Til bakaPrenta
Hafnarstjórn - 1704

Haldinn á hafnarskrifstofu,
13.05.2026 og hófst hann kl. 10:00
Fundinn sátu: Guðmundur Fylkisson formaður,
Kristín María Thoroddsen varaformaður,
Helga Björg Loftsdóttir aðalmaður,
Tryggvi Rafnsson aðalmaður,
Lilja Guðríður Karlsdóttir varaáheyrnarfulltrúi,
Helena Mjöll Jóhannsdóttir varamaður,
Fundargerð ritaði: Lúðvík Geirsson, hafnarstjóri


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2605196 - Förgun á flotkví
Lagt fram erindi frá Vélsmiðju Orms og Víglundar ehf. þar sem óskað er eftir leyfi og samstarfi við Hafnarfjarðarhöfn til að klippa niður minni flotkví fyrirtækisins á lóð þess við Óseyrarbraut 31.
Hafnarstjórn gerir ekki athugasemd við framlagða tillögu að framkvæmd niðurrifs minni flotkvíar innan lóðarmarka Óseyrarbrautar 31. Hafnarstjórn leggur áherslu á að niðurrifið gangi eins hratt fyrir sig og kostur er og að grjótgarður verði færður í sama horf strax eftir að kvíin er komin á land.
Förguna á flotkví - 11.05.2026.pdf
Kynningar
2. 1907215 - Umhverfisstefna Hafnarfjarðarhafnar
Lögð fram til afgreiðslu endurskoðuð útfærsla á umhverfisstefnu Hafnarfjarðarhafnar.
Hafnarstjórn samþykkir fyrirliggjandi tillögu að endurskoðaðri umhverfisstefnu fyrir Hafnarfjarðarhöfn.
3. 1407063 - Norðurgarður og Norðurbakki - endurbygging
Kynnt staðan í endurbótum á Norðurgarði.
Staða framkvæmda 13. maí 2026 viðbót.pdf
4. 2601004 - Framkvæmdir á hafnarsvæðum
Hafnarstjóri fór yfir stöðu helstu framkvæmdamála á hafnarsvæðinu.
5. 2605084 - Sjómannadagurinn 2026
Farið yfir undirbúning hátíðarhalda fyrir sjómannadaginn 7. júní nk.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:00 

Til bakaPrenta