Til bakaPrenta
Bæjarstjórn - 1982

Haldinn í fundarsal bæjarstjórnar Hafnarborg,
07.10.2026 og hófst hann kl. 14:00
Fundinn sátu: Kristín María Thoroddsen aðalmaður,
Viktor Pétur Finnsson aðalmaður,
Karólína Helga Símonardóttir aðalmaður,
Árni Stefán Guðjónsson aðalmaður,
Árni Rúnar Þorvaldsson aðalmaður,
Valdimar Víðisson aðalmaður,
Kolbrún Magnúsdóttir aðalmaður,
Árni Rúnar Árnason aðalmaður,
Einar Geir Þorsteinsson aðalmaður,
Guðbjörg Oddný Jónasdóttir varamaður,
Elín Anna Baldursdóttir varamaður,
Sigurður Nordal sviðsstjóri.
Fundargerð ritaði: Ívar Bragason, Ritari bæjarstjórnar og bæjarlögmaður
Vikttor Pétur Finnsson mætir til fundarins kl. 14:15.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2208015 - Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2026-2038
Til afgreiðslu.
3.liður úr fundargerð bæjarstjórnar frá 29.september sl.
1. liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 22. september sl.

Á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar þann 22. apríl sl. var samþykkt uppfærð tillaga að aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2025-2040. Tillagan var í auglýsingu 7.5.-18.6.2026. Kynningarfundur var haldinn að Ásvöllum 20. maí sl. Athugasemdir sem bárust á kynningartíma voru lagðar fram í skipulags- og byggingarráði 23.6.2026. Lögð fram viðbrögð Hafnarfjarðarbæjar við framkomnum athugasemdum ásamt uppfærðri tillögu að aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2025-2040.

Fulltrúar Viðreisnar, Sjálfstæðisflokks, Samfylkingarinnar og Framsóknar í skipulags- og byggingarráði taka undir svör við athugasemdum og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja uppfærða tillögu að aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2025-2040. Fulltrúi Miðflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.
Fulltrúi Miðflokksins bókar: Forsendur aðalskipulagsins byggir á framkvæmdum samgöngusáttmálans og Borgarlínu, þótt samgöngusáttmálinn sé ekki fullfjármagnaður og óvissa ríki um framvindu hans. Ekki liggur fyrir mat á áhrifum fyrirhugaðrar uppbyggingar ef Borgarlínan og aðrar lykilframkvæmdir tefjast eða koma ekki til framkvæmda. Fulltrúi Miðflokksins telur mikilvægt að það liggi fyrir áður en aðalskipulag er samþykkt.
Meirihluti skipulags- og byggingarráðs bókar: Aðalskipulag Hafnarfjarðar er áætlun og framíðarsýn bæjarins í skipulags- og byggingarmálum til ársins 2040. Þar er fjallað m.a. um uppbyggingu íbúðar-, atvinnu- og iðnaðarhúsnæðis ásamt samgöngumálum ofl. Aðalskipulagið byggir þannig á margvíslegum áætlunum s.s. um fjölgun íbúa ofl. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum sem aðalskipulagið byggir á þá er Borgarlína á áætlun og ekki ástæða til að gera mat um annað.

Orri Björnsson tekur til máls og tekur fram að málið sé lagt hér fram og bæjarfulltrúar fái gott svigrúm til að kynna sér málið áður en það verður endanlega afgreitt.

Einar Geir Þorsteinsson tekur til máls.

Einar Geir kemur að svohljóðandi bókun:

Fulltrúi Miðflokksins telur að ótrygg fjármögnun samgöngusáttmálans og boðuð lækkun ríkisframlaga gefi tilefni til endurmats á samgönguforsendum aðalskipulagsins. Ekki sé forsvaranlegt að byggja aðalskipulag Hafnarfjarðarbæjar áfram á áætlaðri uppbyggingu Borgarlínu án þess að bregðast við þeirri stöðu. Hafnarfjarðarbær getur haft frumkvæði að því að virkja endurskoðunarákvæði sáttmálans og beita sér fyrir breyttri forgangsröðun framkvæmda sem miði að því að bæta samgöngur bæjarbúa sem fyrst.
Karólína Helga Símonardóttir tekur til máls.

Árni Rúnar Árnason tekur til máls.

Valdimar Víðisson tekur til máls.

Einar Geir Þorsteinsson tekur til máls. Til andsvars kemur Árni Rúnar Þorvaldsson. Einar Geir svarar andsvari. Árni Rúnar kemur að andsvari öðru sinni sem Einar Geir svarar. Kristín Thoroddsen kemur til andsvars. Einar Geir svarar andsvari. Kristín kemur að andsvari. Karólína Helga Símonardóttir kemur að andsvari.

Árni Rúnar Þorvaldsson tekur til máls.

Bæjarstjórn samþykkir með 10 atkvæðum fyrirliggjandi aðalskipulag. Fulltrúi Miðflokksins situr hjá.

Einar Geir kemur að svohljóðandi bókun:

Fulltrúi Miðflokksins telur aðalskipulag Hafnarfjarðarbæjar 2025?2040 ágætt að miklu leyti, en telur samgönguforsendur skipulagsins ekki nægilega traustar til endanlegrar samþykktar.

Samkvæmt greinargerðinni voru 85% ferða í Hafnarfirði farnar með bíl árið 2025. Við óbreyttar ferðavenjur gæti fyrirhuguð íbúafjölgun valdið því að það verði um 19?34 þúsund fjölgun á daglegum bílferðum í Hafnarfjarðarbæ við endadagsetningu aðalskipulagsins. Enn er óákveðið hvaða framtíðarlausn verður valin á Reykjanesbraut og gert er ráð fyrir að uppbyggingu Borgarlínu milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar ljúki árið 2034.

Áður en aðalskipulagið er samþykkt hefði þurft að skýra hvernig fyrirhuguð uppbygging verður samræmd samgöngubótum fram að þeim tíma og hvernig brugðist verði við töfum á lykilframkvæmdum eða hægari breytingum á ferðavenjum, en bæjaryfirvöld vonast til. Það þarf að tryggja að tekið sé fullnægjandi tillit til samgönguþarfa bæjarbúa í aðalskipulagi, þar á meðal þeirra sem reiða sig á einkabílinn. Vegna þessa situr Miðflokkurinn hjá við afgreiðslu aðalskipulagsins, þó Miðflokkurinn gæti samþykkt aðalskipulagið að öðru leyti.

Fundarhlé kl. 14:51. Fundi framhaldið kl. 15:08.

Karólína Helga kemur að svohljóðandi sameiginlegri bókun fyrir hönd Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar og Viðreisnar:

Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2025?2040 endurspeglar skýra framtíðarsýn um áframhaldandi uppbyggingu Hafnarfjarðar, um leið og tekið er tillit til sjónarmiða íbúa, umhverfis, innviða og lífsgæða. Vinna við aðalskipulag Hafnarfjarðar hófst snemma á síðasta kjörtímabili og öll sú vinna var að langmestu leyti unnin í þverpólitískri og góðri samvinnu allra kjörinna fulltrúa í bæjarstjórn og skipulags- og byggingaráði.

Með nýju aðalskipulagi telja fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar, Samfylkingar og Framsóknar að lagður sé mikilvægur grunnur að áframhaldandi þróun Hafnarfjarðar sem öflugs, fjölbreytts og eftirsóknarverðs samfélags. Skipulagið tekur á stórum viðfangsefnum næstu ára meðal annars íbúðaþörf og byggðaþróun, samgöngum og innviðum, atvinnuuppbyggingu, grænum og opnum svæðum, verndarsvæðum, Krýsuvík og náttúruvá.

Lögð verður áhersla á að vöxtur Hafnarfjarðar verði ábyrgur og að gæði byggðar verði ávallt höfð að leiðarljósi. Fjölgun íbúða og þétting byggðar má ekki verða markmið í sjálfu sér heldur þarf uppbygging að styðja við lífsgæði íbúa, fjölbreytt húsnæði, öfluga nærþjónustu, góð almenningsrými, græn svæði og öruggar samgöngur. Umhverfismat skipulagsins undirstrikar jafnframt mikilvægi þess að þétting byggðar gangi ekki á gæði byggðar og lífsgæði íbúa.

Sérstaklega þarf að tryggja að innviðir fylgi uppbyggingu. Skólar, leikskólar, samgöngur, veitukerfi, íþrótta- og frístundaaðstaða og önnur þjónusta þarf að þróast í takt við fjölgun íbúa. Þetta á ekki síst við um stór umbreytingarsvæði á borð við Hraun vestur þar sem gert er ráð fyrir umfangsmikilli blandaðri byggð og verulegri fjölgun íbúða.

Jafnframt er lögð rík áhersla á að sérkenni Hafnarfjarðar verði varðveitt. Náttúran, hraunin, strandlengjan, upplandið, miðbærinn, höfnin og saga bæjarins eru mikilvægur hluti af sjálfsmynd Hafnarfjarðar og þurfa að fá að njóta sín samhliða áframhaldandi vexti og uppbyggingu. Samráð við íbúa og hagaðila þarf áfram að vera raunverulegur hluti skipulagsvinnu enda sýnir ferlið við gerð þessa aðalskipulags að ábendingar og athugasemdir geta leitt til efnislegra breytinga á tillögum.

Aðalskipulagið er mikilvægt stefnumótandi skref en gæði þess munu að lokum ráðast af því hvernig stefnunni verður fylgt eftir í deiliskipulagi, fjárfestingum og einstökum ákvörðunum næstu ára.


Aðalskipulag_HAF-2040-greinargerð.pdf
Slóð á skipulagsgátt.pdf
2. 2606576 - Þjónustusamningur um starfsendurhæfingu
3.liður úr fundargerð fjölskylduráðs frá 29.september sl.
Samningur við Stendur starfsendurhæfingu lagður fram til afgreiðslu.

Fjölskylduráð samþykkir fyrirliggjandi samning við Stendur starfsendurhæfingu og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.
Árni Rúnar Þorvaldsson tekur til máls.

Valdimar Víðisson tekur til máls.

Samþykkt samhljóða.

Valdimar kemur að svohljóðandi bókun:

Fulltrúar Framsóknar koma að svohljóðandi bókun:

Framsókn styður samstarf Hafnarfjarðarbæjar og Stendur starfsendurhæfingar heilshugar. Framsókn hefur frá upphafi lagt áherslu á mikilvægi öflugrar starfsendurhæfingar og stutt við þetta samstarf enda hefur það staðið um árabil og skilað mikilvægum árangri fyrir einstaklinga og samfélagið.

Starfsendurhæfing snýst um að styðja fólk aftur til virkni, náms og atvinnu með heildstæðri, faglegri og einstaklingsmiðaðri þjónustu. Slík þjónusta getur haft afgerandi áhrif á líf einstaklinga og fjölskyldna þeirra og styrkir um leið samfélagið í heild.
Með þeim samningi sem hér liggur fyrir er samstarfið formfest með skýrari hætti og lögð áhersla á heildræna og þverfaglega þjónustu, reglulegt samráð og markvissa eftirfylgd.

Framsókn hefur stutt þessa starfsemi og þetta samstarf og gerir það áfram. Við teljum mikilvægt að Hafnarfjarðarbær haldi áfram að standa þétt við bakið á starfsendurhæfingu sem gefur fólki raunverulegt tækifæri til að ná aftur fótfestu og taka virkan þátt í samfélaginu.
Stendur og Hafnarfjarðarbær - samningur 29.9.2026.pdf
Stendur - samstarfssamningur - greinargerð 29.9.2026.pdf
Drög að samningi milli þjónustuaðila og meðferðar- eða endurhæfingaraðila - sniðmát.pdf
3. 2502769 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2026 og 2027-2029
3. liður úr fundargerð bæjarráðs frá 1.október sl.
Lagður fram viðauki
1.liður úr fundargerð hafnarstjórnar frá 23. september sl.
2507355 - Fjárhagsrammi 2026
Lögð fram tillaga að viðaukum við fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarhafnar fyrir árið 2026.

Hafnarstjórn samþykkir fyrir liggjandi tillögu að viðauka við fjárhagsáætlun 2026 og vísar til afgreiðslu í bæjarráði.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi viðauka og vísar til bæjarstjórnar til staðfestingar.
Viktor Pétur Finnsson tekur til máls.

Samþykkt samhljóða.
Viðauki 5 við fjárhagsáætlun 2026 til bæjarráðs - Öll skjölin - Uppfært.pdf
4. 2609215 - Þróun og úthlutun lóðar fyrir tímabundna búsetu, samkomulag
Tekið fyrir að beiðni fulltrúa Miðflokksins.
Til umræðu
Einar Geir Þorsteinsson tekur til máls. Karólína Helga Símonardóttir kemur til andsvars. Einar Geir svarar andsvari. Karólína Helga kemur til andsvars öðru sinni sem Einar Geir svarar. Karólína Helga kemur að örstuttri athugasemd.

Næst kemur Árni Rúnar Þorvaldsson til andsvars við ræðu Einars Geirs.

Valdimar Víðisson tekur til máls. Karólína Helga kemur að andsvari. Einar Geir kemur að andsvari. Valdimar svarar andvari.

Valdimar Víðisson kemur að svohljóðandi bókun:

Fulltrúar Framsóknar koma að svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Framsóknar leggja ríka áherslu á að samráð við íbúa vegna þessa verkefnis verði virkt, raunverulegt og hafi áhrif á áframhaldandi vinnu. Hér er um stórt og umfangsmikið verkefni að ræða sem getur haft áhrif á nærumhverfi, innviði og þróun svæðisins til framtíðar. Það er því bæði eðlilegt og mikilvægt að íbúar hafi spurningar, ábendingar og sjónarmið sem tekið verði alvarlega.
Við fögnum því að boðað hafi verið til íbúafundar 13. október. Sá fundur þarf þó að vera hluti af skýru samráðsferli en ekki aðeins kynning á verkefninu. Mikilvægt er að fram komi með skýrum hætti hvað tekur við að fundinum loknum, hvernig þeim spurningum sem þegar hafa verið lagðar fram verður svarað og hvernig sjónarmið íbúa verða tekin inn í áframhaldandi vinnu og ákvarðanatöku.
Samráð felst ekki eingöngu í því að kynna fyrirhugaðar framkvæmdir og gefa fólki kost á að tjá sig. Virkt samráð felur einnig í sér að hlustað sé, brugðist við ábendingum og leitað leiða í samvinnu við íbúa þegar tilefni er til.
Fulltrúar Framsóknar telja grunnhugmyndafræði verkefnisins jákvæða. Mikilvægt er að fólk sem kemur hingað til tímabundinna starfa hafi aðgang að öruggu, góðu og mannsæmandi húsnæði og eðlilegt að sveitarfélagið leiti leiða til að stuðla að því.
Við teljum að best verði staðið að slíku verkefni þegar markmið þess og útfærsla eru unnin í traustu og opnu samtali við samfélagið. Því skiptir miklu að niðurstöður íbúafundarins og þau sjónarmið sem þar koma fram fái raunverulegt vægi áður en næstu ákvarðanir verða teknar.

Einar Geir kemur að svohljóðandi bókun:

Umræðan verður ekki skilin öðruvísi en að fulltrúar meirihlutaflokkanna lýsi yfir stuðningi við fyrirhugaða uppbyggingu við Krýsuvíkurveg. Fulltrúi Miðflokksins telur mikilvægt að sú afstaða verði kynnt skýrt á íbúafundinum ásamt því hvaða atriði meirihlutinn sé reiðubúinn að endurskoða í ljósi athugasemda íbúa. Miðflokkurinn leggst gegn verkefninu á grundvelli fyrirliggjandi samkomulags.

20260915_Samkomulag milli Hafnarfjarðarbæjar og Styrkás_DRÖG_hreint.pdf
2606 - Frumdrog 5.pdf
Fundargerðir
5. 2601097 - Fundargerðir 2026, til kynningar í bæjarstjórn
Fundargerð fræðsluráðs frá 30.september sl.
Fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 30.september sl.
a. Fundargerðir stjórnar Sorpu bs. frá 24.ágúst og 11. september sl.
b. Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 9.september sl.
Fundargerð fjölskylduráðs frá 29.september sl.
Fundargerðir bæjarráðs frá 1. og 2. október sl.
a. Fundargerðir hafnarstjórnar frá 8. og 23. september sl.
b. Fundargerðir menningar- og ferðamálanefndar frá 9. og 23. september sl.
c. Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 11. september sl.
d. Fundargerð stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 21. ágúst sl.
e. Fundargerð stjórnar SSH frá 21. september sl.
Fundargerð forsetanefndar frá 5.október sl.
Kolbrún Magnúsdóttir tekur til máls undir 4 lið í fundargerð fræðsluráðs frá 30. september sl. þar sem fjallað var innleiðingu á farsælkd barna. Kristín Thoroddsen kemur til andsvars. Einnig Elín Anna Baldursdóttir. Valdimar Víðisson kemur að andsvari.

Elín Anna Baldursdóttir tekur til máls undir sama máli og Kolbrún einnig lið 2 í fundargerð bæjarráðs frá 2. október sl. þar sem fjallað var um gjaldskrá leikskóla.

Guðbjörg Oddný Jónasdóttir tekur til máls undir fundargerðum menningar- og ferðamálanefndar frá 9. og 23. september sl. þar sem fjallað var um málefni Jólaþorpsins.

Árni Rúnar Þorvaldsson tekur til máls undir fundargerð bæjarráðs frá 1. október sl. liðum 2, 10 og 11 þar sem fjallað var um fjárhagsmálefni sveitarfélagsins.

Einar Geir Þorsteinsson tekur til máls undir lið fundargerð bæjarráðs frá 1. og 2. október sl.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:19 

Til bakaPrenta