Reykdalsstífla, umhverfi
Tekið fyrir að nýju.
Umhverfis- og framkvæmdaráð vísar tillögum 1, 2 og 3 til umsagnar bæjarminjavarðar.
Fundargerðir
7. 2601553 - Sorpa bs., fundargerðir 2026
Lagðar fram fundargerðir stjórnar Sorpu bs. nr. 531 og 532.
Fundargerð 532. fundar stjórnar SORPU.pdf
Fundargerð 531. fundar stjórnar SORPU.pdf
8. 2601552 - Strætó bs, fundargerðir 2026
Lögð fram fundargerð stjórnar Strætó bs. nr. 426.
Fundargerð stjórnarfundar nr 426 28082026.pdf
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:44 

Til bakaPrenta