| |
| 1. 2205659 - Ráð og nefndir 2022 - 2026, kosningar | | Lögð fram bókun bæjarstjórnar frá 11.3.sl. varamaður í skipulags- og byggingarráði í stað Steinunnar Guðmundsdóttur verður Hrund Biering Valsdóttir. | | Lagt fram. | | Bæjarstjórn - 1972 (11.3.2026) - Ráð og nefndir 2022 - 2026, kosningar.pdf | | |
|
| 2. 2507285 - Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2013-2025, breyting á greinargerð vegna Flensborgarhafnar | Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 17. desember 2025 að auglýsa breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 í samræmi við 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breyting felur í sér breytingu á greinargerðar vegna Flensborgarhafnar, þar sem heimilað verður að byggja 3 hæðir og ris á svæðinu, að fallið sé frá því að á öllum jarðhæðum svæðisins skuli vera verslun og þjónusta og að leitast skuli eftir fremsta megni að tryggja sjónræn tengsl milli hafnar og nærliggjandi byggðar með sjónlínum milli húsa. Tillagan var í kynningu frá 2. febrúar til 16. mars 2026. Athugasemdir bárust. Lögð fram samantekt athugasemda og svör. | Meirihluti skipulags- og byggingarráð tekur undir svör skipulagsfulltrúa og samþykkir breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 vegna Flensborgarhafnar og vísar erindinu til staðfestingar í bæjarstjórn.
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja til að afgreiðslu fyrirliggjandi breytingu á greinargerð aðalskipulags vegna Flensborgarhafnar verði frestað þar til raunhæfar lausnir varðandi samgöngur og umferðarmál á svæðinu hafa verið tryggðar.
Samkvæmt samgöngugreiningu Eflu fyrir svæðið frá janúar 2026 er umferðarkerfið þegar komið að þolmörkum sínum. Nauðsynlegt er að taka á þeim áskorunum með heildstæðum hætti, með hliðsjón af skipulagi Suðurhafnar og fyrirhugaðri uppbyggingu við Óseyrarbraut. Um er að ræða allt að þrjú deiliskipulög sem hafa áhrif á sama samgöngukerfi og því óhjákvæmilegt að horfa á að leysa málið í heild og ekki komi til frekari tafa ef þarf að breyta skipulaginu síðar. | | Athugasemdir og svör vegna breytingar á aðalskipulagi vegna breytinga á greinargerð Flensborgarhafnar.pdf | | Aðalskipulags breyting vegna Flensborgarhafnar.pdf | | Slóð á skipulagsgátt.pdf | | |
|
| 3. 2306477 - Hvaleyrarholt suðaustur, Þorlákstún, Lyngbarð, deiliskipulag | | Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Þorlákstúns. Tillagan gerir ráð fyrir íbúðabyggð með 47 íbúðum á 46 lóðum, þar af 45 nýjum íbúðarhúsalóðum og einni lóð fyrir núverandi hús við Lyngbarð 18 sem gert er ráð fyrir að verði tvíbýli. Einnig er lagt fram minnisblað Eflu verkfræðisstofu dags. 17.03.2026 vegna hljóðvistar. | Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hvaleyrarholts suðausturs vegna Þorlákstúns og vísar erindinu til staðfestingar í bæjarstjórn.
Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna því að loksins sér fyrir endann á vinnu við deiliskipulag Þorlákstúns en það hefur staðið yfir í nær fjögur ár. Hér sem fyrr á kjörtímabilinu koma fram áherslur meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Hafnarfirði sem er að fjölga sérbýlum og einkum einbýlum, en nær eingöngu hefur verið úthlutað sérbýlishúsalóðum á þessu kjörtímabili. Slíkt húsnæði hentar ekki fyrstu kaupendum, en skortur er á hagkvæmum íbúðum fyrir þann hóp. Fram að þessu hefur núverandi meirihluti einkum verið að breyta áður samþykktu deiliskipulagi með það í huga að fækka íbúðum og þá sér í lagi fjölbýlum. Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja til að svæðið verði nýtt betur og einkum með fyrstu kaupendur í huga og ungar fjölskyldur. | | Þorlákstún deiliskipulagstillaga.pdf | | Greinargerð_Þorlákstún.pdf | | 111130_MIN_V02_Suðurbrekkureitur_deiliskipulag_hljóðvist.pdf | | |
|
| 4. 2603180 - Ályktun um verndun og aðgengi að strandlengju Íslands | | Lögð fram ályktun um verndun og aðgengi að strandlengju Íslands sem samþykkt var einróma á nýafstöðnu Siglingaþingi Siglingasambands Íslands. | | Lagt fram. | | Askorun til sveitastjórna.pdf | | |
|
| |
| 5. 2603141 - Óttarsstaðir, fyrirspurn | | Lögð fram fyrirspurn landeigenda Óttarsstaða þar sem óskað er eftir að gerð verði breyting á landnotkun á um 220 ha. svæði í aðalskipulagi Hafnarfjarðar. | | Lagt fram og vísað til umsagnar sviðsins. | | |
|
| |
| 6. 2601467 - Framkvæmdahópur um uppbyggingu golfvallar | | Lögð fram þriðja fundargerð framkvæmdahóps um uppbyggingu golfvallar ásamt frumþarfagreiningu. Fyrsta lið fundargerðarinnar er vísað til umfjöllunar skipulags- og byggingarráðs. | | Skipulags- og byggingarráð vísar beiðni framkvæmdahóps um uppbyggingu golfvallar í landi Hafnarfjarðar til endurskoðun aðalskipulags 2026-2038. Gert verði ráð fyrir að svæðið verði 265 ha, nýting 135 ha og heimilt byggingarmagn verði aukið í 15.000 fm. | | frumþarfagreining_kynning 11.03.26.pdf | | 3. fundur framkvæmdahóps um golfvöll.pdf | | |
|
| 7. 2602030F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 96 | | Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar. | | https://hafnarfjordur.is/fundagerd/?meeting_id=N4ChsD12UOKnBIJCHUHg1
| |
|
| 8. 2603008F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 97 | | Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar. | | https://hafnarfjordur.is/fundagerd/?meeting_id=RVbGo94ZrE6ErOcQe5xGow1
| |
|
| 9. 2602026F - Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 100 | | Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar. | | https://hafnarfjordur.is/fundagerd/?meeting_id=z6KrGXLvhE6sgFm9iXlVeQ1
| |
|
| 10. 2603005F - Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa - 101 | | Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar. | | https://hafnarfjordur.is/fundagerd/?meeting_id=erPVsROEpkydiQK83xNXxQ1
| |
|