Til bakaPrenta
Umhverfis- og framkvæmdaráð - 487

Haldinn Fundarsalurinn Hamarinn, Norðurhellu 2 (1. hæð),
04.03.2026 og hófst hann kl. 08:30
Fundinn sátu: Guðbjörg Oddný Jónasdóttir formaður,
Árni Rúnar Árnason varaformaður,
Hildur Rós Guðbjargardóttir aðalmaður,
Fannar Freyr Guðmundsson aðalmaður,
Þórey Svanfríður Þórisdóttir áheyrnarfulltrúi,
Örn Geirsson aðalmaður,
Fundargerð ritaði: Anna María Elíasdóttir, skrifstofustjóri
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Helga Stefánsdóttir forstöðumaður, Sigurður Haraldsson sviðsstjóri og Guðmundur Elíasson umhverfis- og veitustjóri.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2508252 - Jólaþorpið 2025
Verkefnastjóri menningar- og ferðamála mætir til fundarins og fjallar um Jólaþorpið.
Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar fyrir skýrsluna og fagnar þeim glæsilega árangri og mikla gestafjölda sem Jólaþorpið dró að sér á aðventunni. Ráðið færir starfsmönnum bæjarins sérstakar þakkir og hrós fyrir þeirra mikilvæga framlag við undirbúning og framkvæmd. Metnaðarfull vinnubrögð við uppsetningu, viðhald og þrif tryggðu örugga og hátíðlega umgjörð sem er Hafnarfirði til sóma.
2. 2303964 - Ásvallalaug, útisvæði
Fulltrúar Batterísins mæta til fundarins og kynna verkefnið.
Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar kynninguna, fagnar að forhönnun 1 sé lokið í góðu notendasamráði og þakkar Batteríinu fyrir góða vinnu. Erindinu er vísað til skipulags- og byggingarráðs vegna breytinga á byggingarreit.
3. 0809028 - Miðbær, umhirða
Tekin til umræðu verkefni í miðbænum næstu misseri.
Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar kynninguna á metnaðarfullum tillögum að fegrun miðbæjarins á næstu misserum. Áform um endurnýjun trjágróðurs og auknar blómaskreytingar munu lyfta ásýnd bæjarins verulega og skapa enn fallegra umhverfi í hjarta Hafnarfjarðar. Það verður virkilega gaman að sjá þessar flottu hugmyndir verða að veruleika og fylgjast með miðbænum blómstra á komandi árum.
4. 2602450 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2027 og 2028-2030.
Lögð fram tíma- og verkáætlun fjárhagsáætlunar 2027.
Lagt fram.
5. 2403380 - Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2025 og 2026-2028
Kynnt rekstrarstaða 2025.
Lagt fram.
6. 2501521 - Krýsuvík, samningur um beitarhólf fyrir sauðfé úr Grindavík og Vogum
Lagt fram erindi Grindarvíkur um áframhaldandi rekstur beitarhólfs í landi Krýsuvíkur.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir framlengingu samnings um eitt ár með skilyrðum og óskar jafnframt eftir greinargerð í síðasta lagi í september 2026 frá Grindavík um næstu skref varðandi breytingar á beitarhólfinu í Krýsuvík.
Erindi frá Grindavíkurbæ.pdf
7. 2602442 - Kapelluhraun 2, gatnagerð Gullhellu
Lögð fram beiðni um heimild til útboðs gatnagerðar Gullhellu í Kapelluhrauni 2.
Umhverfis- og framkvæmdaráð heimilar að farið verði í útboð vegna gatnagerðar í Gullhellu í Kapelluhrauni 2.
8. 2602441 - Hellnahraun 4, gatnagerð
Lögð fram beiðni um heimild til útboðs á gatnagerð í Hellnahrauni 4.
Umhverfis- og framkvæmdaráð heimilar að farið verði í útboð vegna gatnagerðar í Hellnahrauni 4.
9. 2512293 - Strætó, breyting á akstursþjónustu Strætó á iðnaðarsvæði
Frá og með 5. janúar var hafinn akstur hefðbundinna strætisvagna á álagstímum, þ.e. að morgni og síðdegis frá Ásvallalaug um iðnaðarhverfi Vallahverfis. Verkefnið var til reynslu til 01. apríl 2026.
Tekið til umræðu.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:11 

Til bakaPrenta