Til bakaPrenta
Skipulags- og byggingarráð - 857

Haldinn í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6,
11.11.2026 og hófst hann kl. 14:00
Fundinn sátu: Guðbjörg Oddný Jónasdóttir varaformaður,
Stefán Már Gunnlaugsson aðalmaður,
Stefán Már Víðisson aðalmaður,
Böðvar Ingi Guðbjartsson aðalmaður,
Sigurjón Ingvason varamaður,
Fundargerð ritaði: Anna María Elíasdóttir, skrifstofustjóri
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Axel R. Överby skipulags- og byggingarfulltrúi, Anna Margrét Tómasdóttir, Anne Steinbrenner, Berglind Guðmundsdóttir verkefnastjórar skipulags og Sigurður Haraldsson sviðsstjóri.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2610668 - Hvaleyrarbraut 22, breyting á deiliskipulagi
Guðmundur Gunnlaugsson f.h. Dverghamra ehf. sækir 27.10.2026 um breytingu á deiliskipulagi. Skipulagshöfundur mætir til fundarins og kynnir.
Skipulags- og byggingarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að auglýsa deiliskipulag Hvaleyrarbrautar 22.
26-1027 - Hvaleyrarbraut 22.pdf
Hvaleyrarbraut 22.pdf
2. 2611151 - Ferli skipulagsmála
Kynnt ferli skipulagsmála.
Skipulags- og byggingarráð þakkar kynninguna.
3. 2608419 - Græn svæði í nýjum hverfum
Lagt fram yfirlit yfir opin græn svæði í Áslandi, Völlum, Skarðshlíð og Hamranesi.
Skipulags- og byggingarráð þakkar samantektina.
Opin svæði yfirlit.pdf
4. 2604031 - Undirhlíðar breyting á deiliskipulag
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 9. september 2026 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Undirhlíðanámu við Leiðarendaveg en svæðið er skilgreint sem efnistökusvæði í aðalskipulagi Hafnarfjarðar. Tillagan var í kynningu 17.9-29.10.2026. Athugasemdir sem bárust á kynningartíma lagðar fram ásamt viðbrögðum bæjarins.
Skipulags- og byggingarráð tekur undir svör við athugasemdum og vísar breytingu á deiliskipulagi Undirhlíðanámu til staðfestingar í bæjarstjórn.
Slóð á skipulagsgátt.pdf
5. 1110006 - Vesturbær, endurgert og nýtt deiliskipulag
Tekin til umræðu akstursstefna í Merkurgötu.
Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og byggingarfulltrúa að boða eigendur fasteigna og íbúa við Merkurgötu til fundar vegna akstursstefnu í götunni.
6. 2601476 - Samgöngugreining á Hafnarsvæði
Tekið til umræðu.
Skipulags- og byggingarráð felur umhverfis- og skipulagssviði að taka saman sviðsmyndir út frá mismunandi uppbyggingarmöguleikum á svæðinu.
Fundargerðir
7. 2610027F - Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 958
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar.
https://hafnarfjordur.is/fundagerd/?meeting_id=H5uF9ARRyUe0OMqSnZAnnw1
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:39 

Til bakaPrenta